Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Qupperneq 34
34 Viðtal 12.–14. apríl 2013 Helgarblað A uðvitað leiddi ég hug- ann að því hvort það væri mögulegt að ég ímyndaði mér þetta,“ segir Steinunn Jónsdóttir, kölluð Steinka, sem eftir áralöng veikindi sem höfðu komið henni í hjólastól, reis upp úr stólnum eftir að hafa feng- ið rétta meðhöndlun við veikindum sínum. Hún hafði þjáðst af stigvax- andi verkjum í nokkur ár sem höfðu leitt til þess að hún missti nánast allan mátt frá mjöðm og niður. Eftir ítrekaðar læknisheimsóknir, myndatökur og meðferðir þar sem hvorki fannst orsök veikindanna né sáust sýnileg batamerki á Steinku var hún sögð vera með hugar- brigðaröskun og því haldið fram að hún gerði sér upp veikindin. Það var ekki fyrr en hún fór til kírópraktors að hún fékk lausn á sínum málum og komst upp úr hjólastólnum sem hún hélt hún þyrfti að notast við ævilangt. Þrjósk Uppruna veikindanna rekur Steinka til ársins 2004. „Ég greindist með blöðrur á eggjastokkun- um 2004 og fór á ein- hver lyf við því. Svo í febrúar 2006 þá sprungu blöðrurnar hægra megin.“ Þessu fylgdi mikill sársauki og í kjöl- farið hafði hún alltaf sáran verk í náranum hægra megin. „Þetta var þvílíkur endalaus verkur sem ekki hvarf,“ segir Steinka. „Ég er svo þrjósk að ég fór ekki til læknis fyrr en verk- urinn var orðinn óbærilegur,“ seg- ir hún. Þá fór hún upp á spítala, fékk næringu í æð og var sprautuð niður vegna verkjanna. Þegar kastið var á enda töldu læknar að það tengdist eggjastokkunum á einhvern hátt. Hún var send í myndatökur en ekkert sást á þeim. Hún hafði áfram verk í mjöðminni en ári síðar fékk hún annað sambærilegt kast nema þá fór hún að finna fyrir dofa í hægri fót- legg. „Þá fór ég aftur á spítala og það var það sama, ég var sprautuð niður og látin sofa úr mér kastið en enginn vissi hvað þetta var og læknar héldu að þetta væri út frá eggjastokkunum.“ Missti sjón á öðru auga Steinka var með verkjum áfram en lét sig hafa það. Það var svo í júní 2009 sem hún missti sjónina á öðru auganu. Hún kippti sér þó ekki upp við það til að byrja með. „Ég vaknaði einn morguninn sjónlaus á öðru auga. Á þessum tíma vann ég við matseld og að elda og útkeyrslu matar. Ég er svo þrjósk að ég fór ekki til læknis fyrr en á þriðja degi. Þá var ég búin að missa jafnvægið og hugs- aði með mér að ég þyrfti nú líklega að láta kíkja á þetta,“ segir Steinka hlæjandi og tekur fram að hún láti yfirleitt ekki smá hluti raska ró sinni. Hún hélt að sjónleysið hlyti að vera tímabundið. „Ég fór til augnlæknis á Selfossi og hann sendi mig á augn- deild í bænum. Þar tók nemi á móti mér og mömmu minni. Hann sagði okkur að ekkert sæist á auganu en þetta væri byrjun á MS-sjúkdómn- um. Mamma bara hvítnaði og föln- aði,“ segir hún. En sjúkdómsgreining nemans reyndist ekki rétt. Steinka var send á taugadeild þar sem hún fékk sterasprautur. „Ég heyrði svo bara blúbb í hausnum á mér á tíunda degi. Þá var að losna um taugina og sjónin kom aftur. Þetta er eitthvað sem getur komið fyrir hvern sem er og á að ganga til baka en stera- sprauturnar flýta fyrir bata.“ Dró fótinn á eftir sér Þegar Steinka hafði endurheimt sjónina að mestu glímdi hún samt við jafnvægisleysi og enn voru verkirnir til stað- ar og dofi hægra megin í mjöðm og fæti. Hún hafði æft körfubolta lengi en þegar þarna var komið sögu gat hún ekki lengur gert það. Það kom svo að því um ári seinna að hún fékk annað stórt verkjakast. „Ég fann að þetta var að byrja aftur og ég fann að ég var að fá kast. Ég var svo rosalega þreytt og þrek- laus og með mikla verki. Eitt kvöld í apríl 2010 þá ætlaði ég ekki að geta sofnað fyrir verkjum. Ég fann verkjatöflur heima, át þær og sofn- aði að lokum. Svo vaknaði ég um morguninn með þvílíka verki og gat ekki staðið annan fótinn og dró hann bara á eftir mér. Ég veit ekki einu sinni hvernig ég komst á kló- settið,“ segir Steinka en líkt og þegar sjónin hvarf þá hafði hún ekki mikl- ar áhyggjur af þessu. „Ég er þannig týpa að ég hélt að þetta væri bara þursabit eða eitthvað,“ segir hún en löppina dró hún á eftir sér og gat ekki stigið í hana. Hún stóð í þeirri trú að um tímabundið ástand væri að ræða. Öskraði af verkjum Á endanum ákvað hún þó að fara til Gat gengi á ný Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is Viðtal Steinunn Jónsdóttir eða Steinka eins og hún er jafnan kölluð, glímdi í nokkur ár við erfið óútskýrð veikindi sem ollu því að hún missti mátt í fótum og leið miklar verkjakvalir. Hún segir lækna hafa haldið að hún ímyndaði sér veikindin. Það var ekki fyrr en hún leitaði á náðir kírópraktors að hún fékk lausn vandamála sinna og gat gengið á ný eftir að hafa verið komin í hjólastól. Steinka hefur farið fram á að málið verði skoðað með tilliti til þess að hún hafi verið greind á rangan hátt. Laus við stólinn Í dag þarf Steinka ekki lengur að treysta á hjólastólinn. MynD sigtryggur ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.