Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Page 2
„Eins og að hafa Jón
ÁsgEir í framboði“
2 Fréttir 12.–14. apríl 2013 Helgarblað
Krefja Helga
Hjörvar um fund
Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins, Guðlaugur Þór Þórðarson og
Pétur H. Blöndal, hafa farið fram á
fund í efnahags- og viðskiptanefnd
vegna fréttar um að uppgjöri á
milli gamla og nýja Landsbankans
sé lokið.
„Við förum fram á að fulltrú-
ar Bankans, Bankasýslunnar og
ráðuneytisins mæti og upplýsi
okkur um forsendur samkomu-
lagsins með sérstaka áherslu á
mat á skuldum einstaklinga og
fyrirtækja bankans,“ segir í pósti
sem þeir senda Helga Hjörvar, for-
manni nefndarinnar.
„Einnig er mikilvægt að upp-
lýst verði hvernig staðið hafi verið
að endurreikningi erlendra lána
einstaklinga og fyrirtækja en full-
yrt var í fréttum í febrúar að öll
gengislán bankans yrðu endur-
reiknuð í kjölfar dóma.“
Opinn fundur
um mál öryrkja
Öryrkjabandalag Íslands hefur
boðað til opins fundar á Hilton
Reykjavík Nordica við Suðurlands-
braut á laugardaginn. Þar verða
tekjur öryrkja til umræðu. Í til-
kynningu frá samtökunum segir
að meðaltekjur öryrkja hafi hækk-
að um fjórðung á við hækkun
launavísitölu síðastliðin fjögur ár.
„Meðaltekjur öryrkja fyrir skatta
hafa hækkað um 4,7% sl. fjögur
ár á sama tíma og launavísistala
hefur hækkað um 23,5% og vísi-
tala neysluverðs um 20,5%.“
Þetta kemur fram í minnis-
blaði sem unnið hefur verið fyrir
bandalagið. Guðmundur Magnús-
son formaður mun flytja fram-
söguerindi á fundinum sem er
öllum opinn. Fulltrúar þeirra sem
bjóða fram á landsvísu í komandi
þingkosningum munu eiga full-
trúa á fundinum.
n Áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum vilja að Bjarni stígi til hliðar
K
önnun Viðskiptablaðsins
um hugsanlega fylgisaukn-
ingu Sjálfstæðisflokksins ef
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
varaformaður flokksins,
stæði í brúnni í stað formannsins
Bjarna Benediktssonar fór öfug ofan
í stuðningsmenn þess síðarnefnda.
Stuðningsmenn Bjarna spurðu sig
að því hvaða hvati gæti hafa legið á
bak við könnunina og þá tímasetn-
ingu sem henni var valin. Á fimmtu-
daginn var mikil ólga meðal stuðn-
ingsmanna Bjarna vegna málsins.
Umræðan um könnunina þykir
varpa ljósi á þá erfiðu stöðu sem
komin er upp innan Sjálfstæðis-
flokksins: Formaðurinn Bjarni er í
þeirri stöðu að fleiri virðast treysta
varaformanninum Hönnu Birnu til
að leiða flokkinn í komandi kosn-
ingum en samt er hann formaður
um þessar mundir. Sú staða er því
komin upp að margir sjálfstæðis-
menn telja að Bjarni eigi að stíga til
hliðar sem formaður. Einn þeirra
sagði í samtali við DV á fimmtu-
daginn: „Ég hef verið á þeirri skoðun
lengi að Bjarni þurfi að víkja.“ Um-
ræddur maður er framámaður í
Sjálfstæðisflokknum.
Bjarni aldrei vinsæll
Sjálfstæðismaðurinn segir að Bjarni
hafi aldrei verið vinsæll formaður
og að könnun Viðskiptablaðsins sé
í raun bara enn frekari staðfesting
á því sem hafi legið fyrir lengi.
„Enginn einstaklingur er stærri en
flokkurinn. Ef horft er á kannanir
um vinsældir kemur fram að hann
hefur aldrei verið vinsæll formaður
en þessi nýja könnun sýnir að þrír
af hverjum fjórum segjast hafa mjög
lítið eða lítið álit á Bjarna. Gögn-
in hafa legið fyrir lengi um að þetta
hafi alltaf verið svakalega brothætt
hjá Bjarna.“
Bjarni hætti til að kosningin
verði viðunandi
Annar framámaður í Sjálfstæðis-
flokknum segir í samtali við DV að
Bjarni Benediktsson þurfi að hætta
til að niðurstöður kosninganna verði
viðunandi fyrir flokkinn. „Könnunin
segir annars vegar að flokkurinn geti
haldið áfram á þeirri leið sem hann
er á og beðið afhroð eða snúið við
með mikilli U-beygju og komið sér á
þann stað að hann fái viðunandi úr-
slit í kosningunum.“
Aðspurður um hvort þetta
viðhorf sé útbreitt í flokknum segir
heimildarmaðurinn. „Ég held að
þetta sé ríkjandi viðhorf. Ég þori eig-
inlega ekki að segja þetta en þetta er
eiginlega eins og ef Jón Ásgeir væri í
framboði. Þetta er það sem fólk segir
við mann þó það sé kannski ósann-
gjarnt. Það er mjög erfitt að búa við
þetta.“
Mat þeirra sjálfstæðismanna sem
DV ræddi við byggir ekki á persónu-
legri andúð á Bjarna. Flestir eru
sammála um að Bjarni sé drengur
góður, fortíð hans úr viðskiptalífinu
sé honum hins vegar fótakefli.
„Hann er séntilmaður, kurteis og
vandaður, prúðmenni, sem setur sig
vel inn í mál og er vel liðinn. Þetta
snýst bara ekki um það.“
Er orðið of seint?
Heimildarmenn DV í Sjálfstæðis-
flokknum telja flestir að of seint
verði fyrir Bjarna að stíga til hlið-
ar eftir kosningarnar í lok mánað-
arins því þá verði skaðinn skeður.
Einn segir að tækifærið fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn til að ná viðspyrnu
sé núna og að Bjarni verði að nýta
það tækifæri flokknum til heilla.
„Þá verður orðið of seint og ekkert
gagn að því. Ég held að það sé ekki
of seint fyrir Bjarna. Þegar menn eru
að hugsa um viðspyrnu í stjórnmál-
um þá blasir við að það tækifæri er
núna fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það
er augljóslega á borðinu. Þeim sem
líður verst með könnunina eru lík-
lega framsóknarmenn sem hljóta
að hræðast það ef sjálfstæðismenn
grípa þetta tækifæri. Þetta er ekkert
flókið að mínu mati og er alls ekki of
seint. Það stendur út úr öllum þessa
dagana að Bjarni verði að hætta.“
Aðspurður um hversu líklegt sé
að Bjarni stígi til hliðar segir einn
af viðmælendum blaðsins: „Ég
myndi gefa því góðar líkur; ég held
að það geti gerst, ég held að það sé
alls ekki útilokað. Það er svo margt
í húfi. Flokkur sem er með 18 pró-
senta fylgi og allt niður um sig fjár-
hagslega. Það er hugsanlegt að við
verðum dæmd til eyðimerkurgöngu
um langa hríð ef kosningarnar fara
svona.“
Inntakið í þessari gagnrýni á
Bjarna er því einhvern veginn á þá
leið að Sjálfstæðisflokkurinn geti
varla tapað miklu á því að skipta
um formann, jafnvel þó að einungis
rúmar tvær vikur séu í kosningar. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Það stendur út úr
öllum þessa dag-
ana að Bjarni verði að
hætta.
Erfið staða Staða
Bjarna Benediktssonar
er orðin afar erfið en nú
hefur Viðskiptablaðið
birt könnun sem sýnir að
flokkurinn stæði betur
að vígi með Hönnu Birnu
í formannsstólnum.
„Fyrirgefðu Guðný“
3 Íbúar á Húsavík,
sem skrifuðu
undir stuðnings-
yfirlýsingu við
nauðgara Guð-
nýjar Jónu Krist-
jánsdóttur fyrir
13 árum, iðrast
margir sáran að
hafa tekið þátt
í yfirlýsingu gegn henni.
Guðný Jóna sagði sögu sína í Kast-
ljósi í upphafi vikunnar og vakti frá-
sögn hennar mikla athygli og reiði.
Málið klauf Húsavík á sínum tíma.
„Ég þarf að lifa með þessu,“ sagði
einn sem ritaði nafn sitt á listann.
„Fyrirgefðu Guðný og fjölskylda.“
Slóð þeirra liggur
til Kýpur
2 Hollenskt eignarhalds-
félag bræðranna
Ágústs og Lýðs
Guðmundssona,
sem kenndir eru við
Bakkavör, skuldaði
67 milljarða króna
í árslok 2011. DV
upplýsti um þetta út frá ársreikningi
félagsins Bakkabraedur Holding B.V.
sem aftur er í eigu kýpversks félags í
eigu bræðranna. Þrátt fyrir skulda-
stöðu hollenska félagsins er ekki búið
að setja það í þrot. DV greindi frá því
að ástæða þess að ekki væri hægt að
setja félagið í þrot væri að samkvæmt
hollenskum lögum þyrftu tveir kröfu-
hafar að krefjast þess en aðeins einn
er þekktur, Arion banki.
Mikil sorg
á Akranesi
1 Lovísa Hrund
Svavarsdóttir, 17
ára, lést í bílslysi
undir Akrafjalli
um síðustu helgi.
Mikil sorg ríkir í
heimabæ henn-
ar, Akranesi,
vegna þessa vo-
veiflega slyss.
Lovísa Hrund var
vinmörg og vinsæl stúlka og ein
vinkona Lovísu Hrundar minntist
hennar sem yndislegrar stúlku í frétt
DV. Ökumaður bifreiðarinnar sem
lenti á bifreið Lovísu á Akrafjallsvegi
er grunaður um ölvunarakstur.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni