Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 57
Helgarblað 27.–30. júní 2014 Sport 41 F lest bendir til þess að Al- freð Finnbogason, leikmað- ur Heerenveen, verði orðinn leikmaður Real Sociedad áður en langt um líður. Hollenska blaðið De Telegraaf greindi frá því í vikunni að spænska félagið myndi greiða um einn milljarð króna fyr- ir þjónustu Alfreðs sem varð marka- kóngur hollensku úrvalsdeildarinnar í vetur. Ljóst er að Alfreð tekur skref upp á við með því að ganga til liðs við Sociedad sem verið hefur í hópi betri félagsliða Spánar undanfarin ár. Hér skoðar DV þetta sögufræga félag og samkeppnina sem væntanlega bíður þessa mikla markahróks. Undir væntingum í vetur Real Sociedad endaði í 7. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar í vor. Ár- angurinn var nokkuð undir vænting- um enda hafði liðið lent í 4. sæti tímabilið þar á undan sem tryggði liðinu þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu í vetur. Árangur liðsins í Meistaradeildinni olli vonbrigðum en liðið lék í A-riðli með Manche- ster United, Bayer Leverkusen og Shakthar Donetsk. Í sex leikjum skor- aði liðið eitt mark og fékk á sig tíu. Eina stigið sem Sociedad fékk í riðl- inum kom gegn Manchester United á heimavelli, hinir leikirnir töpuðust. Tveir með 16 mörk Talið er að forsvarsmenn Sociedad líti á Alfreð sem vænlegan kost í stað franska landsliðsmannsins Antoine Griezmann sem líklega er á förum frá félaginu. Griezmann var markahæsti leikmaður félagsins í vetur ásamt Carlos Vela, en þeir skoruðu sext- án mörk hvor í spænsku deildinni. Carlos Vela var orðaður við endur- komu til Arsenal, en á dögunum var greint frá því að hann hefði ákveðið að skrifa undir nýjan samning við Sociedad og því verður hann áfram í herbúðum þeirra. Vantar góðan framherja Það sem Sociedad hefur skort er sterkur framherji sem skorar reglu- lega. Þó að Vela og Griezmann hafi séð um þau mál í vetur eru þeir báðir vængmenn sem liggja þó mjög fram- arlega á vellinum. Fyrir hjá Sociedad eru í raun aðeins tveir hreinræktað- ir framherjar. Annar þeirra er Imanol Agirretxe sem skoraði 8 mörk í 31 leik í deildinni í vetur. Hinn er Haris Sefer- ovic, landsliðsmaður Sviss, en hon- um gekk illa að festa sig í sessi í vet- ur. Seferovic skoraði aðeins 2 mörk í 24 leikjum í deildinni en oftast var hann notaður sem varamaður. Það er ljóst að forsvarsmenn Sociedad átta sig á því að til að taka liðið lengra þarf framherja sem skorar mörk og hefur Alfreð ekki brugðist bogalistin í þeim efnum á undanförnum árum. Ekkert er öruggt með brotthvarf Griezmann og yrði verulega spennandi að sjá Al- freð með þessa frábæru leikmenn sér við hlið. Það er ljóst að hann fengi næga þjónustu og má í því samhengi benda á að Vela lagði upp þrettán mörk á síðustu leiktíð. Vel mannað lið Ljóst er að forsvarsmenn Sociedad ætla sér stóra hluti og er knattspyrn- ustjórinn Jagoba Arrasate með gríðarlega spennandi lið í höndun- um. Liðið er ekki bara vel mannað í fremstu stöðum heldur er valinn maður í hverju rúmi. Claudio Bravo var aðalmarkvörður félagsins í vetur en hann var að vísu seldur til Barcelona í vikunni. Þá er varnar- maðurinn Inigo Martinez talinn í hópi efnilegustu varnarmanna Spán- verja. Fyrirliðinn Xabi Prieto er hjart- að og sálin í liðinu en þessi þrítugi leikmaður hefur allan sinn feril leikið með Sociedad. Þá er miðjumaðurinn ungi, Sergio Canales, á mála hjá fé- laginu en hann lék um tíma með Real Madrid og Valencia. n Síðasta púslið hjá Sociedad n Félagið vantar framherja sem skorar mörk n Alfreð fengi frábæra þjónustu Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Í spænska boltann Aðeins er talið tímaspursmál hvenær tilkynnt verður um félagaskipti Alfreðs til Real Sociedad. Sociedad í hnotskurn Real Sociedad er stofnað árið 1909 en félagið er staðsett í borginni San Sebastian í Baskahéraði. Anoeta-leik- vangurinn er heimavöllur félagsins en hann tekur 32.200 manns í sæti. Liðið var meðstofnandi La Liga-deildarinnar árið 1928 og lék það samfellt í deild þeirra bestu 40 tímabil í röð, frá 1967 til 2006 að liðið féll niður í 2. deild. Segja má að gullaldarár Sociedad hafi verið í byrjun níunda áratugar síðustu aldar en þá vann liðið spænsku deildina tvisvar, 1981 og 1982. Síðan þá hefur Sociedad ekki unnið neinn stóran titil, en komst þó nálægt því tímabilið 2002/03 þegar liðið lenti í 2. sæti í spænsku deildinni og varð aðeins tveimur stigum á eftir Real Madrid. Eftir það fór að halla undan fæti og féll liðið um deild vorið 2006 sem fyrr segir. Liðið lék svo þrjú tímabil í 2. deild en komst aftur upp í úrvals- deild vorið 2009. Ótrúlegur markaskorari Alfreð Finnbogason hefur leikið með Heerenveen í Hollandi undanfarin tvö tímabil og skorað 59 mörk í 70 leikjum. Þessi ótrúlegi árangur Alfreðs hefur vakið athygli útsendara stórliða um gjörvalla Evrópu sem fylgst hafa náið með framherjan- um. Hann varð markakóngur hollensku úrvalsdeildarinnar í vetur þegar hann skoraði 29 mörk í 31 leik. Hann var sagður nálægt því að ganga í raðir Fulham í janúar en félögin komust ekki að samkomulagi um kaupverð. Alfreð hefur látið hafa eftir sér að hann hafi leikið sinn síðasta leik fyrir Heerenveen og hann muni róa á önnur mið í sumar. Sem sakir standa er Real Sociedad langlíklegasti áfangastaður hans. Sterkur Real Sociedad er ekki bara með sterka sóknar- menn á sínum snær- um. Inigo Martinez er einn efnilegasti varnarmaður Spánar. Hér er hann í baráttu við Wayne Rooney hjá Manchester United. Dujshebaev í bann Talant Dujshebaev, þjálf- ari pólska meistaraliðsins Ki- elce, hefur verið úrskurðaður í fjögurra leikja bann af pólska handknattleikssambandinu og hann fékk jafnframt sekt upp á 113 þúsund krónur. Dujs- hebaev sló þjálfara Wisla Plock, Manolo Cadenas, í magann eft- ir leik liðanna í úrslitaleik um pólska meistaratitilinn. Dujs- hebaev hafði áður ratað í fréttirn- ar hér á klakanum eftir að hann sló Guðmund Þór Guðmunds- son í punginn eftir leik Kielce og Rhein-Neckar Löwen í Meist- aradeildinni. Eftir það atvik varð þeim báðum afar heitt í hamsi og kölluðu þeir hvor annan illum nöfnum. Undankeppni á Íslandi Forkeppni Evrópumótsins í bad- minton verður haldin í nóvem- ber næstkomandi og verða riðl- arnir spilaðir í nokkrum löndum. Badmintonsamband Íslands mun halda utan um keppni í riðli fimm, en aðrir riðlar verða spil- aðir í Slóveníu, Tyrklandi, Frakk- landi, Eistlandi, Írlandi og Pól- landi. Þetta fyrirkomulag er nýtt og fer eitt land í hverjum riðli áfram í aðalkeppnina sem haldin verður í Belgíu í febrúar á næsta ári. Löndin sem eru með Íslandi í riðli eru Spánn, Tyrkland og Króatía. Spánverjar eru efstir af þessum liðum á heimslista BFW, í 30. sæti ,en Ísland situr í 64. sæti listans og er neðst af þessum fjór- um liðum. Hollendingar vinsælastir MMR gerði könnun á því hvaða lið er vinsælast hjá Íslendingum á HM í fótbolta. Athygli vekur að gestgjafar Brasilíu eru ekki vin- sælasta liðið, heldur Holland. Samtals tóku 96,8 prósent að- spurðra afstöðu til spurningar- innar um hvaða lið væri uppá- haldslið viðkomandi og sögðu 15 prósent það vera Holland. Stuðn- ingsmenn Sjálfstæðisflokksins voru líklegastir til að eiga uppá- haldslið á HM en stuðningsmenn Pírata voru ólíklegastir. Þá sögðu 43 prósent að þeir ættu ekkert uppáhaldslið í keppninni. Á eftir Hollandi var Þýskaland næstvin- sælast með 14 prósent, Brasil- ía með 5, England með 5 og loks Argentína með 3 prósent.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.