Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Blaðsíða 19
Fréttir 19Helgarblað 12.–14. apríl 2013 Eins og ein stór fjölskylda n Íbúar í Árneshreppi á Ströndum standa saman n Allur hreppurinn mætti í afmæli n Átökin í kringum kirkjuna n Óttast að mæta ísbirni á dimmum vetrarmorgni Innilokuð Talandi um drauma. Stærsti draumur­ inn væri þó að samgöngurnar væru í lagi. Í bréfi sem oddvitinn sendi Al­ þingi á síðasta ári kemur fram að ástand samgöngumála sé verulegt áhyggjuefni. Á haustin og á meðan snjólétt er má vegagerðin moka tvo daga í viku. Eftir 1. nóvember má að­ eins moka einu sinni í viku á kostnað Vegagerðarinnar fram til 5. janúar. Þá tekur við tímabil er varir fram til 20. mars þar sem ekki er mokað nema að beiðni og gegn helmingsgreiðslu frá sveitarfélagi. „Það er náttúrulega rugl. Þetta geta verið háar upphæðir og við gerum ekki ráð fyrir mokstri í fjárhags­ áætlun.“ Íbúar í Árneshreppi eru því inn­ ilokaðir frá 5. janúar til 20. mars. Bændurnir þurfa að kaupa allar byggingarvörur og fóður sem þeir þurfa á að halda fyrir veturinn á haustin áður en vegurinn lokast fyrir þungaflutninga og áburð fá þeir stund­ um ekki fyrr en í júní. Að vísu er hér flugvöllur og þegar veður leyfir er flogið til Reykjavíkur tvisvar í viku. „En þá þarftu að vera fyrir sunnan í að minnsta kosti þrjá daga. Stundum finnur maður auðvitað fyrir því hvað það er langt að fara héðan og saknar þess að geta ekki skotist burt. Þú skýst ekkert ef þú ert hér.“ Læknirinn kemur á skíðum Einangrunin leggst þó ekki eins þungt á Oddnýju og marga aðra. „Um leið og vegurinn lokast verða alltaf einhverjir órólegir. Það snýst ekkert endilega um að fólk ætli sér að fara héðan heldur finnur það bara fyrir þessari einangrun og ergir sig yfir henni. Þá er það alltaf að tala um þennan snjómokstur svo hér skapast leiðinlegur mórall. Auðvitað er ekki rétt að eitt lítið sveitarfélag þurfi að berjast fyrir því að fá veg í sveitina og viðunandi þjónustu. Það ætti bara að vera vegur hingað.“ Enda er læknirinn á Hólmavík – og ruslabíllinn, presturinn og sýslumaðurinn, félagsmálastjórinn og svona eitt og annað sem íbúar Árnes­ hrepps þurfa á að halda. Ruslabíllinn kemur ekki nema þegar vegurinn er opinn en í gegnum tíðina hefur lækn­ irinn stundum komið á skíðum eða sleða yfir heiðina. Í neyðartilvikum er fólk flutt burt með flugi. Sem betur fer hefur sú staða ekki komið upp á síð­ ustu árum að fólk hafi nauðsynlega þurft á læknisaðstoð að halda þegar vegurinn er lokaður og veður eru svo slæm að ekki er hægt að fljúga en sú hætta er alltaf fyrir hendi. „Við erum eins og eyja. Auðvitað er það ergilegt þegar það ætti að vera hægt að fara veginn en það er þó skárra hér en á Djúpavík þar sem vegurinn lokast í báðar áttir og fólk hefur ekki aðgang að fluginu. Þar geta þau hjónin verið innilokuð í margar vikur og það er ekki gott að vita af þeim þar. Það hefur áhrif á okkur öll.“ Á Djúpavík er íbúarnir aðeins tveir, hjón sem reka heilsárshótel þótt það sé upp og ofan hvort gestir komist þar að. Þau eru háð velvilja Vegagerðar­ innar og Árneshrepps með mokstur til að komast í flug og sækja póst og vörur norður í sveit. Erfitt að senda börnin burt Aðspurð um sameiningu sveitarfé­ laga segir Oddný það nærtækast að sameinast Reykjavík því þangað er auðveldast að komast. Þangað fara börnin yfirleitt í skóla þegar þau þurfa að fara héðan til þess að ljúka skóla­ skyldunni. Tíundi bekkur er nefnilega ekki kenndur hér. Það eru svo fáir krakkar í skólanum að það þykir ágætt að undirbúa þau félagslega fyrir framhaldsskóla með því að senda þau í stærri skóla fyrir sunnan. Þar geta þau einnig tekið val­ fög sem er ekki hægt að bjóða upp á í Finnbogastaðaskóla sökum fámennis. Eins og ein stelpan sem er nú fyrir sunnan að ljúka skólaskyldunni og er í spænsku. „Hún gæti það ekki hér. Á móti kemur að í Finnbogastaðaskóla fá krakkarnir einstaklingsþjónustu sem skilar sér svo þau standa sig mjög vel í skóla og verða nýtir þjóðfélags­ þegnar.“ Flest fara til vina og vandamanna í bænum, einhverra sem eru tilbúnir til þess að taka þau að sér. „Það er ekki alveg einfalt að finna út úr því,“ segir Oddný, „og ekkert sjálfgefið heldur.“ Hún á sjálf tvo syni. Eldri sonur­ inn er á fertugsaldri en sá yngri er 26 ára. Þeir fóru til Reykjavíkur þar sem Oddný átti bæði íbúð og mömmu. „Auðvitað var erfitt að senda barnið frá sér en þetta var eitthvað sem ég þurfti að sætta mig við. Kennurunum sem tóku við strákunum fannst það alveg hræðilegt að þeir væru einir í bænum. Það var meira sjokk fyrir þá en okkur sem þekktum þessar aðstæður.“ Hér hefur þetta alltaf verið svona. Maðurinn hennar Oddnýjar ólst upp hér í sveitinni og þurfti að fara strax eftir fermingu í heimavist í Hrútafirði. Í þá daga var farið á milli með skipum og börnin komu ekki heim nema um jól og páska. Húsin eru aldrei seld Margt hefur breyst síðan þá og sem betur fer til batnaðar. Fyrir liggur þó að það þarf að byggja upp veginn sem hingað liggur. Oddný vill gera það að forgangsverkefni og segir að vegurinn frá Veiðileysukleif norður á Gjögur hafi verið ruddur með jarðýtum á árunum 1960–1965 og síðan hafi ekkert verið gert. Að mati Vegagerðarinnar er þessi vegarkafli ekki talinn þjónustufær yfir veturinn. „Það þarf að færa veginn á snjóléttari staði,“ enda er þetta afar óþægilegt ástand fyrir íbúana í Árnes­ hreppi. Alls eiga 52 lögheimili í hreppn­ um en að staðaldri eru 36 einstak­ lingar þar yfir vetrarmánuðina. Þeir eru flestir komnir yfir miðjan ald­ ur og Oddný myndi gjarna vilja fá fleiri barnafjölskyldur hingað. Yngsta barnið í hreppnum er þriggja ára og elsti íbúinn varð áttræður í desem­ ber. Sá er fyrrverandi oddviti og kaup­ félagsstjóri og rekur núna gistiheimili í Norðurfirði. Á sumrin fyllist svo allt af fólki. Flest húsin hér eru heilsárshús sem eru í eigu brottfluttra og í mörgum tilfellum standa stórar fjölskyldur að þeim. „Þeir sem flytja burt vilja aldrei selja eignirn­ ar sínar. Þeir vilja eiga þær áfram til að geta komið aftur,“ útskýrir Oddný sem þarf núna að fara að drífa sig. Gæti endað í skáldsögu Enda er nóg að gera. Þegar störfum lýkur á skrifstofunni bíða verkefnin heima þar sem heimilisstörfin eru al­ farið á hennar könnu. „Bóndinn er dá­ lítið gamaldags að þessu leyti,“ segir hún sem eldar, þrífur og bakar. Djöfla­ kökur eru í sérstöku uppáhaldi og heimareyktar rúllupylsurnar hennar þykja sérlega góðar. Þegar tími gefst til þá reynir hún að prjóna eða sauma líka. Síðasta vetur sótti hún svo námskeið í skap­ andi skrifum sem rithöfundurinn Vig­ dís Grímsdóttir stóð fyrir. Hún heldur mikið til hér í hreppnum ásamt vin­ konu sinni Maríu Guðmundsdóttur. „Það er mikið líf í kringum þær. Í vetur höfum við konurnar í hreppnum alltaf hist á fimmtudagskvöldum heima hjá þeim til þess að mála og skrafa. Í fyrra bauðst Vigdís til þess að kenna krökkunum skapandi skrif og þá spurðum við, fullorðna fólkið, hvort við mættum ekki mæta líka. Það kveikti í mér,“ segir hún og glottir óræðu brosi, „en það er ekkert alvarlegt.“ Hún stefnir ekki á skáldsögu en á allt eins von á því að enda sem einhver karakter í skáldsögu eftir Vigdísi. „Eru þessir rithöfundar ekki alltaf að skrifa um eitthvað sem þeir þekkja?“ Henni er sama. Henni stendur líka á sama þótt það sé útilokað að vera fullkomin hús móðir og oddviti sveitarfélags í senn. Það lætur alltaf eitthvað undan og þannig er það bara, en nú er þetta orðið gott. Oddný er búin að vera odd­ viti í sjö ár og er farin að vilja meiri tíma fyrir sjálfa sig. „Maðurinn er orðinn verri í skrokknum og þá verð ég að fara að draga mig meira heim.“ Ekki fyrir alla Þau hjálpast að. Eins og fólkið hérna gerir. Hér hjálpast allir að. „Við erum eins og ein stór fjölskylda. Þess vegna held ég að þrátt fyrir allt getir þú verið einangraðri í blokk í Reykjavík. Hér eru sterk tengsl á milli allra og það hjálpast allir að. Mér hefur alltaf fundist eins og fólkið hérna sé eins og mín nánasta fjölskylda.“ Þegar boðið er til veislu kemur til dæmis aldrei annað til greina en að bjóða öllum í hreppnum. „Þetta virkar þannig. Það er mikil samhjálp hérna og ef það þarf að gera eitthvað þá hjálpast allir að. Þetta er ekki hægt öðruvísi.“ Það er oft erfitt að lifa svona á hjara veraldar. Það krefst mikillar vinnu og sjálfsbjargarviðleitni. „Þetta er ekki fyrir alla. Fólk þarf að vera duglegt til þess að geta þetta. En sem betur fer telja menn það ekkert eftir sér að að­ stoða náungann.“ Átök og afmæli Og þá sjaldan sem fólk verður pirrað eða lendir í átökum endist það aldrei lengi. Ekki síðan nýja kirkjan var byggð allavega. Kirkjan sem átti að taka mið af Reykjarneshyrnunni og sumir segja að snúi öfugt miðað við hefðina og aðrir segja að hafi mislukkast þegar hún lenti neðar en vegurinn sem liggur að henni. „Það verður alltaf allt brjálað þegar það á að eiga eitthvað við kirkjur, ég held að það sé almennt þannig í öllum samfélögum. Gamla kirkjan var orðin ónothæf en um leið og byrjað var á nýrri kirkju þá reis upp einhver hóp­ ur sem fór að gera við gömlu kirkjuna.“ Þarna voru tveir bræður að takast á. Úr varð stríð sem færðist yfir á fleiri at­ riði og fólk dróst í dilka. „Það tók tíma að jafna sig en það er sem betur fer gengið yfir núna.“ Í afmælisveislunni er allavega ekkert nema gleðin. Þangað koma ungir sem aldnir saman, allur hreppur­ inn mætir sem einn og konurnar koma með kökur sem þær hafa bak­ að fyrir bóndann sem er einstæðingur og færa honum í stað gjafa. Svo raðar fólk sér upp í hring í stofunni og syng­ ur við undirspil gítarleikarans sem var sóttur sérstaklega til Hólmavíkur fyr­ ir þetta tilefni. Þar sem fæstir kunna textana við vinsæl dægurlög eru það gömlu góðu skólalögin sem eiga hug og hjarta afmælisgesta sem syngja af innlifun, klappa með og hlæja. Af og til stendur einhver upp og heldur ræðu til heiðurs afmælisbarninu en síðan brestur fólkið aftur í söng og gleði sem stendur fram á nótt. n Giftist í hreppinn Oddvitinn Oddný Þórðar- dóttir kom hingað í sveit í æsku og síðan á hverju sumri þar til hún giftist bóndanum á Krossnesi. Krossneslaug Eitt það fyrsta sem ferðamenn gera er að skella sér í laugina. Stríðið um kirkjuna Einu hörðu átökin í manna minnum hér í hreppnum snerust um það hvort gera ætti upp gömlu kirkjuna eða byggja þá nýju. „Það verður alltaf allt brjálað þegar það á að eiga eitthvað við kirkjur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.