Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Qupperneq 34
34 Eurovision 17.–21. maí 2013 Helgarblað
Þau kepptu líka
1992 Nei eða já - Heart2Heart 7
1994 Nætur - Sigríður Beinteinsdóttir 12
1995 Núna - Björgvin Halldórsson 15
1996 Sjúbídú - Anna Mjöll Ólafsdóttir 13
1997 Minn hinsti dans - Páll Óskar 20
1999 All Out Of Luck - Selma Björns 2
2001 Angel - TwoTricky 23
2003 Open Your Heart - Birgitta Haukdal 8
2004 Heaven - Jónsi 19
2005 If I Had Your Love - Selma Björns 16*
* Undankeppni
Héldu hvert í sína áttina
I
cy-hópurinn var stofnaður fyr-
ir fyrstu þátttöku Íslands í
Eurovision en þau Helga Möller,
Eiríkur Hauksson og Pálmi Guð-
mundsson unnu ekki saman undir
þeim formerkjum eftir það.
Helga hélt áfram að
syngja en hún er einna
þekktust fyrir diskó-
og jólalög sín. Hún
gaf út sína fyrstu
sólóplötu árið 2007,
jólaplötuna Hátíðar-
skap. Hún hefur starf-
að sem fararstjóri og
flugfreyja auk þess
sem hún þykir lið-
tæk í golfi.
Pálmi hélt
áfram að vinna við
tónlist meðal annars
með Mannakornum.
Hann fæst í dag við ýmis
verkefni og hefur meðal annars hlúð
að djassáhuga
sínum.
Eiríkur flutti
til Noregs með
fjölskyldu sína þar
sem hann vann við kennslu og
hefur spilað þar og sungið með rokk-
hljómsveitum. Hann fór svo aftur út
fyrir Íslands hönd árið 2007.
n Helga Möller er flugfreyja, Pálmi djassgeggjari og Eiki Hauks rokkar í Noregi
Bleiki mittis-
lindinn svalur
S
tefán hefur verið mikið
í sviðsljósinu eftir
keppnina og er þekkt-
astur fyrir að vera
söngvari Sálarinnar í yfir
tuttugu ár. Hann hefur auk
þess starfað með öðrum tón-
listarmönnun og tekið þátt í
fjölda sýninga og tónleika í gegn-
um tíðina.
Sverrir er tónlistarmaður og
rithöfundur og hefur
starfað sem útvarpsmaður.
Í nýlegri könnun DV á bestu
og verstu íslensku atriðunum
segir einn álitsgjafinn að lagið
hafi verið fínt en það hafi þó klár-
lega vantað ömmur, bláar ninjur
eða sirkushóp á hjólum á sviðið.
Eða bara Pál Óskar og ljóskurnar.
Bleiki mittislindinn hans Stefáns
hafi samt verið virkilega svalur.
n Lentu í hinu alræmda 16. sæti
„Fáir muna eftir
þeim sem lentu
í 2. eða 3. sæti“
S
igga og Örvar
voru í hljóm-
sveitinni
Stjórninni
sem var vinsæl
áður en þau fóru
út með lagið Eitt lag
enn sem náði góðum
árangri. Árið 1992 fór
Stjórnin aftur fyrir hönd
Íslands í Eurovision, í
þetta skipti með lag-
ið Nei eða já sem lenti
í sjöunda sæti í Malmö.
Stjórnin hefur starfað síð-
an þá með hléum og er enn í
fullu fjöri.
Sigga hefur fengist við söng
síðan og hefur meðal annars
rekið söngskólann Söngstúd-
íó Siggu þar sem hún kenn-
ir bæði fullorðnum og börnum
að syngja. Hún hefur tekið þátt
í fjölda tónleika og tónlistarvið-
burða.
Grétar hefur unnið við tónlist
síðan og sem umboðsmaður en
hann tók aftur þátt í Eurovision
árið 2008 en þá sem bakradda-
söngvari Eurobandsins.
Lögðu mikið á sig
„Við vorum búin að vinna
saman í eitt ár en Sigga kom
inn í Stjórnina árið 1989. Við
tókum svo þetta lag að okkur
til að upplifa stemninguna og
til þess að gera hljómsveitina
vinsæla. Við lögðum mikið á
okkur,“ segir Grétar Örvarsson
tónlistarmaður en hann tók þátt
árið 1990 ásamt Stjórninni með
Einu lagi enn.
Fengu að upplifa gömlu
Júgóslavíu
Hann segir að ferðin til Zagreb
hafi alveg staðið undir vænting-
um og að þau hafi verið hepp-
in að fá að fara til gömlu
Júgóslavíu. „Það var allt að liðast
í sundur en þetta var rétt áður
en stríðið braust út svo það var
spenna í loftinu.“ Hann segir að
það hafi þó verið vel haldið utan
um allt.
Þau fóru svo aftur tveim-
ur árum seinna með lagið Nei
eða já en þá voru það Sigga og
Sigrún Eva Ármannsdóttir sem
sungu lag Grétars og Friðriks
Karlssonar. „Í bæði skiptin
þurftum við að syngja á
íslensku en hefðum vilj-
að syngja á ensku. Það
hefði verið áferðarfal-
legra.“
Veitti skemmtileg
tækifæri
Aðspurður hvort þau
hafi litið á keppn-
ina sem tækifæri til
að koma sér áfram
erlendis segir hann
þau hafi lítið spáð í
það á þeim tíma. „Það
var enginn sérstakur áhuga fyr-
ir slíku hjá okkur. Okkur fannst
fínt að vera heima á Íslandi og
við höfðum nóg að gera þar í
mörg ár á eftir. Þetta veitti okkur
mörg skemmtileg tækifæri hér
heima.“ Hann segir að þau hafi
fengið einhverjar fyrirspurn-
ir að utan en þau hafi ekki sinnt
þeim.
Grétar segist alltaf hafa verið
viðloðandi tónlistina. Hann hafi
til dæmis verið í útgáfu, stúdíó-
vinnu og verið að spila í gengum
árin. Með tónlistinni hefur hann
starfað við ýmislegt en hann
byggði og stofnaði Kaffi Akur-
eyri í kringum 1995. Hann hefur
einnig fengist við markaðstengd
efni og var einn í hópi nokkurra
sem sáu viðskiptatækifæri í því
að opna bakarí í Bandaríkjun-
um. Grétar segir að hann hafi
búið úti um tíma og þar hafi
hann skoðað ýmsa möguleika
á að opna bakarí en að þeir hafi
hætt við og dregið sig út úr því.
Hvetur fólk til að taka þátt
Grétar efast um að íslenskir tón-
listarmenn líti á keppnina sem
stökkpall fyrir ferilinn erlend-
is. „Fáir muna eftir þeim sem
lentu í öðru eða þriðja sæti. Það
er bara fyrsta sætið sem hefur
eitthvað að segja.“ Hann hvet-
ur þó tónlistarfólk til að taka
þátt og bendir á að það sé búið
að vera mikil fjölbreytni í hópi
þeirra sem taka þátt . „Þótt það
hafi örlað fyrir fordómum fyrir
Eurovision á sínum tíma innan
bransans þá hafa ótrúlegustu
tónlistarmenn tekið þátt og það
er bara jákvætt.“
n Grétar hefur þrisvar tekið þátt
Eitt lag enn
Íslendingar glödd-
ust hjartanlega
þegar Stjórnin
dansaði sig upp í
fjórða sætið.
Þ
ó að lagið næði ekki ofar
í keppninni en í 20. sæti
vakti það eigi að síður
mikla athygli ytra. Páll
Óskar hefur allar götur starfað
sem lagahöfundur, söngvari
og plötusnúður auk þess sem
hann hefur gert þætti fyrir bæði
sjónvarp og útvarp.
Hann hefur sung-
ið með nokkrum
hljómsveitum þar
á meðal Millj-
ónamæringun-
um og Casino.
Páll Óskar er
einn þekktasti
Eurovision-sér-
fræðingur
þjóðar-
innar.
Lagið
vakti
mikla
athygli
O
kkur líst bara mjög vel á,“ seg-
ir söngkonan Jóhanna Guð-
rún Jónsdóttir í viðtali við
DV um flutninginn til Óslóar
í Noregi í fyrra. Þangað flutti hún
ásamt kærasta sínum, Davíð Sigur-
geirssyni tónlistarmanni, í leit að
nýjum tækifærum á stærri markaði
en Ísland býður upp á.
Aðspurð hvort það sé eitthvað
sem hún sé fegin að vera laus við á
Íslandi segir Jóhanna ekki svo vera.
„Auðvitað mun ég sakna Íslands al-
veg helling. Við fórum ekki út til að
flýja neitt eða af því okkur finnist
ekki frábært að vera á Íslandi.“
Fleiri tækifæri í Noregi
Jóhanna Guðrún er með norskan
umboðsmann, sem hún hefur
þekkt í fjölda ára, og taldi viturlegt
að færa sig nær honum. Það er
ein aðalástæðan fyrir því að parið
ákvað að freista gæfunnar í Noregi.
„Það eru tækifæri hér sem við ætl-
um að prófa og sjá hvort það gangi
vel. Þetta er svona prufukeyrsla hjá
okkur,“ útskýrir hún. „Við erum ung
og það er fullt af möguleikum hér.
Ef maður nýtir sér þá rétt þá getur
ýmislegt gerst,“ bætir hún við.
Þrátt fyrir að mörg tækifæri
bjóðist á Íslandi þá er það takmark-
andi, að sögn Jóhönnu Guðrúnar
sem bendir á að það sé mun auð-
veldara og ódýrara að ferðast frá
Noregi til annarra landa en frá Ís-
landi.
Flutt til Noregs:
„Ekki að flýja“
n Leitar tækifæra á stærri markaði
Is It True? Ein
besta frammi-
staða Íslendinga
í Eurovision var
þegar Jóhanna
Guðrún heillaði
Evrópu með
laginu Is it True?