Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2013, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2013, Side 8
n „Skottulækningar“ segir rafvirki um rafbylgjumælingar A rnar Matthíasson rafvirki hefur eitt og annað við starf- semi Garðars Bergendals rafbylgjumælingarmanns að athuga. Í miðvikudags- blaði DV var sagt frá því að níræð kona, Guðlaug Magnúsdóttir, hefði kært Garðar til lögreglunnar eftir að hann mældi rafbylgjur á heimili hennar og seldi henni hólk sem hann sagðist hafa grafið í garðinum hjá henni en hún fann ekki aftur. Hólk- urinn átti að vernda heimili henn- ar fyrir jarðárum, rafmagni, raka og gasi. Fyrir heimsóknina og hólkinn greiddi hún rúmar 80 þúsund krón- ur. Garðar vísar ásökunum á bug og segir alrangt að hólkurinn hafi ekki verið í garðinum, en hann sótti hólk- inn þangað og kom með hann mold- ugan á ritstjórn DV. Meiri áhyggjur af öðru Arnar starfar fyrir Securitas á Akur- eyri og fer víða til þess að setja upp öryggishnappa. Í einni slíkri ferð kom hann inn á heimili þar sem Garðar hafði nýlega verið. Margt kom Arnari undarlega fyr- ir sjónir, jafnvel þótt hann sé einn af þeim sem trúa því að rafbylgjur geti haft áhrif á fólk efast hann stórlega um að þjónusta Garðars hafi komið að miklu gagni. „Í gripahúsum hafði Garðar endaskipti á flúrperum alls staðar þar sem þær voru aðgengi- legar með þægilegum hætti úr hefð- bundnum stiga. En það skiptir engu máli hvern- ig flúrperur snúa því það er gas inni í þeim sem fer af stað þegar það er örvað, hvernig sem þær snúa. Mér fannst þetta því ekki mjög trúverð- ugt,“ segir Arnar. „Ég hefði mun meiri áhyggjur af flökkustraumum, geislum frá raf- tækjum, halogen-spennum og þess háttar en því hvernig perur snúa.“ Varasamur frágangur Verra fannst honum samt að sjá frá- ganginn á kló sem hann fullyrðir að Garðar hafði skorið í og skilið eftir í eldhúsinu. Garðar mælir nefnilega hvoru megin póllinn er og núllið og merkir við það með bleiku nagla- lakki því hann segir að annars leiði rafmagn út og það hafi slæm áhrif á heilsu fólks. Þess ber þó að geta að þegar Garðar sýndi ritstjórn DV að- ferðirnar sem hann notar þá not- aði hann sérstakt mælitæki til þess að mæla þetta og þurfti því ekki að skera í klær. En svona lýsir Arnar þessu: „Í eldhúsinu stóð hitaketill sem Garðar hafði skorið í til þess að sjá hvoru megin póllinn var og núllið. Hann hafði skorið í gegn- um einangrunina og inn í vírinn. Eldhúsbekkurinn var úr járnplötu, innstungan var neðarlega á bekkn- um og kapallinn var sveigður út. Ef það hefði skvest vatn á bekkinn og einhver hefði komið við hann hefði sá hinn sami fengið straum,“ segir Arnar og bætir því við að það sé mun hættulegra að ganga svona illa frá rafmagnsvírum heldur en að snúa einhverri innstungu vit- laust þegar hún er sett í samband. Kvartaði við sambandið Arnar hafði því samband við Raf- iðnaðarsamband Íslands og lét vita af þessu. „Ég veit ekki hvort eða hvernig brugðist var við því. Það þarf að athuga á hvaða forsendum Garðar veitir þessa þjónustu, því þetta virð- ast vera einhverjar skottulækningar. Ég held að það sé bara verið að spila inn á trúgirni fólks.“ Ísleifur Tómasson hjá Rafiðnað- arsambandi Íslands segir að það geti ekki beitt sér í svona málum. Sam- bandið hefur fyrst og fremst það hlutverk að berjast fyrir réttindum og kjaramálum félagsmanna. „Það væri frekar Mannvirkjastofnun sem sér um að fylgja reglugerðum eftir og ætti að beita sér í málinu ef þetta væri hættulegt.“ Engar sannanir Ísleifur segir að engar mælingar séu til sem sýni fram á að segulsvið fari eins illa með fólk og margir vilja trúa. „Það eru ekki til neinar sannanir fyrir því en við getum ekki lýst einhverja sem fals- spámenn, sama hvort um er að ræða heilara eða karl sem gengur um með prjóna. Rafiðnaðarsambandið tekur ekki afstöðu til þess.“ Þá sagði hann að rafbylgjur væru alla jafna mældar með viðurkenndum mælitækjum en ekki prjónum. Garð- ar segir það þó alþekkta aðferð sem margir nota. Garðar vísar ásökunum Arnars einnig á bug og segist ekki stunda það að opna klær, það sé algjör óþarfi því hann sé með sérstakt tæki sem mælir hvorum megin er plús og hvorum megin er mínus. Þá kannað- ist hann ekkert við að hafa verið til- kynntur til Rafiðnaðarsambandsins vegna frágangs. Hann segir að þessar ásakanir jaðri við atvinnuróg og séu tilhæfu- lausar með öllu. Að lokum benti hann á heimasíðuna sína þar sem fólk lofar hann fyrir góða þjónustu. n „Verið að spila inn á trúgirni fólks“ Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Það skiptir engu máli hvernig flúrperur snúa Arnar Matthíasson Segist hafa meiri áhyggjur af flökkustraumum en því hvernig perur snúa. Garðar Vísar ásökunum á bug en sýndi blaðamönnum DV hvernig rafbylgjumælingarnar fara fram. Hólkurinn Garðar komst í fréttirnar þegar gömul kona kvartaði undan því að finna ekki hólkinn aftur í garðinum. 8 Fréttir 7. júní–9. júní 2013 Helgarblað Enn seinkar skýrslu um ÍLS n „Örfáar vikur eftir“ segir formaðurinn R annsóknarnefnd um Íbúða- lánasjóð átti að skila skýrslu í byrjun maí. „Þetta er á loka- stigi. Það gætu verið örfáar vik- ur eftir við að ganga frá þessu,“ segir Sigurður Hallur Stefánsson, fyrrver- andi héraðsdómari og formaður rann sóknarnefndar um Íbúðalána- sjóð í samtali við DV. Hann segist geta lofað því að skýrsla rannsóknarnefnd- ar um Íbúðalánasjóð verði tilbúin nú í júní. Í byrjun apríl sagði DV frá því að nefndin hefði þegar lokið vinnu sinni og skýrslan væri því í raun tilbúin. Nefndinni var ætlað að rannsaka starfsemi sjóðsins frá aðdraganda breytinganna á fjármögnun og lána- reglum hans, sem hrundið var í fram- kvæmd árið 2004, og til ársloka 2010 en tillaga um rannsóknina var sam- þykkt á Alþingi í desember árið 2010. Líklegt má telja að forystumenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæð- isflokksins, sem nú sitja í ríkisstjórn, séu lítt spenntir fyrir skýrslunni. Ábyrgðin hjá Framsóknar- flokknum Eins og flestir þekkja heyrðu málefni Íbúðalánasjóðs undir ráðherra Fram- sóknarflokksins frá árinu 1995 til 2007. Á þeim tíma gegndu Páll Péturs- son, Árni Magnússon og Magnús Stef- ánsson starfi félagsmálaráðherra. Guðmundur Bjarnason, fyrrverandi ráðherra flokksins, stýrði sjóðnum frá 1999 til 2010 og þá var Árni Magnús- son félagsmálaráðherra 2003–2006. Er talið að þessir tveir verði helst gagnrýndir í skýrslunni. Framsóknarflokkurinn stóð uppi sem sigurvegari í kosningum til Al- þingis í lok apríl. Flokkurinn mun varla losna undan því að þurfa að svara fyrir þau afglöp sem bent verður á í skýrslunni. Formaður nefndar um rannsókn á Íbúðalánasjóði er Sigurð- ur Hallur Stefánsson, fyrrverandi hér- aðsdómari. Með honum í nefndinni eru Kirstín Flygenring hagfræðingur og Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskólans á Akureyri. n as@dv.is Ábyrgðin hjá Framsókn Líklegt þykir að Guðmundur Bjarnason og Árni Magnússon verði helst gagnrýndir í skýrslu rannsóknarnefndar um Íbúðalánasjóð. Raftæki eyðilögðust „Það er verið að safna saman munum sem blotnuðu eða skemmdust þegar rútan festist í Krossá á mánudaginn. Ég veit ekki hversu mikið tjón þetta er en ég hef þó haft spurnir af því að í farangrinum sem blotnaði var að minnsta kosti iPod-vagga og fartölva. Ég held samt að þetta hafi ekki verið mikið tjón,“ segir Gunnar Ríkharðsson tóm- stundafulltrúi í Garðabæ. Það var á mánudag sem rúta með grunnskólanemend- um festist í Krossá. Nemend- urnir voru í 10. bekk og á leið í útskriftarferð í Þórsmörk. Þrjár rútur voru á leið inn í Húsa- dal, sú fyrsta fór yfir áfalla- laust en miðrútan stöðvaðist í miðri á. Lestar rútunnar fyllt- ust af vatni og blotnaði farang- ur nemendanna. Skálaverðir í Húsadal brugðust skjótt við og drógu rútuna á þurrt. Engan um borð sakaði en mörgum var illa brugðið. Kristján Daníelsson framkvæmdastjóri Kynnisferða segir að tjón nemendanna verði skoðað og Kynnisferðir meti það í framhaldinu hvernig brugðist verði við. Það sé verið að skoða hvort tryggingarfélögin bæti að einhverju leyti tjón af þessu tagi. Reif af sér hárið „Hárið á henni vafðist á ör- skotsstundu utan um stöngina sem stýrið er fest í. Hún var snögg að rífa hárið sem flækt- ist, úr hausnum á sér. Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda hvað hefði gerst ef henni hefði ekki tekist það því hún er með hár- lausa bletti á höfðinu eftir slys- ið,“ segir móðir stúlku á 13. ári. Stúlkan fór á hátíðina Sjóar- ann síkáta í Grindavík um síð- ustu helgi og þar fór hún ásamt vinkonu sinni í bolla-hringekju. Stúlkan sem er með sítt hár var með það slegið og það fest- ist í tækinu. Móðirin segir að enginn hafi verið að fylgjast með tækinu þegar stúlkurnar fóru í það en þegar þær komu úr hringekjunni sáu þær skilti þar sem stóð skýrum stöfum að þeir sem eru með sítt hár ættu að vera með það í tagli.„Þetta eru börn sem eru að fara í þessi tæki og þau eru ekkert að lesa svona skilti í öllum æsingn- um við að komast í tækin. Það er Sprell.is sem leigir tækin og sér um uppsetningu og eftirlit með þeim. Jóhann Tómasson, framkvæmdastjóri Sprell.is, seg- ist ekki hafa heyrt af þessu at- viki en starfsmenn Sprell eigi að fylgjast með öllum vélknúnum tækjum auk þess sem búið sé að koma upp viðvörunarskiltum við öll tækin. Menn reyni eftir bestu getu að fylgjast með því að ekki verði slys. Hann segist líka hvetja foreldra til að fylgjast með börnum sínum og hafa eft- irlit með þeim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.