Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Síða 8
8 Fréttir 18.–20. janúar 2013 Helgarblað
S
kuldir Salt Investments,
eignarhaldsfélags Róberts
Wessmann fjárfestis og eins
af eigendum samheitalyf
jafyrirtækisins Alvogen,
lækkuðu um tæplega 15 milljarða
króna á milli áranna 2010 og 2011.
Þetta kemur fram í nýbirtum árs
reikningi félagsins sem áritaður var
af stjórn og endurskoðanda félags
ins þann 10. janúar 2013. Skulda
lækkuninn er bókfærð sem tekjur í
ársreikningi Salt og er það stærsta
ástæðan fyrir því að bókfærður
hagnaður félagsins árið 2011 nam
meira en 11,3 milljörðum króna.
Salt Investments er móður félag
nokkurra annarra eignarhalds
félaga í eigu Róberts, svo sem Salt
Properties og Salt Financials. Salt
Financials er meðal annars þekkt
vegna fjárfestingar félagsins í Glitni
árin 2007 og 2008. Glitnir fjár
magnaði hlutabréfakaupin. Félag
ið keypti meðal annars hlutabréf í
Glitni fyrir 5,7 milljarða króna þann
26. september 2008, nokkrum dög
um fyrir fall bankans, og var í kjöl
farið sjöundi stærsti hluthafi hans.
Félagið hafði fyrr á árinu, í janú
ar 2008, einnig keypt hlutabréf í
Glitni. Í ársreikningi Salt Financi
als fyrir árið 2009 kemur fram að
kaupverð bréfanna í Glitni hafi ver
ið tæplega 12,5 milljarðar króna.
15,5 milljarðar gjaldféllu 2009
Ástæða skuldalækkunarinnar er
fyrst og fremst að lánardrottnar fé
lagsins leystu til sín helstu eignir
félagsins upp í skuldir. Meðal
annars var um að ræða hlutabréf
félagsins í Latabæ sem og hluta
bréf í samheitalyfjafyrirtækinu
Actavis, sem Róbert stýrði á sínum
tíma. Rúmlega 15,5 milljarðar
króna af skuldum eignarhaldsfé
lagsins gjaldféllu árið 2009, sem er
nokkurn veginn sama upphæð og
skuldalækkunin árið 2011.
Bandaríska fjölmiðlafyrirtækið
Turner Broadcasting System
keypti Latabæ árið 2011, líkt og
komið hefur fram í fjölmiðlum, í
fjárhagslegri endurskipulagningu
þess félags. Kaupverðið var 2,7
milljarðar króna.
Eignir sagðar hafa
dugað fyrir skuldum
Í ársreikningi Salt Investments
segir að þær eignir sem lánar
drottnar félagsins tóku yfir nægi
fyrir skuldaniðurfærslunni sem
bókfærð er í ársreikningnum og
stjórnendur félagsins hafi ekki vit
neskju um neinar afskriftir vegna
þeirra. Með öðrum orðum: Að
ekkert hafi verið afskrifað í fjár
hagslegri endurskipulagningu Salt
Investments
Orðrétt segir um þetta í skýr
ingu í reikningnum: „ Tekjufærsla
vegna Glitnis Banka er vegna
fjögurra mála, Lazy Town, brúar
láns, Actavis og ábyrgð vegna Salt
Financials. Glitnir banki hf. fékk
öll bréf félagsins í Lazy Town eftir
endurskipulagningu þess félags og
er skuld félagsins við Glitni vegna
Lazy Town færð niður í samræmi
við það og er félaginu ekki kunn
ugt um eftirstöðvar á skuldinni eft
ir það uppgjör og hefur Glitnir ekki
innheimt neina slíka skuld eða til
kynnt um vanskil eftir það upp
gjör. Félagið lítur svo á að skuld
við Glitni vegna brúarláns og lána
samnings vegna viðbótarinn
greiðslu til Actavis sé að fullu upp
gerð með framsali heildar eignar
félagsins í Actavis Group hf. (í gegn
um Salt Generics) til Glitnis auk
þess sem krafa félagsins á hendur
Salt Generics (tengdum aðila) var
hluti af því framsali og krafa félags
ins á hendur Salt Generics því færð
niður í samræmi við það. Glitnir
hefur ekki lagt gögn fyrir félagið um
hvaða verðmæti bankinn fékk sem
endurgjald fyrir hlutinn en ætla má
að það endurgjald hafi verið hærra
en nam skuldinni. Sama á við
ábyrgð vegna Salt Financials sem
tryggð var með eignarhluta í Acta
vis Group. Málaferli við Glitni þar
sem m.a. er farið fram á að bankinn
sýni fram á hvaða verðmæti bank
inn fékk fyrir eignirnar munu vænt
anlega leysa úr því máli en rétt er
að taka fram að Glitnir banki hef
ur ekki stefnt félaginu til innheimtu
neinna útistandandi skulda.“
Framkvæmdastjóri Salt Invest
ments, Árni Harðarson, segir að um
hafi verið að ræða fullnaðaruppgjör
hjá félaginu árið 2011. Árni segir
að í uppgjörinu hafi vegið þyngst
eignarhluturinn í Actavis sem fé
lagið átti: „Lækkun á skuldum Salt
Investements er vegna uppgjörs
félagsins við lánadrottna. Skulda
uppgjörið fór fram með framsali
á eignum. Þar vegur þyngst eign
Salt Investments í Acta vis sem var
framseld til Glitni, en fyrrum hlut
hafar í Actavis hafa nú fengið greitt
fyrir hluti sína eftir yfirtöku Watson
á Actavis. Miðað við þær greiðslur
sem hluthafar í Actavis fengu við
kaup Watson á Actavis er um fulln
aðaruppgjör að ræða.“
Neikvætt eigið fé
upp á fimm milljarða
Staða Salt Investments eftir þessa
endurskipulagningu er á þá leið
að félagið er með neikvætt eigið fé
upp á meira en 5,5 milljarða króna.
Félagið á eignir upp á einungis 25
milljónir króna en skuldar meira
en 5,5 milljarða. Félagið fór frá
því að skulda meira en 20 millj
arða króna árið 2010 og niður í að
skulda rúma 5 árið 2011. Á sama
tíma lækkuðu eignir félagsins úr
rúmum fimm milljörðum króna og
niður í rúmlega 25 milljónir.n
„Glitnir hefur ekki
lagt gögn fyrir fé-
lagið um hvaða verðmæti
bankinn fékk sem endur-
gjald fyrir hlutinn en ætla
má að það endurgjald
hafi verið hærra en nam
skuldinni.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Tóku eignir félags
Róberts upp í skuldir
n Lánardrottnar Salt Investments leystu til sín eignir og skuldirnar minnkuðu
Eignalítið
Fjárfestingarfélag
Róberts Wessmann
er afar eignalítið
eftir fjárhagslega endur-
skipulagningu þess árið
2011.
Skemmdi
íbúðina
Héraðsdómur Reykjaness hef
ur dæmt 36 ára karlmann í
mánaðar fangelsi fyrir eigna
spjöll. Maðurinn var ákærður
af lögreglunni á Suðurnesjum
fyrir að skemma húsmuni í íbúð
sem hann leigði í Reykjanesbæ.
Í ákæru kemur fram að hann
hafi brotið hurðarkarm á úti
hurð, skemmt læsingu á svefn
herbergishurð, skemmt baðher
bergishurð, skemmt hurðarlista
á baðherbergi, blöndunartæki
við vask í baðherbergi og klæðn
ingu á tveimur skúffum í svefn
herberginu.
Leigusali íbúðarinnar krafðist
þess að fá greiddar bætur frá
manninum upp á tæpar 370 þús
und krónur. Skemmdarvargur
inn kom fyrir dóminn og játaði
sök. Hann samþykkti einnig
bótakröfu leigusalans. Þótti
dómara hæfileg refsing vera
einn mánuður í fangelsi en
fangelsisdómurinn er skilorðs
bundinn til tveggja ára.
Fékk gistingu
í hlýjum klefa
Lögreglan á höfuðborgarsvæð
inu fékk tilkynningu um úti
gangsmann sem lá kaldur og
hrakinn á bekk á Austurvelli
snemma á fimmtudag. Í tilkynn
ingu frá lögreglu kemur fram að
hann hafi reynst vera töluvert
ölvaður. Var maðurinn fluttur á
lögreglustöð þar sem hann fékk
gistingu í hlýjum klefa og var
honum gefin samloka að borða.
Þá var tilkynnt um innbrot
í þrjár rútubifreiðar á fimmtu
dagsmorgun. Mikið hafði verið
rótað í þeim og stolið svokölluð
um „frontum“ af útvarpstækjum
ásamt slökkvitækjum og sjúkra
dóti úr sjúkrakössum.
Selur stóran
hlut í Iceland
Árni Pétur Jónsson hefur eignast
51 prósents hlut í matvöruversl
uninni Iceland á Íslandi. Hlutinn
kaupir hann af Jóhannesi Jóns
syni sem mun halda eftir 12 pró
senta hlut í fyrirtækinu. Félag í
eigu Iceland Seafoods í Bretlandi
á 37 prósenta hlut í fyrirtækinu.
Í samtali við vefmiðilinn Vísi
á fimmtudag sagðist Jóhannes
vera að minnka við sig til að geta
einbeitt sér að fullu í baráttu
sinni við krabbamein. Greint
var frá því fyrir skemmstu að
það hefði tekið sig upp að nýju.
Jóhannes mun í kjölfarið láta af
störfum sem framkvæmdastjóri
félagsins en verður í staðinn
stjórnarformaður þess.