Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 18
18 Fréttir 12.–14. apríl 2013 Helgarblað Eins og ein stór fjölskylda n Íbúar í Árneshreppi á Ströndum standa saman n Allur hreppurinn mætti í afmæli n Átökin í kringum kirkjuna n Óttast að mæta ísbirni á dimmum vetrarmorgni Í myndaðu þér samfélag þar sem framhald þekkist ekki og samstaða íbúanna er svo sterk að alvarleg átök hafa ekki þekkst síðan kirkjan var reist. Samfélag þar sem íbúar eru svo fáir og samgöngur svo lélegar að fólkið verður að treysta á hvert ann­ að. Til að finna það þá keyrir þú veg­ inn á enda, norður á Strandir og inn í Árneshrepp, nyrsta sveitarfélagið í Strandasýslu og það minnsta á landinu. Hér smalar enginn einn held­ ur smala allir með öllum. Velkomin Í kvöld er afmæli. Guðmundur Magnús Þorsteinsson, oftast kallaður Mundi, er sjötugur. Hann hefur látið orðið berast, það verður heitt á könnunni og þá mætir allur hreppurinn. „Ætlið þið ekki að koma?“ spyr oddvitinn í hreppnum, Oddný Snjólaug Þórðar­ dóttir, bóndi í Krossnesi. Við sitjum á skrifstofu oddvitans, sem stendur inn af Kaupfélaginu, með útsýni yfir hafið. Kaupfélagið er helsti samkomustaður sveitarinnar en er lokað í dag. Þar fá sveitungarnir súkkulaði og prjóna­ húfur, frosnar matvörur og drykkjar­ föng. Ferskmetið kemur með fluginu á fimmtudögum. Til að ganga úr skugga um að við séum örugglega velkomin slær odd­ vitinn á þráðinn til afmælisbarns­ ins og segir að ég eigi rætur að rekja norður. Oddný frétti það fljótlega eftir að við komum norður, slíkt er ekki lengi að berast á milli bæja. Hér taka heimamenn vel á móti sínu fólki. „Reyndar er það maðurinn minn sem er frá Dröngum,“ leiðrétti ég en það kemur ekki að sök. Við erum velkomin. Kom á hverju sumri Oddný ólst upp á Suðurlandi, „í flatneskjunni þar“, en var send hingað í sveit sem barn og unglingur. Hún var hjá móðursystur sinni á Melum á sumrin og eiginmanni henn­ ar. „Þau tóku mér alltaf með opnum örmum og það var alltaf svo gott að koma hing­ að og vera hér, gjörólíkt því sem ég þekkti fyrir sunnan.“ Móðursystir hennar dó ung frá börnunum og móð­ ir Oddnýjar fóstraði yngsta barnið sem var þá nýfætt. „Þannig að tengslin hafa alltaf verið mjög sterk.“ Hún kom fyrst þegar hún var tólf ára og síðan á hverju einasta sumri þaðan í frá, allt þar til hún varð 28 ára og tók saman við bóndann á Kross­ nesi. Hún var þá orðin móðir og menntaður leikskólakennari og hafði starfað sem slíkur í nokkur ár. „Ég end­ aði hér. Enda fannst mér alltaf svo gott að vera hérna. Það er einhvern veg­ inn þannig að tengingin hingað er svo sterk. Í flestum tilfellum sækja brott­ fluttir aftur hingað. Rosalega margir koma á hverju sumri.“ Verra að mæta ísbirni en draugum Landslagið er stórbrotið og það heillar, nálægðin við sjóinn og þessi háu fjöll. „Umhverfið hefur rosalega góð áhrif. Það er það sem gerir það að verkum að ég vil vera hér, mér finnst gott að geta horft út á sjóinn og fjöllin ógna mér ekki. Í mínum huga eru þau falleg og vinaleg og ég get alltaf dáðst að þeim.“ Aðspurð um myrkrið segir hún það ekki hafa áhrif á sig. Ekki þannig. En auðvitað er ekki gaman að vera einn í rafmagnsleysi. Þá verður svartamyrkur hér. „Við erum með vararafmagn en það er mjög erfitt að setja mótorinn í gang. Ég held að ég gæti ekki gert það ein.“ Hann er líka lélegur en gerir þeim að minnsta kosti kleift að kveikja ljós og elda á einni hellu. „Það væri algjör­ lega ömurlegt að hafa ekkert.“ Sums staðar er ekkert vararafmagn, eins og hér á Norðurfirði þar sem kaupfélagið er. Þar eru húsin úr stein­ steypu og verða mjög köld í rafmagns­ leysinu. Sérstaklega í vetrarhörkunni, þegar vindurinn blæs og frostið næðir. Oddný er ekki hrædd við myrkrið og hún óttast ekki drauga, ekki leng­ ur, hún gerði það sem barn. Nú óttast hún hins vegar ísbjörninn sem hún gæti mætt á leið sinni til vinnu. „Mér þætti heldur verra að mæta ísbirni en draugum,“ segir hún hlæjandi. „Í gamni og alvöru þá hugsa ég stund­ um um það þegar ég geng á milli á vet­ urna, í myrkri og snjó og svelli, hvað ég ætti að gera ef ég mætti ísbirni. Ég gæti ekkert gert. Þetta er alveg möguleiki. Þeir hafa verið að þvælast hérna og það komu birnir í Ófeigsfjörð fyrir nokkrum árum.“ Atvinnutækifærin Börnin sem fara burt í nám sækja líka stíft hingað. Fæst þeirra koma þó til þess að vera. „Auðvitað mennta þess­ ir krakkar sig í burtu héðan. Vonandi koma þeir aftur með tímanum.“ Eins og skólastjórinn í Finnboga­ staðaskóla. Hún er fædd og uppalin í sveitinni en fór héðan og menntaði sig sem kennari og sneri aftur sem skóla­ stjóri og þriggja barna móðir. Fleiri myndu vilja koma aftur en geta segir Oddný. „Þau hafa mörg vilja til að koma en maki þeirra verður að vilja það líka og svo verða þau að geta skapað sér tækifæri til þess að vinna.“ Hér er sauðfjárrækt undirstaðan fyrir búskap og bændurnir byggja á því. Hér er líka höfn og hægt að gera út. Það er stutt á strandveiðar héðan svo á sumrin sækja margir í að vera hér með báta. Síðan er það skólinn. Þó að börnin séu fá þá eru þau á öll­ um aldri, frá sex og upp í fimmtán, þannig að þar starfa bæði kennari og skólastjóri. Hér er líka flugvöll­ ur sem þarf að þjónusta og veður­ athugunarstöð. Hér er meira að segja einn blaðamaður sem flytur fréttir úr sveitinni á vefsíðunni Litli Hjalli. Sundlaugin í myrkrinu Og sundlaugin, Krossneslaugin sem stendur við flæðarmálið. Laugin var byggð árið 1954, áður en vegurinn var lagður að Krossnesi þannig að efnið var allt flutt á bátum. Aðstæður voru nefnilega hinar ákjósanlegustu þar sem skammt frá sjónum stendur hvammur með heitu vatni frá Kross­ neslaugum og kaldur bunulækur. Ungmennafélagið Leifur heppni stóð að framkvæmdinni og jarðeigendur létu eftir lóðina. Sundlaugin er mikið notuð af heimamönnum og er hálfgerður samkomustaður ungmenna á sumrin. Þá fara ferðamenn nánast undantekn­ ingarlaust í laugina og láta það gjarna vera sitt fyrsta verk hér í sveitinni. Við förum í kvöld, í myrkrinu. Ekkert rafmagn er í klefunum en þar stendur kerti sem hægt er að kveikja á. Skýjabreiðurnar leggjast yfir fjallið fyr­ ir ofan laugina og það hvissar í öldun­ um sem leggjast að fjörunni fyrir neðan. Oddný býr rétt hjá lauginni en hún notar hana aldrei. „Kannski bý ég bara of nálægt,“ segir hún hlæjandi. Henni fannst líka nóg um að þurfa að þrífa laugina hér á árum áður, áður en fenginn var maður til þess yfir sumar­ tímann. Það er hins vegar látið ógert á veturna, enda er laugin full af grænu slími. Minnsti skóli landsins Oddný lætur sig samt dreyma varð­ andi hitaveituna í hreppnum. „ Fyrir nokkrum árum var borað fyrir vatni og eftir það væri hægt að leiða heitt vatn inn í Norðurfjörð. Það væri algjör snilld en það bara kostar og það vant­ ar fjármagn.“ Hreppurinn hefur ekki mikið til ráðstöfunar. „Við eigum ekki nóg til þess að standa straum af slíkum kostn­ aði,“ segir Oddný. „Við eigum bara rétt fyrir því sem við þurfum og höf­ um meira að segja verið aðeins í mín­ us undanfarin ár þótt við höfum ekki staðið í neinum framkvæmdum.“ Dýrasta einingin er skólinn en án hans vildu þau ekki vera. Þó að hann sé minnsti skóli landsins þá er hann hjarta sveitarfélagsins. „Lífið er unga fólkið. Það mætti vera meira af því hér.“ Alls eru sjö börn í skólanum. Á Bæ eru ung hjón með tvö lítil börn, sex og fjögurra ára. Skólastjórinn sjálf­ ur er þriggja barna móðir og svo býr lítil stelpa á Árnesi. Síðan er kennar­ inn sem kom frá Vestmannaeyjum með tvo stráka á skólaaldri. „Þau tóku sér ársfrí til þess að koma hingað og kenna,“ segir Oddný, en það vantar kennara fyrir næsta vetur. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is Afmælisbarnið Jón Guðbjörn Guðjónsson er veðurathugunarmaður, fréttaritari staðarins og póst-burðarmaður. Afmælisbarnið, Guðmundur Þorsteinsson, stendur þarna og við hlið hans er Gunnsteinn Gíslason, fyrrverandi oddviti og kaupfélagsstjóri og elsti íbúi hreppsins. Veislan Allur hreppurinn mætti í afmælið til Guðmundar á Finnbogastöð- um. Hann missti æskuheimilið í eldsvoða fyrir nokkru og náði ekki að bjarga neinu nema sjálfum sér. Myndir Sigtryggur Ari „Mér þætti heldur verra að mæta ís- birni en draugum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.