Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Side 20
20 Erlent 18.–20. janúar 2013 Helgarblað
Baðst afsökunar á blóðbaðinu
n Bæjarstjóri Corleone á Sikiley biðlaði til mafíunnar um að gefast upp
B
æjarstjóri smábæjarins Cor
leone á Sikiley á Ítalíu hefur
beðist afsökunar á morð
um, skotárásum og kúgunum
sem framkvæmdar voru af mafíu
foringjum í bænum fyrir margt löngu.
Þetta gerði bæjarstjórinn, Leoluchina
Savona, í tilefni þess að í vikunni voru
tuttugu ár liðin frá handtöku mafíu
foringjans Toto Riina, sem kallaður
var Skepnan vegna miskunnarleysis
síns, en Riina fæddist í bænum.
Savona bað fórnarlömb mafí
unnar afsökunar fyrir hönd bæjar
búa en mafían framdi ófá ódæðin á
seinni hluta 20. aldar. Nafnið Corle
one hringir væntanlega bjöllum hjá
mörgum enda voru Godfathermynd
irnar, með þeim Marlon Brando og
Al Pacino í aðalhlutverkum, byggðar
að hluta til á mafíuforingjunum sem
slitu barnsskónum í Corleone.
„Ég biðst afsökunar í nafni allra
íbúa Corleone. Ég bið um fyrirgefn
ingu fyrir blóðbaðið,“ sagði bæjar
stjórinn á hátíð sem haldin var í
bænum á mánudag. „Ég bið mafíuna
um að hætta öllum átökum, viður
kenna ósigur og gefast upp,“ sagði
Savona. Riina er talinn bera ábyrgð
á fjölmörgum ódæðum sem framin
voru á níunda og tíunda áratugnum
en meðal þeirra sem féllu fyrir hendi
hans má nefna saksóknarana Paolo
Borsellino og Giovanni Falcone sem
létust í sprengjuárás árið 1992. Riina
var dæmdur í margfalt lífstíðarfang
elsi og sakfelldur fyrir fjölda morða.
Faðir og synir
hans urðu úti
Hörmulegur atburður átti sér
stað í Missouri í Bandaríkjun
um um liðna helgi þegar David
Decareaux, 36 ára, og tveir syn
ir hans, átta og tíu ára, frusu í hel
í gönguferð á afskekktu svæði í
ríkinu. Feðgarnir voru í helgar
ferð og höfðu tekið á leigu bústað.
Snemma á laugardag lögðu þeir af
stað í gönguferð en þegar gangan
hófst var um 15 stiga hiti úti. En
skjótt skipast veður í lofti og þegar
feðgarnir höfðu gengið í dágóða
stund versnaði veðrið snögglega
og fór hitinn niður fyrir frost
mark. Leitarflokkur var kallaður út
á sunnudag og fundust feðgarn
ir eftir stutta leit. Faðirinn var úr
skurðaður látinn á staðnum en
synir hans létust á sjúkrahúsi eftir
stutta dvöl. Að sögn lögreglu kom
vegfarandi auga á þá á laugardag
og spurði hvort þeir vildu fá far
til baka. Faðirinn hafði afþakkað
boðið.
Gullið á
heimleið
Seðlabanki Þýskalands ætlar að
flytja gullbirgðir sínar sem eru í
geymslu í New York og París aft
ur í hvelfingu bankans á næstu
árum. Um er að ræða tæplega
700 tonn, en gullið var flutt úr
landi í varúðarskyni á sínum
tíma þegar Þjóðverjar óttuðust
innrás Sovétríkjanna. Þrátt fyrir
það er algengt að seðlabankar
geymi hluta gullbirgða sinna
erlendis – þannig má kaupa er
lendan gjaldeyri með skömm
um fyrirvara. Þýski seðlabank
inn mun fyrir árið 2020 ekki eiga
neinar gullbirgðir í París þar sem
bæði Þýskaland og Frakkland
notast við evruna. Hluti birgð
anna verður þó áfram geymdur
í New York og í London þar sem
13 prósent af forðanum eru
geymd.
Ætla að drepa
útsendarann
Hryðjuverkasamtökin Al
Shabab í Sómalíu segjast ætla
að drepa franska útsendarann
Denis Allex í hefndarskyni fyr
ir misheppnaða björgunarað
gerð franska hersins á föstudag
í síðustu viku. Um 50 franskir
hermenn ruddust inn í höfuð
stöðvar samtakanna í Bulo Mar
er í Sómalíu þar sem talið var að
Allex væri í haldi. Björgunarað
gerðin misheppnaðist og féllu
tveir franskir hermenn í henni.
Frönsk yfirvöld telja að Allex
hafi nú þegar verið líflátinn en
því neita samtökin. Þau segja
hins vegar að Allex verði tekinn
af lífi á næstunni og Frakkar
muni bera ábyrgð á dauða hans.
Corleone Bæjarstjórinn baðst afsökunar
fyrir hönd bæjarbúa á blóðbaði mafíunnar
á undanförnum árum. Mynd ReuteRS
M
yndin hér til hliðar var tek
in örfáum sekúndum áður
en nashyrningur réðst á
stúlkuna á myndinni aft
an frá og stakk hana á hol
með horni sínu.
Chantal Bayer, 24 ára bresk stúlka,
var stödd í suðurafrískum þjóðgarði
ásamt kærasta sínum og nokkrum
vinum þegar þau sáu þessa nashyrn
inga skammt frá bílnum. Þau ákváðu
að stoppa og taka myndir af þessum
tignarlegu en varasömu dýrum, með
ófyrirséðum afleiðingum.
Sökin hjá leiðsögumanninum?
Með fólkinu í för var þaulreyndur
leiðsögumaður sem, samkvæmt
fréttaflutningi vefútgáfu Daily Mail,
átti nokkurn hlut að máli í því sem
gerðist. Alex Richter er sagður hafa
hvatt fólkið til að fara út úr jeppan
um og láta mynda sig með villtum
dýrunum. Hann lokkaði dýrin nær
með því að gefa þeim mat.
Ekki nóg með það heldur er Alex
þessi Richter vændur, í suðurafrísk
um fjölmiðlum um að hafa hvatt
parið, sem sést á myndinni, til að
færa sig nær nashyrningunum. Það
gerði hann að sögn til að reyna að
ná betri myndum af þeim. Babb
kom hins vegar í bátinn því örfáum
augnablikum síðar kom nashyrn
ingurinn á fullri ferð aftan að Bayer
og rak í hana flugbeitt hornið.
Nashyrningar eru afar eftirsótt
dýr, í tvennum skilningi. Þeir eru
mjög vinsælir á meðal ferðamanna,
sem líklega er af hinu góða, en
einnig hjá veiðiþjófum, sem er öllu
verra. Fyrir vikið eiga nashyrningar
undir högg sækja í álfunni. Í Suð
urAfríku hafa á bilinu fjögur til sex
hundruð dýr verið drepin árlega, í
það minnsta, síðustu tvö ár.
Brotin rifbein og samfallið
lunga
Eins og sjá má á myndinni báru mat
argjafir leiðsögumannsins þann ár
angur að villtir nashyrningarnir
stóðu aðeins fáeinum metrum frá
bílnum. Nashyrningar geta vegið allt
að tveimur tonnum og þeir stærstu
eru 180 sentímetrar á hæð. Í Suður
Afríku er að finna um 80 prósent allra
nashyrninga í heiminum, eða um 20
þúsund dýr.
Nashyrningurinn sem réðst á
stúlkuna rak horn sitt í ofanvert bak
hennar með þeim afleiðingum að
lunga féll saman og rifbein brotnuðu.
Stúlkan, sem stundar nám í Jóhann
esarborg í SuðurAfríku berst nú fyrir
lífi sínu á gjörgæsludeild Krugers
dorpsjúkrahússins í borginni.
Ástand hennar er sagt stöðugt.
treystu herra Richter
Frændi stúlkunnar og talsmað
ur fjölskyldunnar í málinu, Thom
Peeters, sagði við suðurafríska blað
ið Beeld að öllum væri vitaskuld
brugðið. „Það voru nokkur ung
menni í bílnum og þau töldu sig lík
lega geta treyst herra Richter, sem er
fullorðinn.“
Talsmenn Aloe Ridge Hotel and
Nature Reserve, sem stóðu fyrir
ferðinni, hafa ekki viljað tjá sig um
málið, að því er hermir í Daily Mail.
Í auglýsingu á vefsíðu fyrirtækisins
kemur fram að nashyrningar séu
á meðal þeirra dýra sem gestir geti
vænst þess að sjá í návígi. Þar er
sannarlega engu logið.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Það voru nokkur
ungmenni í bílnum
og þau töldu sig líklega
geta treyst herra Richter,
sem er fullorðinn.
AugnAblikið
fyrir árásinA
n Var stungin á hol af nashyrningi n Fylgdi fyrirmælum leiðsögumanns
Á meðal allt lék í lyndi Stúlkan á myndinni átti sér einskis ills von.
Hornin talin hafa lækningarmátt
Horn nashyrninga eru söguð af dýrunum
dauðum og mulin í duft. Duftinu er síðan
smyglað til Asíu, þar sem markaður er fyrir
það. Eftirspurnin er gífurleg og hornin eru
nálægt því að vera þyngdar sinnar virði í
gulli.
Auðjöfrar í Asíu trúa því margir að duft af
hornum nashyrninga hafi lækningarmátt.
Konan á myndinni, sem Brent Stirton tók
og var verðlaunaður fyrir, er frá Víetnam og
sést merja niður nashyrningshorn. Þegar
hornið er orðið að dufti er því blandað út
í vatn til drykkjar (sjá flöskur á borðinu).
Guardian sagði sögu þessarar konu í fyrra
en þetta gerir hún því hún trúir því að
drykkurinn muni losa hana við nýrna-
steina. Hún keypti hornið á nokkur þúsund
Bandaríkjadali en ekki er vitað til þess að
hornin hafi neinn sérstakan lækningar-
mátt. Nashyrningurinn sem átti þetta horn
var drepinn.