Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Qupperneq 22
T
íu ára stúlka í Reykjavík varð
fyrir þeirri hryllilegu lífsreynslu
að karlmaður neyddi hana til
að koma upp í bifreið hans og
svipti hana frelsi. Hann ók síð
an með hana á afvikinn stað og misnot
aði kynferðislega. Þetta gerðist í miðri
Reykjavík og um hábjartan dag. Stúlk
an gat gefið greinargóða lýsingu á þeim
óþverra sem þarna var að verki sem
varð til þess að hann var handtekinn.
Þetta er hvorki fyrsta né síðasta
málið af þessu tagi. Óvættirnir leynast
víða í samfélaginu og sitja um staði
þar sem líklegt er að þeir nái börnum
á sitt vald. Hið sorglega í málinu er að
þeir leika lausum hala vegna þess að
samfélagið hefur umburðarlyndi gagn
vart þeim. Fjölmörg dæmi eru um að
einstaklingar hafi fengið frið með óeðli
sitt vegna þess að samfélag þeirra vill
þagga málið niður. Athæfið má ekki
verða opinbert vegna þess að þá kemst
óorð á þorpið, bæinn eða hverfið.
Dæmi um þögnina í þorpinu er
þekkt. Á allra vitorði var að barna
níðingurinn væri á sveimi en ekkert var
gert til að stöðva hann þar sem mál
ið mátti ekki komast í hámæli. Nálægt
okkur í tíma er svokallað Ísafjarðar
mál. Árum saman hafði það orð farið
af gerandanum að hann notaði sér
ungmenni í kynferðislegum tilgangi.
En þögnin umlukti óhæfuverkin. Þegar
málið komst í hámæli eftir að ungir
menn lögðu fram kærur fyrirfór mað
urinn sér. Samfélag hans fór þá gegn
þeim fjölmiðli sem sagði fyrstur frá. Og
í framhaldinu sættu fórnarlömbin of
sóknum einstakra íbúa og eitt þeirra
reyndi að fyrirfara sér. Mörgum árum
síðar fengu þau bætur vegna málins.
Skaðinn var þá orðinn gífurlegur og
verður aldrei bættur. Málið allt mun
um langa tíð verða blettur á þeim sem
veittust að þolendunum og sköpuðu
jarðveg fyrir glæpina.
Ótal mörg önnur dæmi eru um að
samfélag okkar sýni barnaníðingum
umburðarlyndi. Það er ekki fyrr en á
síðustu mánuðum að augu fólks virðast
vera að opnast fyrir því að það er ekkert
sem réttlætir það að fullorðið fólk noti
börn og ungmenni í kynferðislegum
tilgangi. Loksins hefur tekist að hrekja
fólk frá því að slá skjaldborg um menn
sem haldnir eru einhverju versta óeðli
sem hugsast getur. Þökk sé opinberri
umræðu.
Allt samfélagið verður að leggjast á
eitt til að lágmarka þessa tegund glæpa.
Tryggja þarf hinum sjúku meðferð
gegn barnagirndinni, rétt eins og mis
notuðum börnum er rétt öll möguleg
hjálp. Þá verður fólk að setja fórnar
lömbin í fyrsta sæti. Sem fyrirbyggj
andi aðgerð þarf að upplýsa börn um
þann háska sem getur steðjað að þeim
í miðri heimabyggðinni, hvenær sem
er. Reglan verður að vera sú að þau fari
ekki upp í bíla hjá ókunnugu fólki og
læri að varast þá sem hugsanlega gætu
meitt þau. Þetta á ekki síst við um ætt
ingja. Aðalatriðið er að opna augu allra
fyrir aðsteðjandi háska og uppræta ill
gresið sem kostur er.
Það á ekki að hlífa dæmdum níðing
um og gera þeim kleift að fara huldu
höfði. Hið rétta er að gera opinbert
hvar slíkir menn búa og tryggja þannig
að íbúar geti varið börn sín. Eðlilegt er
að opinberir aðilar haldi úti netsíðu
með slíkum upplýsingum. Skylda ætti
dæmda níðinga til að kynna sig fyrir
næstu nágrönnum. Vandinn er hins
vegar sá að við erum ennþá í þeim ljóta
leik að skapa þeim felustaði og þar með
að búa til veiðilendur óeðlisins.
Það má ekki vera samúð með níð
ingnum þótt auðvitað verði sekt að
liggja fyrir. Gerum andlit barnaníðing
anna opinber og höldum þeim inni í
dagsbirtunni. Opnum umræðuna og
beinum kastljósinu að þeim ómennum
sem skaða börn og eyðileggja líf þeirra.
Sandkorn
Gylfi valtur
n Gylfi Arnbjörnsson, forseti
Alþýðusambands Íslands,
hefur oft og tíðum sætt
mikilli gagnrýni á undan
förnum árum. Þá sérstak
lega frá Vilhjálmi Birgissyni,
formanni Verkalýðsfélags
Akraness. Nýlega lét Vil-
hjálmur Egilsson af starfi
framkvæmdastjóra Sam
taka atvinnulífsins og tók
við sem rektor Háskólans á
Bifröst. Nú velta menn fyrir
sér hvort Gylfi sé ekki líka
á förum, líkt og Vilhjálmur
Egilsson og núverandi
ríkis stjórn.
Fótgönguliði
n Vilhjálmur Birgisson,
verkalýðsleiðtogi og
byltingarmaður á Akranesi,
er maður sem fæstir vilja
hafa á móti sér. Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, for
maður Framsóknarflokks
ins, sem stendur í miklum
barningi í eigin loforð
um, getur hrósað happi
því Vilhjálmur er sann
færður fótgönguliði hans.
„Ég hef grun um að sumir
þeirra hafi jafnvel putta
brotið sig, svo fast hafa þeir
slegið á lyklaborðið,“ seg
ir hann um andstæðinga
Sigmundar á bloggi sínu.
Sjónarsviptir að
Smára
n Víst er að það verður
sjónarsviptir að Gunnari
Smára Egils-
syni þegar
hann hætt
ir sem for
maður SÁÁ.
Hann hefur
látið mikið
að sér kveða
undanfarin tvö ár og haldið
samtökunum inni í sviðs
ljósinu. Á hinn bóginn
hefur Gunnari Smára ekki
tekist að halda frið innan
samtakanna. Meðal annars
hrökklaðist kvenfélag SÁÁ
út úr samtökunum. Óljóst
er hvort Gunnar Smári fer
vegna átakanna eða af öðr
um ástæðum.
Bjarni styrkist
n Stuðningsmenn Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur
innan Sjálfstæðisflokks
ins eru óhressir með að
hún skuli ekki hafa verið
inni í myndinni við upp
haf stjórnarmyndunarvið
ræðna. Kenningin er sú
að Bjarni Benediktsson sé
markvisst að
halda henni
frá áhrifum
til að ná full
um tökum
á flokknum
eftir þrauta
gönguna í
aðdraganda kosninganna.
Það er mál manna að hann
sé reyndar á góðri leið með
að festa sig rækilega í sessi.
Mér var í raun bara
alveg sama um líf mitt
Gummi Steingríms með
húsbóndavald yfir mér
Ragnar Erling Hermannsson var tekinn með tæp sex kíló af kókaíni. – DV Atli Fannar Bjarkason er nýr aðstoðarmaður formanns Bjartrar framtíðar. – DV
Þögnin um barnaníðingana„Skylda ætti dæmda
níðinga til að kynna
sig fyrir næstu nágrönnum
Þ
essa dagana er skólamála
umræðan afskaplega lituð af
skýrslu sem verkefnahópur á
vegum Samráðsvettvangs um
aukna hagsæld hefur lagt fram.
Það merkilega er að menn eru
svo uppteknir af téðri skýrslu að þeir
gleyma að nærri samdóma skýrsla
kom út 13.11. 2012 auk fjölda annarra
sem á undan hafa komið.
Dónaskapur gagnvart starfstétt
Það sem einkennir þessa umræðu
er í mínum huga þrennt. Í fyrsta lagi
vanþekking á stöðu mála í íslensku
skólakerfi þar sem verið er að krefjast
úreltra lausna við vandamálum sem
löngu er búið að leysa. Hér er átt við
styttingarmálin meðal annars.
Í öðru lagi gríðarlegar einfaldanir
á tölfræði sem er í raun engan veginn
nothæf. Einn angi þess er væntanlega
enn ein tilraun tímarits við að gæða
meta framhaldsskóla út frá óboðlegum
reiknireglum. Og í þriðja lagi gríðarleg
ur dónaskapur sem sýndur er starfstétt
sem vinnur við ömurleg launakjör,
erfiðar vinnuaðstæður þar sem gríðar
legum vanda hefur verið velt á skólana
og í afskaplega neikvæðu umhverfi þar
sem sífellt er verið að hafa í hótunum
eða lítillækka starfsvettvanginn.
Það hljómar til dæmis fáránlega
að halda því fram að það þurfi að
þyngja starfsaðstæður kennara til
að spara þegar þeir eru með þeim
lægst launuðu sem sjást í saman
burði OECD. Ef íslenskt skólakerfi er
svona dýrt í hvað fara þá peningarnir?
Steypu? Skólaskrifstofur? Ráðuneyti?
Aðkeypta vinnu?
Hefur þegar verið gert
Þegar verið er að kalla eftir styttingu
námstíma skólanna þá vita menn ekki
að þetta hefur verið gert. Þetta var gert
í lögum um grunnskóla og framhalds
skóla 2008. Grunnskólar mega útskrifa
nemendur úr 9. bekk ef viðkomandi
nemendur uppfylla skilyrði og fram
haldsskólar mega útskrifa þegar nem
andinn hefur lokið tilteknu prófi. Það
er beinlínis rangt að ætla öllum nem
endum grunn og framhaldsskóla að
fara í gegn samstíga og jafnhratt. Rétt
ara væri, að leyfa nemendum að fara
eins hratt og þeim hentar í unglinga
deild. Auk þess að draga úr bóklegu
hlutverki grunnskólans og kynna nem
endum raunverulegt verknám sem
valkost. Nokkrir skólar eru skipulagð
ir sem fjögurra ára skólar. Þeir taka
30–40% nemenda úr 10. bekk. Þeir
taka nær eingöngu nemendur með
háar einkunnir. Þessi nemendahóp
ur er markhópurinn sem ætti að ljúka
grunnskóla á níu vetrum og fram
haldsskóla á þremur. Meðan við bein
um blóma árgangsins þessa leið og
teljum hana vera viðmið menntunar
þá viðhelst kerfið því stór hluti þeirra
sem fer í aðra skóla þarf lengri tíma
eða annað nám en í boði er.
Þess vegna á að miða við færni,
kunnáttu og getu nemenda en ekki
árafjölda.
Óvirðing í garð kennara
Kennarar eru sagðir vinna of lítið. Hér
er gjarnan miðað við staðnar kennslu
stundir en það er fleira í starfi kennara
en það. Ef við reiknum vinnutíma
þingmanna eingöngu út frá þing
fundum og fréttamanna eingöngu út
frá fréttatímum þá held ég að heyrist
baulað.
Það er óþolandi að sitja undir því
ár eftir ár að hlusta á stjórnvöld berja
á hópi sem er með nánast einhver
lægstu laun faglærðra opinberra starfs
manna, hóp sem þarf orðið fimm ára
háskólanám, vinnur þrotlaust hvað
sem hver segir, og af samviskusemi.
Og sömu vinnuveitendur sýna þessum
undirmönnum sínum framkomu sem
er engu lík. Hvaða atvinnurekandi með
snefil af sjálfsvirðingu talar svona?
Þetta dugir ekki
Það er óþolandi að þurfa að sitja undir
þessu ár eftir ár. Ef laun kennara væru
í samræmi við þá hópa sem þurfa jafn
mikla menntun þá væri ekki stál í stál
endalaust heldur hægt að fá allskonar
hluti fram til viðbótar við það sem nú
fæst án þess að nuddast um krónur og
aura. Ef fólk fyndi að því væri treyst,
verk þess metin í stað þeirra viðhorfa
sem mæta því í dag væri kannski ekki
þessi reiði. Ef launin væru löguð til
langframa þá gengi betur að leysa
margt. Hins vegar er ekki boðlegt að
hlusta á að með styttingu skólans,
stækkun hópa, fækkun skóla þá megi
athuga með hærri laun … Þetta dugir
ekki. Er ekki kominn tími til að gera
þetta betur en hingað til?
Höfundur er aðstoðarskólameistari
við Flensborgarskóla.
Nóg komið
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Fréttastjóri menningar: Símon
Birgisson (simonb@dv.is) Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjónarmaður helgarblaðs og innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og
vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
22 17.–21. maí 2013 Helgarblað
Leiðari
Reynir Traustason
rt@dv.is
Kjallari
Magnús
Þorkelsson
aðstoðarskólameistari við Flensborg
„Það er óþolandi að
þurfa að sitja undir
þessu ár eftir ár.