Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2014, Side 2
Helgarblað 10.–13. janúar 20142 Fréttir
Íslendingur í
fangelsi í Kína
Geir Gunnarsson fékk ellefu
mánaða dóm
Geir Gunnarsson, 31 árs Ís
lendingur, hefur verið dæmdur í
ellefu mánaða fangelsi fyrir lík
amsárás í Kína. Dómurinn féll
síðla desembermánaðar. Geir er
dæmdur fyrir að ráðast á leigu
bílstjóra. DV hafði samband við
utan ríkisráðuneytið sem staðfestir
að Íslendingur hafi verið dæmdur
í Kína seint í desember, en nafn
greinir hann ekki. Í samtali við
DV vill Urður Gunnarsdóttir upp
lýsingafulltrúi að öðru leyti ekki
tjá sig mikið um málið en segir
að það sé á forræði aðstandenda
Geirs, og hans sjálfs, að ákveða
hvort málinu verði áfrýjað. Hann
getur ekki sótt um að afplána
dóminn á Íslandi fyrr en öll dóm
stig í Kína hafa tekið málið fyrir.
„Utanríkisráðuneytið tekur
ekki ákvörðun um það heldur
fjölskyldan,“ segir Urður. Sendi
ráð Íslands í Peking vinnur nú í
málinu og mun faðir Geirs halda
til Kína til að vinna í því. Geir er
skráður til heimilis í Hollandi
en hefur búið um nokkurt skeið
í Kína. Fjölskyldan hefur ekki
ákveðið hvort dómnum verði
áfrýjað en telur þó að Geir hafi
ekki hlotið réttláta málsmeðferð,
þar sem túlkunarörðugleikar hafi
komið við sögu.
Í búðir með
vírklippur
Tvær konur á þrítugsaldri voru
handteknar í verslunarmiðstöð
fyrr í vikunni en þær voru með
ýmsan varning sem þær gátu ekki
gert grein fyrir í fórum sínum.
Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni á höfuðborgar
svæðinu voru konurnar fluttar á
lögreglustöð þar sem þær voru
áfram margsaga um vörurnar;
fatnað og snyrtivörur.
Báðar konurnar höfðu með
ferðis vírklippur sem grunur leik
ur á að þær hafi notað til að fjar
lægja þjófavörn af fatnaðinum.
Gefur 100 þúsund
í skugga vanskila
Óli Geir sagðist hafa misst allt vegna Keflavík Music Festival
U
m helgina fer fram partí á
vegum Agent.is, sama fyrir
tækis og hélt Keflavík Music
Festival. Það væri ekki frá
sögu færandi nema fyrir
þær sakir að Óli Geir Jónsson, eig
andi Agent.is, hyggst gefa 100.000
krónur í reiðufé á kvöldinu sjálfu.
Eins og fram hefur komið skuldar
hann enn þónokkrum listamönn
um vegna Keflavík Music Festival.
Sagðist skulda átta
Samkvæmt heimildum DV liggja
reikningar upp á hundruð þúsunda
ógreiddir hjá hinum ýmsu fyrir
tækjum vegna Keflavík Music Festi
val. Í tilkynningu sem Óli Geir sendi
frá sér rétt fyrir áramót sagðist hann
hafa tapað öllum sínum eignum og
að hann og viðskiptafélagi hans,
Pálmi Þór Erlingsson, ættu eftir
að greiða fyrir átta tónlistar atriði:
„Þrátt fyrir allt tapið þá höfum við
gert upp við öll þau tónlistaratriði
sem komu fram nema átta.“
Skuldar fleirum
En það eru ekki bara tónlistarmenn
sem þurfa að fá greitt eftir hátíðina.
Samkvæmt heimildum DV voru
leigð tæki og tól fyrir hundruð þús
unda og meðal þeirra sem sitja
eftir með sárt ennið eru þau fyrir
tæki sem leigðu Agent.is búnað
inn. Engir reikningar hafa verið
greiddir og ekki vitað hvort þeir
verði greiddir yfirhöfuð.
Í tilkynningunni sem Óli Geir
sendi frá sér fyrir áramót segist
hann hafa komið út í þrjátíu millj
óna króna mínus. Eitthvað virð
ist fjárhagsstaðan hafa lagast því
samkvæmt viðburði Óla Geirs og
Agent.is á Facebook þá fær einhver
heppinn gestur á Players í Keflavík
100.000 krónur í beinhörðum pen
ingum.
100 þúsund í vasann
Partíið kallast „Back2School“ en í
auglýsingu fyrir viðzburðinn stend
ur eftirfarandi: „Eina sem þú þarft
að gera til þess að eiga möguleika
á að vinna 100.000 krónur er að
gera „ATTENDING“ á viðburðinn
og mæta á Players á laugardaginn.
Á hápunkti kvöldins drögum við út
fyrir framan gesti vinningshafa út
frá Facebook viðburðinum.“
Voru ekki sáttir
Meðal þeirra hljómsveita sem
komu fram á Keflavík Music
Festival var Skálmöld. Hljómsveitin
sagði í samtali við DV á sínum tíma
að það hafi ekki staðið steinn yfir
steini varðandi loforð skipuleggj
enda.
Þeir gagnrýndu aðstandendur
harkalega og bentu á fjölmarga
misbresti á hátíðinni. Meðal þess
sem þeir tiltóku var að engin gæsla
var á svæðinu og slökkt á ljósabún
aði. En af hverju var slökkt á ljósa
búnaðinum? Skálmöld sagði það
vegna þess að ljósamenn hefðu
ekki fengið greitt. Ekki er vitað
hvort ljósamönnunum hafi síðan
verið greitt því ekki náðist í Óla Geir
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir á með
an á vinnslu fréttarinnar stóð. n
„Þrátt fyrir allt tap-
ið þá höfum við
gert upp við öll þau tón-
listaratriði sem komu
fram nema 8.
Býður peninga Óli Geir hefur ekki gert
að fullu upp við þá sem hann skuldar vegna
Keflavík Music Festival.
Meintir þjófar athafna sig Þrátt
fyrir ítarleg gögn frá IKEA hefur rannsókn
lögreglu tekið nærri því heilt ár.
Allt stopp í IKEA-málinu
Nærri því ár liðið síðan IKEA kærði stórfelldan þjófnað til lögreglu
R
annsókn lögreglunnar á
höfuð borgarsvæðinu á stór
felldum og skipulögðum
þjófnaði í verslun IKEA er
enn á lokastigi. Þetta stað
festir Friðrik Smári Björgvinsson, yfir
lögregluþjónn rannsóknardeildar lög
reglunnar, í samtali við DV. Friðrik
Smári gaf nákvæmlega sömu svör um
stöðu málsins hjá lögreglunni í septem
ber. Málið er ekki enn komið á það stig
að tekin hafi verið ákvörðun um hvort,
og þá hversu margir, verði ákærð
ir vegna málsins. „Okkur skortir fjár
magn og mannafla,“ segir Friðrik Smári
spurður um skýringar á hægagangi lög
reglu.
Eins og kom fram í afhjúpun DV
í byrjun maí síðastliðnum voru lög
fræðingur, eigandi lögfræðistofu, fram
kvæmdastjóri fyrirtækis í ferðaþjón
ustu og hjúkrunarfræðingur meðal
þeirra sem kærð voru til lögreglu fyrir
aðild að stóra IKEAmálinu. Meintir
glæpir eru raktir allt að sex ár aftur í tí
mann og nema hin meintu svik millj
ónum króna.
DV hafði undir höndum leyni
skýrslu um málið og birti myndbönd
af hinum meintu þjófum að athafna sig
sem nýttu sér rúmar skilareglur IKEA,
tóku strikamerki af ódýrum vörum og
límdu yfir strikamerki á dýrari varningi.
Svikin fólust síðan í því að fólkið greiddi
því mun lægra verð fyrir vöruna en skil
aði þeim síðan á fullu verði. Fyrir fékk
fólkið inneign sem síðan mátti nýta að
vild. Meintir þjófar versluðu fyrir þessar
inneignir og eins keyptu þeir sér gjafa
kort fyrir inneignirnar.
Þegar vörunni er skilað þarf hins
vegar að gefa upp kennitölu og því eru
skil umræddra meintra þjófa, rækilega
skjalfest.
Var fólkið kært til lögreglu í febrúar
fyrir nærri því ári síðan. n