Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Blaðsíða 9
Fréttir 9Helgarblað 12.–14. apríl 2013
n Huldufélag Jóns Ásgeirs skilaði mörg hundruð milljóna króna hagnaði á árunum fyrir hrun
Árið 2006 tók hluthafi félagsins
120 milljóna króna arð út úr fé
laginu en enginn arður var tekinn
árið 2007.
Milliliðurinn Jón Ásgeir
Miðað við skuldastöðu Þú Blásólar
ehf. í árslok 2007 má ætla að staða
þess hafi versnað til muna síðast
liðin ár. Félagið keypti til að mynda
hlutabréf í ótilgreindu félagi fyrir
rúman milljarð króna árið 2007.
Viðskipti Þú Blásólar munu
meðal annars hafa verið á þá leið
í einhverjum tilfellum að þegar fé
lög sem Jón Ásgeir tengdist áttu
í viðskiptum með hlutabréf fékk
fjárfestirinn þóknun vegna að
komu sinnar að viðskiptunum. Í
eitt skipti sem DV veit um mun
Jón Ásgeir til að mynda hafa fengið
500 þúsunda punda þóknun
fyrir aðkomu sína að tilteknum
viðskiptum. n
Jón Ásgeir fékk greiddar
þóknanir til Þú Blásólar
Móðir Bjartar býður sig fram
n Nýr formaður Geðhjálpar kosinn á aðalfundi
A
ðalfundur Geðhjálpar fer
fram næstkomandi laugar
dag, þann 13. apríl. Á fundin
um verður kosið í nýja stjórn
og eru tveir í framboði til formanns
samtakanna. Athygli vekur að annar
frambjóðendanna, Drífa Kristjáns
dóttir, er móðir fyrrverandi for
manns, Bjartar Ólafsdóttur. Hrannar
Jónsson býður sig fram á móti henni.
Samkvæmt heimildum DV verður á
fundinum einnig kynnt óháð út
tekt sem núverandi stjórn lét gera á
störfum Bjartar innan félagsins og
hvort allt hafi verið með felldu.
Töluverð átök voru innan
stjórnar samtakanna undir lok síð
asta árs sem enduðu með því að
vantrauststillaga var samþykkt á
Björt. Skömmu síðar sagði hún af
sér formennsku. Ástæðurnar fyrir
vantraustinu voru sagðar starfshætt
ir hennar, meint smölun í félagið
fyrir kosningar til stjórnar árið 2011
og falsanir á kjörgögnum 2012. Sjálf
greindi Björt frá því að ástæðan fyrir
afsögninni væri framboð hennar til
Alþingis fyrir Bjarta framtíð, en hún
leiðir lista þeirra í Reykjavíkurkjör
dæmi norður.
DV greindi frá því í janúar að
Svandís Nína Jónsdóttir, stjórnar
maður í Geðhjálp, hefði óskað eftir
úttekt á málefnum félagsins þann
28. nóvember. Þar var svara krafist
við ýmsum álitamálum. Meðal
annars hvernig farið væri með fé
Geðhjálpar og hver stór hluti þess
nýttist notendum, um gagnsæi í
ákvarðanatöku og hvernig stjórnir
væru myndaðar.
Mörg slys
Í síðustu viku slösuðust tíu veg
farendur í sjö umferðaróhöppum
á höfuðborgarsvæðinu. Í tveimur
tilvikum var um ógætilega vinstri
beygju að ræða á gatnamótum og
aftanákeyrslu í öðrum tveimur. Þá
var ekið á gangandi vegfaranda í
tveimur tilvikum og í einu féll öku
maður af bifhjóli sínu og slasaðist.
Lögreglan bendir á að það sé í
höndum vegfarenda sjálfra að koma
í veg fyrir slys í umferðinni enda má
rekja flest slysin til ákvarðana sem
þeir taka. Hún hvetur þá til að gæta
að sér, sýna tillitssemi, aðgæslu og
kurteisi í umferðinni þannig að þeir
valdi ekki öðrum slysum eða lendi í
þeim sjálfir.
Tekur mamma við? Athygli vekur
að Drífa Kristjánsdóttir, móðir Bjartar,
býður sig fram til formanns Geðhjálpar.
Dóttir hennar gegndi því starfi áður.