Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 70
Helgarblað 27.–30. júní 201454 Fólk
Kallað eftir kröftum
Jónínu í Framsókn
n „Ég læt ekki beita mig þrýstingi“ n Sveinbjörg er góð stelpa
Þ
ær raddir verða sífellt há-
værari innan Framsóknar-
flokksins sem vilja leiða Jón-
ínu Benediktsdóttur til valda
í flokknum. Fyrir kosningar
var stofnaður hópur á Facebook
hvers ákall var að Jónína Ben færi
fyrir borgarstjórnarflokknum eftir að
Óskar Bergsson hætti skyndilega við.
Á þessar kröfur var ekki hlustað. Í
staðinn var leitað til Guðna Ágústs-
sonar, fyrrverandi ráðherra. Hann
hrökk frá á síðustu stundu og síð-
an var ákveðið að setja Sveinbjörgu
Birnu Sveinbjörnsdóttur í fyrsta
sætið, eins og frægt er orðið. Téð-
ar raddir hafa samt ekki þagnað og
í þeim hefur Jónína heyrt. „Ég veit
að það er fólk þarna úti sem vill að
ég haldi áfram að „pönkast“ í áhrifa-
mönnum,“ segir Jónína en við alla þá
sem þyrstir í krafta hennar hefur hún
þetta að segja: „Ég nenni því ekki
lengur.“
Hafnað af valnefnd
Fyrir alþingiskosningarnar síðustu
bauð Jónína sig fram, gegn Vigdísi
Hauksdóttur, til að leiða lista Fram-
sóknar í Reykjavíkurkjördæmi suð-
ur. Í tilkynningu sem hún sendi fjöl-
miðlum sagðist hún ætla að setja
skuldamál heimilanna á oddinn
næði hún kjöri, auk þess sem hún
varaði við öðru hruni.
„Mín helstu kosningamál eru
skuldamál heimilanna og smærri
fyrirtækja og mannúðarmál. Ég hef
margar hugmyndir um peninga-
stefnu þjóðarinnar og lausn á þeim
hnúti sem við þurfum að höggva á
er varða gömlu bankana og þá nýju
reyndar einnig. Ég lít nýsköpun já-
kvæðum augum og hef verið frum-
kvöðull í áratugi.“
Jónína hlaut hins vegar ekki náð
fyrir augum valnefndar flokksins.
Það þótti henni og stuðningsmönn-
um hennar súrt í brotið en þrátt fyr-
ir það er hún enn skráð í flokkinn og
styður hann heilshugar. „Já, ég styð
Sigmund Davíð og finnst hann mjög
trúverðugur leiðtogi.“
Sveinbjörg góð stelpa
Þótt Jónína hafi lagt stjórnmálin á
hilluna fór moskumálið fræga ekki
framhjá henni frekar en öðrum. „Ég
þekki Sveinbjörgu mjög vel og bara
af góðu. Hins vegar tel ég að svona
ummæli séu ekki til þess fallin að
laga ósættið í samfélaginu, hvort
sem það er á milli trúarhreyfinga eða
hvað það nú er. Og hún er búin að
biðjast fyrirgefningar og mér finnst
að hún eigi að njóta vafans. Hún er
góð stelpa en ummælin voru mjög
óheppileg og það fannst henni líka,“
segir Jónína sem þekkir hve skaðleg-
ir fordómar gegn trúarbrögðum og
trúfélögum getur verið. Sjálf hefur
hún gengið guði almáttugum á hönd
og er eiginkona trúarleiðtogans fyrr-
verandi, Gunnars Þorsteinssonar,
sem nýlega var gerður brottrækur úr
þeim söfnuði sem hann er kenndur
við, Krossinum.
Ánægð með lífið
Efast má um að Jónína hefði stað-
ið eins að málum og Sveinbjörg en
hún er ánægð á þeim stað sem hún
er í lífi og tilveru. „Ég læt ekki beita
mig þrýstingi lengur. Ég hef tileinkað
lífi mínu detoxi og hyggst gera það
áfram.“ n
Baldur Eiríksson
baldure@dv.is
Sveinbjörg Birna „Hún er
góð stelpa en ummælin voru
mjög óheppileg og það fannst
henni líka.“ Mynd Sigtryggur Ari
Eftirsótt Jónína segist
ánægð í detoxinu.
Mynd Úr EinkASAfni
Bíta í sápu
Það hefur eflaust ekki farið fram
hjá neinum að úrúgvæski lands-
liðsmaðurinn Luis Suarez beit
andstæðing sinn enn einu sinni
á HM í liðinni viku. Samfélags-
miðlar hafa logað af góðum, mis-
góðum og hræðilegum brönd-
urum í tengslum við málið. Egill
„Gillz“ Einarsson lét sitt ekki eftir
liggja. „Þegar Hjörvar Hafliða var
3 ára og beit sinn fyrsta krakka á
leikskólanum þá lét ég hann bíta
í sápu. Ekki bitið neinn síðan.
Ekki flókið,“ skrifaði Egill á Twitt-
er um vin sinn og dagskrárstjór-
ann Hjörvar Hafliðason á Stöð 2
Sport.
Lítill við hlið Sun Ming Ming
Hafþór Júlíus á ýmislegt sameiginlegt með körfuboltastjörnunni
K
raftajötunninn, Game
of Thrones-stjarnan og
sterkasti maður Íslands,
Hafþór Júlíus Björns-
son, er stærri en flestir þeir sem
verða á vegi hans.
Í vikunni fékk Hafþór Júlí-
us, sem leikur The Mountain í
þáttunum vinsælu, að upplifa
hvernig það er að vera minni
en einhver þegar hann hitti há-
vaxna, kínverska körfubolta-
manninn Sun Ming Ming.
Sjálfur er Hafþór 2,06 metr-
ar á hæð en sá kínverski 2,36. „I
feel tiny!! Need to get BIGGER!“
skrifaði Hafþór Júlíus á Face-
book undir myndina af þeim
kumpánum sem mætti útfærast á
íslensku sem; „Mér finnst ég ponsu
lítill. Verð að STÆKKA!“ Sun Ming
Ming er „aðeins“ 168 kg og því létt-
ari en íslenski víkingurinn sem
sagði í viðtali við DV á dögunum að
hann vegi 170–180 kg.
Hafþór var á yngri árum
efnilegur körfuboltamaður og
spilaði meðal annars með ung-
lingalandsliðinu. Sun Ming
Ming hefur einnig verið að leika
í kvikmyndum meðfram körfu-
boltaferli sínum og lék með-
al annars risann í myndinni
Rush Hour 3. Hann gekk að eiga
handboltakonuna Xu Yan í fyrra
en hjónakornin eru hæstu hjón
í heimi. Xu Yan er 190 cm og
samtals eru þau því 4,26 metrar.
Þessa dagana er Hafþór
staddur á Ítalíu ásamt Líthá-
anum og kraftakarlinum Zydr-
unas Savickas, sem þekkist inn-
an bransans sem Big Z. Þeir
félagar munu dvelja í landinu út júlí
þar sem þeir munu reyna við átta
heimsmet með Guinness World
Record. Samkvæmt heimildum DV
hefur Hafþór Júlíus þegar slegið eitt
þeirra. n indiana@dv.is
Stór en ekki stærstur Það er ekki á
hverjum degi sem Hafþór Júlíus hittir ein-
hvern sem er stærri en hann.
risar Hafþór og Sun Ming Ming hafa báðir gaman af körfubolta og hafa báðir leikið. Hafþór í Game of Thrones en körfuboltamaðurinn meðal annars í kvikmyndinni Rush Hour.
Eiður fagnaði
Herbalife
Mikið var um dýrðir þegar haldið
var upp á 15 ára afmæli Herbalife
á Íslandi í vikunni. Í fararbroddi
voru að sjálfsögðu kvikmynda-
gerðarfólkið Margret Hrafns-
dóttir og Jón Óttar Ragnarsson
en hjónin kynntu Herbali-
fe fyrir Íslendingum á sínum
tíma. Á meðal þeirra sem komu
fram var hljómsveitin Kaleo og
knattspyrnustjarnan Eiður Smári
Guðjohnsen sem fjallaði með-
al annars um sínar uppáhalds
Herbalife-vörur. Í viðtali við DV á
dögunum sagði Margret að þau
hjónin myndu aldrei segja skilið
við fyrirtækið enda hefði það gert
svo mikið fyrir þau bæði með til-
liti til heilsu og fjárhags.
Hanna styður
Hillary
Mannréttindafrömuðurinn og
glæsipían Hanna Eiríksdóttir þykir
margfróð um heimsmál, sér í lagi
pólitík. Yfirleitt heldur hin djúp-
hyggna Hanna sér á hliðarlínunni
í hlutverki greinandans en nú hef-
ur hún stigið fram fyrir skjöldu og
lýst eindregnum stuðningi sínum
við væntanlegt framboð Hillary
Clinton til forseta Bandaríkjanna.
Þetta opinberar hún á Facebook-
síðu sinni. Sem kunnugt er bauð
Hillary fram krafta sína í forvali
Demókrataflokksins fyrir kosn-
ingarnar 2008 en laut í lægra haldi
gegn núverandi forseta, Barack
Hussein Obama. Ekki náðist í
Hillary við vinnslu fréttarinnar.