Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Síða 16
16 Fréttir 17.–21. maí 2013 Helgarblað
Þ
etta er gott fyrir mannskap-
inn,“ sagði Guðmundur Krist-
jánsson, útgerðarmaður í
Brimi, þegar hann leiddi full-
trúa frá DV í gegnum nýjasta
frystitogara landsins, Skálaberg ER 7,
á fimmtudag. Það er engu logið þegar
fullyrt er að aðbúnaðurinn í skipinu sé
hinn glæsilegasti. Enn á eftir að ráða
áhöfn. Matsalurinn er hinn glæsileg-
asti, viðarklæddur að innan og aðbún-
aðurinn þægilegur. Áður en gengið er
inn í matsalinn blasa við tvær setu-
stofur fyrir áhöfnina. „ Önnur er fyrir
Manchester-menn, hin er fyrir Liver-
pool-menn. Þetta er aðallega gert til
að komast hjá rifrildum,“ segir einn
þeirra sem tekur á móti okkur um
setustofurnar tvær þar sem önnur ber
fremur af. Í miðju hennar er eldstæði
sem hægt er að fýra upp í þegar menn
vilja hafa það náðugt á milli vakta og
slaka á eftir erfiða törn. Þetta minnir
hreinlega á aðstöðu á hóteli.
Skálaberg var byggt í Noregi árið
2003 fyrir færeyska útgerð og ber þess
vel merki. Færeyingar eru trúrækin
þjóð og má sjá biblíur víðsvegar um
skipið og merkilegt nokk er hljóm-
borð í annarri setustofunni, hljóðfæri
sem Færeyingarnir notuðu við messur
á sunnudögum. Sungu þeir sálma við
undirleik frá hljómborðinu sem hefur
síður en svo verið lagt til hliðar af þeim
sem sigldu Skálaberginu heim til Ís-
lands frá Las Palmas á Kanaríeyjum
þar sem það hefur legið í slipp síðast-
liðna fjóra mánuði. Tónleikar voru að
sögn haldnir á hverju kvöldi í setustof-
unni á heimleiðinni.
Þrumuræða
Í setustofunni sem hýsir hljóm-
borðið og eldstæðið fáum við að heyra
þrumuræðu frá Guðmundi Kristjáns-
syni sem er síður en svo ánægður með
sértæka veiðigjaldið sem sett var á í
tíð ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna. Sértæka veiðigjaldið
hefur skilað ríkinu auknum beinum
tekjum af sjávarútveginum en fullyrt
er að til standi að afnema það af hálfu
Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins nái þeir saman í stjórnar-
myndunarviðræðum.
Guðmundur hefur lýst því yfir að
það sé engin forsenda fyrir rekstri
Skálabergsins á Íslandi ef sértæka
veiðigjaldinu verði ekki breytt. Sú
krafa hefur verið uppi í þjóðfélaginu
að þjóðin eigi að fá meiri arð af þessari
náttúrauðlind en þegar Guðmund-
ur er spurður hvernig tryggja eigi það
með öðrum hætti en sértæka veiði-
gjaldinu svarar hann því til að á Íslandi
sé skattkerfi þar sem þjóðin fái sínar
tekjur af auðlindinni.
Lyftir sér mjög vel á öldunum
Áður en lengra var haldið í þessum
umræðum var tekinn túr um skipið
og litið við í þreksalnum, sem er búinn
hlaupabretti, róðrarvél og handlóð-
um. „Maður lyftir þessu varla, þeir eru
svo sterkir þessir strákar,“ segir einn
sem tekur á lóðunum í sýnisferðinni
um skipið. Inni í þreksalnum er sturtu-
aðstaða og sána sem mun eflaust reyn-
ast aumum skrokkum vel eftir amstur
dagsins.
Káeturnar fyrir hásetana eru
tveggja manna. Það mun væntanlega
ekki væsa um menn í þeim því hver
ein og einasta er búin sturtu, klósetti
og sjónvarpi sem menn geta horft á
þegar þeir safna kröftum. Þá er þráð-
laus nettenging í skipinu sem tryggir
áhöfninni stöðugt samband við um-
heiminn.
Guðmundur leiðir okkur síðan út
á bátapall þar sem horft er yfir dekkið.
Hann greinir okkur frá því að skipið sé
búið fjórum spilum og geti verið með
þrjú troll. „Þetta skip er mjög gott fyr-
ir mannskapinn, það lyftir sér mjög vel
í öldunum og veitir þeim skjól,“ segir
Guðmundur.
Brennir 20 þúsund lítrum á dag
Skipið er 3.435 tonn af stærð, 16 metra
breitt og 74,50 metra langt. Aðalvél
skipsins er tíu þúsund hestöfl og því
eðlilegast að spyrja hvort það brenni
ekki mikilli olíu.
„Við erum að brenna 20 þúsund
lítrum á dag í siglingu,“ segir Guð-
mundur og má því segja að það kosti
nærri tveimur milljónum króna að
sigla skipinu í einn dag og getur tekið
allt upp í fimm daga að sigla í Smug-
una í Barentshafi. „Við reiknum með
að kaupa olíu fyrir fimm hundruð og
fimmtíu milljónir á ári, bara olíu. En
ríkið tekur skatt af því. Svo reiknum
við með að borga milljarð í laun, þar
tekur ríkið 450 milljónir, svo taka þeir
af okkur löndunargjöld og svo kaup-
um við viðhald og veiðarfæri og þeir
taka af því. Svo vilja þeir 350 milljónir
extra áður en við förum að veiða. Þá er
dæmið bara búið,“ segir Guðmundur
um kostnaðinn við rekstur.
Þegar komið er upp í brú blasir
glæsilegt útsýni við í allar áttir. Þetta
er gert til að tryggja öryggi þannig að
menn geti fylgst vel með öllu því sem
á sér stað úti á dekki enda getur mikið
gengið á þegar gefur á bátinn. Aðstað-
an er afar nútímaleg og fátt sem minn-
ir á gamla tíma fyrir utan kaffibollann
við skipstjórastólinn.
Mikil eftirspurn eftir plássi
Guðmundur á enn eftir að ráða áhöfn
á skipið en segir að mikið sé haft sam-
band við hann. „Það er mikið spurt
því menn vilja róa einn og einn,“ seg-
ir Guðmundur en þá fara menn í þrjá-
tíu daga túr og fá þrjátíu daga í frí á
móti. Reikna má með að hásetahlutur-
inn verði tvær til þrjár milljónir króna
en þá fá fær áhöfnin borgaðan hálfan
túrinn og hinir sem eru í landi hálfan.
„Þá missir þú ekki af mettúrnum,“ seg-
ir Guðmundur.
Hann segir mikla eftirspurn eftir
plássi á skipinu enda hafi HB Grandi
sagt upp sjómönnum síðastliðinn vet-
ur. „Og enginn segir neitt. Eins og þessi
veiðigjöld eru þá er verið að stúta öll-
um frystitogurum. Þá er það bara
ákvörðun samfélagsins og þá getum
við ekkert gert í því. Þá þýðir ekkert
að heimta laun fyrir að vera kennari,
það verða engar tekjur og ekkert til
skiptanna,“ segir Guðmundur. „Þú
mátt ekki minnka kökuna. Þú verð-
ur að leyfa okkur að baka stóra köku.
Það sem menn eru að gera núna er að
banna okkur að baka kökuna. Þannig
að það verður engin kaka og það verð-
ur ekkert til skiptanna,“ segir Guð-
mundur þegar hann er spurður út í
veiðigjaldið.
„Þjóðin er ekkert ósátt“
Mikil umræða hefur verið þjóðfé-
laginu um að þjóðin sé ekki að fá nægj-
anlega mikinn arð af sjávarútveginum,
af þeim sem nýta náttúruauðlindina.
Hvernig er þá hægt að ná sátt í þessu
máli þannig að bæði útgerðarmenn
og þjóðin fái sinn skerf? „Það er al-
Eins og hótel
á fiskveiðum
n Skálabergið búið nútímaþægindum n „Banna okkur að baka kökuna“
Við nýja skipið
Guðmundur í Brimi fyrir framan
Skálabergið þegar það var ný-
komið til hafnar á fimmtudag.
veg ágætis sátt,“ segir Guðmundur og
bendir á að niðurstaða kosninganna
hafi gefið það sterkt til kynna þar sem
þeir flokkar sem fengu mesta fylgið
vilja ekki sækja meira í útgerðina og
í tilfelli Sjálfstæðisflokksins lækka og
jafnvel afnema sértæka veiðigjaldið.
„Þjóðin er ekkert ósátt við þetta. Hún
vill bara að þetta sé opið, að þetta
sé í lagi og þetta sé vel rekið,“ segir
Guðmundur sem á von á því að sér-
tæka veiðigjaldið verði af numið þegar
ný ríkisstjórn tekur við. „Við trúum
því, það er alveg skýr vilji kjósenda,“
segir Guðmundur sem á von á því
að Skála bergið verði selt úr landi ef
það verður ekki afnumið. „Það verð-
ur ekkert hægt að gera út héðan,“ seg-
ir Guðmundur sem segist ekki nenna
að vera með útgerð erlendis líkt og
þekkist hjá öðrum íslenskum út-
gerðarmönnum.
Gefur nýrri ríkisstjórn hálft ár
En hvað bíður þá nýrrar ríkisstjórnar
sem mun ekki afnema veiðigjaldið?
„Þá kjósum við þá flokka ekki aftur
eftir fjögur ár. Sama og við gerðum
við Jóhönnu og Steingrím. Við kusum
þau fyrir fjórum árum og vildum gefa
þeim tækifæri. Þau stóðu sig illa. Þú ert
fastur með þá í fjögur ár. Þú verður að
sætta þig við það,“ svarar Guðmund-
ur en þegar hann er spurður hvort ný
ríkisstjórn megi búast við mótmælum
á Austurvelli ef ekki verður staðið við
það svarar hann: „Eigum við ekki að
gefa þessu hálft ár?“ n
Yfirvélstjóraherbergið Þar sem vélstjórarnir ræða sín á milli um ástand skipsins og
daginn og veginn.
Matsalurinn Hér sést inn í matsalinn innan úr annarri seturstofunni í skipinu.
MYndir SiGtrYGGur Ari
Útgerðarmaður í brúnni Guðmundur í
Brimi leiddi fulltrúa DV um allt skipið og er
hér uppi í brú.
Birgir Olgeirsson
birgir@dv.is
Úttekt