Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 34
6 Sumarhátíðir Helgarblað 27.–30. júní 2014 „Vinaleg og ljúf hátíð“ S andara- og Rifsaragleðin verður haldin á Hellissandi og í Rifi á Snæfellsnesi helgina 11. til 13. júlí næst- komandi. Dagskráin er far- in að taka á sig mynd en meðal þess sem ber hæst er ball með Páli Óskari Hjálmtýssyni í Röstinni og þá verður Ari Eldjárn með uppistand í Frysti- klefanum í Rifi. Kári Viðarsson, leik- ari og leikhúseigandi, segir heima- menn orðna spennta fyrir hátíðinni – þá bókstaflega klæi í danstærnar. „Það lítur allt út fyrir að þetta verði svakalega góð hátíð í ár,“ segir Kári hress í bragði. Hátíðin hvíld annað hvert ár Sandara- og Rifsaragleðin er haldin annað hvert ár, á móti annarri bæj- arhátíð Snæfellsbæjar – Ólafsvíkur- vöku. Kári segir fyrirkomulagið henta bæjarbúum vel. „Fólk fær þá tíma til að hvíla sig á þessu líka. Það er mjög hentugt því þetta er gert í svo mikilli sjálfboðavinnu. Það eru allir svo tjill- aðir á Sandinum – við viljum ekkert vera að stressa okkur um of,“ segir Kári og hlær. Dagskrá hátíðarinnar byggist að mestu á heimamönnum sjálfum. Þeir sjá meðal annars um tónleikahald, leiksýningar, markaði og götugrill. „Þetta er mjög lókal hátíð,“ segir Kári. „Það sem einkennir hátíðina helst er bara gleðin. Það eru allir svo hressir og kátir. Mestmegnis eru þetta brott- fluttir heimamenn sem koma aftur heim og hitta gamla vini og bekkjar- félaga. Svo er veðrið alltaf svo gott,“ segir hann og slær á létta strengi. Allir garðar stútfullir Á Hellissandi búa tæplega fjögur hundruð manns og í Rifi er skráður 161 íbúi samkvæmt nýjustu tölum. Gera má því ráð fyrir að íbúafjöldi margfaldist meðan á hátíðarhöldum stendur. „Allir garðar verða til dæm- is stútfullir af fólki. Margir vinir mínir hafa komið og tjaldað í garðinum hjá mér og þannig er þetta úti um allt. Þetta er bara mjög vinaleg og ljúf há- tíð,“ segir Kári. Spurður um hvað honum þyki helst standa upp úr nefnir Kári götu- grillin. „Það er mikið lagt upp úr því að hafa stuð í götugrillunum. Í göt- unni minni er til dæmis alltaf karókí. Svo er auðvitað alltaf gaman að fara á ball í Röstinni, sem er náttúrlega besti ballstaður á landinu.“ Svefnpokapláss í leikhúsinu Á mörgum bæjarhátíðum hefur verið tekið upp á því að skipta bænum upp í nokkur hverfi og fær hvert hverfi út- hlutað ákveðnum lit sem einkennir skreytingar hverfisins. Á Hellissandi og í Rifi horfir öðruvísi við. „Það er alltaf mjög spennandi laumuspil í gangi um hvernig göturnar verða skreytt- ar. Göturnar velja sjálfar nýtt þema á hverju ári og síðan er keppni um hver er með bestu skreytingarnar. Eitt árið var til dæmis kínverskt þema í einni götunni. Skreytingarnar einkenndust af skærum litum, drekum og þá var öllum númerum skipt út fyrir kínversk tákn. Þetta eru miklir húmoristar sem búa hérna,“ segir Kári. Hafi einhver áhuga á að fara vest- ur á Sandara- og Rifsaragleðina, en vantar gistingu, er hægt að hafa samband við Kára, en hann mun opna farfuglaheimili í Frystiklefan- um í næstu viku. „Þetta verður svona viðburða-hostel. Ég leik sýningarn- ar mínar á bæði íslensku og ensku og verð með mikla dagskrá í gangi í sumar. Síðan býð ég upp á svefn- pokapláss í leikhúsinu. Þetta verður mjög kósí,“ segir Kári Viðarsson leik- ari að lokum. n aslaug@dv.is Sandara- og Rifsaragleðin í Snæfellsbæ 11.–13. júlí „Það eru allir svo tjillaðir á Sandinum Býður upp á svefnpokapláss Kári Viðarsson, leikari og eigandi Frystiklefans í Rifi. Mynd Sigtryggur Ari Lopapeysuball og rauðhærðir Íslendingar Írskir dagar á Akranesi haldnir í fimmtánda sinn Akranes lætur sitt ekki eft- ir liggja þegar kemur að útihá- tíðum sveitarfélaga. Sú útihátíð sem Akraneskaupstaður býð- ur landsmönnum upp á er með írskum blæ en Írskir dagar verða haldnir í fimmtánda sinn í ár. Hátíðin verður að venju fyrstu helgina í júlí, nánar tiltekið 3.–6. júlí. Á Írskum dögum er ávallt valinn rauðhærðasti Íslendingur- inn og því er ekki úr vegi að rauð- hært fólk úr nærliggjandi sveitar- félögum geri sér ferð og láti reyna á titilinn. Einnig er haldið götu- grill á föstudeginum og tónleikar þar á eftir á Akratorgi sem frítt er inn á. Á þeim tónleikum í ár koma fram Björgvin Halldórsson, Sigga Beinteins og margir fleiri. Lopapeysan svokallaða er loks hápunktur hátíðarinnar en þar er blásið til heljarinnar dansiballs. Hún verður haldin laugardags- kvöldið 5. júlí við Akraneshöfn á tveimur sviðum og með stóru úti- svæði. Fram koma meðal annars Páll Óskar, Erpur, Helgi Björns- son, Ingó veðurguð, Skítamórall, Steindi Jr. og Friðrik Dór. V ið lærðum alveg ótrúlega margt á þessu. Þetta er besti skóli sem ég hef farið í,“ seg- ir Gígja Sara Björnsson, ein þeirra sem setti á laggirnar Pólar Festival á Stöðvarfirði í fyrrasum- ar. Hátíðin vakti mikla athygli, þá sérstaklega fyrir framtakssemi ung- mennanna sem að henni stóðu. Skipuleggjendur voru þau Katrín Helena Jónsdóttir, Marteinn Sindri Jónsson, Gígja Sara og Viktor Pétur Hannesson. Hugmyndin á bak við Pólar var sú að fólk kæmi og deildi hæfileikum sínum með öðrum gest- um hátíðarinnar með vinnusmiðj- um og námskeiðum. Hátíðin var haldin samhliða sjálfbæru þorpshá- tíðinni Maður er manns gaman. „Þetta áttu fyrst að vera tónleikar í kirkjunni á Stöðvarfirði, en svo óx verkefnið mjög hratt og fór að tengj- ast sköpunarmiðstöðinni á svæðinu. Við höfðum öll þessa tilfinningu, að það ætti eitthvað að gerast á Stöðv- arfirði og við unnum með það. Þetta er fallegur staður og það var gaman þegar það fór allt á flug. Við ákváð- um að bjóða fólki að koma og vera með viðburði og sjá hvað myndi gerast,“ segir hún og segist hafa vilj- að blanda þessu við „Reykjavíkur- hipster stemningu,“ og láta þessa tvo heima mætast. „Okkur langaði að læra af þeim sem eru eldri og að þeir lærðu af okk- ur. Til dæmis þá hugsuðum við: Af hverju kann enginn að binda bagga lengur?“ og ákváðum að fá fólk til að kenna það,“ segir Gígja. „Við vissum auðvitað ekkert hvað við vorum að fara út í. En við fund- um strax fyrir mikilli hvatningu. Það er kosturinn við Ísland, allir þeir sem höfðu reynsluna og vissu hvern- ig svona ætti að gera voru fljót að bregðast við og hjálpa okkur,“ segir hún og bætir við að á sjálfri hátíðinni hafi hlutirnir ekki endilega gengið upp eins og þeir áttu að gera, en allt hafi farið í reynslubankann og verið látið ganga upp. „Það var eiginlega alveg ótrúlegt þegar fólkið byrjaði að koma á hátíðina. Mér leið pínulítið eins og ég ætti að senda það til baka, en svo var þetta bara alveg magnað- ur tími,“ segir hún. Ákveðið var að hvíla hátíðina í ár þegar styrkir vegna hennar bárust frekar seint. Þess í stað ætla aðstand- endur hennar að koma fílefld til baka og reynslunni ríkari á næsta ári. n astasigrun@dv.is „Þetta er besti skóli sem ég hef farið í“ Pólar Festival á Stöðvarfirði var tilraun sem heppnaðist vel Myndir gígjA SArA BjörnSSon Ekki týnast – notaðu appið Það geta allir lent í vandræðum á ferðalagi sínu um landið. Þeir sem eru með snjallsíma geta hins vegar sótt sér íslenska snjallfor- ritið 112 Iceland. Tilgangur apps- ins er að auðvelda Neyðarlínunni að finna týnda ferðamenn með því að skilja eftir GPS-slóð og fá nánari upplýsingar um þá. Með forritinu geta ferðamenn kallað eftir aðstoð lögreglu eða björgunarsveita ef um slys eða óhapp er að ræða. Einnig geta þeir nýtt það til að skilja eftir sig slóð, „brauðmola“, en slíkar upplýsingar geta skipt sköpum ef óttast er um afdrif viðkom- andi ferðalanga og leit þarf að fara fram. Ekki er þörf á gagna- sambandi til þess að nýta for- ritið, hefðbundið GSM-samband nægir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.