Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Qupperneq 22
Þeir ræna sér eiginkonum 22 Erlent Trúarlegar pyntingar í boði kirkjunnar n Bók um tengsl kirkjunnar við Hollywood vekur athygli O pinská umfjöllun rithöfund­ arins Lawrence Wright um Vísindakirkjuna hefur vak­ ið mikla athygli í Bandaríkj­ unum, en nýlega gaf hann út bók­ ina Going Clear þar sem hann rekur sögu kirkjunnar og tengsl hennar við Hollywood. Niðurstaða Wright er sú að Vísindakirkjan líkist helst litlu al­ ræðisríki þar sem barist er hatramm­ lega um völd og áhrif. Fjallað er um dularfull mannshvörf og dauðsföll innan kirkjunnar auk pyntinga og ofbeldis. Fram kemur að leiðtogar kirkjunn­ ar beiti undirsáta sína andlegu ofbeldi og neyði þá til að slíta tengsl sín við vini og fjölskyldu. Þá er sagt frá því hvernig 50 manns voru látnir hírast í stóru hjólhýsi dögum saman í trúar­ legum tilgangi fyrir nokkrum árum. En hvers vegna var ekki oftar hringt á lögregluna þegar óhæfu­ verk kirkjunnar voru framin? Niður­ staða höfundarins er að það stafi að­ allega af því hve andlega ofbeldið var kerfisbundið. Telur hann að fórn­ arlömb kirkjunnar hafi þjáðst af ein­ hvers konar Stokkhólmsheilkenni sem hafi gert kirkjunnar mönnum kleift að halda þeim í heljargreipum. Það sem Wright þykir einna alvar­ legast við Vísindakirkjuna er hvernig fjársterkir aðilar úr kvikmyndabrans­ anum halda hlífiskildi yfir starfsemi hennar. Er Tom Cruise þar fremstur í flokki, en meðal annarra stórstjarna sem tilheyra kirkjunni má nefna John Travolta, Kelly Preston, Elisabeth Moss og Catherine Bell. Í grófum dráttum snúast trúarbrögð Vísinda­ kirkjunnar um að geimveran Xenú hafi fyrir 75 milljónum ára sent litl­ ar verur til jarðarinnar, komið þeim fyrir ofan í eldfjöllum, heilaþvegið og sprengt í loft upp. Verurnar festi sig svo á mennina þangað til þeir losi sig við þær með hjálp Vísindakirkjunnar. johannp@dv.is Tom spámaður Eins og fram kom í fjölmiðlum árið 2007 er litið á kvikmyndaleikarann Tom Cruise sem nokkurs konar spámann Vísindakirkjunnar. Hér heldur hann ræðu við athöfn kirkjunnar. V ið erum Kirgisar. Þetta er hefð, þetta er okkur í blóð borið. Jú, við erum að brjóta lög með þessu en hér um slóðir skilja þetta allir. Þetta er gömul hefð og henni verður ekki breytt,“ segir Madiev Tynchtyk, einn tugþúsunda manna sem hafa rænt konu og gert hana að eiginkonu sinni í Kirgisistan. Þrátt fyrir að svokölluð brúðarrán séu bönnuð með lögum í Kirgisistan eru þvinguð hjónabönd sem þessi enn mjög algeng í fjölmörgum lönd­ um Mið­Asíu, Kákasushéruðum og hluta Afríku. Þúsundum brúða rænt árlega Samkvæmt upplýsingum frá UN Women, sem vísa í tölur frá NGO Women Support Center sem beitir sér fyrir upprætingu kynbundins ofbeldis, eru að minnsta kosti tólf þúsund tilfelli um brúðarrán í Kirgisistan á hverju ári. Tvö þúsund þessara kvenna og stúlkna sem rænt er árlega geta samkvæmt meðaltali átt von á því að verða nauðgað og beittar líkamlegu og andlegu ofbeldi af hálfu eiginmanna sinna. Þrátt fyrir ólögmæti brúðarrána telja Kirgisar að um svo rótgróna hefð sé að ræða að aðeins eitt af hverjum 1.500 tilfellum koma til kasta lög­ reglu eða dómstóla. Refsing þyngd Þó þessi glæpsamlegi siður sé al­ gengari í dreifbýli og á afskekktari stöðum landsins – sem margir hverjir búa að eigin lögum og lög­ um öldungaráða og þorpsleiðtoga – þá voru tekin frekari skref í átt að upprætingu þessa forna siðar í Kirgisistan. Í desember síðastliðnum samþykkti kirgiska þingið lagafrum­ varp sem herti viðurlögin við þess­ um brotum. Forseti Kirgisistan, Al­ mazbek Atambayev, samþykkti lögin í janúar. Með lagabreytingunni, sem tók gildi í febrúar síðastliðnum, þyngist refsingin við því að ræna konu og þvinga hana í hjónaband í allt að tíu ára fangelsi. Áður gátu menn átt yfir höfði sér þriggja ára fangelsisdóm. UN Women­samtökin telja þetta jákvætt skref í baráttunni en minna einnig á að þessi einfalda refsiþynging hafi verið afrakstur ára­ langrar baráttu mannréttindasam­ taka. Dæmin og sagan segir þó að lög og refsiþyngingar séu ólíklegar til að skila tilætluðum árangri í Kirgisistan. „Ást við fyrstu sýn“ Rannsóknarblaðamaðurinn Thomas Morton vann áhrifamikla heimilda­ mynd um brúðarrán í Kirgisistan í fyrra sem birtist á vefsíðunni Vice. com og er aðgengileg á YouTube. Hún heitir einfaldlega Bride Kidnapping in Kyrgystan en þar ræðir hann við þolendur, gerendur og fær að slást í för með fjölskyldu manns sem hefur valið sér konu sem ættingjar hans hyggjast ræna fyrir hann. Morton og tökumenn hans komust inn undir því yfirskini að þeir ætluðu að mynda brúðkaupið fyrir fjölskylduna. Þar var meðal annars rætt við Madiev Tynchtyk, sem vitnað er í hér í upp­ hafi, og eiginkonu hans Ormonova Elmira. Madiev rændi henni fyrir nokkrum árum og rifja þau upp að­ draganda þess. „Þegar við hittumst fyrst man ég að hann spurði: „Á ég að senda for­ eldra mína eða ætti ég bara að ræna þér?“ Ég svaraði: „Ekki gera það, ég á kærasta.“ Síðan gerðist það í ann­ að skiptið sem við hittumst að hann nam mig einfaldlega á brott,“ rifjar Ormonova upp. Madiev sem lítur á brúðarrán sem órjúfanlega kirgiska hefð segir hins vegar: „Ég get með sanni sagt að það var ást við fyrstu sýn þegar ég sá hana.“ Hundsa lög fyrir hefðir „Það eru tvenn lög sem gera mann­ rán ólögleg í Kirgisistan,“ segir Russell Kleinbach, félagsfræðipró­ fessor við háskólann í Fíladelfíu, sem gert hefur ítarlegar rannsóknir á brúðarránum og skrifað mikið um þau. Kleinbach er sérfræðingur í málefninu og við hann er rætt í heimildamynd Mortons. „Jafnvel í tilfellum þar sem parið er ástfangið þá þekki ég mörg dæmi þess þar sem konan segir: „Ég elska manninn og ég vil giftast honum en ég vildi ekki láta ræna mér því það er afar niðurlægjandi að láta taka sig með valdi“.“ Hann segir lögreglumenn og yfir­ völd í mörgum tilfellum ekki vita að brúðarrán sé í raun ólöglegt. „Ef yfirvöld á hverjum stað eru hins vegar meðvituð um að þetta sé lögbrot þá trúa flestir því að þetta sé gömul hefð,“ segir Kleinbach og bendir á að í landinu séu hefðir sett­ ar ofar trúarbrögðum í mörgum til­ fellum og trúarbrögð ofar lögum. Handsamaðar af hópi manna En hvernig ganga þessi brúðarrán og brúðkaup fyrir sig. Í Kirgisistan er það vanalega þannig að brúðguminn n Talið að tólf þúsund konum sé rænt árlega og þær þvingaðar í hjónaband í Kirgisistan n Margar beittar ofbeldi og sjálfsvígstíðni há Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is „Þetta er gömul hefð og henni verður ekki breytt 12.–14. apríl 2013 Helgarblað Harmleikur í New Jersey Í annað skiptið á aðeins nokkrum dögum hefur átt sér stað harm­ leikur í Bandaríkjunum þar sem fjögurra ára barn á hlut að máli í mannskæðu byssuslysi. Í New Jersey var Brandon Holt, sex ára drengur, skotinn í höfuðið af fjögurra ára barni sem hann var að leika sér við ein fjölskyldur þeirra eru nágrannar. Barnið fór inn á heimili sitt og sótti þangað hlaðinn riffil. Á leiðinni til baka varð slys. Skot hljóp af rifflinum og hæfði Brandon í höfuðið á um þrettán metra færi. Hann lést sam­ stundis. Óljóst er að svo stöddu hvort ákært verði í málinu en ná­ grannar fjölskyldnanna eru harmi slegnir og reiðir. „Ég er reið þeim sem á þessa byssu og geymdi þar sem lítið barn náði til. Fjögurra ára barn getur ekki hlaðið byssu,“ segir nágranni í samtali við AP. Sirkusfíll skotinn Skotárás úr bíl í bænum Tupelo í Mississippi fór úrskeiðis aðfara­ nótt miðvikudags með þeim af­ leiðingum að sirkusfíllinn Carol hjá Ringling Bros­sirkusnum varð fyrir skoti. Carol var í útibúri sínu þegar árásin var gerð og vildi svo óheppilega til að eitt skotið hæfði hana í öxlina. Blessunarlega reynd­ ust áverkar hennar minniháttar og mun hún ná sér að fullu. Lögreglan rannsakar málið en enginn hefur verið handtekinn í tengslum við málið. Carlo er asískur fíll í útrým­ ingarhættu og hafa dýraverndar­ samtökin PETA, sem alla jafna eru ekki hrifin af því að dýrum sé haldið í sirkusum, boðið fimm þús­ und dollara í verðlaunafé til handa hverjum þeim sem veitt getur upp­ lýsingar sem leiða handtöku og sakfellingar árásarmannsins. Sunnudaginn 14. apríl verður safnaramarkaður í Síðumúla 17 (2. hæð) kl. 13 - 16 Mynt • Seðlar • Minnispeningar Barmmerki • Smáprent • Frímerki Póstkort • o.fl. • Sala - Kaup - Skipti MYNTSAFNARAFÉLAG ÍSLANDS Í S L A N D S • M Y N T S A F N A R A F É L A G • www.mynt.is Safnaramarkaður 14. apríl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.