Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Blaðsíða 22
Fjórum sinnum bestur Argentínski
snillingurinn Lionel Messi var nýverið útnefndur besti
leikmaður í heimi fjórða árið í röð og hefur með því
afrekað það sem engum hefur áður tekist. Hann hefur,
ólíkt mörgum öðrum minni spámönnum, ekki látið
frægðina og auðinn stíga sér til höfuðs. Í vikunni var þó
haldin sýningarathöfn á Camp Nou, þessum smávaxna
galdramanni til heiðurs.
Voðaverk á hverjum degi Óöldin í Sýrlandi hefur kostað mörg saklaus
mannslíf. Almennir borgarar og uppreisnarmenn ganga víða vopnaðir um stræti. Á myndinni
má sjá ungan dreng, sem ber vopn sem hann hefur örugglega ekki þroska til að bera. Í
vikunni féllu tvær sprengjur á háskólasvæði í borginni Aleppo. Þar féllu 82, í það minnsta.
Tvöfalt fleiri eru særðir. Enginn hefur viðurkennt ábyrgð.
Blautt í Djakarta Mikil flóð hrjá íbúa Djakarta, höfuðborgar Indónesíu. Götur
borgarinnar hafa margar hverjar verið ófærar vegna vatnselgs undanfarna daga en rignt hefur
eins og hellt sé úr fötu. Atvinnulífið er að hluta lamað og þúsundir íbúa hafast við í neyðarskýlum.
22 Myndir vikunnar 18.–20. janúar 2013 Helgarblað
Fimmtán drepnir í Pakistan Ættingjar látinna mótmælenda syrgja ástvini sína í Pakistan. Öryggissveitir eru sagðar hafa handtekið og drepið fimmt-
án manns sem mótmæltu fyrir utan stjórnarskrifstofur í borginni Peshawar á miðvikudag. Mótmælin höfðu einmitt beinst að meintum drápum öryggissveitanna og tilraunum
þeirra til að slá skjaldborg um stjórnvöld.
Flensan komin Jayden Mercado situr í fangi móður
sinnar, Yariluz Ocasio, á meðan hún er bólusett á barnaspítala í
Boston í Massachusetts. Vegna flensufaraldurs sem farið hefur um
borgina og tífaldað alvarleg flensutilfelli lýsti borgarstjórinn yfir
neyðarástandi í vikunni
Hamingja í ellinni Donald Smitherman, 98 ára,
kyssir eiginkonu sína rembingskossi á dansleik í Sun City í Arizona
í Bandaríkjunum. Sun City var byggð árið 1959 af frumkvöðlin-
um Del Webb. Markmiðið var að búa til eins konar paradís fyrir
eftirlaunaþega, þar sem allir hefðu nóg fyrir stafni. Í dag búa
38.500 í Sun City. Í bænum eru 120 klúbbar fyrir fólkið þar sem
það getur dansað, skautað, notað tölvur, stundað jóga eða lært
að búa til muni úr leir, svo fátt eitt sé nefnt. Meðalaldur íbúa er
72,4 ár og þeir virðast njóta ellinnar, í það minnsta ef marka má
þessa mynd.
Ljósmyndarar Reuters fylgjast með því helsta sem
gerist í heiminum. Átök, flóð, skógareldar og aðrar
hamfarir voru meðal þess sem setti svip sinn á vik-
una sem er að líða.