Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Blaðsíða 12
É
g var alveg lömuð yfir þessu.
Að hann hefði farið svona
víða, öll þessi börn. Ég átti ekki
von á þessu,“ segir Jóhanna
Agnarsdóttir, um fyrstu við
brögð sín við umfjöllun Kastljóss
um mál Karls Vignis Þorsteinssonar,
sem játað hefur að hafa beitt allt að
fimmtíu börn kynferðislegu ofbeldi.
Jóhanna dvaldi á vistheimilinu
Kumbaravogi lungann úr barnæsku
sinni og kynntist þar Ernu Agnars
dóttur og Maríu Haraldsdóttur sem
afhjúpuðu barnaníðinginn.
Þær hafa haldið vinskap alla tíð og
Jóhanna vissi að fóstursystur hennar
hefðu farið til fundar við Karl Vigni
árið 2009 þar sem hann játaði fyrir
þeim kynferðisbrot á fósturbræðrum
þeirra af Kumbaravogi.
Umfjöllun Kastljóssins fékk engu
að síður á Jóhönnu, en hún segir það
mikinn létti að búið sé að taka Karl
Vigni úr umferð, í bili að minnsta
kosti.
Kallaðir inn hver á fætur öðrum
Á Kumbaravogi fylgdist Jóhanna
með því hvernig fósturbræður henn
ar voru hver á fætur öðrum kallaðir
inn á skrifstofu Kristjáns Friðbergs
sonar forstöðumanns, sem Karl
Vignir hafði afnot af. Sjálf fór hún
ekki varhluta af ofbeldinu.
„Það gerðist þannig þeir voru
alltaf kallaðir inn einn og einn strák
arnir, þeir sóttu hvern annan. Ég var
alveg hryllilega forvitið barn, fylgd
ist með og þótti þetta æði undarlegt.“
Til að reyna að svala forvitni sinni
fór Jóhanna út til að kíkja á glugg
ana en gardínurnar voru dregnar
fyrir um hábjartan dag. Það var ekki
venja í öðrum herbergjum heimilis
ins. „Ekki þótti mér það minna skrýt
ið.“
Hún segist ekki hafa haft hugmynd
um það hvað drengirnir voru að gera
inni á skrifstofunni. „Það var bara ekki
í manns hugarheimi að karlmaður
væri að káfa á drengjum. Þetta var ekk
ert í umræðunni á þessum árum og
maður vissi ekkert um þetta.“
Öskraði á Karl Vigni
Loks kom að því að Jóhanna var
kölluð inn á skrifstofu til Karls
Vignis, þá 15 ára gömul. „Ég settist
í skrifborðsstól og það var sælgætis
kassi á borðinu. Hann fór svo aftur
fyrir mig og káfaði á brjóstunum á
mér.“ Jóhanna, sem alla tíð hefur
haft bein í nefinu, brást ókvæða við
óviðeigandi snertingum Karls Vign
is. „Ég stökk upp úr stólnum, öskr
aði á hann: hvað ertu að gera? hljóp
fram og náði í uppeldismóður mína
og sagði henni hvað hafði gerst.“
Í kjölfarið var honum úthýst af
Kumbaravogi, en aðeins í skamman
tíma. „Hann gekk þarna á brott eftir
afleggjaranum, en hann kom aftur.“
Jóhönnu minnir að það hafi verið
sumarið eftir þetta atvik, frekar en
sama sumar. „Ég man þegar ég kom
í helgarleyfi frá sumarvinnu á Sól
heimum í Grímsnesi og kallinn var
þarna þá hugsaði ég: helvítis perr
inn er kominn aftur. Mér fannst
stórskrýtið að maðurinn væri kom
inn þarna aftur.“
Ógurlegur feluleikur
Karl Vignir virðist ekki hafa búist við
viðbrögðunum sem Jóhanna sýndi
þegar hann káfaði á henni því það kom
mikið fát á hann, að hennar sögn, og
hann lét hana í friði eftir atvikið.
„Hann var ekki starfsmaður þarna
og gerði ekkert. Hann var bara gestur,
en gestur hvers veit ég ekki,“ segir
Jóhanna. Hún gat ekki séð að mikill
vinskapur væri á milli hans og for
stöðuhjónanna og hann átti í litlum
sem engum samskiptum við þau.
„Það var ógurlegur feluleikur þarna
í gangi,“ segir Jóhanna sem telur að
Karl Vignir hafi jafnvel greitt Kristjáni
fyrir að fá að heimsækja Kumbaravog.
Hann hafi að minnsta kosti haft ein
hverra hagsmuna að gæta. „Kristján
gerði ekkert nema að fá pening fyrir
það. Hann hefur ekki leyft honum að
koma þarna af því bara.“
„Mikil úrvinnsla“
Jóhanna var sautján ára þegar hún
losnaði af Kumbaravogi. Þrátt fyrir að
hafa að fótað sig vel í lífinu hefur tek
ið á fyrir hana að vinna úr erfiðri barn
æskunni. „Þetta hefur verið ofboðs
lega mikil úrvinnsla. Maður er í raun
enn að vinna úr þessu, það er eilífðar
verkefni,“ segir Jóhanna sem telur þó
að vistin á Kumbaravogi hafi gert hana
að sterkari einstaklingi.
Þá barðist Jóhanna í fjölda ára
fyrir því að fá arf greiddan eftir afa
sinn, Karl Johann Svendsen stofn
anda skipasmíðastöðvar í Neskaup
stað. En að sögn Jóhönnu fékk Krist
ján, forstöðumaður á Kumbaravogi,
föður hennar til að undirrita arfs
afsal. Kristján var fjárhaldsmaður
Jóhönnu og hafði því umsjón með
arfinum.
Hún stóð í málaferlum við for
stöðumanninn í fimm ár. Dæmt var
í málinu í Héraðsdómi Suðurlands
árið 2001 og í dómsorði sagði að
erfingjunum bæri sjálfum að sanna
hver hefði leyst út arfinn. Orð stóðu
gegn orði og Kristján var sýknaður
af kröfum erfingjanna. „Ég var bara
búin og treysti mér ekki ekki til að
fara með þetta fyrir Hæstarétt,“ segir
Jóhanna sem aldrei hefur séð krónu
af arfinum. n
„Helvítis perrinn
er kominn aftur“
„Hann fór svo
aftur fyrir
mig og káfaði á
brjóstunum á mér
n Karl Vignir beitti Jóhönnu kynferðisofbeldi á Kumbaravogi
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Varð fyrir ofbeldi Karl Vignir
beitti Jóhönnu ofbeldi á Kumb-
aravogi en það hvarflaði ekki að
henni að hann hefði farið svona víða.
Í haldi Karl Vignir var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir umfjöllun Kastljóss.
M
y
n
d
p
r
essp
h
o
to
s
.b
iz
12 Fréttir 18.–20. janúar 2013 helgarblað
snjódagurinn á Ísafirði:
Farðu frítt
á skíði
Á sunnudag verður alþjóðlegur
snjódagur haldinn hátíðlegur víða
um veröld, meðal annars á Ísa
firði. Frítt verður á svæðið og 25
prósenta afsláttur á skíðaleigu.
Þjálfarar og æfingalið skíðafélags
ins ætla að bjóða þeim sem eru
að stíga sín fyrstu skref ókeypis
aðstoð. Þetta kemur fram í til
kynningu frá Ísafjarðarbæ en þar
kemur fram að brekkur við allra
hæfi verði í boði. Tvær svokallað
ar hólabrautir verða gerðar, ein í
barnabrekku og önnur í kerlinga
brekku. Þá ætlar Skíðafélagið á
Ísafirði að setja upp svigbraut sem
verður öllum opin og þá getur
brettafólk farið á stóran bretta
pall og leikið listir sínar á sérstöku
brettasvæði. Boðið verður upp á
kaffi, kakó, kex og kleinur, tónlist
verður spiluð og sérstök sleða
braut útbúin í barnabrekku fyrir
þá sem ætla ekki að fara á skíði.
Landspítalinn
fékk góða gjöf
Landspítala hefur borist veg
leg gjöf frá Ólöfu Októsdóttur
til kaupa á berkjuómspeglunar
tæki. Ólöf greindist með út
breiddan sarklíkissjúkdóm árið
2007 og hefur náð góðum bata
með meðferð.
Á vef Landspítala kemur fram
að berkjuómspeglunartækið
nýtist vel til rannsókna á sjúk
lingum með sjúkdóma í brjóst
holi eins og lungnakrabbameini
og sarklíki. Um er að ræða tæki
sem ekki hefur verið til á Íslandi
en með því er mögulegt að gera
ómspeglun í gegnum öndunar
veginn. Rannsóknin er gerð
þannig að tækinu er rennt nið
ur í barka sjúklings í gegnum
munn og með hjálp ómtækni er
hægt að staðsetja og taka sýni úr
eitlum og öðrum fyrirferðum í
brjóstholi til frekari rannsókna
og greiningar.
Rannsóknir á eitlum í brjóst
holi eru algengar á sjúklingum
sem greinast með lungna
krabbamein og aðra sjúkdóma
í miðmætiseitlum. Þær eru
nauðsynlegar til að meta út
breiðslu meinsins og til að
ákveða bestu mögulegu með
ferð. Til þessa hefur þurft að
framkvæma litla skurðaðgerð til
að nálgast þessa eitla en þessi
nýja rannsóknaraðferð mun
draga úr þörf á slíkum aðgerð
um með minna inngripi fyrir
sjúklinga.
Tækið var formlega afhent
spítalanum 15. janúar í viður
vist Ólafar þar sem kom fram
að hún vildi á þennan hátt sýna
þakklæti fyrir góða þjónustu
hjá Landspítala. Forráðamenn
sjúkrahússins færðu henni
þakkir fyrir þennan mikilvæga
stuðning.