Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Blaðsíða 27
M
ál sem tengdust hvarfi
tveggja manna, Guð-
mundar Einarssonar
og Geirfinns Einars-
sonar, á áttunda ára-
tug síðustu aldar hafa hvílt sem
mara á þjóðinni. Reglulega hefur
rannsókn þessara mála verið gerð
skil í opinberri umfjöllun og sak-
borningar hafa stigið fram og sagt
sína sögu. Í lok síðasta mánaðar
kom út skýrsla starfshóps sem ég
skipaði haustið 2011 undir for-
mennsku Arndísar Soffíu Sigurðar-
dóttur, lögfræðings og lögreglu-
konu, til þess að fara í saumana
á þessum málum og þá einkum á
rannsókn þeirra. Á fréttamanna-
fundi sem boðað var til þar sem
starfshópurinn gerði grein fyrir
niðurstöðum sínum voru, auk
fjölda fréttamanna, mættir ýmsir
aðstandendur þeirra einstaklinga
sem flæktust – eða öllu heldur
voru flæktir − inn í þessi mál.
Úr penna Illuga
Illugi Jökulsson rithöfundur var
viðstaddur fréttamannafundinn
og komst svo að orði í frásögn
sinni: … Ógleymanlegast verður
þó að hafa staðið þarna og hlýtt á
þessa afgerandi niðurstöðu að við-
staddri Erlu Bolladóttur og ýms-
um aðstandendum sakborninga
– þá sérstaklega börnum Sævars
vinar míns Ciesielskis. Ég segi það
bara hreint út að ég fékk beinlín-
is tár í augun af hryggð yfir því að
hann skyldi ekki hafa fengið að
lifa þessa stund. Þegar ég kynntist
Sævari fyrst var hann nýsloppinn
úr fangelsi og sýndi mér næstum
feimnis lega skjalabunka sem hann
var byrjaður að safna í. „Ég ætla
nefnilega að sanna sakleysi mitt,“
sagði hann. Hann náði ekki að lifa
það sjálfur, ekki frekar en Tryggvi
Rúnar Leifsson, annar sakborning-
anna sem látinn er. En að börnin
þeirra og aðrir ástvinir fái loksins
að upplifa svolítið réttlæti, það er
ósegjan lega dýrmætt. Loksins er
þessari gömlu martröð létt af þjóð-
inni.“
Undir þetta hafa margir tekið,
enda skýrsla starfshópsins bæði
vönduð og afdráttarlaus.
Hvað nú?
Fólk spyr nú um framhaldið.
Starfshópurinn tefldi fram þrem-
ur valkostum. Fyrir það fyrsta
hefur ríkissaksóknari nú þegar
fengið umrædda skýrslu og gögn
sem henni liggja til grundvallar og
metur embættið sjálfstætt hvort
ástæða sé til að nýta þá heimild
sem ríkissaksóknari hefur til að
óska eftir endurupptöku til hags-
bóta fyrir dómfelldu. Í öðru lagi
gætu dómþolar nú freistað þess að
fara fram á endurupptöku í ljósi
þeirra upplýsinga sem fyrir liggja í
skýrslu starfshópsins. Í þriðja lagi
væri sú leið fær að fara með málið
fram á Alþingi og að þar yrðu sett
lög um endurupptöku málsins í
ljósi sérstöðu þess.
Ábendingar Arndísar Soffíu
Ákvörðun um endurupptöku var
þar til nýverið í höndum Hæsta-
réttar sjálfs en sú breyting var gerð
með lögum sem tóku gildi í febrú-
ar síðastliðnum að sérstök endur-
upptökunefnd tekur nú þessa
ákvörðun auk þess sem nýju lögin
mæla fyrir um það að niðurstaða
nefndarinnar og rökstuðningur
fyrir henni skuli birt opinberlega.
Arndís Soffía hefur hins vegar bent
á þann möguleika að ganga lengra
í þessum efnum til að tryggja
réttaröryggi fólks. Til að mynda
mætti líta til Noregs en hjá norsku
endurupptökunefndinni, sem er
fyrirmynd þeirrar íslensku, starfi
rannsakendur sem hafa m.a. það
hlutverk að kanna hvort skilyrði
til endurupptöku séu fyrir hendi.
Norska nefndin beri þannig sjálf
ábyrgð á því að afla allra nauðsyn-
legra gagna og aðeins í undan-
tekningartilfellum væri þeim sem
beiðast endurupptöku skipað-
ir talsmenn eða lögmenn. Hér á
landi þarf sá sem óskar endurupp-
töku hins vegar að sýna fram á að
þau skilyrði séu fyrir hendi. Þess-
ar ábendingar eru mikilvægar og
þarf að taka til umræðu.
Það sem breyttist
En hver eru þau vatnaskil sem
orðið hafa með vinnu starfshóps-
ins um Guðmundar- og Geirfinns-
mál? Í fyrsta lagi deilir enginn
um að nefndin skilar af sér mjög
vandaðri vinnu. Nefndin fékk
sér til fulltingis Gísla Guðjóns-
son prófessor sem er einn fremsti
réttar sálfræðingur heims. Gísli
hefur verið fenginn til ráðgjaf-
ar í erfiðum sakamálum og þá
sérstaklega til að meta áreiðan-
leika játninga. Hefur hann starfað
sjálfstætt en einnig með öðrum,
þar á meðal Jóni Friðriki Sigurðs-
syni, prófessor í sálfræði við Há-
skólann í Reykjavík, en hann átti
einnig sæti í starfshópnum. Í öðru
lagi, og er það nátengt fyrra at-
riðinu, þá er niðurstaða starfs-
hópsins afdráttarlaus. Staðhæft
er að játningarnar sem dómar
Hæstaréttar voru byggðir á, hafi
verið í hæsta máta óáreiðanlegar.
Gísli Guðjónsson segir nánast
engin dæmi þess að einangrun
hafi verið beitt í eins ríkum mæli
við rannsókn sakamála og gert
var í þessu máli. Með langvinnri
einangrun hafi fangarnir játað því
sem upp á þá var borið til þess
að forðast áframhald á slíkri vist.
Í þriðja lagi, og vegur það þyngst
þegar talað er um vatnaskil í þessu
máli, þá hefur verið tekið skref til
að létta farginu af öllum hlutað-
eigandi einstaklingum og fjöl-
skyldum þeirra.
Samfélagið tekur við sér
Hvað sem líður dómum sem upp
voru kveðnir, þá geta fjölskyldurn-
ar nú andað léttar. Samfélagið
tekur við sér. Margt fólk á um sárt
að binda vegna þessara mála og
nefni ég þá aðstandendur þeirra
Guðmundar Einarssonar og Geir-
finns Einarssonar sem aldrei hefur
spurst til. Það hlýtur að vera þung-
bært að heyra stöðugt til þeirra
vísað í tengslum við þessi erfiðu
mál. Þá má það aldrei gleymast
að enn fleiri einstaklingar voru
einnig hnepptir í langvinna ein-
angrun sem ætla má að hafi valdið
þeim miklum skaða. Að hreinsa
upp þessi ljótu mál er þjóðþrifa-
verk. Því verki verður að ljúka að
fullu.
Umræða 27Helgarblað 12.–14. apríl 2013
Guðmundar- og Geirfinnsmál: vatnaskil
Kjallari
Ögmundur
Jónasson
innanríkisráðherra skrifar
„Staðhæft er
að játningarn-
ar sem dómar Hæsta-
réttar voru byggðir
á, hafi verið í hæsta
máta óáreiðanlegar.
Mývatn á rauðum lista
U
mhverfisstofnun tilkynnti í
dag [fimmtudag] að Mývatn
væri komið á rauðan lista
stofnunarinnar, m.a. vegna
fyrirhugaðrar Bjarnarflags-
virkjunar Landsvirkjunar við vatn-
ið. Svæði á rauðum lista eru t.d.
talin í verulegri hættu á að tapa
verndargildi sínu. Í yfirlitsskýrslu
Umhverfis stofnunar segir um ógnir
sem steðja að Mývatni: „Áform eru
um að virkja í Bjarnarflagi og óvissa
ríkir um áhrif virkjanaframkvæmda
á vistkerfi Mývatns.“
Einstakt lífríki Mývatns skapar
því sérstöðu á heimsvísu. Þess vegna
segir í verndaráætlun fyrir Mývatn
og Laxá að það sé skylda núlifandi
kynslóða að varðveita sérstöðu
svæðisins og þar með að tryggja
komandi kynslóðum sama aðgengi
og svipaða upplifun og við getum
notið nú í dag.
Landvernd hefur farið formlega
fram á það við stjórn Landsvirkjunar
að fyrirtækið stöðvi nú þegar fram-
kvæmdir við fyrirhugaða virkjun og
vinni nýtt mat á umhverfisáhrifum
virkjunarinnar, en núgildandi mat er
að verða tíu ára gamalt. Þú getur tek-
ið undir þessa kröfu með því að skrá
nafn þitt á heimasíðu Landverndar.
„Einstakt lífríki Mý-
vatns skapar því
sérstöðu á heimsvísu.
Af blogginu
Guðmundur
Hörður