Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2013, Síða 56
En áfram skröltir hún þó? Hundfúll út í Hallgrím n Metsölurithöfundurinn Hall- grímur Helgason hefur farið mikinn í myndvinnslu sinni á Facebook þar sem hann hefur blandað sér í hina pólitísku umræðu með beinskeyttum skotum á menn og málefni. Nýjasta afurð Hallgríms móðgaði þó einn mann meira en aðra og af öðrum ástæðum en pólitískum. Þar hafði Hallgrímur klippt andlit Bjarna Benediktssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur á mynd verðlaunaljósmyndara Morgunblaðsins Kjartans Þor- björnssonar. Virtust þau sitja í bíl með Davíð Oddssyni undir fyrir- sögninni „Póli- tískir farþegar.“ Kjartan var hund- fúll út í Hallgrím og sakaði hann um að brjóta gegn höfundar- rétti hans með myndvinnslunni. Prófessor í Genesis n „Margir fáfróðir á Íslandi um Genesis. Nánast allir … á meðan miðlungsbönd eru hafin upp til skýjanna,“ segir sjónvarpsmað- urinn Hörður Magnússon á Twitt- er-síðu sinni en hann er að öðr- um ólöstuðum líklega stærsti aðdáandi hljómsveitarinnar Genesis á Íslandi. Hörður tók að sér að fræða fylgjendur sína á Twitter um sögu sveitarinnar og lét íþróttafréttamaðurinn fróð- leiksmolunum rigna á fimmtu- daginn. Rifjaði hann meðal annars upp að fyrsti samn- ingurinn sem sveitin fékk, árið 1970, hafi hljóðað upp á tíu pund á viku. Rafmagnslaus Réttlætisrúta n Réttlætisrúta Dögunar, sem er á ferð um Austfirði um þessar mundir, neitaði að fara í gang á fimmtudagsmorgun. „Réttlætis- rútan er greinilega svolítið veik fyrir kuldakastinu sem nú herjar á Austurland og neitaði að fara af stað í morgun. Frostið á Mjó- eyrinni var þá 10 stig,“ sagði í meldingu frá Dögun um málið á fimmtudaginn. „En góða fólkið er allsstaðar og fljótlega mættu bjarg- vættir til að koma réttlætinu af stað aftur með vænu rafmagnsstuði.“ Eftir að rútan hrökk í gang lá leiðin á Reyðarfjörð þar sem fund- að var í álverinu í hádeginu en síðan hélt rútan upp á Hérað. Um er að ræða eiginlega kosningaskrif- stofu Dögunar á hjólum. S íðastliðinn föstudag veiddi Þor- steinn GK-15 frá Raufarhöfn í net stærsta þorsk sem vitað er um að veiðst hafi á Evrópu- miðum. Þorskurinn vó heil 41,5 kíló og mældist 1,46 metrar á lengd. Hrognasekkurinn einn og sér vó 8,5 kíló. Eva María Hilmarsdóttir, mat- sveinn á Þorsteini, birti mynd af sér með risaþorskinn á Facebook og gort- aði sig af því að hafa veitt hann alein með berum höndum. Það voru smá ýkjur en hún tók þátt í að draga aflann um borð, eflaust í hönskum þó. „Við höfum fengið nokkra góða þorska í vetur. Vorum búin að láta vigta einn sem var 33 kíló en þegar þessi hlunkur kom um borð vorum við nokkuð viss um að metið væri slegið,“ segir Eva María. Þorsteinn GK er elsta skipið í flot- anum á Raufarhöfn sem enn er gerð- ur út, en útgerðin er í eigu skipstjór- ans, Önundar Kristjánssonar, afa Evu Maríu, sem varð áttræður á dögunum. Roð- og beinlaus þorskflök eru að jafnaði um helmingur af þyngd þorsksins og í þessu tilfelli er þá um að ræða rúm 20 kíló af þorskflökum. Ef miðað er við að máltíð fyrir einn innihaldi um 250 grömm af þorski gæti umræddur þorskur dugað í 80 manna veislu. Risaþorskur á Raufarhöfn n Vó 41,5 kíló og mældist 1,46 metrar á lengd Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 12.–14. apríl 2013 41. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr. Met slegið? Þorskurinn er sá stærsti sem vitað er um að veiðst hafi á Evrópumiðum. Hér er Eva María stolt með þorskinn. Engin smásmíði Hér má sjá þorskinn, sem er 1,46 metrar á lengd, við hliðina á olíubrúsa til samanburðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.