Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Síða 15
Fréttir 15Helgarblað 17.–21. maí 2013
„Þar er ég dauðans matur“
Eftir að Útlendingastofnun synjaði
Okoro um hæli kærði hann ákvörðun
ina til innanríkisráðuneytisins sem
staðfesti hana í mars. „Ég skil ekki af
hverju,“ segir Okoro. „Ég er veikur og
ég var látinn rotna í fangelsi í þrjár vik
ur. Verði ég sendur til Ítalíu gæti ég
dáið því þar mun ég hvorki hafa að
gang að lyfjum né efni á þeim. Mér
yrði líklega fyrst stungið í fangelsi sem
ólöglegum innflytjanda. Svo yrði mér
annaðhvort kastað á götuna eða ég
hrakinn til Nígeríu. Þar er ég dauðans
matur.“
Okoro segist hafa verið látinn læra
íslensku og dregur upp próf sem hann
fékk einkunnina 9,9 fyrir. „Hvers vegna
var ég sendur í skóla ef það átti svo að
senda mig til baka? Er verið að rembast
við að gera mig ruglaðan? Mér er sagt
að ég eigi að aðlagast íslensku sam
félagi og það vil ég gjarnan en kerfið
virðist mótfallið því,“ segir hann. Mál
Okoro er nú fyrir héraðsdómi og hefur
lögmaður hans sóst eftir því að réttar
áhrifum af ákvörðun Útlendingastofn
unar og innanríkis ráðuneytisins verði
frestað þar til málinu lýkur. Innanríkis
ráðuneytið hafnaði beiðninni. Nokkr
ar vikur eru liðnar síðan og lögmaður
Okoro bindur vonir við að hann fái að
bera vitni fyrir dómstólum þegar mál
ið verður tekið fyrir um miðjan júní.
Fordómar innbyggðir í kerfið
Hvað verður um Okoro? Hverjar eru
hans helstu óskir? „Fyrst og fremst
dreymir mig um betra líf,“ segir hann.
„Ég vona að innanríkis ráðuneytið
endurskoði ákvörðun sína. Hún er
ómannúðleg, því ég er veikur maður.“
Okoro segist lifa í stöðugum ótta og
óvissu. Hann telur að hælisleitendur
verði fyrir fordómum og fordómarn
ir séu að einhverju leyti innbyggðir
í kerfið. „Þetta er kúgunarkerfi sem
nálgast fólk eins og búfénað. Hér er
Dyflinnarreglugerðin notuð sem rétt
læting á því að kasta burt hælisleit
endum eins og hverju öðru rusli.“
Hann segir að hælisleitendur upp til
hópa séu vesælir og veikir. „Líf okkar
fjarar út hérna og við verðum fyrir
óafturkræfu tjóni á sálinni. Ég mun
þurfa að glíma við þessa reynslu það
sem eftir er ævinnar. Ekki misskilja
mig, Ísland er að mörgu leyti gott, en
þegar kemur að því að rétta aðkomu
fólki hjálparhönd þá mættu þið gera
svo miklu miklu betur.“n
Óafsakanleg
meðferð á
hælisleitendum
„Osahon Okoro er í hópi þeirra fjölmörgu
flóttamanna sem hafa mjög slæma
sönnunarstöðu,“ segir Katrín Oddsdóttir
héraðsdómslög-
maður sem fer
með mál Osahon
Okoro. „Þegar
fólk flýr
heimaland sitt er
ekki sjálfgefið að
því gefist neitt
ráðrúm til að
redda sér alls
konar gögnum og
pappírum um að
það hafi verið hér og þar. Samt bera
flóttamenn hitann og þungann af því að
sanna allt um fortíð sína og framvísa
viðeigandi gögnum. Þá virðist engu máli
skipta hvort þeir eru að flýja úr brennandi
húsi eða undan sprengjuregni.“ Bendir
hún á að Dyflinnarreglugerðin skyldi
stjórnvöld engan veginn til að hrekja fólk í
burtu. Ákvæðið veitir aðeins heimild til
þess og beri stjórnvöldum að meta hverju
sinni hvort slíkt geti stefnt lífi flótta-
mannsins í hættu. „Það er líka fráleitt
hvernig það virðist þykja í lagi að senda
flóttafólk til Ítalíu þótt það liggi fyrir að
þar hafi beiðni þess verið synjað. Þarna er
aðbúnaður hælisleitenda ömurlegur.
Hælisleitendur á Ítalíu fá oft hvorki
húsaskjól né framfærslu, þetta fólk
verður fyrir ofbeldi og býr við örbirgð,“
segir hún og fullyrðir að óafsakanlegt sé
fyrir ríki eins og Ísland að vísa þeim örfáu
hælisleitendum sem hingað leita á ári
hverju til Ítalíu eða Möltu án þess að
skoða mál þeirra ofan í kjölinn. Katrín
óttast að Okoro verði fyrir sérstaklega
miklum fordómum innan kerfisins vegna
þess hve orðspor Nígeríu er slæmt en
bindur vonir við að hann fái tækifæri til að
bera vitni þegar mál hans verður tekið fyr-
ir í héraðsdómi um miðjan júní.
Styrkveitendum hlíft
n Styrktaraðilar Sjálfstæðisflokksins græða á afnámi veiðigjalds
B
jarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, kynnti ný
lega fyrir þingflokki sínum að
líklega yrði sérstaka veiðigjaldið
fellt úr gildi strax á næsta sumarþingi.
Þannig mætti koma í veg fyrir að veiði
gjaldalögin sem samþykkt voru í fyrra
tækju gildi á næsta fiskveiðiári. Þetta,
auk hugmynda um fækkun ráðuneyta,
er á meðal þess fyrsta sem frést hefur
úr stjórnarmyndunarviðræðunum og
má því ætla að hér sé um forgangsat
riði að ræða.
Í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins
fyrir síðustu þingkosningar styrktu
sjávarútvegsfyrirtæki frambjóðendur
um meira en sex milljónir króna
meðan frambjóðendur annarra flokka
fengu í heildina aðeins 12 þúsund
krónur. Á meðal þeirra sem styrktu
frambjóðendur fyrrnefnds flokks eru
sjávarútvegsfyrirtækin Brim, Eskja,
HB Grandi og Samherji sem öll munu
njóta góðs af niðurfellingu sérstaks
veiðigjalds. Séu styrkir sjávarútvegs
fyrirtækja til frambjóðenda Sjálfstæð
isflokksins á árinu 2009 teknir með í
reikninginn nema þeir allt í allt níu
milljónum króna. Frambjóðendur
annarra flokka fengu enga styrki frá
sjávarútvegsfyrirtækjum árið 2009 og
aðeins 12 þúsund krónur í ár.
Ekki liggur fyllilega ljóst fyrir hversu
miklar tekjur ríkissjóður gæti fengið af
gjaldinu á núverandi fiskveiðitímabili
sem nær til 1. september en talið er
að um sé að ræða átta til tíu millj
arða króna. Sé miðað við þetta gæti
ríkissjóður orðið af 30 til 50 milljörð
um á komandi kjörtímabili. Þetta
setur fjárfestingaráætlun fráfarandi
ríkisstjórnar í uppnám en tilgangur
hennar var að skapa aukinn hagvöxt,
fjölbreytni og nýsköpun í íslensku at
vinnulífi. Áætlunin var lögð fram á
grundvelli þess að ríkissjóður fengi
aukna hlutdeild í arði sjávar útvegsins
og til stóð að hún yrði að miklu leyti
fjármögnuð með tekjum af veiði
gjaldinu. 2.500 milljónir króna átti að
nýta til fjármögnunar á samgöngu
áætlun og 1.200 milljónir skyldu renna
til atvinnuþróunar og sóknaráætlana á
vegum landshlutasamtaka. Síðast en
ekki síst áttu tveir milljarðar að renna
árlega til eflingar rannsóknasjóðs og
tækniþróunarsjóðs. n
Opnunartímar:
Föstudagur 11-19
Laugardagur 10-16
Mánudagur 10-16 (annar í Hvítasunnu)
Virkir dagar 11-19 (meðan birgðir endast)
NÝTT
kortatímabil
Heildsölu
lager hreinsun
Fatnaður á alla fjölskylduna
Vönduð og góð merkjavara
á mögnuðum afslætti:
Jakkaföt frá 4.000 kr.
Peysur frá 1.500 kr.
Sokkar frá 100 kr.
Gallabuxur frá 3.000 kr.
Herraskyrtur frá 1.990 kr.
Ýmiss konar barnafatnaður
frá 499 kr.
Dömu- og herrabolir frá 990 kr.
Lagerhreinsunin fer fram að Höfðabakka 9,
fyrir aftan þetta þekkta hús á höfðanum.
Höfðabakka 9 110 Reykjavík
Fengu níu milljónir Helstu styrk-
veitendur Sjálfstæðisflokksins munu
hagnast verulega á fyrirhuguðu afnámi
sérstaks veiðigjalds.