Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Side 33
Eurovision 33Helgarblað 17.–21. maí 2013
en fullkomnunarsinni
Kærastan
Annað sem fólki ber saman um er að
Eyþór Ingi sé mikill fjölskyldumaður.
Hann og Soffía Ósk eru trúlofuð og
ætla að gifta sig í lok júlí. „Hann er frá-
bær fjölskyldufaðir. Ég átti tvær stelp-
ur þegar við kynntumst og hann tók
þeim strax sem sínum. Það er eins og
hann hafi ekki gert annað. Þær dýrka
hann og dá,“ segir Soffía Ósk.
„Hann heldur miklu sambandi
við fólkið sitt fyrir norðan og hefur
sterk tengsl við langafa sinn og afa
og ömmu. Hann er líka einstaklega
góður faðir og hefur gengið dætrum
Soffíu í föðurstað. Hann er nærgæt-
inn og ljúfur og vill gefa stelpunum
sínum mikinn tíma. Þegar yngsta
dóttirin fæddist í fyrra vildi hann
ekki setja hana á leikskóla, hann vildi
hugsa sjálfur um hana á daginn,“
segir Guðbjörg.
Nær gallalaus
Þegar viðmælendur eru spurðir
hvort Eyþór hafi einhverja galla
vefst flestum tunga um tönn. „Hann
getur verið óstundvís, á það til að
gleyma sér en athyglisbresturinn
gerir það að verkum,“ segir Soffía
Ósk.
„Ég held að hann hafi enga galla.
Hann er með athyglisbrest og getur
verið utan við sig,“ segir Júlíus. „Ég
held að hans eini ókostur sé hvað
hann er ofboðslega kröfuharður
á sjálfan sig,“ segir mamma hans.
„Hann er með gríðarlega fullkomn-
unaráráttu og gerir miklar kröfur til
sín. Hann vill gera allt 110 prósent,“
segir Soffía Ósk. Í sama streng taka
aðrir viðmælendur blaðsins en þeir
segja einnig að þessi ókostur geti
jafnframt verið mesti kostur Eyþórs
Inga í framtíðinni. n
Fékk ekki taugaáfall
Á
gústa Eva Erlendsdóttir í
gervi Silvíu Nætur, vann
í báðum undankeppn-
um hér heima með yfir-
burðum en hafnaði í 23.
sæti forkeppninnar í Aþenu eftir
mikla skandala sem hreyfðu við
allri Evrópu. Atriðið var farsi og
persóna Silvíu Nætur hugarsmíð
Ágústu og leikstjórans, Gauks
Úlfarssonar. „Við gerðum aldrei
ráð fyrir því að við kæmumst ekki
áfram,“ segir Ágústa Eva. „Það
kom okkur á óvart. Ég þurfti því
að finna upp á einhverju. Ég sat
kyrr í nokkrar sekúndur og hugs-
aði, svo tróð ég mér upp á svið
þar sem sigurvegararnir voru að
fagna. Fékk lánað horn og öskraði
í það. Svo endaði ég ein að dansa
við Madonnu-lag í geðveikislegri
afneitun. Einu aðdáendurnir
voru hommar sem öskruðu til
mín falleg stuðningsorð. Ég hélt
leikritinu svo áfram. Náði mér í
tannkremstúbu í búningsherbergi
og sprautaði tannkremi í augun.
Á blaðamannafundi var ég svo
grátbólgin og kenndi öðrum um
ófarir mínar,“ segir Ágústa Eva og
hlær að minningunni. „Þegar ég
kom heim þá fann ég að einhverj-
ir héldu að taugaáfallið úti hefði
verið ekta. Mér fannst það óskilj-
anlegt og hélt að fólk vissi að um
gjörning væri að ræða en það ber
nú samt vott um hlýhug,“ segir
hún.
Bullið rataði á forsíðu
Eftir Eurovision-keppnina var
leikritinu haldið áfram. Ágústa
Eva ferðaðist til Los Angeles til
þess að taka upp plötu og til
Mexíkó til að taka upp tónlistar-
myndband. „Paris Hilton style,“
segir hún og hlær. „Ég fékk engin
sérstök tilboð eftir keppnina en
við fengum langmesta athygli af
öllum keppendum. Við þurft-
um að skrifa undir samning fyrir
keppnina um að við tækjum ekki
upp á einhverju óvæntu. Það hef-
ur aldrei verið gert, fyrr eða síðar.
Þeir voru svo hræddir við okkur.
Þá var útsendingunni seinkað
vegna okkar og það hefur ekki
gerst áður. Á einhverjum blaða-
mannafundi bullaði ég svo um
sigurvegarann Carolu, sagði að
hún hefði unnið vegna þess að
hún hefði sofið hjá einhverjum
forráðamanni keppninnar. Ég
hefði séð þau út um hótelglugg-
ann í samförum í bíl. Það er með
ólíkindum, en það rataði á forsíðu
sænsks dagblaðs,“ segir Ágústa
Eva og skellir upp úr. Forsíðufyrir-
sögnin var: Sex scandal!
Holdsveikur „lúser“
Hún segist hafa fundið fyrir
blendnum viðbrögðum lands-
manna. Mörgum hafi þótt uppá-
tækið skemmtilegt en aðrir hafi
orðið sárreiðir. „Það var eins og
hún væri holdsveik, það þorði
enginn að pota í hana. Hún var
svo mikill lúser.“
Ágústa Eva segir þá sárreiðu
geta huggað sig við það að hin
heimsfræga Lady Gaga hafi sótt
sér fyrirmynd í Silvíu Nótt. „Já,
Lady Gaga sá Eurovision og fékk
innblástur frá Silvíu Nótt, þar
fann hún eins konar vinkil fyrir
tónlist sína. Þetta kom fram í við-
tali við hana. Við höfum því snert
á frægðinni.“
Eftir Eurovision-ævintýrið
hefur Ágústa Eva einbeitt sér að
leiklistarferlinum og unnið þar
marga sigra. Mesta athygli vakti
hún þegar hún lék eitt aðalhlut-
verkanna í myndinni Borgríki en
í myndinni mátti sjá margvísleg
bardagaatriði. Til þess að undir-
búa sig fyrir hlutverkið fór Ágústa
Eva að æfa hjá bardagaíþróttafé-
laginu Mjölni en hún lék öll sín
áhættuatriði sjálf í myndinni.
n Lady Gaga fékk innblástur frá Silvíu Nótt
Lærði af Silvíu Nótt Lady
Gaga horfði á Eurovision og
framkoma Silvíu Nætur varð henni
innblástur. Við eigum þá hlutdeild
í heimsfrægðinni eftir allt saman.
Í leiklist og æfir bardagalistir
Ágústa Eva hefur einbeitt sér að leiklist-
arferlinum og hefur einnig náð töluverðri
færni í bardagalistum.
Flutti til Ítalíu
H
alla Margrét lærði óperu-
söng á Ítalíu og hefur starf-
að þar sem óperusöng-
kona frá 1997. Hún
hefur ekki verið áberandi í
íslensku tónlistarlífi eftir
keppnina en söng þó á plöt-
unni Kvöld við lækinn með
þeim Kristni Sigmundssyni
og Jóhanni Helgasyni sem
kom út árið 1987.
Halla Margrét býr í Parma og
er gift ítalska tónlistar-
manninum Roberto
Baralli. Hún hefur búið á
Ítalíu í meira en þrjátíu ár.
n Helgaði sig óperusöng
Nærgætinn ljúflingur Það eru meiri líkur á því að verða frægur á alþjóðlegu bingómóti en í Eurovision,“ segir Gaukur Úlfarsson, spunameistari eins alræmdasta Eurovision-atriðis sem Ísland hefur sent frá sér, Til hamingju
Ísland. Þar gerði Ágústa Eva Erlends-
dóttir í gervi Silvíu Nætur allt vitlaust.
Í Silvíu Nótt kristallaðist Eurovision-
æði Íslendinga sem er rússíbanareið
himinhárra væntinga niður í botn-
laus vonbrigði. En er það rétt? Hver
eru örlög íslenskra Eurovision-fara?
Og hvernig gekk þeim að halda
sönsum í íslenska væntingarússíban-
anum? DV kannaði örlög íslenskra
Eurovision-fara og komst að því að
framtíð Eyþórs Inga er björt. Þeir sem
hafa tekið þátt í Eurovision hafa flest-
ir haldið áfram að starfa að tónlist af
ástríðu.
Örlög íslenskra Eurovision-fara
Silvía Nótt Ágústa Eva
segir frá umstanginu í kring-
um atriðið. Einhverjir héldu
taugaáfallið sem hún gerði
sér upp á blaðamannafundi
eftir keppnina ekta. Í dag
hefur Ágústa Eva einbeitt
sér að leiklistarferli sínum og
nýtilkomnu móðurhlutverki.
Ástfangin Eyþór Ingi
ætlar að ganga að eiga
unnustu sína Soffíu ósk
Guðmundsdóttur í sum-
ar. „Hann er húmoristi
með yndislega nærveru,“
segir Soffía Ósk.
Gerir vel „Hann er mikill fagmaður sem vill allta
f gera
betur. Hann spyr alltaf hvernig hann hafi st
aðið sig og
hvort það sé hægt að gera betur,“ segir vinu
r hans.
Með stelpunum „Hann er frábær fjölskyldufaðir
. Ég átti tvær stelpur þegar við kynntumst
og hann tók þeim strax sem sínum. Þær dýrka
hann og dá,“ segir Soffía Ósk unnusta Eyþórs
.