Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Side 33
Áhuginn kom með
móðurmjólkinni
Viðtal 33Helgarblað 18.–20. janúar 2013
hún hafi verið lengi að gera upp með
sér hvort það væri þess virði að koma
með nýjan mann inn í líf dótturinn-
ar. „Ég þurfti að hugsa þetta allt upp
á nýtt og var lengi með varann á mér.
En sem betur fer reyndist þetta rétt
ákvörðun. Þeim Svenna hefur komið
vel saman frá fyrstu tíð.“
Aðspurð segir hún ekkert ákveðið
varðandi frekari barneignir. „Ég segi
aldrei já eða nei þegar ég er spurð að
þessu. Enda veit maður ekkert hvor
guð og gæfan leyfi það. Ég er alls ekki
búin að loka á það en við sjáum bara
hvað gerist. Börnin koma bara þegar
þau koma. Þetta er eitt af því sem ég
hef átt erfitt með að skipuleggja. En
ef þau koma eru þau hjartanlega vel-
komin.“
Varðandi önnur áhugamál en
tónlist og Eurovision segist Regína
elska að dansa. „Ég hef farið á nokkur
námskeið og svo dönsum við Svenni
saman. Við gerum samt allt of lítið
af því. Ég er ekki nógu góð miðað
við hann. En hann hefur kennt mér
heilmikið. Svo finnst okkur líka mjög
skemmtilegt að fara saman út að
borða og erum áhugafólk um góðan
mat og góð rauðvín. Eins reynum
við að fara á sem flesta tónleika og á
söngleiki.“
Aldrei nógu góð
Þátttaka í Eurovision þrátt fyrir
slæma fjárhagsstöðu hefur verið í
umræðunni síðustu árin. Aðspurð
segist Regína alfarið fylgjandi því
að Ísland taki þátt í þessari keppni.
„Þessi keppni lyftir okkur Íslending-
um upp andlega. Hér er myrkur allan
daginn á þessum tíma. Þetta er gott
stjónvarpsefni og þátttakan eykur at-
vinnu.
Þeir peningar sem verða til fara
ekki bara úr landinu. Þeir fara inn í
hagkerfið. Það er ekki hægt að ætla
að hætta að taka þátt í öllu og leggja
allt niður. Þá verður ekki mikið eftir.
Einhver verður að halda áfram að
versla og gera eitthvað. Annars verða
bara allir atvinnulausir.“
Regína hefur verið lengi í brans-
anum. Hún segist upplifa mikla
pressu varðandi útlit og aldrei meiri
en þegar hún keppti fyrir Íslands
hönd í Serbíu. „Ég fékk heldur betur
að finna fyrir ýmsu. Fólk var að setja
út á mig og skrifa ýmislegt á netið.
Einhvern veginn er maður aldrei
nógu góður fyrir fólk; er ýmist of
feitur eða of hitt eða þetta. Það hafa
allir skoðanir á manni en aðalmálið
er að vera ánægður með sig sjálfur.“
Hún viðurkennir að hafa elst við
að lesa það sem fólk skrifaði um
hana á netinu á tímabili. „En svo
hætti ég því. Það gerði mér ekkert
gott. Þetta er fólk úti í bæ sem þekkir
mig ekki neitt.
Auðvitað gat þetta sært mig og
mér fannst ótrúlega skrítin tilfinning
að lesa þetta. Samt hef ég ekkert lent
illa í þessu miðað við marga og ef
ég sé eitthvað ljótt verður mér alltaf
hugsað til fjölskyldunnar. Það er ekki
bara ein manneskja sem verður fyrir
þessu heldur heil fjölskylda.“
Börn geta verið svo ótrúlega vond
við hvert annað, án þess að gera sér
grein fyrir því. Þau heyra eitthvað
heima hjá sér og slengja því framan
í önnur börn. Þetta er ekkert annað
en einelti,“ segir hún og er heitt í
hamsi. „Ég verð alveg rosalega reið
þegar ég hugsa um einelti. Þær sög-
ur sem maður hefur lesið og heyrt
fá mann til að langa að setja börnin
bara í bómull og banna þeim að fara
út. En sem betur fer hafa mínar stelp-
ur ekki lent í neinu af þessum toga,“
segir hún og viðurkennir að sjálf hafi
hún byggt upp skel gegn umtalinu.
„En ég er tilfinningarík manneskja og
auðvitað staldrar maður við og spáir
aðeins. En svo maður verður bara að
halda áfram.
Einu sinni þegar ég var yngri lenti
ég í stelpu sem var virkilega vond við
mig. Ég hef aldrei séð þessa stelpu
aftur en ég get rétt ímyndað mér
hvernig það er fyrir barn að lenda í
einelti á hverjum degi. Einelti er ein-
faldlega hræðilegt og ekki bara eitt-
hvað sem gerist á meðal barna. Eins
og skrif á netinu sanna. Eins ágætt og
netið getur verið á margan hátt á það
líka sínar dökku hliðar.“
Fær útrás á sviði
Þótt Regína elski að hafa nóg fyrir
stafni nýtur hún þess líka að eyða tím-
anum með fjölskyldunni. „Ætli ég sé
ekki ofvirk upp að vissu marki en að
sama skapi finnst mér ofsalega gott
að hafa það gott heima. Maður verður
líka að hlaða batteríin af og til,“ segir
hún og bætir við að hún sé ánægðust
með lífið þegar allir hennar eru ná-
lægir. „Ég er hamingjusömust þegar
allir eru hamingjusamir, fínir, saddir
og sælir saman. Og líka þegar ég er að
gera það sem ég elska; fæ að glansa
uppi á sviði í flottum kjól að fá mína
útrás.“ n
„Hann var bara
svo flottur og
fullur sjálfstrausts og það
heillaði mig upp úr skónum
m
y
n
d
s
ig
tr
y
g
g
u
r
A
r
i