Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Page 61

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Page 61
„Ég er pínu Marilyn Monroe í mér“ Ríkuleg uppskera Jónína þakkar fyrir lífið á hverjum degi en hún segist vera stjórnsöm í grunninn en hún hefur lært að láta af stjórnseminni með hjálp trúarinn- ar. Henni finnst erfitt að tala um Jesú sem leiðtoga sinn, en trúin er ákveðið feimnismál meðal vina hennar. „Trúin á Jesú Krist er ákveðið feimnismál meðal minna vina. Fólk sem hefur gengið í gegn- um háskólanám, í öðru en guð- fræði, á oft erfitt með að ræða það óáþreifan lega sem Guð vissulega er og hvað þá Jesú sem var kross- festur en reis upp. Fyrir marga er það eitthvað svo ótrúlegt. En trúin er vonin um eitthvað betra og lífs- stíll minn snýst um að finna það góða þótt það taki mig alla ævina að finna það. Ég skal finna það besta í öllum, í öllum aðstæðum og á öllum tímum. Ég er þakklát öllum þeim sem heyra rödd mína, bæði þegar hún er mér í hag og eins þeim sem hlusta þegar ég fer í dimma dalinn. Sá dal- ur er bara í mínum hugarheimi, hann er ekki raunverulegur. Ég mun aldrei dvelja lengi þar því það er til fólk sem ég get leitað til og það er til Guð sem heldur mér við efnið ef ég vinn vinnuna mína. Það felst í því að lesa orðið og fylgja því eftir bestu getu. Þetta hljómar væmið en Biblí- an er bók bókanna og AA-bókin er númer tvö. Þegar fólk vinnur 12 spora vinnuna sína, sem allir ættu að gera í raun, þá er uppskeran ríkuleg, and- legt jafnvægi og heilbrigði til anda sál- ar og líkama. Við erum nefnilega andi, með sál og í líkama. Ekki öfugt.“ n Nýtur kynþokkans Jónína kemur vel fyrir og geislar af hamingju. Náði sátt við sjálfa sig Henni líður betur í eigin líkama þegar hún er aðeins yfir kjörþyngd. Sjósundið Jónína elskar að synda nakin í sjónum þegar rökkva tekur. Fólk 61Helgarblað 17.–21. maí 2013

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.