Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Page 59

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Page 59
Helgarblað 27.–30. júní 2014 Skrýtið Sakamál 43 Faðir myrðir n Drap eiginkonu sína og börn n Fjarvistarsönnun hélt ekki vatni V incent Brothers var í ágætisstarfi sem aðstoðar- skólastjóri við Fremont- grunnskóla í Bakersfield í Kaliforníu í Bandaríkj- unum. Eiginkona hans, Joanie, var vel þokkuð og áttu þau þrjú börn; Marques, fjögurra ára, Lindsey, tæp- lega tveggja ára, og Marshall, hálfs árs. En hjónaband Vincents og Joanie hafði ekki farið varhluta af erfiðleik- um. Joanie ól Marques árið 1998 og var Vincent víðs fjarri við það tæki- færi, en Joanie og Vincent gengu ekki í hjónaband fyrr en árið 2000. Hjóna- bandið varð skammlíft og þau sögðu skilið við hvort annað mánuði eftir að hafa heitið hvort öðru ævarandi tryggð. Síðar sama ár fæddist Linds- ey og virtist sem Vincent léti sig það litlu varða og lét ekki sjá sig við það tækifæri. Haltu mér – slepptu mér Hjónabandið var ógilt árið 2001 og bar Vincent við sígildum ósættan- legum ágreiningi en Joanie bar við brigslum, að sögn vegna þess að á þeim tíma sem þau gengu í hjóna- band hafði hún enga vitneskju haft um þá staðreynd að Vincent hafði verið kvæntur í tvígang fyrir. Vinir og vandamenn Joanie töldu þó fullvíst að Joanie elskaði Vincent og vildi ekkert fremur en að þau gætu verið fjölskylda. Og Joanie og Vincent áttu í sambandi með hlé- um og í janúar 2003 gengu þau aftur í hjónaband og Marshall leit skömmu síðar dagsins ljós. Reyndar hafði Vincent komist upp á kant við Ernestine, tengdamóð- ur sína, og flutt út af heimili hjón- anna í apríl 2003, en engu að síður virtist sem flest allt væri í lukkunnar velstandi. Sunnudaginn 6. júlí, 2003, sóttu Ernestine og Joanie messu ásamt börnunum þremur. Í huga Joanie var þetta sérstakur dagur því hún sýndi safnaðarmeðlimum Marshall litla í fyrsta skipti þann dag. Vincent var fjarri góðu gamni, hafði far- ið í fjögurra daga ferð til Ohio til að heimsækja ættingja sína. Ekkert svar Að messu lokinni fengu Joanie, Ernestine og börnin sér hádegisverð með vinum sínum, þeirra á meðal bestu vinkonu Joanie, Kelsey Spann, og héldu síðan heim með það fyrir augum að hvíla sig fyrir kvöldmessu – messu sem þeim entist ekki líf til að sækja. Tveimur dögum síðar, eftir ár- angurslausar símhringingar, ákvað Kelsey að renna við heima hjá Joanie enda ekki henni líkt að svara ekki símanum. Að utan virtist allt vera með felldu heima hjá Joanie, en þrátt fyrir að Kelsey aflæsti útidyrun- um með lykli sem Joanie hafði láta hana fá tókst henni ekki að hnika hurðinni. Kelsey fór þá aftur fyrir húsið og komst inn bakdyramegin. Henni mætti ófögur sjón og hringdi hún í snarhasti í lögregluna sem kom á staðinn innan örfárra mínútna – rétt upp úr klukkan 19 – sem fannst sem hún væri komin í hryllingshús. Fimm fórnarlömb Fyrsta líkið sem varð á vegi lögreglu var lík Ernestine, hún hafði verið skotin tvívegis í andlitið af stuttu færi og lá á ganginum fyrir framan svefn- herbergi sitt. Í öðru svefnherbergi lágu lík Joanie og barnanna og virt- ist sem þau hefðu verið myrt þar sem þau lágu og hvíldu sig fyrir kvöld- messuna sunnudaginn áður. Joanie lá á grúfu, hafði verið skot- in og stungin í höfuð, bringu og bak. Lindsey lá á gólfinu við rúmbríkina, í bláa sunnudagskjólnum, og hafði verið skotin einu sinni í bakið. Marques lá við hlið móður sinn- ar og taldi lögreglan að hann hefði vaknað fyrir morðin. Augu hans voru galopin og hann hafði bitið svo fast í hægri hönd sína að náði inn að beini. Marshall var ekki að sjá við fyrstu sýn og vonaði lögregla að honum hefði verið þyrmt. Sú von varð að engu er lík hans fannst undir kodda. Hann hafði verið myrtur með einu skoti í bakið. Fölsuð undirskrift Lögreglan fann Vincent á heim- ili móður hans í Norður-Kaliforníu og færði honum tíðindin. Þegar þar var komið sögu var hann sá eini sem grunaður var um aðild að morðun- um, en hann hafði lagt í ferðalag fjór- um dögum fyrir morðin og lögregla gat ekki með góðu móti borið brigð- ur á fjarvistarsönnun hans að svo komnu máli. En síðar hljóp á snærið hjá lög- reglu er nágranni Joanie upp- lýsti lögreglu um að hann hefði séð Vincent við hús Joanie um svipað leyti og morðin voru framin. Þegar lögreglan fór í saumana á skrá yfir notkun Vincents á bílaleigubíl, sem hann hafði leigt til ferðalagsins, kom í ljós að sú vegalengd sem hann hafði ekið var miklum mun lengri en frá Ohio til Kaliforníu og til baka. Bróðirinn bendlaður við málið Vincent lagði fram, til staðfestingar fjarvist sinni, nokkrar kvittanir fyr- ir kaupum í Norður-Kaliforníu sem átt höfðu sér stað á morðdaginn. En lögreglan lét ekki blekkjast og rann- sókn á kreditkortakvittununum og upptökum úr öryggismyndavélum viðkomandi verslana leiddi í ljós að bróðir Vincents, Melvin, hafði notað kortin og falsað undirskrift Vincents. Þegar gengið var á Melvin gafst hann upp á lygunum og játaði að hafa, að beiðni Vincents, notað kreditkortið. Að sögn ákæruvaldsins hafði Vincent ekki verið við eina fjölina felldur í ástamálum og myrt fjöl- skyldu sína til að losna við þá fjár- hagslegu byrði sem henni fylgdi. Vincent Brothers var, 15. maí 2007, sakfelldur fyrir fimm morð og 27. september sama ár var kveðinn upp yfir honum dauðadómur og bíð- ur hann nú örlaga sinna á dauða- deild San Quentin-fangelsisins. n „Augu hans voru galopin og hann hafði bitið svo fast í hægri hönd sína að náði inn að beini Fjölskylduna Komst ekki upp með glæpinn Vincent Brothers myrti fjölskyldu sína með köldu blóði. Grunaðir um morð árið 1989 Tveir bræður frá Michigan í Bandaríkjunum hafa verið hand- teknir og ákærðir fyrir morð sem framið var fyrir 25 árum, nán- ar tiltekið árið 1989. Bræðurn- ir heita Matthew og Paul Jones og eru á fimmtugsaldri. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa myrt Shann- on Siders sem þá var aðeins átján ára. Siders hvarf eftir að hafa farið út með vinum sínum 17. júlí þetta ár. Það var ekki fyrr en þremur mánuðum síðar, eða í október 1989, að lík Siders fannst í skóglendi í Michigan. Bræðurn- ir voru lengi grunaðir um aðild að hvarfinu, ekki síst vegna þeirr- ar staðreyndar að síðast sást til Siders í bifreið bræðranna. Lög- reglumönnum tókst hins vegar ekki að sýna fram á það með óyggjandi hætti að bræðurn- ir væru sekir um hvarfið. Árið 2011 tók sérstök deild innan lög- reglunnar, sem rannsakar gömul og óupplýst sakamál, málið upp. Með nýrri tækni var lögregla fljót á sporið og voru bræðurnir hand- teknir á dögunum. Verði þeir fundnir sekir eiga þeir á hættu að fá lífstíðarfangelsisdóm án möguleika á reynslulausn. Horfði á HM og var handtekinn Yfirmaður fíkniefnasamtakanna Arellano Felix Mexíkó var hand- tekinn í Tijuana á þriðjudag. Maðurinn sem um ræðir heitir Fernando Sanchez Arellano og gekk undir viðurnefninu Verk- fræðingurinn. Hann er talinn bera ábyrgð, að hluta til, á morð- um og limlestingum sem plag- að hafa Tijuana á undanförnum árum. Að sögn AP-fréttastofunnar var Fernando að horfa á landsleik Mexíkóa og Króata á heimsmeist- aramótinu í knattspyrnu þegar hann var handtekinn. Lögregla lagði hald á jafnvirði hundrað þúsund dollara, 11,5 milljóna króna, á heimili hans. Að sögn heimildarmanns AP var Fern- ando með andlitsmálningu í mexíkósku fánalitunum þegar hann var gómaður skömmu áður en leikurinn var flautaður af. Hann tók við stjórnartau- munum í glæpasamtökunum af frænda sínum, Javier Arella- no Felix, árið 2006 þegar Javier var handtekinn og framseldur til Bandaríkjanna. Sá var síðar dæmdur í 40 ára fangelsi í San Diego fyrir að smygla gríðarlegu magni fíkniefna til Bandaríkj- anna. Samtök þeirra háðu harða baráttu um fíkniefnamarkaðinn í Tijuana við hina alræmdu Sina- loa-mafíu sem haft hefur undir- tökin á undanförnum árum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.