Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Blaðsíða 8
8 Fréttir 12.–14. apríl 2013 Helgarblað
Ný skýrsla um tölvukerfið
n Ríkisendurskoðun fer yfir uppfærsluna
V
el var staðið að uppfærslu á
fjárhags- og mannauðskerfi
ríkisins árið 2010 að mati
Ríkis endurskoðunar. Í nýrri
skýrslu frá stofnuninni um uppfærslu
kerfisins segir þó að ekki hafi allt
gengið áfallalaust fyrir sig en meðal
annars hægðist á vinnsluhraða kerf-
isins fyrst eftir að það var uppfært og
villur og vandamál komu fram sem
tengdust afmörkuðum kerfishlutum.
Um er að ræða sama fjárhags- og
mannauðskerfi ríkisins sem Ríkis-
endurskoðun hafði til skoðunar um
margra ára skeið án þess að skila Al-
þingi skýrslu um málið. Skýrslan var
ekki kláruð fyrr en Kastljós fjallaði
um drög að skýrslu stofnunarinnar
um kerfið en þar var dregin upp dökk
mynd af því.
Árið 2009 samdi Fjársýsla ríkisins
við SKÝRR, nú Advania, um að upp-
færa kerfið þrátt fyrir að þá hafi það
ekki verið búið að ljúka skýrslu sem
átti að staðfesta að innleiðing kerfis-
ins hafi í raun verið lokið.
Samningurinn um uppfærslu
kerfisins kvað á um 138 milljóna
króna kostnað ríkisins auk virðis-
aukaskatts en þegar upp var stað-
ið greiddi ríkið tveimur milljónum
króna meira, auk virðisaukaskatts. n
aðalsteinn@dv.is
n Huldufélag Jóns Ásgeirs skilaði mörg hundruð milljóna króna hagnaði á árunum fyrir hrun
J
ón Ásgeir Jóhannesson,
fjárfestir og fyrrverandi
aðaleigandi Baugs, fékk
greiddar þóknanir til
eignarhalds félags síns Þú
Blásólar ehf. vegna viðskipta sem
hann átti þátt í að koma á milli
hlutafélaga og fjármálafyrirtækja. Í
þeim skilningi má segja að um hafi
verið að ræða eins konar greiðslur
fyrir að vera milliliður í viðskiptum
á milli þessara aðila. Líkt og kunn-
ugt er var Jón Ásgeir aðaleigandi
og stjórnandi Baugs, sem meðal
annars átti smásölurisann Haga,
en félög í eigu Jóns Ásgeirs voru
einnig stórir hluthafar í Glitni.
Fjárfestingin í Williams
Þú Blásól ehf. hefur ekki skilað árs-
reikningi síðan árið 2007. Félagið er
alfarið í eigu Jóns Ásgeirs. Nýjasta
færslan sem tengist Þú Blásól ehf. í
gagnagrunni ríkisskattstjóra er frá
árinu 2010 en þá sagði systir Jóns Ás-
geirs, Kristín Jóhannesdóttir, sig úr
stjórn félagsins.
Félagið hefur ekki oft komist í
kastljós fjölmiðla eftir hrunið 2008
en í einu af skiptunum sem félagið
kom til tals var um að ræða meint
viðskipti þess við eignarhalds félag
Pálma Haraldssonar, Fons. Þá lagði
Fons milljarð króna inn á persónu-
legan tékkareikning Jóns Ásgeirs
og var milljarðurinn sagður vera
hlutdeild Fons í sameiginlegri fjár-
festingu þeirra tveggja í Williams-
formúluliðinu. Þrotabú Fons hefur
stefnt Jóni Ásgeiri út af þeim við-
skiptum.
Sigurður G. Guðjónsson er lög-
maður Jóns Ásgeirs í málinu og
sagði um það á sínum tíma í sam-
tali við DV: „Það er nú bara vegna
þess að Þú Blásól hafði á þessum
tíma ekki bankareikning í Glitni
banka. Svo var þetta bara millifært
frá Jóni til Þú Blásólar til að standa
við þær skuldbindingar sem þeir
þurftu að standa við út af þessari
Williams-fjárfestingu.“
Hundruð milljóna í hagnað
Samkvæmt ársreikningi Þú Blásól-
ar fyrir árin 2005, 2006 og 2007 skil-
aði félagið hins vegar samtals mörg
hundruð milljóna króna hagnaði á
þessum tíma. Árið 2005 nam hagn-
aður félagsins tæplega 242 millj-
ónum króna; árið 2006 nam hann
rúmlega 233 milljónum króna en
árið 2007 tapaði félagið hins vegar
rúmlega 94 milljónum króna. Í lok
árs 2007 námu eignir félagsins 840
milljónum króna en skuldir voru
rúmlega 753 milljónir.
Þá kom fram í ársreikningnum
að frá árslokum 2007 til ársins 2010
hafi félagið átt að greiða meira en
360 milljónir króna af skuldum sín-
um og var hluti þeirrar upphæðar í
evrum. Vegna efnahagshrunsins
er ljóst að skuldbindingar félags-
ins í evrum fóru hækkandi frá ár-
inu 2008. Hluti af skuldum félags-
ins var við tengda aðila.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Svo var
þetta
bara millifært
frá Jóni til Þú
Blásólar
Þóknanir vegna viðskipta
Eignarhaldsfélag í eigu Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar fékk
greiddar þóknanir vegna
aðkomu hans að viðskiptum
á árunum fyrir hrun. Félagið
heitir Þú Blásól ehf. og skilaði
myljandi hagnaði 2005 og
2006. Mynd SigtRygguR ARi
Jón Ásgeir fékk greiddar
þóknanir til Þú Blásólar
Vilja kannanir
á kjördag
Aukinn fjöldi fólks er því fylgj-
andi að fjölmiðlar birti niður-
stöður skoðanakannana daginn
fyrir kjördag eða á kjördag sjálfan.
Mælast nú rúm 42 prósent slíku
fylgjandi en rúm 26 prósent and-
víg.
Þetta kom í ljós við könnun
MMR meðal fólks en töluvert
var um það rætt fyrir kosningar
til Alþingis 2009 hvort leyfa ætti
birtingu á fylgistölum þegar
svo skammt væri til kosninga.
Blátt bann er við slíkum birting-
um kannanna í sumum löndum
heims en víðast á Vesturlöndum
gilda þó engar sérstakar reglur um
þetta.
Mun fleiri lýstu andstöðu við
birtingu á fylgi flokka með svo
skömmum fyrirvara síðast þegar
MMR kannaði afstöðu fólks, í
mars í fyrra. Þá sagðist 31 prósent
svarenda á móti slíku og aðeins
tæp 35 prósent fylgjandi.
Dæmdur
brotlegur
Gunnari Þ. Andersen, fyrrverandi
forstjóra Fjármálaeftirlitsins, er
gert að greiða tvær milljónir króna
í sekt til ríkissjóðs eftir að hafa ver-
ið fundinn sekur um brot í starfi.
Dómari í málinu komst að
þeirri niðurstöðu að með því
að afla sér og afhenda DV gögn
um fjármál Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar, þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins, hefði Gunnar
brotið gegn þagnarskyldu.
Einn starfsmaður Landsbanka
Íslands fékk einnig dóm og einnar
milljónar króna sekt fyrir að rjúfa
bankaleynd í sama máli.
Ríkisendurskoðun Stofnunin
kláraði fyrri skýrsluna skömmu
eftir afhjúpun Kastljóss.