Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 2
2 Fréttir Helgarblað 27.–30. júní 2014
S
ú hefð hefur skapast á
Reykjanesinu að hengja lás
í handriðið á brúnni mill
heimsálfa. Hún hefur í kjöl-
farið hlotið nýtt nafn og er nú
kölluð „Ástarbrúin á milli heimsálfa“.
Ekki er langt síðan að handrið á
hinni frægu „ástarbrú“ í Pont des Arts
hrundi vegna álags vegna lása sem
hafa verið hengdir á brúna á undan-
förnum árum en þeir eru orðnir
nokkur þúsund í dag og er staðurinn
vinsæll meðal ferðamanna sem sækja
þessa borg ástarinnar.
Ástæðan fyrir þessum fjölda lása er
vinsæl hefð sem hefur skapast í Par-
ís. Ástfangin pör hengja lása á brúna
með nöfnum sínum og þannig inn-
sigla ást sína en lyklunum hefur hing-
að til verið hent í ána. Hefðin er orðin
til hálfgerðra vandræða fyrir borgaryf-
irvöld sem nú íhuga að styrkja hand-
riðin á brúnni. Fjöldi fólks leggur leið
sína að brúnni á degi hverjum í París
með lás í hönd en ekki hefur verið tek-
in ákvörðun um framtíð hennar.
Í
þætti Kardashian-systra
Það var ekki til að minnka vinsæld-
ir „ástarbrúarinnar“ þegar Kourtney
Kardashian, ein af frægu Kardashian-
systrunum, mætti til Parísar ásamt
Scott Disick, eiginmanni sínum, og
hengdi lás á brúna en gjörningurinn
var sýndur í sjónvarpi úti um allan
heim í gegnum þátt sem fjallar um líf
fjölskyldunnar.
En nú virðist sem þessi hefð hafi
náð alla leið til Íslands. Brúin sem
áður var þekkt undir nafninu „Brúin
milli heimsálfa“ hefur þannig fengið
nýtt nafn og er nú kölluð „Ástarbrúin
á milli heimsálfa“.
Brúna er að finna á Reykjanes-
inu, fyrir ofan Sandvík, þar sem Clint
Eastwood og tökulið hans tóku upp
stórmyndina Flags of Our Fathers á
sínum tíma.
Byrjaði fyrir nokkrum árum
„Þetta byrjaði fyrir tveimur eða þrem-
ur árum. Þetta var ekkert sem við vor-
um að hvetja til en það kom upp sú
umræða fyrir nokkru hvort þetta væri
eitthvað sem við ættum að ýta und-
ir eða taka niður,“ segir Þuríður Hall-
dóra Aradóttir, framkvæmdastjóri
Markaðsstofu Reykjaness.
„Það má eiginlega segja að sú
ákvörðun hafi verið tekin fyrir okkur,“
segir Þuríður Halldóra en brúin er til
dæmis kjörin fyrir þau pör sem koma
hvort frá sínum staðnum í heimin-
um.
„Já, ef annar aðilinn kemur frá
Evrópu til dæmis og hinn frá Banda-
ríkjunum þá má eiginlega segja að
þetta sé staðurinn sem sameinar
þau. Þetta er upplifun fyrir pörin sem
hengja lás á handriðið og þarna er
verið að búa til öðruvísi minningar.“
Skoða hvort
handriðið þoli álagið
Hún segir þessa hefð sem nú er að
skapast hér á landi skemmtilega þó
svo að hún skilji þau sjónarmið að
lásarnir gætu verið sjónmengun. Ekki
hafi verið lagt upp með þetta þegar
brúin var búin til á sínum tíma og því
þurfi að skoða það vandlega hvort
handriðið þoli alla þá lása sem koma
til með að bætast við á næstu árum.
„Handriðið er mjög sterkt en þetta
er vissulega eitthvað sem við þurf-
um að skoða þegar lásunum fer að
fjölga,“ segir Þuríður Halldóra sem
er sammála blaðamanni að þarna
sé um að ræða fría og skemmtilega
markaðssetningu sem þau hafi
ekki gert ráð fyrir á sínum tíma.
Verður þetta jafn vinsælt og í
París? „Ég veit ekki hvort við náum
þeim fjölda lása sem eru í París
enda töluvert fleiri ferðamenn sem
þangað fara, en þetta er skemmti-
legt engu að síður.“
Á meðan ferðamenn í Par-
ís henda lyklunum í ána þá er ekki
vitað hvað gert er við lyklana á
Reykjanesinu en einhverjir hafa þó
brugðið á það ráð að grafa þá í sand-
inn fyrir neðan brúna.
Komu frá Austurríki með lás
Blaðamaður DV skoðaði nýju „ást-
arbrúna á milli heimsálfa“ á dögun-
um og hitti þar ferðamenn frá Aust-
urríki sem voru að hengja lás á
handriðið.
Þau höfðu heyrt af „íslensku ást-
arbrúnni“ frá vinafólki sínu sem hafði
árinu áður hengt lás á handriðið og
þannig innsiglað ást sína.
„Þetta er virkilega skemmtilegt.
Það eru svona brýr á fleiri stöðum
í heiminum en vinafólk okkar hef-
ur það að markmiði að hengja lás á
þær allar,“ sagði Claudia Scheibelho-
fer sem var hér á landi ásamt eigin-
manni sínum. Hún hafði ekki dval-
ið lengi á Íslandi þegar blaðamaður
hitti hana við brúna en sagði náttúru
landsins ótrúlega fallega og að hún
hlakkaði til þess að ferðast um landið.
Ástarlásarnir vekja
athygli ferðamanna
Fleiri ferðamenn voru við brúna
þennan tiltekna dag og vöktu „ást-
arlásarnir“ mikla athygli en allir þeir
sem á svæðinu voru tóku sér tíma
til að lesa á lásana og taka af þeim
myndir.
En lásarnir eru ekki það eina sem
tengist ástinni á þessari nýju „ást-
arbrú“ því svo virðist sem einhver
ástfanginn aðili hafi tekið sig til og
myndað hjarta með steinum í sand-
inum fyrir neðan brúna. Hjartað vakti
ekki síður athygli ferðamannanna
sem stilltu sér upp í sandinum og
brostu, hönd í hönd, með nýju ís-
lensku ástarbrúna á milli heimsálfa í
baksýn. n
Ástarbrúin á
milli heimsálfa
n Tugir lása hengdir á handriðið n Sama hefð og skapaðist í París
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
Kourtney og Scott Ein af hinum frægu
Kardashian-systrum, Kourtney, kíkti til París-
ar og innsiglaði ást sína ásamt Scott á dögun-
um en með í för var sonur þeirra, Mason.
Komu frá Austurríki
með lásinn Claudia er hér
á landi ásamt eiginmanni
sínum en þau heyrðu af ís-
lensku ástarbrúnni í gegnum
vinafólk sitt sem hafði komið
til Íslands í fyrra og hengt lás
á handriðið. Mynd AMG
Katja og Thorsten Lásarnir eru af öllum gerðum og stærðum. Sumir leggja meira í
lásana en aðrir. Hér er búið að grafa fallega í rauðan lás. Mynd AMG
Ephraim og Jill Þau komu hingað til lands
árið 2013 og skelltu einum fallegum lás á
handriðið á íslensku ástarbrúnni. Mynd AMG
Leiðrétting:
Óðni ekki
boðið starfið
Í helgarblaði DV hinn 15. nóvem-
ber 2013, í frétt um Ríkisútvarpið,
kom fram að Óðni Jónssyni, fyrr-
verandi fréttastjóra RÚV, hefði
verið boðið að taka við starfi
framkvæmdastjóra Samfylkingar-
innar á sínum tíma en að hann
hefði ekki þegið boðið.
Þetta er ekki rétt og leiðréttist
hér með. Óðinn segir að honum
hafi aldrei boðist slíkt starf og að
hann hafi ekki haft nein tengsl
við neina stjórnmálaflokka.
Hann segir að um gamla lygi
sé að ræða sem komið hafi ver-
ið á flot til að varpa rýrð á hann
sem fréttastjóra RÚV og eins
fréttastofu RÚV sjálfa.
Sterar og
stinningarlyf
„Tollverðir stöðvuðu nýverið
póstsendingu, sem innihélt rúm-
lega hálft kíló af steradufti.“ Frá
þessu segir í tilkynningu frá Toll-
inum. Þar segir að sendingin hafi
komið frá Hong Kong. „[Hún] var
þannig úr garði gerð að duftinu
hafði verið komið fyrir í umbúð-
um utan af vegglími.“ Framleiða
hefði mátt 125 glös, sem rúma 20
millilítra hvert, af fljótandi ster-
um úr þessu magni.“ Fram kem-
ur einnig að tollgæslan hafi að
undanförnu haldlagt umtalsvert
magn ólöglegra lyfja. Að megninu
til hafi það verið sterar eða stinn-
ingarlyf. Meðfylgjandi mynd er af
sterunum sem fundust.