Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2013, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2013, Blaðsíða 36
Neitar að bjóða gagN- rýNeNdum í leikhúsið 36 7.–9. júní 2013 Helgarblað m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g M ín fyrstu kynni af leik- listinni var í menntó. Ég fann allt í einu stað þar sem ég gat sameinað öll mín helstu áhugamál – myndlist, tónlist, kvikmyndir. Leik- listin heillaði mig, mér fannst þetta gaman og var góður í því. Svo sótti ég um í Listaháskólanum og komst inn.” Vill framkvæma Þannig lýsir Vignir fyrstu kynn- um sínum af leiklistargyðjunni sem hann hefur verið giftur alla tíð síðan. Hann vakti athygli strax í skóla, not- aði sumrin til að ferðast til Berlínar og sjá það nýjasta í evrópsku leikhúsi og skipulagði sýningar með leikhópi sínum, Vér Morðingjum. „Ég vil ekki vera að velta mér of mikið upp úr hlutunum. Miklu skemmtilegra að framkvæma. Við stofnuðum Vér Morðingja til að setja upp verkið Penetrator eftir Anthony Neilson. Það var árið 2005. Ég las um verkið þegar ég var að skrifa ritgerð í skólanum. Pantaði það á netinu og svo settum við það upp í Klink & Bank og aftur ári seinna úti á Granda. Verkið tilheyrði þessum „In your face“ leikritum frá Bretlandi og margir sem sáu það upplifðu eitt- hvað nýtt og spennandi. Fólk fattaði að leikhúsið getur verið töff. Það þarf ekki að vera asnalegt.“ Ekkert að því að stela Vignir segir að leikhúsferðirnar til Berlín ar hafi verið ómetanlegar. „Ætli ég hafi ekki farið á hverju ári síð- an 2005. Það er lífsnauðsynlegt að sjá eitthvað nýtt. Og eitthvað annað en bara það sem gert er hér á landi. Ég man þegar við settum upp Bubba kóng eftir Alfred Jerry á leiklistar hátíð hérna heima. Sú uppsetning var alfar- ið sprottin upp úr því sem við höfðum séð í Berlín.“ Hópurinn fór heldur ekki leynt með að um endurvinnslu væri að ræða. „Við kölluðum þetta Víkingaleik- húsið. Það varð að einskonar stefnu. Ekkert mátti vera „original“. Allt þurfti að vera stolið. Við stálum hugmynd- um og nauðguðum þeim. Eins og vík- ingarnir.“ Fastráðinn í Þjóðleikhúsinu Vignir var um tíma fastráðinn leik- ari við Þjóðleikhúsið. Lék í fjölda verka, allt frá Kardemommubænum til Fridu Kahlo í leikstjórn Atla Rafns Sigurðarsonar, og kynntist streði hins fastráðna leikara. Hann hélt þó alltaf áfram að búa til eigin verkefni. Vér Morðingjar settu upp verkið Sá ljóti á smíðaverkstæðinu undir leik- stjórn Kristínar Eysteinsdóttur sem hafði einnig leikstýrt Penetrator. Og uppsetning Vignis og Stefáns Halls á Macbeth á smíðaverkstæðinu vakti litla hrifningu gagnrýnenda. „Þetta ástar-/haturs- samband leikhúsfólks við gagnrýnendur er auð vitað merkilegt. Ef gagnrýnand- inn segir eitthvað fallegt um sýningu þá er það sett á plakat með nafninu hans en ef hann segir eitthvað slæmt þá er hann hálfviti sem veit ekki neitt. Gagnrýni getur drepið litla leiksýn- ingu. Svo einfalt er það. Sérstaklega gagnrýni í Fréttablaðinu sem fer inn á hvert heimili.“ Óvönduð gagnrýni Vignir segir því miður mikið um óvandaða gagnrýni. „Þetta snýst allt um fyrirsögn og stjörnugjöf og þá er búið að stimpla sýninguna. Svo fer maður og skoð- ar dóminn og sér að höfundurinn er Sigga sumarafleysingastarfsmaður sem finnst bara gaman að fara í leik- hús. Það gengur auðvitað ekki. Ef þeir vilja að við séum „professional“ þá verða þeir að vera það líka.“ Vignir hefur sett upp fjölda sýninga á síðustu tveimur árum með hópnum Óskabörn ógæfunnar. Nú síðast jóla- sýningu fyrir fullorðna í Tjarnarbíói og leikritið Lúkas út á Granda. Vignir fór þá óvenjulegu leið að bjóða gagn- rýnendum ekki á Lúkas. Að hans sögn til að skapa umræðu. Mamma þurfi að borga „Ef gagnrýnanda langar að sjá sýn- inguna mína þá getur hann bara borgað sig inn og skrifað það sem hann vill. Af hverju á ég að borga einhverjum fyrir að segja sína skoðun á því hvernig ég stend mig í vinnunni?“ Hann segir að Víðsjá hafi verið eini fjölmiðillinn sem gagnrýndi Lúkas. Og gagnrýnandinn hafi borgað fullt miðaverð. „Það þarf líka að taka með í reikninginn að oft eru sýningar settar upp af leikhópum með lítil fjárráð. Í okkar tilviki áttum við enga peninga. Mamma mín þurfti meira að segja að borga sig inn. Og ef mamma borgar, af hverju á Jón Viðar þá að fá ókeypis inn?” „Auðvitað vorum við líka að pikka „fight“, fá smá umræðu. Ég hef reynt að segja mína skoðun á hlutunum og rökstyðja mitt mál. En það er oft sem fólk meikar það ekki. Ég hef verið skammaður á börum af virðulegu leikhúsfólki. Það segir: Þú ert gaurinn sem ert alltaf á móti. En það er ekki satt. Ég er ekkert alltaf á móti. Ég er rosa mikið með og ég elska leikhúsið. En við þurfum umræðu. Alltaf. Það er mín sannfæring.” Leikstýrir í Borgó Vignir skrifaði nýverið und- Vignir Rafn Valþórs- son hefur þýtt og leik- stýrt nýlegum erlendum verkum sem slegið hafa í gegn hér á landi. Hann vill að gagnrýnendur borgi aðgangseyri í leik- hús eins og mamma sín og óttast ekki að missa sjálfstæðið þó hann hafi nýlega skrifað undir samning við Borgarleik- húsið. Viðtal Símon Birgisson simonb@dv.is „Ef þeir vilja að við séum „pro- fessional“ þá verða þeir að vera það líka. Langdregin á köflum The Great Gatsby Baz Luhrmann „Frábær klækjavefur“ House of Cards
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.