Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Page 62
Þ
að er búið að vera alveg ótrú
lega gaman að búa þennan
disk til, það er svo mikil gleði
í þessu bandi,“ segir Halldór
Gunnar Pálsson, tónlistar
maður og einn meðlima hljómsveit
arinnar Æfingar frá Flateyri. Hall
dór spilaði fyrst með hljómsveitinni
fyrir nokkrum árum þegar Krist
jáns Jóhannessonar, trommuleikra
og fyrrverandi sveitarstjóra á Flat
eyri, var minnst. Halldór þekkja flest
ir Íslendingar en hann fer einnig
fyrir Fjallabræðrum og hefur ferðast
um landið og tekið upp nýtt íslenskt
þjóðlag.
Líður eins og fermingardreng
„Ég var eiginlega sleginn til riddara
og gerður að formlegum meðlimi
Æfingar á þessari miklu gleðihelgi
fyrir vestan. Það var mjög gaman að
fara á svið með köllunum. Manni líð
ur eins og fermingardreng með þeim.
Æfing er fyrsta kynslóð sveitaball
ahljómsveita á Flateyri en ég er af
fjórðu kynslóð, allt sem á eftir kom er
Æfingu að þakka. Það eru forréttindi
að fá að stíga á svið með fyrstu kyn
slóð og fáir sem upplifa það,“ segir
Halldór Gunnar.
Hljómsveitin var stofnuð
byltingar árið mikla, 1968. Þeir voru
fjórir sem ákváðu að slá í band og
keyptu hljóðfæri. Þar sem enginn
kunni með slíka hluti að fara var dreg
ið um hver spilaði á hvað. Af þeim
sem stofnuðu bandið er einn eftir um
borð, Árni Benediktsson gítar leikari.
Himnasending
„Þetta hefur alltaf verið skemmti
legt, fyrstu tuttugu árin vorum við
nokkuð stíft í þessu en síðan höfum
við komið saman við sérstök tæki
færi, þess vegna hefur hljómsveitin
verið til allan þennan tíma. Okkur
dreymdi aldrei um það í gamla daga
að við ættum eftir að gefa út plötu en
nú er það orðið að veruleika. Ég hefði
aldrei trúað hvað það er skemmtilegt
að gera plötu með þessum hóp,“ segir
Árni og hækkar í græjunum þar sem
rokklagið Fínn karl kerlingin hans,
hljómar af endalausu fjöri.
Halldór Gunnar hækkar róminn og
segir að þetta lag muni verða fyrst af
diskinum til að komast á lista. „En
þau verða fleiri.“
Alls eru fimm meðlimir í hljóm
sveitinni auk þess sem leiguliði er á
trommunum. Af nýrri meðlimum er
Siggi Björns elstur en hann spilaði
fyrst með bandinu á páskadag 1971.
„Við komum og fórum til skiptis á ár
unum á milli 1970 og 1980, ég, Jón
Ingiberg Guðmundsson og Ásbjörn
Björgvinsson, síðan höfum við allir
fylgt bandinu. Það var svo sannkölluð
himnasending þegar Halldór Gunnar
bættist í hópinn, hann er hreinasti
snillingur strákurinn, það vefst ekkert
fyrir honum enda gæti enginn nema
hann haldið saman svona kór eins og
Fjallbræðrum. Svo lagar hann meðal
aldur bandsins svo vel til.
Vorið 2009 fórum við allir vestur
til að minnast Kristjáns trommuleik
ara og frumfluttum þar lag sem var
eins konar ævisaga Æfingar. Það kom
okkur verulega á óvart hvað margir
komu vestur til að njóta helgarinnar
með okkur. Þá fyrst áttuðum við okk
ur á því hvað félagslegt gildi hljóm
sveitarinnar hafði verið mikið í þorp
inu. Þá kviknaði djörf hugmynd um
að gera disk og var stór hluti af hon
um einmitt tekinn upp fyrir vestan en
restin í Reykjavík,“ segir Siggi Björns
sem hóf feril sinn með Æfingu en
hefur í aldarfjórðung haft sitt viður
væri af því að spila tónlist fyrir íbúa
meginlandsins.
Öl og ástir
Á disknum er mikið af lögum sem
segja frá lífinu í litlu þorpi úti á landi,
gæti líklega allt hafa gerst í hvaða
þorpi sem er. Þarna er rómantík, sjór,
öl og ástir. Slagsmál og kvöldsól. Allt
þetta einkenndi lífið á gullaldarárum
Æfingar. Í litla þorpinu snerist lífið
um mikla vinnu og frelsi, margir tugir
ungra kvenna komu á hverju hausti
frá framandi heimsálfum til starfa
í frystihúsum. Ófærð og einangrun
skipti því aldrei máli á þessum árum
þar sem frjálsar ástir komu í stað þess
að hver héldi í sitt.
„Það er búið að vera hrikalega
skemmtilegt að taka þessa plötu upp,
ég hef fylgst með þessu frá fyrstu hug
mynd og allt til loka,“ segir Halldór
Gunnar.
„Lögin eru öll skemmtilegar sögur
og nú veit ég miklu meira um þorp
ið mitt en áður, þeir hafa sagt mér
margar sögur og ótrúlega hefur þetta
verið skemmtilegt þegar hvert ár varð
öðru betra og leiðin lá bara upp. Ég
er búinn að heyra margar mergjað
ar sögur og sjá að fyrri kynslóðir voru
hreint ekki heilagar.
Við förum vestur núna á hvíta
sunnunni og höldum tónleika í
samkomuhúsinu á Flateyri á laugar
dagskvöldið svo verður Æfingar
ball á eftir fram í nóttina. Það verð
ur skemmtilegt að standa á sviði
þar og finna fjörið. Allar hljómsveit
ir sem hafa verið á Flateyri byrjuðu í
samkomuhúsinu, einhvern veginn
fengu menn bara lykilinn og æfðu sig
þar og það eru margar hljómsveitir
sem hafa komið í fótspor Æfingar.
Þeirra hlutverk var því stórt.
Það eru örugglega til svona hljóm
sveitir víða um land og ég skora
Æfingarmenn allra þorpa að fara
þessa slóð og gefa út svona efni. Það
er ótrúlega mikil gleði í þessu. Æf
ingardiskurinn er alveg hreint magn
aður gripur,“ segir Halldór Gunnar
þar sem hann stendur í greddulegri
rokkstellingu og framkallar ótrúleg
ustu hljóð úr gítarnum sínum í Glað
heimum í Kópavogi. n
62 Fólk 17.–21. maí 2013 Helgarblað
Gaman að fara á
svið með köllunum
n Fjallabróðir til liðs við Flateyrarbandið Æfingu n 40 ára gamalt þorpsband fær liðsauka
Guðmundur Sigurðsson
skrifar
Æfing hjá Æfingu
Plata á leiðinni hjá þessu
fornfræga bandi sem hefur
fengið öflugan liðsauka
Fjallabróðurs.
Hann er snillingur Halldór
Fjallabróðir er genginn til liðs
við Flateyrarbandið Æfingu.
Sungið af list Hljóm-
sveitin Æfing á sér ríka sögu.
„Himnasending
þegar Halldór
Gunnar bættist í hópinn.