Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Blaðsíða 36
36 12.–14. apríl 2013 Helgarblað
ára fangelsi urðu málalyktir í máli 42 ára Breta, Ivan Russel, á fimmtudaginn. Russel er
42 ára og var sakfelldur fyrir stórfellt barnaníð. Ginnti hann börn með töfrabrögðum og misnotaði síð-
an. Hann var dæmdur fyrir að misnota fimmtán börn. „Þú ert eigingjarnasti maður sem ég hef nokkurn
tímann hitt,“ sagði dómarinn í úrskurði sínum. Brotaferill Russels náði aftur til ársins 1994.18
n Myrti alla fjölskyldu sína n Átta börn og þrír fullorðnir lifðu páskana ekki af
E
itthvað hlýtur James Urban
Ruppert að hafa verið illa
stemmdur á páskadag, 30.
mars, árið 1975. Daginn
þann myrti James ellefu ætt-
ingja sína á heimili móður hans,
við Minor-breiðgötu númer 635 í
Hamilton í Ohio í Bandaríkjunum.
Verknaðurinn fékk heitið Páska-
sunnudagsblóðbaðið og er enn þann
dag í dag mannskæðasta skotárás
sem gerð hefur verið á einkaheimili
í Bandaríkjunum.
James Ruppert fæddist 29. mars,
1934, og var bernska hans lituð erf-
iðleikum og vonbrigðum. Móð-
ir hans, Charity – manngæska, ei-
lítið kaldhæðnislegt nafn í ljósi þess
sem á eftir kemur – fór ekki í laun-
kofa með að hún hefði fremur ósk-
að sér dætra en sona og faðir hans,
Leonard, var skaphundur sem sýndi
sonum sínum litla ástúð. Leonard
fór yfir móðuna miklu árið 1947
þegar James var 12 ára og bróðir
hans, Leonard yngri, var fjórtán ára.
Hógvær og hjálpfús
En Adam var ekki lengi í Paradís
og við fráfall Leonards tók Leonard
yngri við húsbóndahlutverki á heim-
ilinu og var iðinn við að hnýta í bróð-
ur sinn og gekk hnútukastið svo
langt að þegar James var sextán ára
fékk hann sig fullsaddan, strauk að
heiman og reyndi að fremja sjálfs-
morð. Sjálfsmorðstilraunin gekk
ekki og James snéri heim – þar sem
hann var kvaldastur.
Þegar James var kominn á full-
orðinsaldur var honum lýst sem
hógværum og hjálpfúsum manni,
lítt áberandi og lítið fyrir gaspur. En
velgengni Leonards fór fyrir brjóstið
á James – Leonard var í ágætu starfi
og hafði komið sér upp fjölskyldu –
því sjálfur hafði hann gefist upp í há-
skóla eftir tveggja ára nám. Leonard
yngri hafði hins vegar lokið námi í
rafmagnsverkfræði og var afburða
íþróttamaður að auki. Til að strá salti
í sárin hafði Leonard kvænst fyrrver-
andi kærustu James og eignast með
henni átta börn. James var 41 árs at-
vinnulaus auðnuleysingi og hafði
flutt inn til móður bræðranna, en
Leonard var í góðri stöðu hjá Gener-
al Electric.
Drykkja og þunglyndi
Sú staðreynd að James hélst ekki á
vinnu og var nánast orðinn gegn-
drepa vegna áfengisneyslu fór veru-
lega í taugarnar á Charity og hafði
hún í hótunum um að fleygja honum
út á guð og gaddinn. James skuldaði
móður sinni, og reyndar bróður sín-
um einnig, fé hafði enda tapað því
litla sem hann hafði átt í handrað-
anum þegar hlutabréfamarkaðurinn
hrundi árin 1973 og 1974.
Mánuði fyrir fjöldamorðið hafði
James spurt um hljóðdeyfi á skot-
vopn sín þegar hann keypti sér skot-
færi og eftir því var tekið að hegðun
hans hafði tekið breytingum – enda
var hann þá að nálgast endastöð
mikils þunglyndis.
Á 41 árs afmælisdegi sínum, 29.
mars, 1975, sást til hans þar sem
hann æfði skotfimi með Smith &
Wesson .357 Magnum-skammbyssu
sinni og um kvöldið fékk hann sér í
glas á veitingastaðnum 19. holu kok-
teilstofunni, eins og hann átti vanda
til á nánast hverju kvöldi.
Vandamál sem þarf að leysa
Á vínveitingastaðnum spjallaði hann
við bardömu að nafni Wanda Bishop
sem síðar sagði að hann hefði sagt
henni að hann væri orðinn andskoti
þreyttur á þeim kröfum sem móð-
ir hans gerði til hans. Einnig upp-
lýsti James Wöndu um hótun móð-
ur hans um að fleygja honum á dyr
– hann yrði að leysa það vandamál.
Klukkan ellefu það kvöld yfir-
gaf hann barinn en kom aftur síðar
um kvöldið. Wanda spurði hann þá
hvort hann hefði leyst vandamál-
ið en hann svaraði: „Nei, ekki enn.“
James var á barnum fram að lokun,
klukkan hálf þrjú um nóttina.
Gleðilega páska
Á páskadag 1975 var Leonard yngri
í heimsókn hjá móður bræðranna.
Hann var ekki einn á ferð því eigin-
kona hans, Alma, og börnin átta, á
aldrinum 4 til 17 ára, voru með.
James var uppi á efri hæð hússins
þar sem hann svaf úr sér vímu
drykkjunnar kvöldið áður en aðrir í
fjölskyldunni voru í hátíðarskapi og
leituðu páskaeggja í garðinum fram-
an við húsið.
Síðar, þegar allir voru komir inn,
fór Charity að sýsla við matseld –
Alma og Leonard héldu henni sel-
skap í eldhúsinu en börnin léku sér
í stofunni.
Um fjögur leytið vaknaði James,
hlóð Magnum-byssu sína, tvær 22
kalíbera skammbyssur og riffil og
rölti niður á neðri hæðina.
Hann gekk inn í eldhúsið og skaut
bróður sinn til bana. Síðan skaut
hann Ölmu og móður sína. Þá var
röðin komin að börnum Leonards
og Ölmu, David, Teresa og Carol
voru í eldhúsinu og því hæg heima-
tökin hjá James.
Eftir að hafa banað þeim fór
James inn í stofuna og lauk verkinu
með því að myrða þau fjögur börn
sem þar voru; Ann, Leonard, Mich-
ael, Thomas og John.
Beið lögreglunnar
Sú aðferð sem James beitti við
morðin var að skjóta fyrst til að
gera fórnarlambið óvígt og síðan
skjóta einu skoti í höfuð hvers og
eins. Einhver voru þó skotin þrisvar
og eitt var skotið beint í hjartastað.
Fjöldamorðið tók ekki nema fimm
mínútur.
James dvaldi í húsinu í þrjár
klukkustundir áður en hann hafði
samband við lögregluna og tilkynnti
um ódæðið. Þegar lögregluna bar að
garði beið James sallarólegur innan
við útidyrnar.
Eins og við var að búast var fólk
slegið í Hamilton og reyndar víðar í
Bandaríkjunum. Eins og oft í svona
málum þá gat enginn trúað því að
James væri fær um að fremja viðlíka
verknað. En það var ekki um neitt
að villast og James var handtekinn
og kærður fyrir ellefu morð. Hann
neitaði að svara spurningum lög-
reglunnar og var lítt samvinnuþýð-
ur. Þótti ljóst að hann myndi bera við
geðveiki.
Að sögn saksóknara var svo mikið
blóð á gólfum neðri hæðar hússins
að það draup niður í gegnum gólf-
fjalirnar og ofan í kjallara.
Dómur, áfrýjun, dómur
Fyrstu réttarhöldin voru haldin í Ha-
milton og James var fundinn sekur
um öll ellefu morðin og hann dæmd-
ur til lífstíðarfangelsis. Réttarhöldin
voru síðar dæmd ómerk og ákveðið
að ný réttarhöld færu fram í Findlay
í Ohio, um 200 kílómetra norður af
Hamilton – talið var að James fengi
ekki réttlát réttarhöld í Hamilton.
Önnur réttarhöldin hófust í júní
1975 og urðu lyktir þeirra þær sömu
og fyrr. Dómnum var áfrýjað og enn
ein réttarhöld voru haldin 1982 og
þá varð eilítil breyting á úrskurði
dómaranna; James var sakfelld-
ur fyrir fyrstu gráðu morð á móður
sinni og bróður, en hann var sýknað-
ur af hinum níu morðunum sökum
geðveiki. En engu að síður fékk hann
lífstíðardóm fyrir hvort morðið sem
hann var sakfelldur fyrir.
James Urban Ruppert er í Allen-
fangelsinu í Lima í Ohio. n
„Til
að
strá salti í
sárin hafði
Leonard
kvænst
fyrrverandi
kærustu
James
Í járnum
James Ruppert
leitaði ekki eggja á
páskadag 1975.
Páskadagsvígin