Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Blaðsíða 64
Sumir reyna en toppa aldrei! Aðstoðarmaður jólasveinsins n Sjónvarpskonan Margrét Erla Maack skaut á samstarfsmann sinn Helga Seljan á Facebook-síðu sinni á fimmtudag. Margrét setti inn mynd af Helga með yfirskrift- inni „Aðstoðarmaður jólasveinsins er bara í stuði“ en á myndinni var Helgi klæddur í rauðan bol sem minnti nokkuð á nærföt Sveinka. Helgi sló á létta strengi og skrifaði við myndina „Hvað á ég að segja?“. Helgi gerði þar grín að sjálfum sér en eins og frægt er orðið endurtók frétta- maðurinn harð- snúni setninguna ansi oft þegar hann ræddi við nýkjörna þingmenn á dögun- um. Samantekt af því var sett á YouTube og vakti þó nokkra lukku á Face- book. Rappafmæli n Annar rappari fagnar afmæli á næstunni en það er XXX Rottweilerhundurinn Ágúst Bent Sigbertsson. Hann heldur upp á þrítugsafmælið sitt aðra helgi og er stórhuga í veisluplönum. Góð- vinir Bents, þeir Erpur Eyvindarson og Steindi Jr., munu sjá um veislu- stjórn. Allir eru þeir annálaðir partípinnar og má því búast við mikilli gleði. XXX Rottweiler- sveitin var að senda frá sér nýtt lag, Þú veist, en rapp- hundarnir eru að vinna í nýju efni þessa dag- ana. Kræsingar í morgunsárið n Halldór Halldórsson, grínisti, leik- stjóri og rappari, fagnaði 28 ára afmæli í gær. Afmælisbarnið var vakið með dýrindis morgunverði sem unnusta hans Magnea Guð- mundsdóttir matreiddi en Halldór deildi mynd af kræsingunum með áhangendum sínum á Twitt- er. Halldór fagnaði svo áfangan- um enn frekar í góðra vina hópi á matsölustaðnum Snaps. Undan- farnir mánuðir hafa verið við- burðaríkir hjá Halldóri en þau Magnea eiga von á sínu fyrsta barni. Fyrir á Hall- dór soninn Kára. Halldór er einnig aðstoðarleikstjóri Engla alheimsins sem nú er verið að sýna í Þjóðleik- húsinu en verkið hef- ur fengið frábæra dóma. Þ etta hefur alltaf fylgt huganum, segir Mjöll Sigurdís Magnús- dóttir fjórtán ára aðspurð hvort hana hafi lengi dreymt um að fara sigra Hvannadalshnúk. Mjöll fór á tindinn á föstudaginn í síðustu viku í erfiðri færð. Raunar hafði enginn hóp- ur náð á tindinn síðustu tvær vikurnar á undan; allir þurftu frá að hverfa vegna færðar. Mjöll fékk ferðina í fermingargjöf og fór með Íslenskum Fjallaleið- sögumönnum en sérstök undantekn- ing var gerð fyrir hana þar sem aldurs- takmarkið í ferð á vegum félagsins á hnúkinn er átján ár. Lítill snjór hefur verið á hnúknum að undanförnu sem gerir það að verkum að brekkur verða brattari og sprungur víðari. „Við vorum öll mjög vel meðvituð um að ef þetta gengi ekki upp þá myndi öll línan snúa við,“ segir Magnús Magnússon, faðir Mjall- ar, sem gekk með henni. Venjulega fer einn leiðsögumaður í svona ferð en í þessu tilviki voru þeir tveir. Einnig voru tveir frændur hennar með í för. „Þetta var ekki eins erfitt og ég hélt, en samt var þetta svolítið erfitt,“ segir Mjöll um gönguna í samtali við DV. Veður var gott þótt færið hafi verið erfitt: „Það var sól og blíða. Svo var smá þoka og vindur þegar við vorum á leiðinni niður.“ Mjöll mælir með þessari göngu. „Þetta er mjög skemmtilegt. Ég mæli með þessu. En bara fyrir þá sem eru búnir að æfa sig – það er alveg nauðsynlegt,“ segir hún. „Þetta var ótrúlegt afrek hjá henni,“ segir Magnús stoltur: „Það er ekki sjálf- gefið að ungir krakkar reyni að fara þarna upp.“ Hann segir að ýtrasta ör- yggis þurfi að gæta í svona ferðum. Sjálf er Mjöll vön fjallgöngum og fór mjög ung að ganga með föður sínum. Fjórtán ára fór á Hvannadalshnúk n „Ég mæli með þessu. En bara fyrir þá sem eru búnir að æfa sig.“ Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 17.–21. Maí 2013 55. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr. Svolítið erfitt „Þetta var ekki eins erfitt og ég hélt, en samt var þetta svolítið erfitt,“ segir Mjöll Sigurdís Magnúsdóttir sem gekk á Hvannadalshnúk. Mjöll er vön að ganga á fjöll þrátt fyrir ungan aldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.