Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 52
Helgarblað 27.–30. júní 201436 Lífsstíll Ertu í fýlu? Þrjár algengar ástæður fyrir slæmu skapi og hvernig þú getur tæklað það V ið getum skellt plástri á skurði og sett kaldan bakstur á mar en hvað ger- um við þegar sárin eru andleg og verða til þess að skapið versnar og allt fer í taugarn- ar á okkur? Sálfræðingurinn Guy Winch, höfundur Emotional First Aid: Practical Strategies for Treating Failure, Rejection, Guilt and Other Everyday Psychological Injuries, sem hefur grandskoðað skapvonsku og fýlu, segir mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir ástæðu fýlunnar til að geta tekist á við hana á áhrifa- ríkan hátt. Í viðtali við U.S. News fjallaði Winch um þrjár algengar ástæður slæms skaps og hvernig við getum bætt það. 1 Höfnun Winch kallar þetta „tilfinningalega skurði og skrámur hins daglega lífs“ sem, að hans mati, er óhjákvæmilegt að verða fyrir á hverjum degi. „Stóru dæmin eru þegar eiginkonan óskar eftir skilnaði en litlu dæmin geta gert þig alveg hundfúlan,“ seg- ir Winch sem kemur með algengt dæmi: „Þú ert nýkominn til baka eftir ævintýralegt ferðalag og byrjar strax á því að henda inn myndunum á Facebook og Instragram – og bíð- ur svo eftir viðbrögðum. Einhverra hluta vegna færðu ekki eitt einasta „like“ - ekki einu sinni frá vinum sem fá alltaf „like“ frá þér á allar myndir og allar færslur. Annað dæmi gæti tengst vinnu- félögunum. Hópur á skrifstofunni tekur sig saman og fer í mat – en gleymir að bjóða þér með. Þér finnst þetta ekkert sérstaklega skemmtilegt fólk en ferð samt í fýlu yfir að hafa ekki verið boðið með. Í rauninni, segir Winch, benda rannsóknir á að heili okkar sé svo viðkvæmur fyrir höfnun að við finnum fyrir særind- um jafnvel þótt sá sem hafnar okkur sé einhver sem við fyrirlítum. Dæmi er rannsóknin sem birtist í Europe- an Journal of Social Psychology árið 2007 en þar kom í ljós að þátttak- endum sem hafnað var af ókunn- ugu fólki sárnaði höfnunin, jafnvel þegar þeir vissu að þetta fólk tengd- ist KKK. Hvernig kemstu yfir fýluna? Ef þú ert móðgaður yfir því að vinir þínir séu ekki hoppandi um af gleði yfir sumarfrísmyndunum þínum geturðu einfaldlega beðið þá um að kíkja á þær. „Einhver myndi ef- laust segja að það væri að svindla, sem ég raunar skil ekki,“ segir Winch sem mælir með því að við sendum skilaboð til tveggja, þriggja vina og spyrjum einfaldlega hvað þeim finn- ist um sumarleyfismyndirnar. „Og þá kíkja þeir og boltinn fer að rúlla og þér líður strax betur. Þú vakt- ir athygli þeirra á myndunum sem eflaust birtust í örskotsstund á vegg þeirra í flóru mynda allra 3.000 vin- anna. En hvað með vinnufélagana? Winch mælir með því að þú talir við hópinn sem þú ert vanur að hanga með og athugir hvort þeir séu ekki til í að kíkja út með þér eitt hádegið. „Ekki til að hefna þín á hinum hópn- um heldur til að minna þig á að þú þarfnast ekki fólks sem vill ekki hafa þig með. Vertu heldur með þeim sem kunna að meta þig.“ 2 Hrós Eins undarlegt og það hljómar eru gullhamrar ekki alltaf kærkomnir. Winch segir einstaklinga með lítið sjálfstraust ekki alltaf líða vel með að fá hrós þar sem hrósið getur stangast á við þeirra eigin skoðun á sjálfum sér. Winch kemur með dæmi um 19 ára stúlku sem á í erfiðleikum með að finna sér kærasta. Í hvert skipti sem hún kemur heim til foreldra sinna hrósa mamma hennar og pabbi henni fyrir útlitið. „Stúlkunni líð- ur verr fyrir vikið þar sem hennar skoðun er í algjörri mótsögn við það sem foreldrar hennar segja. Með öðrum orðum: Ef ég er svona falleg af hverju á ég ekki kærasta?“ Hvernig bætirðu skapið? Ef þú ert ósammála í hvert skipti sem einhver segir þér hversu frá- bær þú ert geturðu prófað sjálf- styrkingaraðferðir. Hugsaðu um styrkleika þinn á þeim sviðum sem þér var hrósað fyrir og skrifaðu svo niður á blað af hverju þessir kostir eru mikilvægir. Winch kemur með dæmi: „Maður sem fær reglulega að heyra hversu dásamlegur hann er gæti skrifað niður: „Ég er ekki sá dásamlegasti en ég styð mitt fólk og hef húmor fyrir sjálfum mér. Ég er til staðar fyrir mína nánustu og er góð- ur í að hlusta.““ Svona, segir Winch, geturðu bætt skapið á augabragði. 3 Sektarkennd Við viljum ekki hafa of litla sektarkennd (kort- er í siðblindu) eða of mikla sekt- arkennd (korter í kvíðakast), segir Winch sem segir jafnvægi mikilvægt til að fúnkera eðlilega. „Eðlileg sekt- arkennd lætur þig vita þegar þú ert við það að gera eitthvað rangt og gætir sært aðra manneskju. Þegar við upplifum sektarkennd hverfur góða skapið gjarnan.“ Hvernig bætum við skapið að nýju? Samkvæmt Winch verðum við stundum að gera það erfiða til að bæta skapið – það er, biðjast fyrir- gefningar. „Okkur er kennt frá unga aldri að biðjast afsökunar. Fimm ára krakka þykir það lítið mál en þegar við erum orðin fullorðin eiga margir erfitt með það og muldra orðin gjarnan milli varanna,“ segir Winch sem er harður á að slíkt sé ófull- nægjandi afsökunarbeiðni. „Alvöru afsökunarbeiðni er margþætt. Ef þú biður skýrt afsökunar ertu að segjast sjá eftir því sem gerðist um leið og þú biður um fyrirgefningu. Auk þess, og kannski það mikilvægasta, þarftu að vera einlægur til að hún virki. Af- sökunarbeiðni snýr að manneskj- unni sem þú biður afsökunar, ekki þér sjálfum. Ef þú ert óstundvís og veldur því að vinur þinn missir af spennandi atburði þá skaltu ekki kenna strætó um. Skap þitt mun ekki batna nema þú leysir um allan spenning á milli þín og þess sem þú gerðir á hlut. n indiana@dv.is Bættu skapið Hlustaðu á uppáhalds tónlistina þína „Passaðu bara að velja eitthvað hresst,“ segir Grethceh Rubin, höfundur metsölubókarinnar The Happiness Project. Rann- sóknir sýna að tíu mínútur af klassískri tónlist bæta skapið – og lækka blóðþrýsting. Gefðu þér tíma Ákveddu að þú fáir 20 mínútur til að haga þér eins og þér líður. Brjóttu egg eða lemdu koddann þinn. Passaðu bara að meiða engan. Hreyfðu þig Samkvæmt Rubin tengist orku- leysi oft vondu skapi. „Gerðu eitt- hvað til að örva hjartsláttinn en það mun lyfta anda þínum.“ Finndu góða lykt Lyktaðu af appelsínu, uppáhalds kreminu þínu eða nýja kaffinu. Fljótleg og áhrifarík leið til að bæta skapið. Talaðu við einhvern Flest viljum við fá að vera í friði þegar við erum í fýlu en með því að tala við einhvern – kassadöm- una í Bónus til dæmis – batnar skapið. Ef þér líður eitthvað illa í vinnunni skaltu ganga um og ræða við einhvern í nokkrar mín- útur. Farðu í sólina Eyddu eins miklum tíma úti í sólinni og skapið verður miklu betra. Kláraðu eitthvað af listanum þínum Oft kennum við í brjósti um okk- ur þegar við erum í vondu skapi og finnst við eiga skilið smá frí. En með því að ráðast í eitthvað sem hefur setið á hakanum – þótt það sé ekki nema senda póstinn sem þú hafðir gleymt – muntu finna skapið batna. Um leið og það er farið af stað finnurðu hvernig álagið minnkar. Gerðu eitthvað fyrir aðra Settu vandamál þín í samhengi við þeirra sem eiga við raunveru- leg vandamál að stríða. Þrífðu Röð og regla hefur góð áhrif á skapið. Ef þú ert eitthvað óhress prófaðu þá að laga til á skrif- borðinu þínu. Þú upplifir þig í betri stjórn ef þú veist hvar hlutirnir eru. laumast til að gera matinn hollari í huga margra er hollur matur bragðlaus matur. Á sama tíma vilja æ fleiri hollari valkost í mat- vælum. Þetta hlýtur að setja veitingahús og matvælafyrirtæki í klípu en lausnin, samkvæmt Wall Street Journal ,er svokallað „stealth health“ sem gæti útfærst sem „laumuleg hollusta“ á íslensku. Samkvæmt Wall Street Journal hafa veitingahús og matvælafyr- irtæki tekið upp á því að laumast til að gera vörur sínar hollari án þess að láta kúnnann vita. Með því að bæta vöruna smám saman til hins betra tekur kúnninn ekki eft- ir breytingunni en verður alsáttur þegar hann fær vitneskju um að uppáhalds kexið hans er alls ekki jafn óhollt og hann hafði alltaf haldið. „Ef þú segir fólki að eitthvað sé hollt finnst þeim bragðið versna,“ segir forstjóri veitingahúsakeðj- unnar Boston Market, en fyrir- tækið hafði minnkað saltinnihald margra vara sinna smám saman um nokkurra mánaða skeið áður en við- skiptavinir fengu um það vitneskju. Svipaða sögu er að segja af fyrir- tækinu Kraft sem framleiðir vin- sæla kexið Oreos en fyrirtækið hafði minnkað innihald transfitu smám saman áður án þess að geta þess. General Mills hefur einnig not- að þessa aðferð. „Það tekur nokkra mánuði, ef ekki ár, að ná réttu jafn- vægi milli hollustu og bragðs,“ sagði gæðastjóri General Mills, sem endurskoðaði saltmagnið í tilbúnu súpunum sínum. n indiana@dv.is Viðskiptavinurinn vill hollan en bragðgóðan mat Salt Salt í óhóflegu magni er óhollt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.