Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Page 2
2 Fréttir 18.–20. janúar 2013 Helgarblað
myglusveppur.is
∑Þurrktæki:Draga úr raka og minnka líkur á að myglusveppurinn vaxi.
∑Lofthreinsitæki:Hreinsa gró úr loftinu og minnka óæskileg
efni frá myglusveppum.
∑Rakastýrðar viftur: Fara sjálfar
í gang ef rakastig er of hátt.
íshúsið
566 6000 • www.ishusid.is
Fyrirbyggjandi aðgerðir gegn myglu
Myglusveppir
Kærður þrisvar
fyrir barnaníð
3 „Ég er búin að vera ofboðs
lega reið. Þetta er
rosaleg sorg, að það
sé einhver búinn
að brjóta á barninu
mínu svona,“ sagði
móðir stúlku í DV á
miðvikudag. Stúlk
an brotnaði saman í skólanum árið
2011, þá 14 ára, og greindi frá því að
hún hefði verið beitt kynferðisof
beldi þegar hún var gestkomandi í
sumarbústað nokkrum árum áður.
Maðurinn, sem er lögreglumaður,
var kærður og var þetta önnur kæran
sem hann fékk á sig fyrir sams konar
brot. Hann hefur nú fengið á sig þrjár
kærur, allar fyrir kynferðisbrot gagn
vart stúlkum undir 18 ára aldri.
Langur brotaferill
2 Stefán Logi Sívarsson,
sem á föstudag í
síðustu viku var
dæmdur í fimm
ára fangelsi fyrir
að hafa nauðgað
tæplega nítján ára
stúlku, á langan
afbrotaferil að baki. Hann hafði
ásamt öðrum manni þvingað stúlk
una til samfara og munnmaka.
Stefán og bróðir hans, Kristján
Markús, voru kallaðir Skeljagranda
bræður í umfjöllun fjölmiðla en
viðurnefnið er skírskotun til þess
að þeir misþyrmdu manni á heimili
sínu á Skeljagranda. Lögregla hafði
fyrst afskipti af þeim árið 1992 en
þá voru þeir 11 og 12 ára. Var það
vegna þess að bræðurnir höfðu ráð
ist á unga móður.
Hreiðari stefnt
1 Hreiðar Már Sigurðsson,
fyrrverandi for
stjóri Kaupþings,
lét færa 120 millj
óna skuld sína hjá
Sparisjóði Reykja
víkur og nágrenn
is inn í einkahluta
félag systur sinnar í seinni hluta
september 2008. DV greindi frá
þessu á miðvikudag. Lánið hafði
verið veitt til kaupa á hlutabréf
um í Kaupþingi og var Hreið
ar Már skráður persónulega fyrir
láninu og hlutabréfunum. Með
gjörningnum losnaði Hreiðar Már
við skuldina. Þrotabú Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis, sem
stýrt er af félaginu Dróma, hefur
stefnt Hreiðari Má út af málinu.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
Endurgreiða styrkina
með tekjum flokksins
n Veðsetning Valhallar eftir hrunið 2008 n 18 milljónir endurgreiddar
„Almennar
rekstrar tekjur
flokksins eru nýttar til
endurgreiðslu styrkjanna.
J
ónmundur Guðmarsson, fram
kvæmdastjóri Sjálfstæðis
flokksins, segir að langtíma
lán sem flokkurinn hefur tekið
tengist ekki endurgreiðslu á
styrkjunum sem Sjálfstæðisflokk
urinn fékk frá FL Group og Lands
bankanum árið 2006 heldur séu þeir
endurgreiddir með rekstrar tekjum
flokksins. „Umrætt langtímalán
tengist á engan hátt endurgreiðslu
styrkjanna. Almennar rekstrartekjur
flokksins eru nýttar til endurgreiðslu
styrkjanna,“ segir Jónmundur í svari
í tölvupósti við fyrirspurn DV um
málið.
Líkt og komið hefur fram hef
ur Jónmundur veðsett höfuðstöðv
ar flokksins, Valhöll, upp á vel á
annað hundruð milljónir króna eft
ir að hann tók við starfinu um sum
arið 2009. Þetta kemur fram á veð
bókarvottorði hússins sem stendur,
líkt og kunnugt er, við Háaleitisbraut
í austur hluta Reykjavíkur.
Valhöll er samt langt frá því að
vera veðsett upp í topp þar sem fast
eignamat hússins er rúmlega 365
milljónir og brunabótamatið er rúm
lega 558 milljónir króna. Húsið er
tæplega 280 fermetrar að stærð.
Þegar Jónmundur tók við fram
kvæmdastjórastarfinu af Andra
Óttarssyni, sem aftur hafði tekið
við því af Kjartani Gunnarssyni árið
2006, hvíldi einungis eitt 15 milljóna
króna tryggingabréf á Valhöll. Það er
frá árinu 1990 og hvílir enn á húsinu.
Eftir að Jónmundur tók við hafa tvö
bréf bæst við veðbandayfirlit hússins
og eru þau á öðrum og þriðja veð
rétti.
165 milljónir bætast við
Eftir að Jónmundur tók við starfi
framkvæmdastjóra hafa 165 millj
ónir bæst við veðbókarvottorðið
í tveimur aðskildum bréfum sem
hvíla á Valhöll. Annars vegar er um
að ræða tryggingarbréf upp á 40
milljónir sem fór á annan veðrétt
Valhallar í júlí 2010. Erfitt er að segja
til um eðli tryggingarbréfsins
Í byrjun árs 2011 bættist svo
við hefðbundið skuldabréf, með
vöxtum, upp á 125 milljónir króna
við veðbandayfirlitið. Sjálfstæðis
flokkurinn virðist því hafa tekið lán
út á húseignina á Háaleitisbraut og
tryggt það með veði í húsinu.
Jónmundur segir að Valhöll hafi
verið veðsett til að breyta skamm
tímaskuldum flokksins yfir í lang
tímaskuldir og þessi ákvörðun hafi
gefið góða raun: „Ástæðan fyrir því
að Valhöll var veðsett er einfaldlega
sú að það var á sínum tíma metið
bæði hagkvæmt og ábyrgt að breyta
skuldum fyrri ára í
langtímaskuldir
í stað skamm
tímaskulda
sem bera
háa vexti.
Þar með var
hægt að gera
upp við ýmsa
skuldunauta
og lækka fjár
magnskostnað
flokksins vegna
umræddra skuld
bindinga
verulega. Oftar en einu sinni hefur
verið greint frá þessari ráðstöfun,
bæði opinberlega og á vettvangi
flokksins og hefur hún reynst mjög
farsæl fyrir flokkinn.“
Flokkurinn fjárþurfi
Sjálfstæðisflokkurinn, líkt og aðrir
stjórnmálaflokkar, þarf að fjármagna
starfsemi sína með einhverjum
hætti og hafa styrkir frá aðilum sem
eru hlynntir stefnu flokksins gegnt
stóru hlutverki í fjármögnun hans
í gegnum tíðina. Eftir hrunið hafa
stjórnmálaflokkar átt erfiðara um
vik að fjármagna sig með styrkjum og
hafa verið settari strangari reglur um
slíka fjármögnun þeirra eftir að ýmiss
konar hneykslismál tengd fjárstyrkj
um frá einkafyrirtækjum komu upp.
Líkt og Bjarni Benedikts
son, formaður Sjálf
stæðisflokksins,
greindi frá
um sum
arið 2009
ákvað
flokkurinn
að endur
greiða
styrkina
til Lands
bankans
og FL
Group.
Flokkurinn þarf að fjármagna endur
greiðsluna með einhverjum hætti og
eru rekstrartekjur flokksins notað
ar til þess, líkt og fram kemur í máli
Jónmundar. Í yfirlýsingu sem Bjarni
sendi frá flokknum árið 2009 kom
fram að endurgreiða ætti styrkina
með jöfnum greiðslum næstu sjö
árin.
Jónmundur segir að nú þegar sé
búið að greiða 18 milljónir króna af
þeim 55 sem flokkurinn fékk í styrki.
frá FL Group og Landsbankanum.
„Ætlunin er að greiða umrædda
styrki til baka á án vaxta og veðbóta,
frá árinu 2009 að telja. Þegar hef
ur þriðjungur upphæðarinnar verið
greiddur, eða 18 mkr. af 55 mkr. og
síðast greitt vegna ársins 2012. Það
hefur verið allur gangur á því hvenær
árs greitt hefur verið og sá tíma
punktur miðast við fjárhagsstöðu
flokksins hverju sinni. Endurskoð
endur Sjálfstæðisflokksins hafa gert
Ríkisendurskoðun grein fyrir stöðu
málsins við gerð og skil ársreikninga
síðustu ár.“ n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Rekstrartekjur ekki lán
Jónmundur segir að styrkirnir
sem Sjálfstæðisflokkurinn
fékk frá FL Group og Lands-
bankanum séu endurgreiddir
með rekstrartekjum flokks-
ins en ekki lánum.
Valhöll HöfuðstöðvarSjálf-
stæðisflokksins eru metnar á
rúmar 360 milljónir króna.
Formanns-
slagurinn
hefst
Samfylkingin hefur í dag, föstudag,
stærstu rafrænu kosningu sem
farið hefur fram á vegum stjórn
málaflokks hér á landi þegar opnað
verður fyrir formannskjör á heima
síðu flokksins.
Félagar í flokknum geta í tíu
daga greitt atkvæði sitt á heima
síðunni en á kjörskrá eru rúm
lega átján þúsund manns. Kjöri
formanns verður lýst á landsfundi
Samfylkingarinnar í Valsheimilinu
Hlíðarenda laugardaginn 2. febrúar
næstkomandi.
Árni Páll Árnason og Guðbjartur
Hannesson gefa kost á sér til for
manns en sá sem hefur betur tekur
við af Jóhönnu Sigurðardóttur for
sætisráðherra sem ætlar að draga
sig í hlé frá stjórnmálum eftir kjör
tímabilið og hættir sem formaður.
Mistök á
Einkamál
„Birting myndarinnar eru því mis
tök, við játum það, en aldrei út
hugsuð markaðssetning,“ segir
í yfirlýsingu forsvarsmanna
stefnumótavefjarins Einkamál.is
vegna umfjöllunar DV um auglýs
ingu á vefnum.
Auglýsingin var fjarlægð eftir
að DV spurðist fyrir um málið en
umrædd auglýsing sýndi mynd af
táningsstúlku sem leit út fyrir að
vera undir lögaldri og þótti ekki
eiga erindi á stefnumótavef þar sem
aldurstakmark er 18 ár.
Einkamálamenn segja að
skipta hafi átt myndinni út en fyrir
misskilning hafi það aldrei verið
gert. „Fyrir misskilning var myndin
alltaf inni og henni aldrei skipt út.
Upphaflega hugmyndin var að
sýna venjulegan notanda í eðlileg
um aðstæðum eins og langflestar
myndir notenda eru, en ekki spila
á kynþokka með neinum hætti og
myndin þótti fanga það ágætlega.“