Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Page 48
48 Lífsstíll 17.–21. maí 2013 Helgarblað
n Bogfimisetrið í Kópavogi er hið eina sinna tegundar í heiminum n Allir velkomnir
Beint í mark
Þ
að er enginn staður í ver-
öldinni eins og þessi,“ segir
Guðmundur Örn Guðjóns-
son, annar af tveimur stofn-
endum Bogfimisetursins og
nýs félags, Bogfimifélagsins Bogans.
„Hér er æfingaraðstaða fyrir hvern
sem er að æfa sig á boga. Það er að
mér vitandi ekki opin slík aðstaða
fyrir almenning neins staðar í heim-
inum.“
Guðmundur Örn hefur boðið
blaðamanni og ljósmyndara í heim-
sókn í því skyni að leyfa þeim að
prófa íþróttina. Þegar þá ber að garði
eru börn um tíu ára aldur við æf-
ingar. „Mega sumsé börn æfa bog-
fimi?“ spyr blaðamaður og horfir á
áhugasöm börnin leggja ör á streng
og skjóta í mark. Sum skjóta á stóra
mynd af bjarndýri. „Við erum að
prófa okkur áfram í að veita börnum
leiðsögn. Þessi börn eru úr Kársnes-
skóla og hafa áhuga á að læra bog-
fimi. Ef til vill verðum við með nám-
skeið í sumar, við erum að minnsta
kosti í smá tilraunastarfi í dag.“
Mjög gaman
Skiljanlega eru börnin afar
áhugasöm um bogfimi. Ekki síst
í ljósi vinsælda Hollywood-kvik-
myndarinnar Hunger Games, þar
sem kvenhetjan Katniss Everdeen
mundaði bogann hetjulega.
Maríanna, 10 ára stúlka úr Kárs-
nesskóla, er stödd við æfingar
og gefur sig á tal við blaðamann.
„Mér finnst þetta mjög gaman, ég
kynntist bogfimi í Kanada. Þar hafa
margir áhuga á bogfimi. Miklu fleiri
en hér,“ segir hún og sýnir svo getu
sína. Hún spennir bogann og skýtur
beint í mark. Efni í góða íþrótta-
konu.
Bæði fyrir konur og karla
„Hér er hægt að koma í bogfimi rétt
eins og keilu,“ segir Guðmundur
Örn með bros á vör. „Ég sjálfur
byrjaði að æfa bogfimi fyrir um 11
mánuðum og komst þá að því að
aðgengi að íþróttinni er mjög erfitt
og lítið á Íslandi. Ég ákvað fimm
mánuðum seinna að bæta úr því
og opna þessa aðstöðu hér. Hér er
opið fyrir almenning og ef einhverj-
um líkar einstaklega vel þá er hægt
að halda áfram í íþróttinni og ganga
í bogfimifélag. Síðan við opnuðum
hefur orðið fimmföldun í sportinu.
Áður voru um 40 sem æfðu bog-
fimi að staðaldri, nú eru 200 manns
skráðir í félagið okkar og því ljóst
að framtakið hefur orðið til þess að
stórauka áhugann á greininni.“
Heillandi sport
Hann segir alla geta stundað bog-
fimi og íþróttin henti bæði konum
og körlum. „Elsta konan í bogfimi er
um sjötugt og sú yngsta 10 ára.“
Erla María Hauksdóttir, jarð-
fræðingur og rannsóknarmaður
hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands,
prófaði fyrst að skjóta af boga fyrir
skömmu. Hún fór með félaga sín-
um í gott skjól í Öskjuhlíðinni þar
sem ófáum örvum var skotið á mark
án þess að vegfarendum væri stefnt
í hættu. „Ég var að prófa þetta fyrst
þegar myndin (sjá að ofan) er tekin
og heillaðist strax. Ég er í göngu-
hópi og björgunar sveit og elska hitt
og þetta sport. Ég fer á kajak og klíf
fjöll og svona og því er bogfimin
skemmtileg viðbót. Ég hlakka til að
gera meira af þessu.“
Í nýrri aðstöðu Bogfimisetursins
eru níu skotmörk og skilrúm á milli
brauta. Bogarnir sem eru notaðir
eru í mismunandi stærðum og segir
Guðmundur Örn alla eiga að geta
fundið sér stærð við hæfi. „Þetta er
skemmtilegt og öruggt sport fyrir
alla fjölskylduna. Það sem skiptir
allra helst máli er að þiggja leiðsögn
áður en skotið er af boga. Það er skil-
yrði hér. Líkamsstaðan þarf að vera
rétt og fylgja þarf settum öryggis-
reglum. Þeir sem stunda bogfimi
þurfa að búa yfir góðri einbeitingu
og vera í góðu andlegu jafnvægi,“ til-
tekur Guðmundur.
„Allur búnaðurinn er á staðnum.
Þú færð boga, örvar, hlífar og skot-
mörk til að skjóta á.“
Ásamt því er leiðbeinandi á
staðnum sem kynnir þér grunninn
að því hvernig á að skjóta.
Bogarnir sem eru notaðir í saln-
um eru allir í mismunandi stærð-
um svo allir ættu að geta fundið sér
stærð við hæfi.
Búnaðurinn skiptir einhverju
máli í bogfimi en það sem skipt-
ir höfuðmáli er að búnaðurinn sé
rétt stilltur, skotstaða og þeim mun
meira sem æft er þeim mun meiri
árangri er náð.
Skotmörkin sem eru notuð eru
sams konar og þau sem notuð eru
á alþjóðlegum mótum erlendis og
eru af hæstu gæðum. n
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Skotið af boga Erla María
Hauksdóttir, jarðfræðingur og
rannsóknarmaður hjá Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands, skýtur af
boga í Öskjuhlíð. Hún ætlar sér að
skjóta oftar af boga og segir það
óhemju skemmtilegt sport.
„Elsta konan í bog-
fimi er um sjötugt
og sú yngsta 10 ára.
Kynntist bogfimi
í Kanada Maríanna
er 10 ára og prófar
sig áfram í bogfimi
í Bogfimisetrinu í
Kópavogi. Hún kynnt-
ist bogfimi í Kanada,
þar sem hún segir
marga hafa áhuga á
sportinu.
Sport fyrir alla
Hér sést Guðmundur
Örn spenna ör á
boga. Honum fannst
aðgengi að bogfimi
of lítið á Íslandi og
ákvað að opna það
fyrir almenningi.