Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Page 10
F élagið Jöká ehf. er næststærsti hluthafinn í Tryggingamið- stöðinni (TM) með nærri átta prósenta hlut. Eigend- ur félagsins eru þeir Kjart- an Gunnarsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, Ármann Harri Þorvaldsson, fyrr- verandi forstjóri Kaupthing Singer & Friedlander í London, og Örvar Kjærnested, sem var yfir FL Group í London. Þeir keyptu 7,8 prósenta hlut í TM á um 870 milljónir króna í lok júlí 2012. Sé miðað við gengi TM í dag eftir að félagið fór á mark- að er verðmæti hlutarins nú kom- inn í rúmlega 1.500 milljónir króna. Ef Jöká seldi hlut sinn í dag myndi félagið hagnast um 640 milljónir króna sem þykir nokkuð gott á rúm- um níu mánuðum. TM var nýlega sett á markað og hefur hlutafjárútboðið verið til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu vegna mögulegrar markaðsmis- notkunar þar sem umframeftir- spurn eftir hlutabréfum var átta- tíu sinnum meiri en þau bréf sem stóðu til boða. Alls var selt fyrir 4,4 milljarða króna en eftirspurn eftir bréfum nam nærri 360 milljörðum króna. Keyptu í lokuðu útboði Bréfin í TM eignaðist Jöká í lok júlí 2012 þegar Stoðir (áður FL Group) seldi 60 prósenta hlut í TM. Á með- al kaupenda þá voru meðal annars Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Stafir lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna sveitar- félaga, Lífeyrissjóður Vestfirðinga, Sjóður 10 á vegum Íslandssjóða, auk fjárfesta á vegum VÍB - Eignastýr- ingar Íslandsbanka, Virðingar og Auðar Capital. Þegar tilkynnt var um kaup þessara aðila á hlutnum í TM var ekki minnst á það að Jöká ehf. væri einn af stærstu kaupendun- um. Vekur það upp ýmsar spurn- ingar um það hvernig kaup þeirra Kjartans, Ármanns og Örvars bar að. Þeir hafa allir mjög góð tengsl í við- skiptalífinu. Kjartan var sem kunn- ugt er varaformaður í stjórn Lands- bankans, Ármann einn af æðstu stjórnendum Kaupþings og Örvar fyrrverandi yfirmaður hjá FL Group (Stoðum) sem var einmitt að selja. Ekki liggur ljóst fyrir hvernig kaup Jöká á hlutnum í TM var fjármagn- aður. Félagið hefur ekki skilað árs- reikningi fyrir síðasta ár. Félag Kjartans fór illa við fall Landsbankans Félagið Skipholt ehf. sem er í eigu Kjartans Gunnarssonar var með neikvætt eigið fé upp á 600 milljónir króna í árslok 2011. Félagið tap- aði gríðarlega miklu við fall Lands- bankans. Í árslok 2007 var hlutur Kjartans í Landsbankanum metinn á 3.200 milljónir króna samkvæmt ársreikningi Skipholts. Þegar ríkið tók bankann yfir í október var verð- mæti hlutar Kjartans komið í um 1.800 milljónir króna. Eftir yfirtöku ríkisins á Landsbankanum varð sá hlutur verðlaus. „Félagið stendur ágætlega,“ sagði Kjartan þegar DV leitaði svara um hvernig félag hans stæði sumarið 2009 en árið áður nam tap félagsins nærri þremur milljörðum króna. Neikvæð eigin- fjárstaða upp á rúmar 500 milljónir króna í árslok 2011 virðist þó benda til þess að fjárhagslega standi félag Kjartans ekki nógu vel. Þess skal þó getið að félagið á hlut í Marel upp á 85 milljónir króna og þótt fasteignir félagsins sé lágt bókfærðar nemur fasteignamat þeirra 440 milljónum króna. Árið 2005 keypti Skipholt, félag Kjartans, hús Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar að Hringbraut 24 í Reykjavík. Athafnamaðurinn Jón Ólafsson stóð þá í málaferlum við Hannes í Bretlandi. „Þegar ég stóð andspænis því að greiða um 20–25 milljónir króna í málskostnað vegna málaferla Jóns Ólafssonar gegn mér úti í Bretlandi keypti Kjartan af mér hús mitt við Hringbraut svo að ég gæti staðið í skilum,“ sagði Hannes í samtali við DV árið 2009. Ármann laus við milljarðaskuldir Ármann Þorvaldsson færði hluta- bréf sín í Kaupþingi yfir í einka- hlutafélagið Ármann Þorvaldsson ehf. í upphafi árs 2007. Þar með fetaði hann í fótspor Hreiðars Más Sigurðssonar, þáverandi forstjóra Kaupþings, sem færði hlutabréf sín í bankanum yfir í einkahlutafélag sumarið 2006. Ármann Þorvaldsson ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta árið 2011. Skuldaði félagið um 5,5 milljarða króna í lok árs 2009. Þá var eig- ið fé félagsins neikvætt um rúm- lega 5,3 milljarða króna. Félagið var skráð til heimilis hjá foreldrum Ármanns og voru þau bæði skráð í stjórn þess. Slitastjórn Kaupþings hefur gengið hart að mörgum fyrr- verandi starfsmönnum Kaupþings vegna lána sem þeim voru veitt til hlutabréfakaupa í bankanum fyrir hrun. Hafa mörg þeirra mála ver- ið leidd til lykta fyrir dómstólum. Ekkert hefur þó heyrst af neinu slíku máli gegn Ármanni. Því má leiða að því líkur að hann sé laus undan 5,5 milljarða króna skuld- um eignarhaldsfélags sem ber nafn hans. DV sagði frá því árið 2011 að Ár- mann hefði gert kaupmála við eig- inkonu sína. „Ég er ekki að flýja neinar skuldir eða eitthvað svo- leiðis. Er ekki að fara frá neinum persónulegum skuldum. Ég held ég tjái mig þó ekki að öðru leyti um þetta,“ sagði Ármann aðspurð- ur um umræddan kaupmála í sam- tali við DV. Ekki liggur ljóst fyrir við hvað Ármann hefur starfað að undanförnu en árið 2011 sagði DV frá því að fullyrt væri hann sinnti á þeim tíma ráðgjafarstörfum fyrir skilanefndir föllnu íslensku bank- anna í London. Örvar náði að selja í Kaupþingi DV greindi frá því í lok árs 2012 að Páll Magnússon, útvarpsstjóri Ríkis útvarpsins, og eiginkona hans hefðu selt rúmlega 400 fermetra hús sitt við Sunnuflöt 14 í Garðabæ til Örvars Kærnested. Örvar hef- ur verið búsettur í Bretlandi frá ár- inu 2006 þar sem hann starfaði sem yfirmaður hjá Kaupthing Singer & Friedlander og síðar FL Group. Samkvæmt heimildum DV greiddi Örvar hluta af kaupverði hússins að Sunnuflöt með svokölluðum aflandskrónum. Í dag situr Örvar í stjórn Straums fjárfestingabanka og Tryggingamiðstöðinni. Þá er hann einnig skráður framkvæmdastjóri Jöká ehf. sem er næststærsti hlut- hafinn í TM, líkt og áður kom fram. Samkvæmt veðbandayfirliti er hús Örvars að Sunnuflöt nú í eigu félagsins Riverside Capital ehf. en eigandi þess er síðan félag sem ber sama nafn en er skráð í Lúxem- borg. Til að gera eigendasöguna enn flóknari þá er Riverside Capi- tal í Lúxemborg í eigu félagsins In- tegrem Holding S.A. en lögheimili þess er skráð í byggingu Swiss Bank í Panamaborg. Frá árinu 2009 hefur Örvar rekið Ortus Capital sem starfar á sviði ráðgjafar og fjárfestinga í Bret- landi. Breska blaðið The Guardian greindi frá því árið 2009 að Ármann Þorvaldsson kæmi einnig að rekstri Ortus Capital. Þeir störfuðu lengi saman hjá Kaupþingi. Talið er að Örvar hafi hagnast vel þegar hann seldi hlutabréf sín í Kaupþingi eftir að hann hætti störf- um hjá bankanum og réð sig til FL Group í upphafi árs 2007. Sam- kvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis skuldaði hann Kaupþingi um einn milljarð króna í upp- hafi árs 2007. Við starfslok greiddi hann skuldina upp en ekki er vitað hversu mikið Örvar hagnaðist af sölu hlutabréfanna í Kaupþingi. Hann greiddi hins vegar um 140 milljónir króna í skatta og opin ber gjöld árið 2007 og greiddi sjöunda hæsta skattinn það ár í Reykjavík, næstur á undan sjálfum Jóni Ás- geiri Jóhannessyni. Þá var Örvar með um 100 milljónir króna í árs- tekjur hjá Kaupþingi árið 2005 og 140 milljónir króna árið 2006. n Stórgræða á tM n Kjartan Gunnarsson og Ármann Þorvaldsson stórir hluthafar í Tryggingamiðstöðinni 10 Fréttir 17.–21. maí 2013 Helgarblað Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. 11–14, sunnud. lokað Listmunauppboð Erum að taka á móti verkum á næsta uppboð Síðustu forvöð til að koma með verk á uppboðið er mánudaginn 27. maí Vefuppboð Myndlist lýkur 21. maí Eftirprent lýkur 27. maí Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 Tapaði mikið á Landsbankanum Félag Kjartans Gunnarsson, Skipholt ehf., átti bréf í Landsbankanum upp á þrjá milljarða króna í lok árs 2007 sem urðu verðlaus við fall bankans. Laus undan 5,5 milljarða skuld Ármann Þorvaldsson ehf. skuldaði 5,5 milljarða króna í árslok 2009 vegna lána til hlutabréfakaupa í Kaupþingi. Ármann Þorvaldsson sjálfur virðist hins vegar laus allra mála.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.