Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 38
38 12.–14. apríl 2013 Helgarblað m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g „Alveg hreint ágætis afþreying“ „Kristján er listamaður sem þjóðin getur verið stolt af“ Ófeigur snýr aftur Ágúst Guðmundsson Blam! Kristján Ingimarsson og Jesper Pedersen Þrjár smá- sögur á einu kvöldi n Verkið Núna! frumsýnt á föstudag n Þrjú ung leikskáld skrifuðu verkið M unurinn á þessu og venju- legum sýningum er að þetta er eins og að heyra þrjár smásögur á einu kvöldi,“ segir Valur Freyr Einarsson, einn leikara í verkinu Núna! sem frumflutt verður í kvöld, föstudag. Borgarleikhúsið hefur valið sex ung leikskáld til að skrifa stutt verk um íslenskan samtíma og þrjú þeirra hafa nú verið valin til sviðsetn- ingar. Valur Freyr var kosinn leikari ársins á Eddunni í fyrra og sýning hans Tengdó hefur heldur betur sleg- ið í gegn. Hann starfrækir leikhópinn CommonNonsense ásamt eiginkonu sinni Ilmi Stefánsdóttur og hafa þau vakið athygli á undanförnum árum fyrir nýstárlegar sýningar á mörkum myndlistar og leikhúss. Tilgangurinn að virkja unga höfunda Verkin þrjú í Núna! eru sýnd sama kvöldið og Valur Freyr segir að hug- myndin hafi komið frá Borgarleik- húsinu og tilgangurinn sé að virkja unga höfunda til að skrifa fyrir leik- hús. Það geti verið erfitt að og trú- lega veigri margir ungir höfund- ar sér við því. „Þetta er langt ferli. Maður skrifar eitthvað og vonar svo að einhver fóstri það og vilji æfa það og setji það loks á svið.“ Hon- um finnst því mjög gott framtak hjá leikhúsinu að stuðla að leikritun með þessum hætti og sér í lagi að fá ungt fólk til að skrifa. „Það er mikil- vægt að fá nýtt blóð inn því það er alltaf verið að reyna að sá fræjum sem geta hugsanlega orðið að stór- um höfundum í framtíðinni.“ Allt miklu brattara Höfundarnir þrír fengu mjög skýran ramma um hvernig verkið ætti að vera. Þau áttu að skrifa hálftíma verk sem hægt væri sýna með öðrum verkum sama kvöld. „Formið á þessu er öðruvísi á þann hátt að í lengri verkum hefur þú tíma til að byggja upp og kynna persónurnar jafnvel alveg fram að hléi og þá fer eitthvað „aktion“ í gang. Í Núna! er allt miklu brattara og öðruvísi í laginu,“ segir Valur Freyr. Hann segir undirbúninginn einnig hafa verið öðruvísi en fyrir hefðbundna sýningu. „Þetta hefur verið svolítið sérstakt ferli því vana- lega byrjar maður að æfa og það ferli tekur um það bil átta vikur. Hægt og sígandi er svo unnið að frumsýningu en í þessu þurftum við að skipta vik- unum niður á verkin þrjú. Ég æfði til dæmis fyrir eitt verkanna í þrjár vikur og fékk svo þriggja vikna frí. Við erum samt búin að hafa tíu daga núna til að vinna að frumsýningu á öllum verkunum og náð að renna þeim saman.“ Það er því búinn að vera frekar sérstakur inngangurinn að þessari frumsýningu. Ólík innbyrðis Valur segir að verkin tengist á þann hátt að þau eru skrifuð af ungum höf- undum sem spretta úr sama menn- ingarheimi sem skrifa í núinu. „Að öðru leyti unnu þau þetta algjör- lega sjálfstætt hvert og eitt og verk- in eru því mjög ólík innbyrðis og við Grímuverðlaun fyrir Tengdó Valur Freyr samdi leikritið Tengdó sem hefur fengið gífurlega góðar viðtökur en þar segir hann sögu tengdamóður sinnar. Í verkinu birtist sönn saga ástandsbarns sem leitar föður síns áratugum saman. Áhorfendur fylgjast með djúpstæðri þrá barnsins til að kynn- ast uppruna sínum en um leið er horft gagnrýnum augum á íslenskt samfélag. Í sögunni takast á gleði og sorg því leitin að sannleikanum er í senn falleg og þyrnum stráð. Sýningin fékk verðlaun fyrir sýningu ársins á Grímunni 2012 auk þess sem Valur Freyr hlaut leikskálda- verðlaun ársins og verðlaun sem leikari í aðalhlutverki. Jón Viðar Jónsson gaf sýningunni fullt hús stiga í leikhúsdómi sem birtist í DV. Mýs og menn Valur Freyr er einn af leikurunum í verki Steinbecks. Verk eftir þrjá unga höfunda Verður frumsýnt um helgina. Valur Freyr Einarsson Leikari og leikskáld. Mynd SigTryggur Ari Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.