Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 37
Sumarhátíðir 9Helgarblað 27.–30. júní 2014 Vilja að bæjarbúar hjálpi til n Páll Óskar tilbúinn að hjálpa til n Danskir dagar eru elsta bæjarhátíðin á Íslandi B æjarhátíðin Danskir dagar í Stykkishólmi á stórafmæli í sumar og verða tuttugu ár síð- an hún var haldin fyrst. Í ár hef- ur Svanborg Siggeirsdóttir, formað- ur Eflingar Stykkishólms, kallað eftir aðstoð bæjarbúa. Óvíst er hvort há- tíðin verður haldin en eina sem er í hendi er ball með Páli Óskari. Bið- ur hún Hólmara að fylkja liði og taka höndum saman til þess að koma há- tíðinni í góðan farveg. Í aðsendri grein sem birt var í Stykkishólmspóstinum hinn 19. febrúar síðastliðinn biðlar Svanborg til bæjarbúa um að hjálpa til við hátíðarhöld. „Það er töluvert mik- ið verk að halda slíka hátíð. Það er því spurning okkar hvort bæjarbúar væru tilbúnir að taka a.m.k. einu sinni þátt í undirbúningnum,“ skrifaði hún. Að hennar sögn er búið að bóka dansleik með Páli Óskari og segir Svanborg að hann sé meira að segja tilbúinn til að aðstoða við hátíðarhöldin. „Snæfell er ekki tilbúið að vera al- farið með öll hátíðarhöldin á sínum herðum eins og var á síðustu hátíð,“ segir Svanborg, en Snæfell er ung- mennafélagið í bænum. Biður hún alla sem geta að bjóða fram aðstoð sína og með því sé hægt að dreifa álaginu. Ekki náðist í Svanborgu við vinnslu fréttarinnar. Ballið stóra atriðið „Ég held að við getum orðað þetta svona: flestir vilja hafa þetta en það nennir enginn að gera neitt,“ segir Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson, for- maður ungmennafélagsins Snæfells, í samtali við DV. Hann segir að Snæfell hafi haldið alfarið utan um Dönsku dagana í fyrra og að það hafi verið nokkuð mikið verk. Hann segir að þrátt fyrir það hafi há- tíðin gengið vel í fyrra. Hann segist ekki skilja almennilega hvers vegna Hólmarar séu tregir í taumi í ár. Í ár ætlar Snæfell aðeins að sjá um dansballið með Páli Óskari. Vilja halda dagana „Þetta er svona temmilega óákveðið enn þá. Ég veit að það verða Dansk- ir dagar í ágúst og það er búið að fá fólk í planið en dagskráin er óákveðin. Það er verið að reyna að halda dag- ana,“ segir Bjarney Inga Sigurðardótt- ir, upplýsinga- og markaðsfulltrúi við upplýsingamiðstöð Stykkishólms, í samtali við DV. Bjarney segir að ver- ið sé að reyna að hugsa hátíðina upp á nýtt og er þar litið til þess að hafa hana smærri í sniðum. Hún segir að þrátt fyrir neikvæða umræðu þá hafi hún gert könnun þar sem kom fram að flestir vildu halda Danska daga. „Það er kominn pínu leiði í fólk,“ segir Bjarney. Fyrirhugað er að hátíð- in verði haldin helgina 15. til 17. ágúst næstkomandi. n hjalmar@dv.is Áhorfendur Þrátt fyrir þreytu bæjarbúa á Dönskum dögum hefur hátíðin iðulega verið vel sótt. Á Mýrarbolta á Ísafirði er drullumallað á daginn og djammað á kvöldin. Lík- lega er besta lýsingarorðið yfir Mýrarboltann „drullu- skemmtilegt“ ef marka má vinsæld- ir hans. Mótið verður haldið í ellefta sinn um verslunarmannahelgina 2014. „Þetta er í ellefta skiptið sem keppt er í Mýrarbolta,“ segir Jón Páll Hreinsson, mýrarfáki og einn af skipuleggjendum mótsins. Óvænt til Finnlands Hann hefur komið að Mýrarbolta frá fyrstu tíð, en hugmyndin kvikn- aði þegar nokkrir vinir voru send- ir til Finnlands til þess að taka þátt í slíku móti fyrir algjöra tilviljun. „Árið eftir reyndum við svo að halda svona mót en það vildi enginn taka þátt í því. Við héldum þess vegna fótboltamót þar sem komu alls kon- ar gamlar kempur og voru með. Eft- ir mótið áttuðum við okkur á því að við vorum komnir með mýrarbolta- völl og fórum að spila. Á næsta ári skráðu sig fimmtán lið,“ segir Jón Páll. Þá fór boltinn að rúlla og ár frá ári hefur hátíðin stækkað mátulega mikið. Í fyrra voru svo öll met slegin þegar 3.000 manns komu til þess að skemmta sér á hátíðinni og keppa í mýrarbolta. Mýrarbolta svipar mjög til fótbolta nema að leikið er í mýri, en ekki á grasi. Þar að auki eru leik- reglur öllu frjálslegri og refsingar fyrir leikbrot í skrautlegri kantinum. Skemmta sér vel Skipuleggjendurnir hafa því tekið sig til og stækkað mótið, aukið við- burðafjölda og verður allt hið glæsi- legasta í ár. „Þetta hefur allt geng- ið mjög vel og við höfum verið svo heppin að fólkið sem sækir hátíð- ina er flest allt komið þangað til að keppa og skemmta sér,“ segir Jón Páll og segir þeim vera mikið í mun að hátíðin sé þannig að allir skemmti sér og skapi góðar minningar. Fræðsla mikilvæg „Við höfum verið í miklu og góðu samstarfi við systursamtök Stíga- móta, Sólstafi. Konurnar þar hafa verið með fræðslu og viðburði með okkur, frætt dyraverði og svo hafa þær selt merki sem við hvetj- um alla þátttakendur til að kaupa til að styrkja starfið þeirra. Mottó- ið okkar er: Samþykki er sexý. Þetta er okkur mjög mikilvægt, að stuðla að fræðslu um kynferðisofbeldi og tryggja öryggi gestanna okkar,“ seg- ir hann. Vilja verða Evrópumeistarar Dagskráin í ár verður fjölbreytt að venju, en meðal þeirra sem stíga á svið eru Agent Fresco, Erpur og Sesar A, Frikki Dór og Jón Jónsson. Á sunnudagskvöldinu verða svo krýndir sigurvegarar Mýrarboltans, það er Evrópumeistararnir, og er því til mikils að vinna. Jón Páll segir skráninguna fara vel af stað og aug- ljóst að enginn ætli að missa af því að taka þátt í ár. n astasigrun@dv.is Drulluskemmtilegt í Mýrarboltanum Fóru óvænt til Finnlands og hafa nú haldið ellefu mýrarboltamót Skemmtilegt og ögrandi Það eru skrautlegir dómar sem falla á mótinu og stundum þurfa menn að spila með hauspoka eftir ljót brot.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.