Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 18
Helgarblað 27.–30. júní 201418 Fréttir Gerir allt eins oG Jesús Kristur n Kleópatra tók yfir rekstur Gunnars Majones n Systurnar segja hana hafa bjargað sér n Á hóp fylgjenda sem líkja henni við sjálfan Jesú Krist n „Allt í tengslum við þetta er mjög skrítið“ H ún er kölluð Majones­ drottning, jafnvel æðsti­ prestur einhvers konar „sértrúarsafnaðar“ sem ber að varast og sum­ ir segja hana vera hliðarsjálf Jesú Krists. Ljóst er að Kleópatra Krist­ björg Stefánsdóttir veitir aðdá­ endum sínum mikla andargift. Kleópatra Kristbjörg er nýr og einnig eini eigandi Gunnars Majo­ nes. Hún tekur við rekstrinum eft­ ir stormasöm ár innan fyrirtækis­ ins. Hún er ýmist mærð eða ávítt en skrautlegt og stundum dular­ fullt lífshlaup hennar vekur margar spurningar. Sjálf segir hún að óvin­ ir sínir dreifi um sig gróusögum og systurnar Nancy og Helen, fyrri eigendur Gunnars Majones, segja hana einstaka manneskju. Kleópatra Kristbjörg Stefáns­ dóttir er eins og Jesús Kristur að mati Helenar Gunnarsdóttur Jóns­ son. „Hún sér í gegnum alla og veit allt, næmari kona er ekki til. Hún segir eitthvað og það gerist og hún sér inn í framtíðina. Hún talar í dæmisögum og gerir allt eins og Jesús Kristur sem [innsk.blm] var líka krossfestur,“ segir Helen í bréfi sem hún sendi DV vegna fyrirhug­ aðrar umfjöllunar um Kleópötru. Helen er dóttir Gunnars Jóns­ sonar sem stofnaði og rak Gunnars Majones til ársins 1998 þegar hann lést. Eftir andlát Gunnars komu dætur hans, Helen og Nancy, að rekstrinum sem eigendur fyrirtæk­ isins sem rekið hafði verið í árarað­ ir sem fjölskyldufyrirtæki. Ráðinn forstjóri Árið 2009 var Kleópatra ráðin sem forstjóri Gunnars Majones sf. Hún kom þó inn í reksturinn fyrr, að sögn Helenar, eða árið 2006. Ráðn­ ing hennar vakti mikla athygli enda er Gunnars eitt þekktasta vörumerki íslenskra fyrirtækja og Kleópatra var alls óþekkt í viðskipt­ um. Hún var helst kunn í þröngum hópi aðdáenda sinna en einnig fyrir bókarskrif sín og bækurn­ ar Daggardropa og Hermikráku­ heim. Þegar DV hafði samband við Kleópötru vegna umfjöllunarinnar frábað hún sér slíkt og sagðist hafa skrifað allt sem hún vildi segja í bókinni Kleópatra villt af vegi sem kom út árið 2012. Sagði hún að flest það sem sagt væri um sig væru lygar og ósannindi. Líkt og DV hef­ ur áður greint frá virðist fyrirtæk­ ið hafa keypt upp heilu brettin af bókum Kleópötru sem gefnar voru út af Skjaldborg. Starfsmenn fé­ lagsins hafa svo fengið þessar bæk­ ur að gjöf. Í kjölfarið sendu þær Helen og Nancy frá sér bréf til blaða­ manns varðandi umfjöllunina. Þar rekja þær sögu samstarfsins við Kleópötru sem þær líkja við frelsara, heilara og yfirnáttúrulega veru. Ljóst er að Kleópatra hefur haft mikil áhrif á líf þeirra beggja. Þær segja hana hafa komið inn í reksturinn, sem og líf þeirra, á ögurstundu. Læknaði hana „Kleópatra læknaði mig af ferða­ fíkninni og ofvirkninni og lækn­ aði systur mína af öllu sem hún var, það er allt Kleópötru að þakka að við erum breyttar í dag,“ seg­ ir Helen Gunnarsdóttir. Hún segir þær systurnar hafa glímt við hina ýmsu erfiðleika sem hafi reynst þeim þungur baggi. Það hvíl­ ir þungt á þeim að Kleópatra sé í sviðsljósinu vegna fyrirtækisins. „Kleó vill helst vera ósýnileg, og helst alltaf vera upp í sveit í kyrrð og ró,“ segir hún. Það taki þær sárt að fylgjast með Kleópötru vera gerða ábyrga fyrir ákvörðunum og lífsstíl þeirra. „Ég get ekki lifað lengur með þetta á samviskunni. Mér hef­ ur lengi liðið illa með allar mín­ ar gjörðir og systur minnar, sem hafa bitnað á Kleópötru. Hún hef­ ur alltaf haldið hlífiskildi yfir okk­ ur og tekið allt á sig. Hjálpað okk­ ur eins og svo mörgum, að það myndi enginn trúa því, því það réði enginn við mig né systur mína,“ segir Helen. Hún segir þær systur hafa glímt við margvísleg vanda­ mál svo sem fjáraustur, ferðafíkn og andlega erfiðleika. „Við erum gjörbreyttar í dag. Læknaðar af öllu, við höfðum ekki komið ná­ lægt neinu bulli.“ Pínd inn í fyrirtækið Helen segir að Kleópatra hafi kom­ ið inn í reksturinn á Gunnars árið 2006. Hún sá í upphafi ekki um daglegan rekstur heldur tók að sér samningagerð á bak við tjöldin. „Kleópatra var pínd inn í fyrirtæk­ ið, hún gerði það fyrir Nancy að sjá um samninga því henni gekk svo illa að semja. Nancy lét titla sig sem framkvæmdastjóra en gerði ekkert og lét aðra manneskju vinna verkið,“ segir Helen sem seg­ ir að ef Kleópatra hefði ekki gripið í taumana á þessum tíma hefði fyr­ irtækið farið á hausinn. Hún bætir því við að stór versl­ unarkeðja á Íslandi hafði ákveðið að hætta viðskiptum við Gunnars Majones vegna slæmra samskipta við Nancy. „Kleópatra var fengin til að sjá um samninga og við þóttu­ mst ætla að sjá um reksturinn, svo réðum við Fannar Ólafsson sem framkvæmdastjóra,“ segir Helen en Kleópatra tók við starfi fram­ kvæmdastjóra af Fannari árið 2012. Upplýsingar um að Kleópatra hafi verið svo umsvifamikil gengur þó þvert á heimildir DV sem herma að hún hafi alltaf haft afar takmark­ aða aðkomu að rekstrinum. „Það er alls ekki slæmt að vinna hjá fyr­ irtækinu en þetta með forstjórann skilur fólk ekki. Það virðist vera stór klíka í kringum forstjórann. Uppgangur hennar hjá fyrirtæk­ inu er mjög einkennilegur. Þetta virðist næstum því vera einhvers konar sértrúarsöfnuður í kringum hana. Ég skil þetta eiginlega ekki en þetta er alveg stórmagnað. Það Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is „Kleópatra var pínd inn í fyrirtækið Á marga fylgismenn Fjölskylda Kleópötru svokölluð, hittist reglulega. Þau kalla sig systkini, fá sérstök nöfn og tala sérstakt tungumál. Gefur út bækur Kleópatra er dugleg við að gefa út bækur, sem oft reynast umdeildar. Suzuki utanborðsmótor 25 hestöfl fjórgengis sem nýr upplýsingar í síma 895-8299
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.