Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Qupperneq 4
4 Fréttir 12.–14. apríl 2013 Helgarblað Tannlækningar barna ókeypis n Tímamótasamningur í höfn S júkratryggingar Íslands og Tann­ læknafélag Íslands undirrit­ uðu á fimmtudag samning um tannlæknaþjónustu fyrir börn og unglinga yngri en 18 ára. Markmið samningsins er að börn og unglingar fái nauðsynlega tannlæknaþjónustu óháð efnahag foreldra. Samningurinn byggir á tillögum starfshóps sem Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra skipaði í fyrra. Kostnaðurinn nemur einum og hálfum milljarði árlega en framvegis munu öll börn hafa sinn eigin heim­ ilistannlækni. Markmiðið er að tann­ heilsa á Íslandi verði eins og best gerist á Norðurlöndunum. Samningurinn mun taka gildi í áföngum. Þann 15. maí mun hann taka til 15, 16 og 17 ára barna, en í septem­ ber munu bætast við 3, 12, 13 og 14 ára börn. Í janúar á næsta ári bætast 10 og 11 ára börn við. 1. janúar 2015 bætast 8 og 9 ára börn við, 1. janúar 2016 bætast 6 og 7 ára börn við. Þann 1. jan­ úar 2018 mun samningurinn einnig ná til 4 og 5 ára barna en árið eftir mun hann ná til allra barna yngri en 18 ára. Fram kemur í tilkynningu að ástæðan fyrir þessari röðun sé sú að vandinn sé mestur hjá elstu börnunum. Óhætt er að segja að samningurinn marki tímamót því síðasti samningur við tannlækna rann út 1998. n simon@dv.is R úmlega 30 milljarða króna eignir Vátryggingafélags Ís­ lands (VÍS) runnu til móð­ urfélags þess Exista í mars 2007. Um var að ræða eignir sem aðallega voru hlutabréf, meðal annars í Kaupþingi. Eignirnar voru í eigu dótturfélagsins VÍS 3 ehf. sem stofnað var sérstaklega til þess að halda utan um þessar eignir. Það félag var aftur í eigu hollenska eignarhaldsfélagsins Exista B.V. sem var stærsti hluthafi Exista. VÍS 3 ehf. seldi þessar 30 milljarða eignir sem sagt til Exista B.V. og eignaðist kröfu á móti. Í lok árs 2007 afskrifaði VÍS 3 ehf. svo kröfuna á Exista B.V. sem þá nam meira en 31 milljarði króna og var félaginu slitið. Um þetta segir í árs­ reikningi VÍS 3 ehf. fyrir árið 2008: „Í lok árs 2007 átti félagið kröfu á hend­ ur móðurfélagi sínu, þ.e. Exista BV sem var eini hluthafi félagsins. Tekin var sú ákvörðun að skuldajafna stöð­ um á milli félaganna, þ.e. VÍS 3 og Exista B.V., með því að lækka hlutafé VÍS 3. ehf. Samhliða því yrði félaginu VÍS 3. ehf. slitið. Skuldajöfnun var framkvæmd hjá báðum félögunum þann 1. janúar 2008.“ Með þessu móti voru eignir sem bókfærðar voru upp á 30 milljarða króna komnar úr eigu VÍS og í eigu Exista. Eignir minnkuðu um 30 milljarða Í ársreikningi VÍS fyrir árið 2007 kemur fram að eignir vátrygginga­ félagsins hafi rýrnað um 30 milljarða króna við skiptinguna, fóru úr tæp­ lega 54 milljörðum króna og niður í rúmlega 23 milljarða króna. Þar sagði að rúmlega 30 milljarða króna eignir hefðu runnið til Exista hf. „Í upphafi árs 2007 var dóttur félagið VÍS 3 ehf. stofnað. Í lok mars 2007 var félaginu skipt upp þannig að dótturfélagið VÍS 3 ehf. var aðskilið frá félaginu og sameinað við Exista hf. Skiptingin var byggð á efnahagsreikningi 31. mars 2007.“ Þessar fyrrverandi eignir vá­ tryggingafélagsins voru, eftir því sem næst verður komist, áfram í eigu Ex­ ista fram að bankahruninu 2008. Út frá ársreikningi VÍS og VÍS 3. ehf. verð­ ur ekki séð að greiðsla hafi borist fyrir þessum eignum til VÍS. Guðmundur Örn Gunnarsson, sem tók við starfi forstjóra VÍS í ársbyrjun 2008, segist ekkert vita um þessi upp­ skiptingu á eignasafni félagsins. Hún hafi verið gerð áður en hann tók við starfi forstjóra tryggingafélagsins. VÍS uppfyllti alltaf skilyrði um gjaldþol Þessi uppskipting á eignasafni VÍS varð þó ekki til þess að gengið væri þannig á eignir tryggingafélagsins að það uppfyllti ekki skilyrði um lágmarksgjaldþol tryggingafélaga. Eigin fjárstaða VÍS var mjög sterk á þessum tíma og gat tryggingafélagið fært þessar eignir út úr félaginu þar sem eiginfjárstaðan var svo góð. Einn af heimildarmönnum DV um málið segir: „VÍS átti miklu meira eig­ in fé en félagið þurfti að eiga lögum samkvæmt. Félagið var í raun bara að taka út eignir, færa niður eigin fé og skala niður efnahagsreikninginn í þá átt að eignir sem þar væru væru áhættuminni og hentuðu betur starf­ semi tryggingafélags. Fyrir þetta var VÍS kannski frekar blanda af vá­ tryggingafélagi og fjárfestingafélagi.“ Þessi viðmælandi DV segir að þessar eignir hafi aldrei aftur kom­ ist í eigu VÍS enda hafi uppskipt­ ingin á eignasafni tryggingafélagsins ekki verið til þess gerð. Hann segist ekki vita hvað varð um eignirnar eftir að þær fóru út úr VÍS. „Ég held að mönnum hafi bara fundist þetta vera mjög góð aðgerð. Að draga úr áhættu innan tryggingafélagsins. Það kom síðar í ljós, í hruninu, þegar félagið fór í gegnum hrunið að búið var að breyta eignasafninu þannig að ekki voru lengur stöður í áhættusama aðila eins og til dæmis Kaupþing. Þetta voru svo áhættusamar eignir. Það var verið að búa til félag sem var eðlilegra tryggingafélag. Ég held að það hafi verið rétt mat á þessum tíma að gera þetta.“ Eftir stendur að VÍS var áhættu­ sækið tryggingafélag fyrir þessa að­ gerð þar sem það fjárfesti í áhættu­ sömum eignum sem það síðar losaði sig við. Jafnframt er ekki vitað hvað varð nákvæmlega um þessar eignir eftir að þær fóru úr bókum VÍS þó vitað sé að þær hafi runnið til Exista. Ekki náðist í Sigurð Valtýsson, fyrrverandi forstjóra Exista, stjórnar­ formann VÍS og stjórnarformann VÍS 3. ehf., til að spyrja hann um málið. n „Tekin var sú ákvörðun að skuldajafna stöðum á milli félaganna, þ.e. VÍS 3 og Exista B.V., með því að lækka hlutafé VÍS 3. ehf. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is 30 milljarðar VÍS fóru til HollandS n Vátryggingafélagið átti áhættusöm hlutabréf fyrir 30 milljarða í mars 2007 Horft til Hollands Ekki er vitað hvað varð um eignirnar sem runnu út úr VÍS og til Exista í mars 2008. Bakka­ bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmunds­ synir voru aðaleigendur Exista. Komst ekki í kaffiboð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð­ herra neyddist til að afþakka kaffi­ boð sem samtök foreldra samkyn­ hneigðra barna buðu henni í í Kína, en þar er hún stödd í opinberri heimsókn ásamt eiginkonu sinni Jónínu Leósdóttur. Jóhanna gat ekki gefið sér tíma til að setjast niður í kaffi með grasrótarsamtökunum PFLAG þar sem dagskrá hennar ytra er hreinlega of þétt skipuð. Samkvæmt kínverska fjölmiðlinum South China Morning Post segja forsvarsmenn samtakanna að þrátt fyrir þetta sé heimsókn Jóhönnu og Jónínu Leósdóttur mikil hvatn­ ing fyrir þau og sendi kínverskum stjórnvöldum ákveðin skilaboð. Vinsælli en Bjarni Væri Hanna Birna Kristjánsdóttir leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í stað Bjarna Benediktssonar fengi sá flokkur helming þess fylgis sem nú segist fylgja Framsóknarflokknum að málum að því er fram kem­ ur í nýrri könnun MMR sem Við­ skiptablaðið greinir frá. Niðurstaðan er að Hanna Birna myndi sækja töluvert fylgi frá Framsóknarflokknum sem í nýju­ stu könnunum mælist með yfir 30 prósenta fylgi. Af þeim er afstöðu taka segjast 44 prósent þeirra sem fylgja Framsóknarflokki að málum nú myndu lýsa yfir stuðningi við Sjálfstæðisflokk væri Hanna Birna leiðtogi flokksins. Um 19 prósent svarenda segjast örugglega munu gera það og 25 prósent mjög lík­ lega. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur dalað jafnt og þétt síðustu vikur samkvæmt könnunum og mælist fylgi flokksins nú vel undir síðasta kjörfylgi hans. Við undirritun Samn­ ingurinn mun taka gildi í áföngum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.