Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 25
Íslenskt ríkisfang dugar ekki til Fólk þráir 2007 aftur Guðmundur Franklín Jónsson ekki kjörgengur. – huni.is Ómar Ragnarsson vísar til mikillar fylgisaukningar Framsóknarflokks. – DV.is Þögn á þingi Spurningin „Til að tala máli lands og þjóðar – nei.“ Gestur H. Hilmarsson 29 ára heimspekingur „Nei.“ Pétur Óskar Hjörleifsson 31 árs starfsmaður í fjarskiptaiðnaði „Nei, ég treysti engum í Sjálf- stæðisflokknum.“ Jelena Schally 27 ára listakona „Ég er með blendnar tilfinningar því hann er svo djöfull myndarlegur.“ Unnur Karen Karlsdóttir 27 ára söngkona „Ég veit ekki hvort ég treysti hon- um en ég myndi aldrei „chilla“ með honum.“ Geoffrey Þ. Huntington-Williams III listnemi og barkarl Treystir þú Bjarna Ben? 1 Mikil ólga innan Sjálfstæðis-flokksins Stuðningsmenn Bjarna Benediktssonar eru ósáttir við könnun Viðskiptablaðsins sem sýndi að flokknum gengi betur með Hönnu Birnu sem leiðtoga. 2 „Flipp sem varð óvart vinsælt“ Útvarpsmaðurinn Doddi litli snýr aftur í hlutverki tónlistar fígúrunnar Love Guru eftir margra ára hvíld. Mun hann troða upp á skemmtistað í Keflavík. 3 Þrýst á Bjarna Ben að stíga til hliðar Verulegur beinn þrýstingur er á Bjarna Ben að víkja úr formannsstólnum í ljósi veikrar stöðu hans og lítils fylgis Sjálfstæðisflokksins í könnunum. 4 Fráfarandi formaður VR og ástkona stefna DV Stefán Einar Stefánsson, fráfarandi formaður VR, og unnusta hans, Sara Lind Guðbergsdóttir, hafa stefnt DV fyrir meiðyrði og krefjast miskabóta vegna umfjöllunar blaðsins. 5 Svipti sig lífi eftir hópnauðgun Hin 17 ára gamla Rehtaeh Parson svipti sig lífi vegna eineltis sem hún varð fyrir eftir hópnauðgun. 6 Simmi og Jói hætta Fabrikku-félagarnir hætta með vinsælan útvarpsþátt sinn á Bylgjunni og einbeita sér að öðrum verkefnum. Mest lesið á DV.is Goðsögn er fallin S varthöfði er mjúkur maður. Tár- votur koddi hans að kvöldi þriðju- dagsins 9. apríl er til marks um þetta. Einhver sagði að enginn myndi gráta járnkarl, en andlát járnfrú- arinnar var mikið áfall fyrir Svarthöfða. Vissulega var hún ellihrum, Svarthöfði vissi það, en einhvern veginn trúði hann því að hrein seigla hennar og þrjóska myndi sigra sjálfan dauðann. Hann minnist þess með melankólíu í hjarta þegar hann hitti tvær goðsagn- ir sínar á skemmtilegri móttöku hér um árið – járnfrúna og skelegga prófessor- inn; kökuritsmeistarann Hannes Hólm- stein og sósíalistabanann Margréti Thatcher í holdi og blóði, á sama stað, og sama tíma. Svarthöfða fannst ótrúlegt að tími og rúm sveigðust ekki. Það hefur enginn – Svarthöfði endur- tekur: enginn – stjórnmálamaður verið eins fimur og hnyttinn í tilsvörum og Margrét Thatcher. Það er ástæða fyr- ir því að sósíalistar eru vanalega sagðir „ rauðir“. Járnfrúin gerði þá kjaftstopp og þeir urðu svo bandóðir í kjölfarið að það varð nánast lenska að tala um þá „eldrauðu“. „Margrét Thatcher breikkaði bilið á milli auðstéttarinnar og öreiganna,“ var kallað á þinginu: „En það urðu allir rík- ari!“ þrumaði járnfrúin. „Hæstvirtur sósíalisti vill semsagt gera þá fátæku fá- tækari,“ ályktaði hún og sá rauði þagði, enda hafði hún hitt naglann á höfuðið þar. Thatcher-lögmálið varð til á ferli hennar: „Því ríkari auðstétt, því ríkari ör- eigastétt.“ Gnægtirnar eru í frjálshyggj- unni, það varð vísindaleg staðreynd og er enn. Sú er arfleifð járnfrúarinnar. Svarhöfði veit að hún fellur ekki í gleymsku: kökuritsmeistarinn skeleggi hefur þegar haldið vísindalegum próf- unum í málinu áfram: Sneið ríkisins minnkar, en kakan stækkar. Gnægtirnar eru endalausar. Nýjustu niðurstöður: Þú getur átt kökuna og borðað hana líka. „Þökk sé Thatcher,“ sagði Svarthöfði með spenntar greipar áður en hann gæddi sér á frönsku súkkulaðikökunni. Í heita pottinum sat náungi um daginn, hann er frægur fyrir að vera sjálfstæðismaður og auk þess er hann þekktur braskari. En núna opnar hann ekki munninn án þess að mæra Framsóknarflokkinn. Maður þessi er alltaf besti vinur aðal. Hann er þessi íslenska, gerilsneydda smá- sál sem alltaf hengir sig á sigurvegara. Og þá gildir einu hvort sigurvegararn- ir eru góðmenni eða glæpahyski. Hann maraði þarna í hálfu kafi og var einsog hann ætti í stökustu erfiðleik- um með að þola sjálfan sig; einsog hann væri að reyna að heyra ekki það sem hann sagði. Það skein eiginlega í gegn, að hann ætlaði ekki og ætlar ekki að styðja Bjarna Ben. Og það skein einnig í gegn að maður þessi álítur fjórflokkinn vera landvætti Ís- lands. En sem besti vinur aðal á þessi maður ábyggilega þann kost vænstan að súpa hressilega á soranum og kyngja þeirri staðreynd að fáir læka það sem lélegt er. Jæja, þá fer ég bráðum að kom- ast að efni dagsins. Þetta fjallar um einræðu pottverjans. Hann sagði okkur hinum – í óspurðum fréttum – að sér þætti gleðiefni, að lýðræðið á þingi leyfði íhaldinu að stunda mál- þóf, hann sagði okkur að ríkisstjórn Jóhönnu hefði ekki gert neitt af viti og að allar tilraunir til að eyðileggja kvótakerfið og stjórnarskrána hefðu sem betur fer mistekist. Bullið sem uppúr honum vall, var þess eðlis að enginn í pottinn gat með nokkru móti verið honum sammála, (hér er pott- verjinn sá arna að sjálfsögðu með- talinn). Hann talaði í svona klisjum einsog við eigum að venjast frá gáfna- ljósunum: Birgi Ármannssyni, Jóni Gunnarssyni og Vigdísi Hauksdóttur. Þetta var svona orðræða sem allir skammast sín fyrir; einkum þeir sem leyfa slíku að fara um varir. Núna er ég orðinn þreyttur og leiður á að tala um mannkertið í heita pottinum og sný mér að einlægri gagnrýni á fjórflokkinn. En ég tel að fjórflokkurinn sé einn sá versti baggi sem þessi þjóð getur burðast með. Samtryggingin er vilja þjóðarinnar yfirsterkari þegar gasprarar þingsins taka til siðspilltra málanna. Þessum slóttugu delum tekst, einhvern veg- inn í ósköpunum, alltaf að drepa öllum góðum málum á dreif. Það er einsog ósýnileg hönd sé að færa þá á milli svartra og hvítra reita. Og þegar fjórflokkurinn þagnar, er einsog mað- ur vilji helst af öllu að þingið komi aldrei aftur saman – svo yndisleg er þögnin. Við megum ekki láta það gerast að hrunverjar komist hér aftur að kjöt- kötlum. Ég hvet því alla Íslendinga til að kjósa og kjósa bara eitthvað ann- að en fjárans fjórflokkinn. Þeir sem í nafni þess fyrirbæris fara fram, ætla ekki að fara að vilja þjóðarinnar, það hafa þeir aldrei gert og hvers vegna í fjandanum ættu þeir að fara að gera það núna, eftir allt sukkið sem þeir hafa komist upp með fram til þessa? Sjálfur ætla ég að kjósa Lýðræðis- vaktina, ekki einvörðungu vegna þess að sá sem allajafna skrifar á síðuna hérna við hliðina er maður að mínu skapi, heldur fyrst og fremst vegna þess að ég vil BREYTINGAR! Ég mun aldrei kjósa það fólk sem hefur svikið öll loforð sem það hefur gefið. Fjórflokkurinn ætti að auglýsa eigin jarðarför sem allra fyrst. Við ætt- um öll að sjá sóma okkar í því að gefa þrjótunum ekki annan séns. Þið sem bara blekkið fólk og bölið okkur skaffið, þið eitrið landans móðurmjólk og mígið útí kaffið. Leitað að nálinni Svo virtist sem viðskiptavinir á geisladiskamarkaði í Perlunni færu sér að engu óðslega enda margir titlar í boði, sumir á betri kjörum en aðrir. Mynd: Sigtryggur ariMyndin Svarthöfði Umræða 25Helgarblað 12.–14. apríl 2013 Skáldið skrifar Kristján Hreinsson Þau hata sjálf- stæða Leoncie Söngkonan fer ófögrum orðum um Björk og Sigur Rós – DV.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.