Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Síða 21
Fréttir 21Helgarblað 17.–21. maí 2013
Hryllingshæð Námuverkamenn ganga um hryllingshæðina svonefndu, „Hill of horror“, 100 kílómetra norðvestur af
Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Þar eru grafin lík 43 námuverkamanna, sem létust í verkfallsátökum við lögreglu í fyrra. Óttast er að
leikurinn verði endurtekinn því verkamenn eins stærsta framleiðanda hvítagulls í heiminum eru farnir í ólöglegt verkfall. Þeir krefjast
kjarabóta og að niðurskurðaráform verði dregin til baka. Spennan hefur stigmagnast undanfarna daga.
Dó í blóma lífsins Ættingjar
báru hina 22 ára Ayten Calim til grafar
í bænum Reyhanli, nærri landamærum
Tyrklands og Sýrlands á miðvikudag. Calim
var í hópi þeirra 50 sem létust í tveimur
sprengjuárásum um helgina. Ættingjarnir
huldu lík hennar með múslímskri bæna-
mottu og brúðkaupskjól hinnar látnu, þegar
þeir létu hana síga ofan í gröfina.
Dreginn upp úr síki Hann
gekk heldur geyst um gleðinnar dyr,
stuðningsmaður Chelsea, sem ætlaði að
fylgjast með liði sínu etja kappi við Benfica
í úrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu
á miðvikudag. Lögreglumönnum tókst,
með hjálp annarra stuðningsmanna, að
draga hann upp úr síki í Amsterdam þar sem
leikurinn fór fram. Engum sögum fer af því
hvort hann komst á leikinn.
Úrvinda gúmmíönd Loftlaus gúmmíönd rak um Victoriu-höfnina í Hong
Kong á miðvikudag. Þetta 16,5 metra háa ferlíki er verk listamannsins Floerntijn Hofman.
Skúlptúrinn verður til sýnis fyrir gesti Ocean Terminal í Hong Kong næsta mánuðinn.
Eitthvað hafði öndin látið á sjá á miðvikudag, þegar myndin var tekin, en lofti var hleypt úr
henni eftir að í ljós kom að hún hélt ekki vatni.
Síðasti kossinn Hann var kampakátur Alex Ferguson, fráfarandi knattspyrnustjóri Manchester United, þegar hann kyssti sinn síðasta bikar á Old Trafford um liðna helgi. Sjónarsviptir verður að stjóranum litríka.
Fastur í öryggisbúnaði Hermaður þurfti að beita hníf til að l
osa sig frá
herþyrlu Bandaríkjahers við æfingu á miðv
ikudag. Hann hafði stokkið úr þyrlunni en e
kki vildi
betur til en svo að hann flæktist í öryggisbú
naði. Hann varð því að skera sig lausan. Fjö
rutíu
og ein þjóð tekur þátt í umfangsmiklum æfi
ngum af þessum toga í Persaflóa og stand
a þær
yfir til 30. maí.