Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Blaðsíða 26
26 Umræða 12.–14. apríl 2013 Helgarblað Ingi Hauksson Hefur andstaðan þín gagnvart Evrópusambandinu mildast nú síðustu mánuði/ár?  Pétur Gunnlaugsson Nei. Hún hefur ekki mildast. Ég er andvígur aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ágúst Guðmundsson Hvernig ætlar Flokkur heimilanna að tækla íbúðarkaup ungs fólks í dag? Þar sem það er nánast ómögulegt að safna sér fé þegar maður er á leigumarkaðnum.  Pétur Gunnlaugsson Flokkur heimilanna ætlar að afnema verðtrygginguna á nýjum húsnæðislánum. Jóhanna Guðmundsdóttir Hver eru þín fyrri störf?  Pétur Gunnlaugsson Ég vann áður hjá tryggingafélagi, rak á sínum tíma fasteignasölu, hef starfað sem lögmaður, hef starfað á Útvarpi Sögu og er þar stjórnar- formaður. Ég var einnig í stjórnlagaráði. Baldur Kristjánsson Ég skoðaði stefnuskrár flokkanna og mér sýnist þið vera eini flokkurinn sem ætlar ekki eingöngu að lækka höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána heldur allra verðtryggðra lána, þ.m.t. námslána. Er þetta rétt skilið hjá mér, þ.e. að þið lítið svo á að forsendubrestur og stökkbreyting hafi átt sér stað með öll verðtryggð lán?  Pétur Gunnlaugsson Já. Við teljum að það eigi að gera það. Við eigum að búa við svipuð lánakjör og tíðkast í nágrannalöndum okkar. Lélega hagstjórn á Íslandi eiga kjósendur ekki að sætta sig við, sem er höfuðástæðan fyrir stökkbreyttum höfuðstól verðtryggðra lána. Kolbeinn Reginsson Með inngöngu Íslands í ESB myndu tollar á unnum fiskafurðum (sem eru nú 25–40%) falla niður og leiða til gríðarlegrar tekjuaukningar á ári fyrir þjóðarbúið auk þess að skapa 500–1.500 fiskvinnslustörf hérlendis. Væri ekki nær að ganga í ESB í stað þess að gefa öðrum þjóðum auðlindir okkar í gegnum ferskt hráefni? Íslendingar verða af miklum tekjum vegna þessa og því er spurningin sú hvort Flokkur heimilanna sé á móti ESB inngöngu?  Pétur Gunnlaugsson Ég er andvígur aðild að Evrópusambandinu af pólitískum ástæðum. Ég er hins vegar mjög hlynntur frjálsum viðskiptum, ekki eingöngu í gegnum Evrópusambandið heldur einnig aðrar þjóðir. Ef við göngum í Evrópusambandið þá getum við ekki gert viðskiptasamninga við ríki utan Evrópusambandsins. Brussel-valdið myndi gera slíka samninga fyrir okkar hönd ef við værum í Evrópusambandinu. Til lengri tíma myndi þetta veikja stöðu okkar til fríverslun- ar. Jókka Páls Hvar ætlið þið af fá peninga til þess að redda öryrkjum og öldruðum?  Pétur Gunnlaugsson Við ætlum að hækka skattleysismörk. Við ætlum ekki að gera það með því að minnka tekjur ríkis- ins. Við viljum að þeir sem hafi nýtingarrétt á auðlindunum greiði fyrir það fullt gjald, markaðsverð. Tekjurnar af slíku nýtingar- gjaldi eiga að fara í að hækka skattleysis- mörk. Við viljum einnig afnema skerðingar á tekjum eldri borgara og öryrkja frá júlímánuði 2009 og afturkalla þessar skerðingar eins og embættismenn og ýmsir aðrir hafa fengið. Eldri borgarar og öryrkjar bera ekki ábyrgð á efnahagshruninu. Viktoría Hermannsdóttir Fer það saman að standa í kosningabaráttu og starfa á fjölmiðli?  Pétur Gunnlaugsson Já, það fer alveg saman. Þeir sem starfa á fjölmiðlum eiga fullan rétt á því að taka þátt í þjóðmála- umræðunni og stofna og vera aðilar að stjórnmálaflokki. Árni Heimir Til hvaða landa hefur þú ferðast til? Einhver lönd sem standa upp úr?  Pétur Gunnlaugsson Þegar ég var ungur maður bjó ég í New York, London og París. Og þótt að ég sé andvígur aðild Íslands að Evrópusambandinu þá legg ég þunga áherslu á góð menningarleg samskipti við Evrópu. Íslendingar eru Evrópubúar og íslensk menning er hluti af evrópskri menn- ingu. Skúli Kristinsson Sæll Pétur. Hvaða afstöðu tekur Flokkur heimilanna í deilu Kóreuríkjanna og hvaða áhrif telur þú að möguleg kjarnorkustyrjöld muni hafa á heimilin í landinu?  Pétur Gunnlaugsson Ég tek afstöðu gegn öfgastefnu Norður-Kóreu og tel alþjóðasam- félagið verða að reyna að hafa áhrif á stjórn- völd í Norður-Kóreu, en auðvitað verður þessi ríkisstjórn í Norður-Kóreu og stjórnarfarið þar að breytast. Enda tel ég að það muni verða í framtíðinni. Auðvitað mun kjarnorkustríð hafa skelfileg áhrif. Það er ekki hægt að spá um afleiðingarnar. Sigurður Sólmundarson Hver er afstaða Flokks heimilanna í gjaldmiðilsmálum Íslands?  Pétur Gunnlaugsson Við komum til með að halda krónunni á næstu árum og aðgerðir stjórnvalda verða að taka mið af því. Það er hægt að skoða það að taka upp annan gjaldmiðil en það er ljóst að forsendan fyrir því að við fáum evru er að ganga í Evrópu- sambandið og það er of mikill fórnarkostn- aður. Það kæmi til greina að skoða hvort við ættum að taka upp dollar eða einhvers konar fastgengisstefnu hér. Jóhanna Guðmundsdóttir Eru þið með ófrávíkjanlega kröfu við þátttöku í ríkisstjórn?  Pétur Gunnlaugsson Nei. Jóhanna Guðmundsdóttir Ætlar Flokkur heimilanna að nota rannsóknarskýrslu Alþingis sem stefnumótandi plagg ef þið komið þingmanni að í kosningunum?  Pétur Gunnlaugsson Á sínum tíma sam- þykkti þingið að hefja aðgerðir á grundvelli rannsóknarskýrslu Alþingis. Allir þing- mennirnir 63 samþykktu þessar aðgerðir. Því miður hafa þeir ekki staðið við þetta nema að litlu leyti. Til dæmis hafa lífeyrissjóðirnir ekki verið rannsakaðir og auðvitað munum við hafa hliðsjón af rannsóknarskýrslu Alþingis við stefnumótun á þingi. Haraldur Haraldsson Hvaða sendiráðum viltu loka?  Pétur Gunnlaugsson Við þurfum að fækka sendiráðum. Það er óþarfi að hafa sendiráð í Austurríki, Finnlandi og það ætti að vera eitt sendiráð fyrir Norðurlöndin. Það er rétt að benda á það að ef við gerumst aðilar að Evrópusambandinu þurfum við að hafa sendiráð í öllum löndum sambandsins, 28 löndum, og það vil ég alls ekki. Lommi Lomm Ertu uggandi yfir stöðu ljóðsins?  Pétur Gunnlaugsson Þetta er athyglisverð spurning. Ég held að í nútíma- samfélagi og við þær menningaraðstæður sem við búum við þá sé ljóðagerð á undan- haldi. Ég vona að í framtíðinni verði ljóðagerð ekki jafn sjaldgæf starfsemi og fálkaveiði. Gísli Ásgeirsson Ertu femínisti?  Pétur Gunnlaugsson Nei. Ég legg hins vegar þunga áherslu á jafnrétti allra. Allir eiga að standa jafnfætis í lagalegu tilliti. Öfgafemínismi kyndir undir kynjastríði og aðskilnaðarhyggju. Daníel Jónsson Kom aldrei til greina að fá Ingva Hrafn til liðs við Flokk heimilanna, og þá mögulega Hall Hallsson í kjölfarið?  Pétur Gunnlaugsson Nei, það kom aldrei til greina. Enda eru þeir í Sjálfstæðisflokknum. Hafsteinn Árnason Hver er munurinn á Lýðræðisvaktinni og Flokki heimilanna hvað stefnumál varðar?  Pétur Gunnlaugsson Ég lýsti því nú einu sinni yfir að ástæðan fyrir því að ég hætti að vera innan vébanda Lýðræðisvaktarinnar væri sú að Lýðræðisvaktin væri femínískur Evrópuflokkur. Mér fannst hann ekki eiga að vera það en smám saman breyttust áherslurnar. Flokkurinn breyttist frá því að við fjórmenningarnir úr stjórnlagaráði áttum frumkvæðið að því að stofna þennan flokk. Gísli Ásgeirsson Hefurðu orðið var við öfgafemínisma á Íslandi og hvert er þá birtingarform hans? Vinsamlegast útskýrðu þetta með kynjastríð og aðskilnaðar- hyggju!  Pétur Gunnlaugsson Það hafa ýmsir aðilar haft áhyggjur af öfgafemínisma, jafnvel fyrrverandi forseti lýðveldisins, Vigdís Finnbogadóttir. Karlar og konur eiga að vinna saman. Hallur Guðmundsson Hver er skoðun þín á því að þjóðkirkjan fái á fjárlögum nokkra milljarða umfram sóknargjöld – í því eru m.a. laun presta, viðgerðar- og byggingasjóðir kirkna o.fl. – en önnur trúfélög verða að reiða sig eingöngu á sóknargjöld og fjárframlög meðlima, sér í lagi ef trúfélagið vill byggja sér trúarbyggingu?  Pétur Gunnlaugsson Í þjóðaratkvæða- greiðslunni 20. október síðastliðinn um nýja stjórnarskrá kom fram að meirihluti þjóðarinnar vill halda stöðu þjóðkirkjunnar og ég virði þá niðurstöðu. Í stjórnlagaráðinu studdi ég hugmynd um aðskilnað ríkis og kirkju. Trúfélög og kirkjudeildir eiga sjálfar að fjármagna starfsemi sína en ég endurtek: ef meirihluti þjóðarinnar er á annarri skoðun þá virði ég það. Trausti Björgvinsson Er Flokkur heimilanna á móti aðild að Evrópusam- bandinu eða ertu að lýsa þinni skoðun þegar þú talar um að þú sért á móti því?  Pétur Gunnlaugsson Ég er að lýsa minni skoðun en félagar mínir í Flokki heimilanna eru sammála því að við eigum ekki að ganga í Evrópusambandið. Erlingur Már Karlsson Hvernig á að taka á vogunarsjóðunum?  Pétur Gunnlaugsson Það vekur athygli að þingið skuli ekki hafa gert tilraun til þess að samþykkja lög um starfsemi vogunarsjóða. Vogunarsjóðir starfa á Íslandi án starfsleyfis, án þess að Fjármálaeftirlitið hafi eftirlit með þeim. Flokkur heimilanna mun beita sér fyrir því að sett verði lög um vogunarsjóðina og gerð sú krafa að þeir upp- lýsi um eignarhald sitt og gefi út uppruna- vottorð um fjármagnið sem þeir notuðu til að kaupa kröfur. Ég tel að ef þetta verði gert þá muni vogunarsjóðirnir ekki verða við þeirri kröfu og selja kröfur sínar. Og þar sem hér eru gjaldeyrishöft myndu kröfurnar lækka verulega. Ísland væri af þeim sökum í miklu betri aðstöðu til að semja við hrægammana. Ég undrast það að fjórflokkurinn og þeir sem sitja á þingi hafi ekki áhyggjur af því að vog- unarsjóðirnir geti starfað utan lagaramma þar sem aðrir fjárfestingarsjóðir eru bundnir skilyrðum laga frá 2005. Andvaraleysi þessara flokka er óskiljanlegt. Árni Heimir Hver er fyrirmynd þín af erlendum stjórnmálamönnum og hver er mögulegur systurflokkur Flokks heimilanna?  Pétur Gunnlaugsson Því miður þá hafa þeir stjórnmálaleiðtogar sem stýra þjóðríkjum í vestrænum ríkjum fyrst og fremst slegið skjaldborg um fjármálaveldið og banka- kerfin, eins og gert hefur verið á Íslandi. Ég sæki enga fyrirmynd í þennan hóp. Heiða Heiðars Hvað með leigumarkað- inn? Hafið þið einhverjar lausnir á því hvernig hægt er að gefa fólki fjölbreyttara val þegar kemur að búsetu? Varla hvetjið þið allt ungt fólk til að kaupa sér húsnæði?  Pétur Gunnlaugsson Það væri gott ef ungt fólk sem vildi gæti keypt sér húsnæði en eins og staðan er núna er það erfitt. Á sínum tíma var félagslega kerfið lagt af og það var mjög slæmt fyrir þá sem voru með lágar tekjur. Við ætlum að afnema verðtrygginguna og breyta lánakjörunum. Vextir á Íslandi eru alltof háir og stýrivextir eru ákveðnir af Seðlabankanum. Ég tel að það verði að endurskoða lög um Seðlabankann, færa vaxtavaldið frá honum, enda illskiljanlegt hvernig Ísland, sem hefur þurft að þola þennan samdrátt, skuli vera með hæstu vexti á Vesturlöndum. Stýrivextir hafa verið hér háir þegar vextir í útlöndum hafa farið niður í allt að núlli. Víða erlendis eru rótgróin fasteignafélög sem leigja fólki, og þar með ungu fólki, á opnum markaði en slík félög hafa ekki þróast hér vegna óstöðugleikans sem hér ríkir. Ein leið við þessar aðstæður væri sú að ríkisvaldið tæki til sín íbúðir frá bönkunum og semdi við þá um setja þessar eignir á markað og þannig að hægt væri að nokkru leyti að endurreisa félagslega kerfið. Á hinn bóginn, þeir sem hafa góðar tekjur og vilja leigja, eru engir fjármunir af hálfu hins opinbera til að greiða niður leigu þeirra. Við höfum húsaleigubætur sem eru almennt 19 þúsund krónur á mánuði. En það er hægt að fá hækkun, sem fáir virðast vita um. Mér skilst allt upp í 42 þúsund, ef skilyrðum er fullnægt. Arinbjörn Árnason Sæll Pétur, þú segist leggja þunga áherslu á jafnrétti allra, og allir eigi að standa jafnfætis í lagalegu tilliti. Hvaða skoðun hefur þú á rétti samkynhneigðra um að standa jafnir öðrum að lögum, þá í sambandi við ættleiðingar og erfðalög? Þar sem þú og Arnþrúður hafið oft verið harðorð í garð samkynhneigðra á Útvarpi Sögu, t.d. þá í sambandi við ættleiðingar og gleðigöngu.  Pétur Gunnlaugsson Ég kannast ekki við að ég hafi verið harðorður í garð þessa hóps. Hins vegar hafa sumir hlustendur verið andvígir hjónaböndum samkynhneigðra. En ólíkar skoðanir og hugmyndir koma fram í þáttum á Útvarpi Sögu. Ég endurtek það sem ég sagði áðan: Allir eiga að standa jafnfætis í lagalegu tilliti, einnig samkynhneigðir. Jóhann Kristjánsson Hvernig telur þú best að styðja við bakið á löggæslu í landinu í ljósi aukinnar glæpatíðni?  Pétur Gunnlaugsson Í fyrsta lagi er óhjákvæmilegt að leggja meiri fjármuni til löggæslu. Í öðru lagi ber að skoða hvort endurskoða eigi aðild okkar að Schengen- samkomulaginu en margir löggæslumenn telja að aðild okkar að Schengen hafi orðið til þess að hleypa hér inn óæskilegu fólki og leitt af sér meiri glæpi. Jóhann Jóhannsson Hvernig ætlar Flokkur heimilanna að leysa mál þeirra sem nú þegar hafa misst eignir sínar, eða eru að missa eignir sínar, vegna stökk- breyttra lána eða verðtryggingar? Verða nauðungarsölur eða yfirtökur afturkallaðar?  Pétur Gunnlaugsson Við höfum það á stefnuskrá okkar að stöðva nauðungarsölur. Ég er mjög hissa á því að þingið hafi ekki samþykkt lög um stöðvun nauðungarsölu. Sérstaklega með tilliti til þess að mál eru til meðferðar og úrlausnar hjá dómstólum um lögmæti verðtryggingarinnar. Hallur Guðmundsson Hvernig vill Flokkur heimilanna koma í veg fyrir gegndarlausar hækkanir á neysluvísi- tölu?  Pétur Gunnlaugsson Verðbólgan sem við höfum búið við á Íslandi stafar af lélegri hagstjórn og að sumu leyti af einhæfri atvinnustarfsemi. Ég tel ekki rétt að ríkið geti stýrt verðlagi með einhverjum hætti nema með almennum reglum. Við teljum að verðtryggingin kyndi undir verðbólgu. Verðtryggðum lánum fyrirtækjanna er velt út í verðlagið og skapa vítahring sem erfitt er að rjúfa. Baráttan við verðbólguna ætti að vera í forgangi hjá öllum stjórnmálaflokkum. Kristín Jónsdóttir Nú er launamunur kynjanna 123.000 krónur á mánuði þrátt fyrir lög um launajafnrétti. Femínistar geta ekki hætt að berjast meðan staðan er svona, til dæmis. Ert þú bara sáttur af því lögin eru til?  Pétur Gunnlaugsson Ég tel í fyrsta lagi að opinberir aðilar sem eru að greiða konum lægri laun séu að brjóta lög. Ef við komumst til áhrifa þá munum við ekki sætta okkur við það. Varðandi markaðinn þá velur at- vinnurekandinn, eða reynir að velja hæfasta umsækjandann af starfi. Skynsamur at- vinnurekandi greiðir konu sem stendur sig vel jafn há eða betri laun en karlmanni, tala nú ekki um ef hann stendur sig illa. Þannig að ég get ekki séð hvernig það þjónar hagsmunum atvinnulífsins að greiða konum lægri laun. Jóhann Kristjánsson Hvaða leiðir telur þú bestar til þess að spara í ríkisrekstri?  Pétur Gunnlaugsson Það eru margar leiðir til. Það verður að taka á menntamálunum, það verður að stytta námstíma, bæði í grunnskóla og framhalds- skóla. Það verður að taka á eftirlitskerfinu, sem er alltof dýrt og skilar litlum árangri. Við eigum að hætta að reisa stór mannvirki sem við höfum ekki efni á, eins og stóra spítalann sem á að reisa við Hringbraut, nýtt fangelsi, gangagerð, við höfum ekki efni á þessu. Við eigum að endurskoða stefnu okkar varðandi svokallað þróunaraðstoð sem er alls óvíst að skili nokkurri þróun, en nýlega samþykkti Alþingi að greiða 24 milljarða næstu fjögur árin í svokallaða þróunaraðstoð. Í nýlegri rannsókn frá Kanada kom í ljós að aðeins 18 prósent þróunaraðstoðar skilar sér til fá- tækra. Það þýðir að af þessum 24 milljörðum skila fjórir milljarðar sér, ef við berum okkur saman við þessa úttekt frá Kanada. Besta leiðin til þess að styðja við þróunarríki er að eiga viðskipti við þau, opna markaði, eins og gert hefur verið í Asíu þar sem Asíuríkin hafa fengið að selja bandarískum og evrópskum markaði vörur sínar og bætt lífskjörin með þeim hætti. Unnur Bergsveinsdóttir Ég myndi sömuleiðis gjarnan vilja fá að heyra hvar þú sérð kynjastríð og aðskilnaðarhyggju byggða á öfgafemínisma. Það er ekki nógu gott svar, eftir að hafa heyrt að femínískar áherslur hafi hrakið þig af fyrri pólitískum vettvangi, að heyra að eitthvað fólk úti í bæ hafi áhyggjur af einhverju sem þú sleppir því að skilgreina. Með fullri virðingu þá skiptir þetta svar mig sem kjósanda máli.  Pétur Gunnlaugsson Í ritum og viðhorfum öfgafemínista er sett fram röng og öfgafull skýring á vanda kvenna. Þar er því haldið fram að karlmenn almennt reyni og vilji kúga konur en vandamálið er fyrst og fremst að konur margar, og flestar konur vinna úti, og sinna margar heimilisstörf- um, þannig að álagið á nútímakonum er mjög mikið. Þessar ásakanir um kúgunarvilja karla sem birtist í þessum ritum gefa ranga og villandi mynd og ýta undir og kynda undir kynjastríði. Ýmsar stjórnmálstefnur á 20. öld börðust fyrir aðskilnaði og aðskilnaðarhyggju. Þar má í fyrsta lagi nefna kommúnista, sem boðuðu stéttastríð, fasista, sem boðuðu kynþáttastríð, og öfgafemínista, sem boða kynjastríð. Kynin og ólíkar stéttir eiga að vinna saman að sameiginlegum hagsmunum Íslands. Hrafnhildur Helgadóttir Hvernig líst þér á að að setja bann á útburð fólks úr húsnæði að kröfu banka sem standi þrjú ár? Eða að sekta banka og fasteignafélög, sem láta íbúðarhúsnæði standa ónotað, eins og er verið að gera í Andalúsíu?  Pétur Gunnlaugsson Eins og ég sagði áðan þá viljum við stöðva nauðungarsölur. Það kemur vel til greina að skoða þessa hugmynd sem þú varpar fram. Almar Kristjánsson Hver er afstaða Flokks heimilanna til varnarmála? Kæmi e.t.v. til greina að stofna innlenda hersveit?  Pétur Gunnlaugsson Við viljum halda áfram aðild okkar að Atlantshafsbanda- laginu en við viljum ekki stofna íslenskan her. Grétar Pétur Geirsson Ef þið komist á þing verður þá forgangverk ykkar að að leiðrétta kjör öryrkja? Þetta þurfum við öryrkjar og ellilífeyrisþegar að vita.  Pétur Gunnlaugsson Já. Það verður eitt af forgangsmálum okkar. Eins og ég sagði áðan á að afnema þær skerðingar sem ríkisstjórnin lagði á í júlímánuði 2009. Við viljum hækka skattleysismörkin og fjármagna skattleysis- mörkin með nýtingargjaldi af auðlindum sem eiga að vera í eigu þjóðarinnar. Árni Heimir Hvernig er best að vinna bug á skipulagðri glæpastarfsemi?  Pétur Gunnlaugsson Ég minntist á það áðan að það þyrfti að leggja meiri fjár- muni til löggæslu og hugsanlega endurskoða aðild okkar að Schengen. Jóhann Benediktsson Ég skil ekki alveg svar þitt við leigumarkaðsspurn- ingu Heiðu B. Heiðars. Telur þú að ég, háskólanemi, sem hef ekki efni á því að leggja út fyrir útborgun í íbúð og vel mér þess vegna leigumarkað, hafi of miklar tekjur til þess að fara út á leigumarkað? Þar með fái ég ekkert niðurgreitt af ríkinu?  Pétur Gunnlaugsson Ég veit ekki hvaða tekjur þú hefur. Ef þær eru litlar þá þyrftum við að hafa félagslegan íbúðamarkað til þess að sinna þörfum þess hóps. En ég vil leggja áherslu á það að ríkið er í þeirri stöðu núna að ekki er hægt að verða við öllum kröfum á þessu sviði frekar en öðrum. En það kæmi þá til greina að endurskoða reglur sveitarfélag- anna um húsaleigubætur þannig að fátækir námsmenn nytu góðs af slíkri breytingu. Páll Einarsson Ertu í þjóðkirkjunni? Ef ekki, ertu þá í einhverjum öðrum söfnuði?  Pétur Gunnlaugsson Ég er ekki í þjóðkirkj- unni. Ég er í kaþólsku kirkjunni. En ég er ekki kirkjurækinn maður og legg áherslu á að aðskilja eigi trúmál og stjórnmál. Hallur Guðmundsson Hver er afstaða Flokks heimilanna til listamannalauna?  Pétur Gunnlaugsson Þetta eru auðvitað lágar upphæðir og skipta ekki miklu máli í hinu stóra samhengi. Ég held að það komi alveg til greina af hálfu hins opinbera að styðja listamenn en það á að gera með skynsamlegum hætti, til dæmis ekki með því að reisa steinsteypuhallir undir menningar- starfsemi. Óskiljanlegt andvaraleysi Flokkur heimilanna er andvígur ESB. Pétur Gunnlaugsson segir vogunarsjóði starfa án leyfis á Íslandi. Hann sat fyrir svörum á Beinni línu Nafn: Pétur Gunnlaugsson Aldur: 64 ára Staða: Sjálfstætt starfandi lögmaður og frambjóðandi Flokks heimilanna Menntun: Embættispróf í lögfræði M y N D IR SIG TR y G G U R A R I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.