Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Page 14
14 Fréttir 17.–21. maí 2013 Helgarblað
M
óttökurnar voru hlýjar
þegar blaðamaður og ljós
myndari heimsóttu hælis
leitandann Osahon Okoro
að heimili hans í Efstaleiti
en þar dvelur hann í lítilli blokkar
íbúð ásamt fleiri hælisleitendum.
Okoro fæddist í Nígeríu og hefur átt
viðburðaríka ævi. Í tæp tvö ár hefur
hann dúsað á Íslandi og velkst um í
kerfinu í fullkominni óvissu um örlög
sín. Heilsu hans hefur hrakað og á
hann sækja sársaukafullar minningar
úr fortíðinni. Okoro rakti ævisögu
sína fyrir DV og sagði frá upplifun
sinni af Íslandi og meðferð hælisleit
enda. Hann er á meðal þeirra millj
óna flóttamanna sem leita hælis í ríkj
um sem kenna sig við frelsi, jafnrétti
og mannúð, en verða fyrir sárum von
brigðum.
Skipulagði mótmælaaðgerðir
Osahon Okoro fæddist í Nígeríu árið
1981 og ólst upp í fátæku þorpi. Ung
um að aldri sveið honum sú mis
skipting og kúgun er ríkir í landinu.
„Við borum og borum eftir olíu en
almenningur fær ekkert fyrir sinn
snúð. Allur hagnaðurinn rennur í
hendur fámennrar valdaelítu í norð
urhluta landsins,“ segir Okoro. „Við
ættum að vera eitt ríkasta land í heimi
þökk sé þeim auðlindum sem okkur
voru gefnar, en í staðinn erum við í
hópi fátækustu ríkjanna.“ Árið 2008
tók Okoro þátt í skipulagningu stór
tækra mótmælaaðgerða í heima
byggð sinni. Tíu dögum síðar réðst
skuggaher, handgenginn stjórnvöld
um, inn í þorpið og leitaði logandi
ljósi að höfuð paurunum á bak við
aðgerðirnar. „Þeir skutu fólk til bana
og brenndu hús, grímuklæddir menn
sem sýndu enga miskunn.“ Okoro
segir mennina hafa ráðist inn til fjöl
skyldu hans í leit að honum og stjakað
við heilsuveilum föður hans. „Heilsu
hans hrakaði í kjölfarið og hann dó
skömmu síðar,“ segir Okoro og sjá má
að frásögnin tekur mikið á hann. Með
titrandi röddu lýsir hann því hvernig
fjölskylda hans hafnaði honum og
kenndi honum um dauða föður síns.
„Á tímabili fannst mér eins og ég væri
einn í heiminum.“
Hræðileg höfnunartilfinning
Þegar hér var komið sögu flúði Okoro
til Líbíu og þaðan til Ítalíu. Þar dvaldi
hann frá 2008 til 2011 við hörmulegar
aðstæður. „Kerfið á Ítalíu er ömurlegt.
Ef manni er synjað um hæli þarf
maður að kaupa sér lögfræðiþjón
ustu fyrir morð fjár og áfrýja málinu
til dómstóla. Á meðan á þessu stendur
hefur maður ekki rétt til eins né neins
og það er komið fram við mann eins
og búfénað,“ segir Okoro sem var synj
að um hæli á Ítalíu. Í kjölfarið sneri
hann aftur til Nígeríu þar sem hann
fór huldu höfði næstu mánuðina. „Ég
fann fyrir hræðilegri höfnunartilfinn
ingu og átti engan að. En það var þá
sem ég kynntist manni sem bað mig
um að taka að mér ýmis verkefni fyrir
sig.“
Okoro segir að í grunninn hafi verk
efnin snúist um tölvupóstsendingar
og annað. Fljótlega hafi hann hins
vegar áttað sig á að hann var að vinna
fyrir herská samtök, MEND, sem heyja
vopnaða baráttu gegn valdaelítunni í
Nígeríu. Aðgerðir samtakanna beinast
ekki aðeins gegn nígerískum stjórn
völdum heldur einnig erlendum auð
hringjum og olíufyrirtækjum á borð
við Shell, Chevron og Exxon Mobil.
„Rotnandi í fangaklefa“
Skömmu eftir að Okoro komst í kynni
við samtökin var innanbúðarupplýs
ingum um þau lekið til lögreglunnar.
Sem nýgræðingi í MEND féll grunur
inn á hann og tók hann strax að ótt
ast um líf sitt. „Ég rændi fé frá samtök
unum og notaði það til að kaupa mér
falsað vegabréf. Svo flúði ég til Frakk
lands og þaðan til Danmerkur.“ Loks
ákvað hann að leita hælis á Íslandi.
„Ég gaf mig fram á flugvellinum um
leið og ég kom hingað,“ segir Okoro
sem var handtekinn og yfirheyrður.
„Ég gaf þeim upp nafn mitt og þjóð
erni, sagði frá fortíð minni og benti
lögreglunni á að ég hefði sótt um hæli
á Ítalíu. Þar ættu þeir að geta nálgast
upplýsingar um mig.“
Þremur dögum síðar ræddi hann
við lögmann sem sagði honum að
málið færi fyrir dómstóla vegna
þess að hann hefði komið ólöglega
til landsins. Hann var úrskurðaður í
gæsluvarðhald í tvær vikur, en að þeim
liðnum var honum sagt að lögreglan
þyrfti að ræða við Interpol. „Ég var
búinn að sitja rotnandi í fangaklefa í
tvær vikur, hafði sagt lögreglunni alla
mína sögu og komið hreint fram. Eftir
þetta sat ég í gæsluvarðhaldi í viku til
viðbótar,“ segir Okoro sem tók nú að
þjást af þunglyndi.
Glímir við veikindi
Í umsögn frá sálfræðingi kemur fram
að Okoro taki lyf til að geta sofnað og
fái reglulega martraðir. Þar kemur
jafnframt fram að sársaukafullar
minningar ásæki hann auk þess sem
hann glími stöðugt við höfuðverk.
Hann kennir fangelsisvistinni sérstak
lega um heilsuleysi sitt. „Í fangelsinu
var ég sviptur einu því dýrmætasta
sem nokkur maður á, heilsunni. Ég
er 32 ára, andskotinn hafi það, og
háður alls konar lyfjum.“ Samkvæmt
sjúkdómsgreiningu sem DV hefur
undir höndunum er Okoro með of
háan blóðþrýsting auk þess sem óm
skoðun sýndi þykknaðan vinstri slegil
í hjarta. Við þessu tekur hann lyf sem
hafa ýmsar hliðarverkanir og að sögn
Okoro hefur hann glímt við öndunar
erfiðleika og alls kyns verki síðustu
mánuði. Útlit er fyrir að hann þurfi að
taka lyf við háum blóðþrýstingi það
sem eftir er ævinnar.
„Fit er fangelsi“
Eftir að Okoro losnaði úr gæsluvarð
haldi var hann sendur á gistiheimilið
Fit á Reykjanesi þar sem honum var
gert að bíða ásamt öðrum hælisleit
endum eftir að Útlendingastofnun
afgreiddi umsókn hans. „Fit er fang
elsi fyrir mér,“ segir hann. „Þar situr
fólk með hendur í skauti og bíð
ur milli vonar og ótta, hrætt um að
verða sent út í rauðan dauðann. All
ir verða þreyttir og ruglaðir. Stund
um brjótast út slagsmál því fólki líð
ur skelfilega.“
Eins og venjan er synjaði
Útlendingastofnun Okoro um hæli á
grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar,
en hún heimilar ríkjum að endur
senda flóttamenn til þess lands þar
sem þeir sóttu fyrst um hæli. Því
ákvæði hefur Útlendingastofnun
beitt ótal sinnum undanfarin ár og
jafnvel sent hælisleitendur til Grikk
lands, Ítalíu eða Möltu þar sem að
stæður flóttamanna eru hörmulegar.
Því skal haldið til haga að Dyflinnar
reglugerðin skuldbindur ekki ríki til
að endursenda flóttamenn. Björg
Thorarensen lagaprófessor hefur deilt
á notkun íslenskra yfirvalda á reglu
gerðinni og fullyrt að sjálfvirk endur
sending hælisleitenda til annarra að
ildarríkja sé óásættanleg. Okoro er á
sömu skoðun: „Ísland er óralangt frá
heimkynnum flestra flóttamanna svo
stjórnvöld geta alltaf notað Dyflinnar
reglugerðina til að hrekja fólk burt.
Alltaf.“
„Ekki misskilja mig,
Ísland er að mörgu
leyti gott. En þegar kemur
að því að rétta aðkomu-
fólki hjálparhönd þá
mættu þið gera svo miklu
miklu betur.
Kastað burt eins og
hverju öðru rusli
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
n Aðgerðasinna synjað um hæli n Barðist gegn olíufyrirtækjum og spilltum stjórnvöldum
„Fit er fangelsi“ „Þar
situr fólk með hendur í
skauti og bíður milli vonar
og ótta, hrætt um að verða
sent út í rauðan dauðann,“
segir Okoro um gistiheimilið
Fit á Reykjanesi.
Með háan blóðþrýsting Osahon Okoro er há
ður ýmsum
lyfjum. Hann er með of háan blóðþrýsting,
hjartveikur og þjáist
af þunglyndi.