Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 59
Helgarblað 27.–30. júní 2014 Skrýtið Sakamál 43
Faðir myrðir
n Drap eiginkonu sína og börn n Fjarvistarsönnun hélt ekki vatni
V
incent Brothers var í
ágætisstarfi sem aðstoðar-
skólastjóri við Fremont-
grunnskóla í Bakersfield
í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum. Eiginkona hans, Joanie, var
vel þokkuð og áttu þau þrjú börn;
Marques, fjögurra ára, Lindsey, tæp-
lega tveggja ára, og Marshall, hálfs
árs.
En hjónaband Vincents og Joanie
hafði ekki farið varhluta af erfiðleik-
um. Joanie ól Marques árið 1998 og
var Vincent víðs fjarri við það tæki-
færi, en Joanie og Vincent gengu ekki
í hjónaband fyrr en árið 2000. Hjóna-
bandið varð skammlíft og þau sögðu
skilið við hvort annað mánuði eftir
að hafa heitið hvort öðru ævarandi
tryggð. Síðar sama ár fæddist Linds-
ey og virtist sem Vincent léti sig það
litlu varða og lét ekki sjá sig við það
tækifæri.
Haltu mér – slepptu mér
Hjónabandið var ógilt árið 2001 og
bar Vincent við sígildum ósættan-
legum ágreiningi en Joanie bar við
brigslum, að sögn vegna þess að á
þeim tíma sem þau gengu í hjóna-
band hafði hún enga vitneskju haft
um þá staðreynd að Vincent hafði
verið kvæntur í tvígang fyrir.
Vinir og vandamenn Joanie töldu
þó fullvíst að Joanie elskaði Vincent
og vildi ekkert fremur en að þau
gætu verið fjölskylda. Og Joanie og
Vincent áttu í sambandi með hlé-
um og í janúar 2003 gengu þau aftur í
hjónaband og Marshall leit skömmu
síðar dagsins ljós.
Reyndar hafði Vincent komist upp
á kant við Ernestine, tengdamóð-
ur sína, og flutt út af heimili hjón-
anna í apríl 2003, en engu að síður
virtist sem flest allt væri í lukkunnar
velstandi.
Sunnudaginn 6. júlí, 2003, sóttu
Ernestine og Joanie messu ásamt
börnunum þremur. Í huga Joanie
var þetta sérstakur dagur því hún
sýndi safnaðarmeðlimum Marshall
litla í fyrsta skipti þann dag. Vincent
var fjarri góðu gamni, hafði far-
ið í fjögurra daga ferð til Ohio til að
heimsækja ættingja sína.
Ekkert svar
Að messu lokinni fengu Joanie,
Ernestine og börnin sér hádegisverð
með vinum sínum, þeirra á meðal
bestu vinkonu Joanie, Kelsey Spann, og
héldu síðan heim með það fyrir augum
að hvíla sig fyrir kvöldmessu – messu
sem þeim entist ekki líf til að sækja.
Tveimur dögum síðar, eftir ár-
angurslausar símhringingar, ákvað
Kelsey að renna við heima hjá Joanie
enda ekki henni líkt að svara ekki
símanum. Að utan virtist allt vera
með felldu heima hjá Joanie, en
þrátt fyrir að Kelsey aflæsti útidyrun-
um með lykli sem Joanie hafði láta
hana fá tókst henni ekki að hnika
hurðinni.
Kelsey fór þá aftur fyrir húsið og
komst inn bakdyramegin. Henni
mætti ófögur sjón og hringdi hún
í snarhasti í lögregluna sem kom á
staðinn innan örfárra mínútna – rétt
upp úr klukkan 19 – sem fannst sem
hún væri komin í hryllingshús.
Fimm fórnarlömb
Fyrsta líkið sem varð á vegi lögreglu
var lík Ernestine, hún hafði verið
skotin tvívegis í andlitið af stuttu færi
og lá á ganginum fyrir framan svefn-
herbergi sitt. Í öðru svefnherbergi
lágu lík Joanie og barnanna og virt-
ist sem þau hefðu verið myrt þar sem
þau lágu og hvíldu sig fyrir kvöld-
messuna sunnudaginn áður.
Joanie lá á grúfu, hafði verið skot-
in og stungin í höfuð, bringu og bak.
Lindsey lá á gólfinu við rúmbríkina,
í bláa sunnudagskjólnum, og hafði
verið skotin einu sinni í bakið.
Marques lá við hlið móður sinn-
ar og taldi lögreglan að hann hefði
vaknað fyrir morðin. Augu hans voru
galopin og hann hafði bitið svo fast í
hægri hönd sína að náði inn að beini.
Marshall var ekki að sjá við fyrstu
sýn og vonaði lögregla að honum
hefði verið þyrmt. Sú von varð að
engu er lík hans fannst undir kodda.
Hann hafði verið myrtur með einu
skoti í bakið.
Fölsuð undirskrift
Lögreglan fann Vincent á heim-
ili móður hans í Norður-Kaliforníu
og færði honum tíðindin. Þegar þar
var komið sögu var hann sá eini sem
grunaður var um aðild að morðun-
um, en hann hafði lagt í ferðalag fjór-
um dögum fyrir morðin og lögregla
gat ekki með góðu móti borið brigð-
ur á fjarvistarsönnun hans að svo
komnu máli.
En síðar hljóp á snærið hjá lög-
reglu er nágranni Joanie upp-
lýsti lögreglu um að hann hefði séð
Vincent við hús Joanie um svipað
leyti og morðin voru framin. Þegar
lögreglan fór í saumana á skrá yfir
notkun Vincents á bílaleigubíl, sem
hann hafði leigt til ferðalagsins, kom
í ljós að sú vegalengd sem hann hafði
ekið var miklum mun lengri en frá
Ohio til Kaliforníu og til baka.
Bróðirinn bendlaður við málið
Vincent lagði fram, til staðfestingar
fjarvist sinni, nokkrar kvittanir fyr-
ir kaupum í Norður-Kaliforníu sem
átt höfðu sér stað á morðdaginn. En
lögreglan lét ekki blekkjast og rann-
sókn á kreditkortakvittununum og
upptökum úr öryggismyndavélum
viðkomandi verslana leiddi í ljós að
bróðir Vincents, Melvin, hafði notað
kortin og falsað undirskrift Vincents.
Þegar gengið var á Melvin gafst hann
upp á lygunum og játaði að hafa, að
beiðni Vincents, notað kreditkortið.
Að sögn ákæruvaldsins hafði
Vincent ekki verið við eina fjölina
felldur í ástamálum og myrt fjöl-
skyldu sína til að losna við þá fjár-
hagslegu byrði sem henni fylgdi.
Vincent Brothers var, 15. maí
2007, sakfelldur fyrir fimm morð og
27. september sama ár var kveðinn
upp yfir honum dauðadómur og bíð-
ur hann nú örlaga sinna á dauða-
deild San Quentin-fangelsisins. n
„Augu hans
voru galopin
og hann hafði bitið
svo fast í hægri
hönd sína að náði
inn að beini
Fjölskylduna
Komst ekki upp með glæpinn
Vincent Brothers myrti fjölskyldu
sína með köldu blóði.
Grunaðir um
morð árið 1989
Tveir bræður frá Michigan í
Bandaríkjunum hafa verið hand-
teknir og ákærðir fyrir morð sem
framið var fyrir 25 árum, nán-
ar tiltekið árið 1989. Bræðurn-
ir heita Matthew og Paul Jones
og eru á fimmtugsaldri. Þeir eru
ákærðir fyrir að hafa myrt Shann-
on Siders sem þá var aðeins átján
ára. Siders hvarf eftir að hafa
farið út með vinum sínum 17.
júlí þetta ár. Það var ekki fyrr en
þremur mánuðum síðar, eða í
október 1989, að lík Siders fannst
í skóglendi í Michigan. Bræðurn-
ir voru lengi grunaðir um aðild
að hvarfinu, ekki síst vegna þeirr-
ar staðreyndar að síðast sást til
Siders í bifreið bræðranna. Lög-
reglumönnum tókst hins vegar
ekki að sýna fram á það með
óyggjandi hætti að bræðurn-
ir væru sekir um hvarfið. Árið
2011 tók sérstök deild innan lög-
reglunnar, sem rannsakar gömul
og óupplýst sakamál, málið upp.
Með nýrri tækni var lögregla fljót
á sporið og voru bræðurnir hand-
teknir á dögunum. Verði þeir
fundnir sekir eiga þeir á hættu
að fá lífstíðarfangelsisdóm án
möguleika á reynslulausn.
Horfði á HM og
var handtekinn
Yfirmaður fíkniefnasamtakanna
Arellano Felix Mexíkó var hand-
tekinn í Tijuana á þriðjudag.
Maðurinn sem um ræðir heitir
Fernando Sanchez Arellano og
gekk undir viðurnefninu Verk-
fræðingurinn. Hann er talinn
bera ábyrgð, að hluta til, á morð-
um og limlestingum sem plag-
að hafa Tijuana á undanförnum
árum.
Að sögn AP-fréttastofunnar
var Fernando að horfa á landsleik
Mexíkóa og Króata á heimsmeist-
aramótinu í knattspyrnu þegar
hann var handtekinn. Lögregla
lagði hald á jafnvirði hundrað
þúsund dollara, 11,5 milljóna
króna, á heimili hans. Að sögn
heimildarmanns AP var Fern-
ando með andlitsmálningu í
mexíkósku fánalitunum þegar
hann var gómaður skömmu áður
en leikurinn var flautaður af.
Hann tók við stjórnartau-
munum í glæpasamtökunum
af frænda sínum, Javier Arella-
no Felix, árið 2006 þegar Javier
var handtekinn og framseldur
til Bandaríkjanna. Sá var síðar
dæmdur í 40 ára fangelsi í San
Diego fyrir að smygla gríðarlegu
magni fíkniefna til Bandaríkj-
anna.
Samtök þeirra háðu harða
baráttu um fíkniefnamarkaðinn
í Tijuana við hina alræmdu Sina-
loa-mafíu sem haft hefur undir-
tökin á undanförnum árum.