Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Page 23
Þeir ræna sér eiginkonum 22 Erlent tilvonandi hefur valið sér konu sem honum líst vel á. Oft eru þau gjör­ samlega ókunnug. Þegar maðurinn hefur valið sér brúði þá hefst mik­ ið ráðabrugg meðal fjölskyldu hans um hvernig standa beri að mannrán­ inu. Eftir að aðferð og atlaga hefur verið ákveðin er slegið upp veislu á brúðkaupsdaginn sjálfan. Fjölskylda mannsins kemur saman með öllu til­ heyrandi sem tíðkast í hefðbundn­ um brúðkaupsveislum – kræsingum, drykkjum á borðum. Slegið er upp veislutjaldi þar sem tónlist er spil­ uð. Brúðguminn bíður síðan oft í veislunni eftir að honum verði færð konan sem hann valdi sér. Bræður og frændur hans setjast upp í bíl, setið er fyrir konunni og hún síðan gripin og borin gegn vilja sínum inn í bílinn og henni ekið til veislunnar. Þar taka móðir, frænkur og ömmur brúðgumans við henni. Þær klæða hana, grátandi og spark­ andi, í brúðarslör og síðan eru þau gefin saman á staðnum. Þó að stúlkan í brúðarráninu sem Morton og félagar fylgdust með hafi streist á móti, grátið sáran og kallað á móður sína þá virtist hún fljót að sætta sig við og virtist jafnvel sátt við ráðahaginn á endanum. Fjölskylda mannsins fór því næst með gjafir til fjölskyldu brúðarinnar og sættir náð­ ust enda virtist fjölskylda brúðarinn­ ar í því tilfelli hafa verið með í ráðum. Ekki e‘ru þó allar frásagnir af þessum sið jafn jákvæðar enda þó samkomulag geti ríkt milli fjöl­ skyldna um ráðahaginn þá er áætlað að tveir þriðju þessara hjónabandi séu gegn vilja brúðarinnar. Ofbeldi og sjálfsvíg Hávær krafa hefur verið í Kirgisistan um að þessi grimmúðlega hefð verði upprætt þar sem hún getur haft skelfilegar og óafturkræfar af­ leiðingar. Margar stúlkur og konur sem teknar eru gegn vilja sínum í hjónabönd svipta sig lífi og er sjálfs­ vígstíðni meðal þeirra hærri en hjá öðrum konum. Að sögn Kleinbach er heimilis­ ofbeldi algengara í mannránshjóna­ böndum, þau enda frekar með skiln­ aði. Konum sem er rænt og þær þvingaðar í hjónaband er oft hafnað af fjölskyldum sínum og þeirra eina von er að vinna fyrir sér með vændi. Aðeins ein undankomuleið Dóttir Abdyshova Zyinagul svipti sig lífi þremur mánuðum eftir að henni var rænt í skjóli nætur þegar fjöl­ skylda hennar var ekki heima. Abdys­ hova og fjölskylda hennar leituðu að stúlkunni og höfðu upp á henni daginn eftir. Þau tóku hana aftur með sér heim en þá varð fjölskyldan fyrir miklum þrýstingi frá ættingjum. „Þau sögðu þetta kirgiska hefð og að það mætti ekki taka hana aftur.“ Svo fór að Abdyshova lagði blessun sína yfir hjónabandið og dótturinni skila til eiginmannsins. Þremur mánuðum síðar hengdi dóttir Abdys­ hova sig eftir að hafa verið beitt and­ legu og líkamlegu ofbeldi af hálfu mannræningja síns. „Hún þoldi ekki meira.“ n n Talið að tólf þúsund konum sé rænt árlega og þær þvingaðar í hjónaband í Kirgisistan n Margar beittar ofbeldi og sjálfsvígstíðni há Erlent 23Helgarblað 12.–14. apríl 2013 Syrgir dóttur sína Dóttir Abdyshova Zyinagul svipti sig lífi eftir þrjá mánuði í hjónabandi með mannræningja sínum. Myndir reuterS Ást við fyrstu sýn? Madiev Tynchtyk lét ræna Ormonova Elmira, eiginkonu sinni, í annað skipti sem þau hittust. Hann segir brúðarrán hefð sem ekki verði breytt. teknar með valdi Hópur manna rænir konunni sem tilvonandi brúðgumi hefur valið sér, hendir henni inn í bíl og ekur með hana í brúðkaupsveisluna. Svipti sig lífi eftir nauðgun Foreldrar 17 ára stúlku frá Nova Scotia segja að hún hafi svipt sig lífi vegna alvarlegs eineltis sem hún lenti í eftir að henni var nauðgað í teiti á heimili vinar hennar. Enginn var ákærður í málinu eftir lög­ reglurannsókn en dómsmálaráð­ herra Nova Scotia hefur farið fram á endurupptöku málsins í ljósi sjálfs­ vígs Rehtaeh Parson. Henni var nauðgað í teitinu og náðust myndir af því þar sem hún var að kasta upp á meðan á henni var brotið. Sú mynd fór víða og fyrir það fékk Rehtaeh að líða. Móðir hennar segir hana hafa brotnað gjörsamlega niður og snéri hún aldrei aftur í framhaldsskólann sinn. Hún varð hins vegar fyrir árás­ um eftir að hún kærði nauðgunina til lögreglu. Henni tóku að berast tölvupóstar frá stúlkum og strákum þar sem henni var úthúðað sem druslu. Svo fór að hún gerði til­ raun til að svipta sig lífi og lést hún á sjúkrahúsi nokkru síðar. Hennar lokaorð á Facebook voru: „Þegar upp er staðið lifa orð óvina okkar ekki í minningunni, heldur þögn vina okkar.“ Stakk sam- nemendur Hinn tvítugi Dylan Quick var handtekinn á skólalóð Lone Star­ háskólans í úthverfi Houston í vik­ unni eftir að hann hafði stungið fjórtán skólafélaga sína með hnífi. Quick hefur verið kærður fyrir árásina og búist er við fjölmörgum kærum til viðbótar. Enginn lét lífið í árásinni en minnst fjórir liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi. Quick var yfirbugaður af öðrum nemendum sem höfðu hann undir og sátu á honum þar til lög­ reglan kom á vettvang. Þá hafði hann stungið og skorið á annan tug samnemenda sinna með eins konar rakvélarhnífi. Lögreglan segir hann hafa látið sig dreyma um árásina lengi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.