Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Side 8
Bora eftir olíu og hvetja til hjólreiða 8 Fréttir 17.–21. maí 2013 Helgarblað Á meðal þátttakenda í olíuleit og fyrirhugaðri olíuvinnslu á Drekasvæðinu eru fyrirtæki sem hafa sérhæft sig í rann­ sóknum og mati á umhverfis­ áhrifum framkvæmda og gefa sig sérstaklega út fyrir að vera umhverfi­ svæn og stuðla að sjálfbærri þróun. Eins og fram kom í janúar gaf at­ vinnuvegaráðuneytið út leyfi til leit­ ar og vinnslu kolefna á Drekasvæð­ inu. Á meðal leyfishafa er nýstofnað félag, Kolvetni ehf. sem er í eigu Jóns Helga Guðmundssonar, aðaleiganda BYKO, Gunnlaugs Jónssonar, Norð­ mannsins Terje Hagevang og síð­ ast en ekki síst ráðgjafarfyrirtækisins Mannvits. Þá á verkfræðistofan Ver­ kís 50 prósenta eignarhlut í Mann­ viti og er auk þess stór hluthafi í Ís­ lensku kolvetni ehf., fyrirtæki sem jafnframt hefur tryggt sér aðkomu að olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Fræða starfsmenn um vistakstur Á undanförnum árum hefur Mann­ vit útbúið ótal matsskýrslur um um­ hverfisáhrif framkvæmda, svo sem fyrir álver á Bakka, Kröfluvirkjun, Hellisheiðarvirkjun og Þeistareykja­ virkjun. Á vefsíðu fyrirtækisins er fjallað um umhverfisvænar áherslur þess. Fram kemur að Mannvit leit­ ist við að „vera til fyrirmyndar í um­ hverfismálum“ en jafnframt leggi fyrirtækið „áherslu á að leita um­ hverfisvænna leiða í aðföngum og þjónustu.“ Í þessum efnum gengur fyrirtækið meira að segja svo langt að fræða starfsmenn sérstaklega um vistakstur að því er fram kemur í samgöngustefnu fyrirtækisins. „Stuðla að sjálfbærri þróun“ Verkís tekur þátt í olíuleitinni, annars vegar í gegnum Mannvit og Kolvetni og hins vegar í gegnum Íslenskt kol­ vetni. Fyrirtækið gæti því komið til með að hagnast umtalsvert á fyrir­ hugaðri vinnslu. Rétt eins og hjá Mannviti skipar mat umhverfisáhrifa og umhverfisvöktun veigamikinn sess í starfsemi Verkís. Fyrirtækið tekur að sér matsáætlanir, matsskýr­ slur og rannsóknir á ýmsum fram­ kvæmdum sem taldar eru hafa um­ talsverð áhrif á náttúruna. Í umhverfisstefnu Verkís kemur fram að fyrirtækið einsetji sér að „taka tillit til umhverfisins í allri starfsemi og stuðla að sjálfbærri þró­ un í samfélaginu.“ Þá eru starfsmenn fyrir tækisins hvattir til að ganga um eða hjóla frekar en að keyra um á bíl­ um sem knúnir eru áfram af jarð­ efnaeldsneyti. „Sömuleiðis eru þeir hvattir til að nýta almennings­ samgöngur, fækka ökutækjum fjöl­ skyldunnar og stuðla að bættri nýt­ ingu þeirra,“ segir í samgöngustefnu fyrirtækisins. Olían og umhverfið Ekki er ósennilegt að sömu fyrir­ tæki og munu vinna að umhverfis­ mati á fyrirhuguðum virkjanafram­ kvæmdum næstu árin muni hagnast umtalsvert á olíuvinnslu á Dreka­ svæðinu. Samt sem áður liggur fyrir að útblástur jarðefnaeldsneytis er ein helsta orsök loftslagsbreytinga af manna völdum. Nær ómögulegt er að fyrirtæki geti hagnast á olíu­ vinnslu á Drekasvæðinu án þess að selja olíuna til brennslu og stuðla þannig að auknum útblæstri gróð­ urhúsalofttegunda. Hætta er á að loftslag jarðar hlýni um 5–6 gráður á Celsíus fyrir næstu aldamót og gæti olíu­ og gasvinnsla á Norðurheim­ skautinu haft í för með sér mörg hundruð tonna aukningu koltvísýr­ ings í andrúmsloftinu á hverju ári. Stutt er síðan Bill McKibben, einn þekktasti umhverfisverndarsinni heims og forgöngumaður samtak­ anna 350.org, hélt fyrirlestur á Ís­ landi. „Við höfum meira af olíu, gasi og kolum en við gætum mögulega brennt nú þegar og vísindamenn segja að við neyðumst til að láta 80 prósent af því jarðefnaeldsneyti sem er að finna í jörðu óhreyft,“ sagði hann og hvatti Íslendinga til að hætta við olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Umhverfisáhrif olíuborunar ein­ skorðast ekki við útblástur gróður­ húsalofttegunda því hættan á meng­ unarslysum og olíuleka er alltaf fyrir hendi. Slíkt hefði varanleg áhrif á ís­ lenska fiskistofna. „Olía í plastbollum og lyfjum“ Haukur Óskarsson situr í stjórn Kolvetnis fyrir hönd Mannvits og er framkvæmdastjóri iðnaðar hjá Mannviti. Aðspurður hvort ekki sé tvískinnungur að segjast vera til fyrir­ myndar í umhverfismálum en taka um leið þátt í verkefni sem stefnir að mikilli losun gróðurhúsalofttegunda segist Haukur ekki telja svo vera. „Ég sé það ekki. Þú keyrir bíl, ég keyri bíl. Skipaflotinn er drifinn áfram af olíu, það er olía í plastbollum og lyf­ jum og olía er hluti af okkar lífi,“ seg­ ir hann. „Þessi fyrirtæki vilja vinna hana á sem öruggastan hátt, fara eft­ ir því sem best er gert í heiminum og umgangast auðlindirnar af virðingu. Samfélag okkar byggir á þessu á meðan ekki er kominn nýr orkugjafi.“ Haukur telur að það væri tví­ skinnungur að hætta við olíuborun á Drekasvæðinu en halda samt áfram að kaupa olíu frá Rússlandi eða Nor­ egi. Haukur segir ekkert í hendi hvað varðar endanlega nýtingu og ekki sé víst að ákveðið verði að bora. Að­ spurður hvort fyrirtækin sem standa að leitinni bindi ekki vonir við að hagnast á mögulegri olíuborun segir hann: „Það er náttúrulega enginn í þessu nema til þess. En menn ætla að gera þetta á sem hagkvæmastan og öruggastan hátt, bæði fyrir sam­ félagið og náttúruna, rétt eins og Norðmenn hafa gert.“ Ákvörðun Steingríms Finni leyfishafarnir olíu á Dreka­ svæðinu í vinnanlegu magni eiga þeir rétt á að nýta hana og ef allt gengur að óskum gæti olíuvinnsla hafist innan átta eða níu ára. Með samningunum sem Steingrímur J. Sigfússon, fráfarandi atvinnuvega­ ráðherra og fyrrverandi formaður Vinstri grænna, undirritaði við fimm fyrirtæki í janúar voru teknar afdrifa­ ríkar ákvarðanir um framtíð Dreka­ svæðisins og eftir því sem DV kemst næst gæti ríkið trauðla neitað fyrir­ tækjunum um að bora eftir olíu án þess að baka sér skaðabótaskyldu. n n Olíuvinnsla stuðlar að loftlagsbreytingum n Starfsmenn hvattir til að taka strætó Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannp@dv.is „Olía er hluti af okkar lífi Stefna að hagnaði Verkís og Mannvit eiga aðild að olíuleit á Drekasvæðinu og stefna þannig að því að hagnast á fyrirhugaðri borun. Fyrirtækin sjá um gerð umhverfismats og hafa gefið sig út fyrir að vera mjög umhverfisvæn. í allar deildir fyrir veturinn 2013-2014 • fara fram í síðustu viku maímánaðar • INNRITUN INNTÖKUPRÓF SÖNGNÁM • Klassík / Söngleikir / Þjóðlagatónlist • Unglingadeild yngri 11-13 ára • Unglingadeild eldri 14 -15 ára • Almenn tónlistardeild Grunn-/Mið-/Framhaldsnám • Háskóladeild Einsöngs-/Söngkennaranám Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans að Snorrabraut 54, sími 552-7366 kl. 10-16 alla virka daga• www.songskolinn.is Söngskólinn í Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.