Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2013, Side 28
28 Fólk 7.–9. júní 2013 Helgarblað
Gleðigjafinn
Hemmi Gunn
Hermann Gunnarsson eða Hemmi Gunn eins
og hann var yfirleitt kallaður var einn ástsælasti
fjölmiðlamaður sem Ísland hefur alið af sér. Hann
var vinamargur og hvert sem hann fór smitaði hann
með glaðværð sinn. DV ræddi við nokkra vini og
fyrrum samstarfsmenn Hemma sem allir eiga það
sameiginlegt að hafa notið þess að umgangast
þennan mikla gleðigjafa sem þjóðin syrgir nú sárt.
Allir bera þeir honum vel söguna og deila hér með
lesendum sögum og reynslu sinni af Hemma.
Þ
að er bara þannig með
Hemma eins og var með
hann Rúna Júl. vin minn
þegar hann dó, þá kem-
ur bara húmorinn upp í hugann,
það var það sem heldur sorginni
niðri, bara að hafa gaman, seg-
ir söngvarinn Gylfi Ægisson sem
var góður vinur Hemma til margra
ára. Þeir kynntust í Vestmannaeyj-
um þegar Hemmi var enn að spila
knattspyrnu fyrir Val en þá var Gylfi
að spila sem organisti á hótelinu í
Vestmannaeyjum. Nokkrum árum
seinna fékk Gylfi ásamt vini sínum,
söngvaranum sáluga Rúnari Júlíus-
syni, Hemma til að vera sögumað-
ur á ævintýraplötum sem þeir voru
að vinna að. „Hann var á þeim tíma
vinsæll íþróttafréttamaður og var til
í að prófa þetta. Páll Óskar var líka
með okkur í þessu, þá kornung-
ur en samt eins og sprenglærður
söngvari. Við fengum svo Hemma
til að syngja með okkur á ævintýra-
plötunum,“ segir Gylfi en upp frá
því var Hemmi einn af áhöfninni
á Halastjörnunni. Gylfi segir mikið
fjör hafa verið í kringum gerð ævin-
týraplatnanna. „Í einu ævintýrinu,
ég held það hafi verið um Hans og
Grétu, þá langaði mig til að nornin
ræki við. Á þeim tíma var það ekki
sjálfsagt mál og ég varð að hringja
í siðameistara útvarpsins til þess
að spyrja hvort það væri í lagi að
koma með eitt prump í ævintýr-
ið. „Eitt prump, það hlýtur nú að
vera í lagi,“ sagði þá siðameistarinn
og þar með var það sett á plötuna,“
segir Gylfi hlæjandi. „Í ævintýr-
inu kveikti Hemmi á eldspýtu og
sagði: „Hvaða voða lykt er þetta“
og þá hló Páll Óskar alveg eins og
vitleysingur,“ segir Gylfi. Ekki er
langt síðan áhöfnin á Halastjörn-
unni kom síðast saman. „Þá tókum
við gömlu lögin. Lög eins og Fallerí
og Út á gólf verða alltaf lögin hans
Hemma,“ segir hann.
H
ann var, eins og þjóðin veit,
hláturmildur, skemmtilegur
og alltaf í góðu skapi,“ segir
Ragna Fossberg sminka sem
starfaði með Hemma í þáttunum Á
tali. Ragna segir Hemma hafa ver-
ið afar þægilegan og skemmtilegan
vinnufélaga sem var gott að vera í
kringum. Hann hafi ekki haft mikl-
ar áhyggjur af útliti sínu ef frá er talið
hárið. „Hann hafði miklar áhyggjur
af því hvort hárið lægi rétt,“ segir hún
kímin. „Ég sagði við hann að hann
væri kominn með tungl og þetta varð
svona húmor okkar á milli,“ segir
hún. Það ótrúlega gerðist samt að hár
Hemma tók að þykkna aftur af nátt-
úrulegum orsökum. „Eitthvað var
það, ég veit ekki hvað. Hann allavega
byrjaði að fá skalla en endaði ekki
með skalla. Hárið þykknaði aftur eftir
að hann var hættur í sjónvarpinu. Ég
veit ekki hvort það tengist því þegar
hann dó í fyrra skiptið. Það gæti
verið,“ segir Ragna og vísar til þess
þegar hjarta hans stoppaði í heilar
átta mínútur fyrir um níu árum síð-
an. Hemmi sjálfur talaði um sig sem
endurfæddan eftir þá reynslu.
Ragna segir það hafa verið góða
reynslu að vinna með honum. „Það
var alltaf fjör, hann var alltaf tilbú-
inn til að hlæja og alltaf tilbúinn til
að hlusta og taka þátt. Það var ekk-
ert sem stoppaði það. Það er liggur
við hægt að segja að nei hafi ekki ver-
ið til í hans orðaforða. Hann var alveg
ofboðslega jákvæður. Alltaf jákvæður
og alltaf ánægður.“
Þ
egar ég lít til baka á mína dag-
skrárstjóratíð þá finnst mér
vera eitt af því skemmtilegra
sem ég gerði, að hafa feng-
ið Hemma þarna inn, segir Hrafn
Gunnlaugsson fyrrum dagskrár-
stjóri sjónvarpsins. Hann var dag-
skrárstjóri þegar Hemmi hóf sjón-
varpsferil sinn. Hugmyndin kviknaði
í spjalli milli Hrafns og Egils Eð-
varðssonar, dagskrárgerðarmanns.
Þeir viðruðu hugmyndina við
Hemma sem þá starfaði í útvarpinu.
„Hann var bæði til og ekki til í það.
Hann langaði en var hræddur við
það,“ segir Hrafn og heldur áfram:
„Hann var mjög „prívat“ persóna en
hann gat sett sig í ákveðinn gír. Það
eru ekki allir sem geta það. Hann
var mjög sérstakur að því leyti.“ Að
lokum lét Hemmi þó til leiðast og
varð ein skærasta sjónvarpsstjarna
allra tíma á Íslandi. Hrafn segir það
ekki síst vera Agli að þakka sem hafi
haldið vel utan um stjórnartaumana
og leitt Hemma áfram fyrstu skrefin
í sjónvarpinu. „Hann hafði Egil með
sér sem ég held að hafi ráðið svolítið
úrslitum um það hversu vel tókst til.“
Hrafn segir alltaf hafa verið fjör
í kringum Hemma og ýmsar hug-
myndir hafi komið upp. Ein slík
varð til í kringum ein áramót. „Við
vorum að spjalla saman inn á skrif-
stofu hjá mér um það hvað þessir
fréttaannálar væru alltaf leiðinlegir.
Þá kom upp sú hugmynd að hann
myndi gera annál og úr varð þáttur-
inn „Á því Hermanns ári“. Ég man
ekki nákvæmlega hvaða ár þetta var
en ég man að þátturinn var alveg
ofboðslega skemmtilegur og það
þyrfti nú endilega að grafa þenn-
an þátt upp og sýna til minningar
um hann. Þetta var svona saman-
safn af skemmtilegum hlutum sem
hann hafði gert á árinu og svo spjall-
aði hann við Ladda í gervi Elsu Lund
um árið. Þátturinn var skemmtileg-
ur eins og yfirleitt allt sem Hemmi
gerði. Það var alltaf svo mikið fjör og
stuð í því sem hann gerði. Það var
það sem var heillandi við hann sem
mann að hann náði alltaf að búa til
stuð í kringum sig,“ segir Hrafn. „Það
er mikill heiður að hafa unnið með
Hemma.“
Hér eru félagarnir á Halastjörnunni
Ari Jónsson, Gylfi og Hemmi.
„Verða alltaf lögin hans Hemma“
Á því Hermanns ári
Hafði áhyggjur af hárinu
Íþróttastjarna Hermann spilaði um
tíma sem atvinnumaður í Austurríki.
Töffari Hér er Hemmi ungur að árum.
Gleðigjafi Hemma
er minnst sem mikils
gleðigjafa sem allir nutu
að umgangast.