Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Blaðsíða 27
M ál sem tengdust hvarfi tveggja manna, Guð- mundar Einarssonar og Geirfinns Einars- sonar, á áttunda ára- tug síðustu aldar hafa hvílt sem mara á þjóðinni. Reglulega hefur rannsókn þessara mála verið gerð skil í opinberri umfjöllun og sak- borningar hafa stigið fram og sagt sína sögu. Í lok síðasta mánaðar kom út skýrsla starfshóps sem ég skipaði haustið 2011 undir for- mennsku Arndísar Soffíu Sigurðar- dóttur, lögfræðings og lögreglu- konu, til þess að fara í saumana á þessum málum og þá einkum á rannsókn þeirra. Á fréttamanna- fundi sem boðað var til þar sem starfshópurinn gerði grein fyrir niðurstöðum sínum voru, auk fjölda fréttamanna, mættir ýmsir aðstandendur þeirra einstaklinga sem flæktust – eða öllu heldur voru flæktir − inn í þessi mál. Úr penna Illuga Illugi Jökulsson rithöfundur var viðstaddur fréttamannafundinn og komst svo að orði í frásögn sinni: … Ógleymanlegast verður þó að hafa staðið þarna og hlýtt á þessa afgerandi niðurstöðu að við- staddri Erlu Bolladóttur og ýms- um aðstandendum sakborninga – þá sérstaklega börnum Sævars vinar míns Ciesielskis. Ég segi það bara hreint út að ég fékk beinlín- is tár í augun af hryggð yfir því að hann skyldi ekki hafa fengið að lifa þessa stund. Þegar ég kynntist Sævari fyrst var hann nýsloppinn úr fangelsi og sýndi mér næstum feimnis lega skjalabunka sem hann var byrjaður að safna í. „Ég ætla nefnilega að sanna sakleysi mitt,“ sagði hann. Hann náði ekki að lifa það sjálfur, ekki frekar en Tryggvi Rúnar Leifsson, annar sakborning- anna sem látinn er. En að börnin þeirra og aðrir ástvinir fái loksins að upplifa svolítið réttlæti, það er ósegjan lega dýrmætt. Loksins er þessari gömlu martröð létt af þjóð- inni.“ Undir þetta hafa margir tekið, enda skýrsla starfshópsins bæði vönduð og afdráttarlaus. Hvað nú? Fólk spyr nú um framhaldið. Starfshópurinn tefldi fram þrem- ur valkostum. Fyrir það fyrsta hefur ríkissaksóknari nú þegar fengið umrædda skýrslu og gögn sem henni liggja til grundvallar og metur embættið sjálfstætt hvort ástæða sé til að nýta þá heimild sem ríkissaksóknari hefur til að óska eftir endurupptöku til hags- bóta fyrir dómfelldu. Í öðru lagi gætu dómþolar nú freistað þess að fara fram á endurupptöku í ljósi þeirra upplýsinga sem fyrir liggja í skýrslu starfshópsins. Í þriðja lagi væri sú leið fær að fara með málið fram á Alþingi og að þar yrðu sett lög um endurupptöku málsins í ljósi sérstöðu þess. Ábendingar Arndísar Soffíu Ákvörðun um endurupptöku var þar til nýverið í höndum Hæsta- réttar sjálfs en sú breyting var gerð með lögum sem tóku gildi í febrú- ar síðastliðnum að sérstök endur- upptökunefnd tekur nú þessa ákvörðun auk þess sem nýju lögin mæla fyrir um það að niðurstaða nefndarinnar og rökstuðningur fyrir henni skuli birt opinberlega. Arndís Soffía hefur hins vegar bent á þann möguleika að ganga lengra í þessum efnum til að tryggja réttaröryggi fólks. Til að mynda mætti líta til Noregs en hjá norsku endurupptökunefndinni, sem er fyrirmynd þeirrar íslensku, starfi rannsakendur sem hafa m.a. það hlutverk að kanna hvort skilyrði til endurupptöku séu fyrir hendi. Norska nefndin beri þannig sjálf ábyrgð á því að afla allra nauðsyn- legra gagna og aðeins í undan- tekningartilfellum væri þeim sem beiðast endurupptöku skipað- ir talsmenn eða lögmenn. Hér á landi þarf sá sem óskar endurupp- töku hins vegar að sýna fram á að þau skilyrði séu fyrir hendi. Þess- ar ábendingar eru mikilvægar og þarf að taka til umræðu. Það sem breyttist En hver eru þau vatnaskil sem orðið hafa með vinnu starfshóps- ins um Guðmundar- og Geirfinns- mál? Í fyrsta lagi deilir enginn um að nefndin skilar af sér mjög vandaðri vinnu. Nefndin fékk sér til fulltingis Gísla Guðjóns- son prófessor sem er einn fremsti réttar sálfræðingur heims. Gísli hefur verið fenginn til ráðgjaf- ar í erfiðum sakamálum og þá sérstaklega til að meta áreiðan- leika játninga. Hefur hann starfað sjálfstætt en einnig með öðrum, þar á meðal Jóni Friðriki Sigurðs- syni, prófessor í sálfræði við Há- skólann í Reykjavík, en hann átti einnig sæti í starfshópnum. Í öðru lagi, og er það nátengt fyrra at- riðinu, þá er niðurstaða starfs- hópsins afdráttarlaus. Staðhæft er að játningarnar sem dómar Hæstaréttar voru byggðir á, hafi verið í hæsta máta óáreiðanlegar. Gísli Guðjónsson segir nánast engin dæmi þess að einangrun hafi verið beitt í eins ríkum mæli við rannsókn sakamála og gert var í þessu máli. Með langvinnri einangrun hafi fangarnir játað því sem upp á þá var borið til þess að forðast áframhald á slíkri vist. Í þriðja lagi, og vegur það þyngst þegar talað er um vatnaskil í þessu máli, þá hefur verið tekið skref til að létta farginu af öllum hlutað- eigandi einstaklingum og fjöl- skyldum þeirra. Samfélagið tekur við sér Hvað sem líður dómum sem upp voru kveðnir, þá geta fjölskyldurn- ar nú andað léttar. Samfélagið tekur við sér. Margt fólk á um sárt að binda vegna þessara mála og nefni ég þá aðstandendur þeirra Guðmundar Einarssonar og Geir- finns Einarssonar sem aldrei hefur spurst til. Það hlýtur að vera þung- bært að heyra stöðugt til þeirra vísað í tengslum við þessi erfiðu mál. Þá má það aldrei gleymast að enn fleiri einstaklingar voru einnig hnepptir í langvinna ein- angrun sem ætla má að hafi valdið þeim miklum skaða. Að hreinsa upp þessi ljótu mál er þjóðþrifa- verk. Því verki verður að ljúka að fullu. Umræða 27Helgarblað 12.–14. apríl 2013 Guðmundar- og Geirfinnsmál: vatnaskil Kjallari Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra skrifar „Staðhæft er að játningarn- ar sem dómar Hæsta- réttar voru byggðir á, hafi verið í hæsta máta óáreiðanlegar. Mývatn á rauðum lista U mhverfisstofnun tilkynnti í dag [fimmtudag] að Mývatn væri komið á rauðan lista stofnunarinnar, m.a. vegna fyrirhugaðrar Bjarnarflags- virkjunar Landsvirkjunar við vatn- ið. Svæði á rauðum lista eru t.d. talin í verulegri hættu á að tapa verndargildi sínu. Í yfirlitsskýrslu Umhverfis stofnunar segir um ógnir sem steðja að Mývatni: „Áform eru um að virkja í Bjarnarflagi og óvissa ríkir um áhrif virkjanaframkvæmda á vistkerfi Mývatns.“ Einstakt lífríki Mývatns skapar því sérstöðu á heimsvísu. Þess vegna segir í verndaráætlun fyrir Mývatn og Laxá að það sé skylda núlifandi kynslóða að varðveita sérstöðu svæðisins og þar með að tryggja komandi kynslóðum sama aðgengi og svipaða upplifun og við getum notið nú í dag. Landvernd hefur farið formlega fram á það við stjórn Landsvirkjunar að fyrirtækið stöðvi nú þegar fram- kvæmdir við fyrirhugaða virkjun og vinni nýtt mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar, en núgildandi mat er að verða tíu ára gamalt. Þú getur tek- ið undir þessa kröfu með því að skrá nafn þitt á heimasíðu Landverndar. „Einstakt lífríki Mý- vatns skapar því sérstöðu á heimsvísu. Af blogginu Guðmundur Hörður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.