Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Qupperneq 4
Helgarblað 27.–30. júní 20144 Fréttir Árétting: Kærunni vísað frá Í frétt um kæru sem Hreiðar Már Sigurðsson lagði fram á hend- ur Benedikt Bogasyni, núverandi hæstaréttardómara og fyrrver- andi héraðsdómara, á miðviku- daginn kom ekki fram að ríkis- saksóknari væri búinn að vísa kærunni á hendur honum frá. Það áréttast hér með að kæru Hreiðars Más gegn Benedikt hefur sannarlega verið vísað frá og mun málið því ekki fara fyrir dómstóla líkt og kemur fram í greininni að hugsanlega gæti gerst. Gunnar Bragi í Kína Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra er þessa dagana í heimsókn í Kína ásamt viðskipta- sendinefnd. Frá þessu segir í til- kynningu frá ráðuneytinu. Til- gangur heimsóknarinnar er að kynna sér starfsemi íslenskra fyrirtækja í Kína og hvernig auka megi samstarf og viðskipti ríkj- anna. Gunnar hefur þegar hitt viðskiptaráðherra Kína, Gao Hucheng, vegna gildistöku frí- verslunarsamnings Íslands og Kína hinn 1. júlí næstkomandi. Þeir ræddu að sögn samninginn, ferðamál og orkumál auk þess að ræða samvinnu á Drekasvæðinu. Þá var rætt um áhuga íslenskra fyrirtækja á sölu kjöt- og mjólkur- afurða í Kína. Gunnar Bragi hitti einnig varautanríkisráðherra Kína, Wang Chao, en þeir ræddu meðal annars Norðurslóðamál og um- hverfisvernd. Í dag, föstudag, hittir Gunn- ar Bragi svo utanríkisráðherr- ann, Wang Yi. „Þá ávarpar hann viðskiptaþing íslenskra og kín- verskra fyrirtækja en á þinginu er lögð áhersla á matvælaútflutning, þ.m.t. sjávarafurðir,“ segir í til- kynningunni. „Mér er ekki sama um barnið mitt“ Robert Alexander er pabbinn sem skildi barnið eftir sofandi hjálmlaust á hjóli fyrir utan Bónus É g er ekki hissa á því að myndin hafi farið út um allt – þannig virkar netið – en ég er hissa á að sá sem bend- ir á barn í hættu geri ekk- ert í málunum. Ef þetta var svona hættulegt, af hverju beið hún ekki hjá barninu? Hún segist hafa gert það en ég sá engan þegar ég kom út úr búðinni,“ segir Robert Alexand- er Lilley en mynd af syni hans, Jóni Jökli, sofandi hjálmlaus í reiðhjóla- stól fyrir framan Bónus í Skeifunni, fór eins og eldur um sinu um netið fyrir nokkru. Ekki heimskur né sama Robert, sem er Ástrali en búsettur hér á landi, segist 99,9 prósent viss um að barnið hafi ekki verið í hættu. „Ég er ekki heimskur og mér er ekki sama um barnið mitt. Ég hef hjólað alla ævi og veit að hjólið var ekki að fara að detta. Kannski ef það hefði komið jarðskjálfti en hann hefði aldrei getað ýtt sér sjálfur. Hann er ekki nógu sterkur.“ Robert segist ekki hafa feng- ið áfall þegar hann sá myndina á netinu. „Ég hafði áhyggjur af því hvað mamma hans myndi segja en sjálfum sárnaði mér mest að vita að konan hefði tekið mynd og sett á Facebook í stað þess að bjarga barninu fyrst þetta var svona hættu- legt. Ætlaði hún að horfa á barnið detta? Mér finnst frekar glatað að fólk sé að fetta fingur út í aðra en geri svo ekkert í málunum sjálft. Þetta segir mikið um manneskjuna sem tók myndina.“ Deyr ekki úti Robert segist hafa geng- ið með soninn á bakinu þar sem hann hafi sofnað. „Þess vegna var hann ekki með hjálm. Ég vildi ekki vekja hann svo ég setti hann í stólinn og leyfði honum að sofa á meðan ég hljóp inn í búðina til að kaupa sviðasultu og banana,“ segir hann og bætir aðspurður við að hann myndi líklega ekki skilja barnið eftir úti í ástralskri borg. „Ég myndi ekki gera þetta í Sydney en kannski í úthverf- unum. Ég skildi hann oft eftir í vagni fyrir utan ræktina þegar hann var minni enda vissi ég að ef hann færi að gráta yrði ég lát- inn vita. Hann deyr ekki þótt hann bíði úti hér á landi og það er enginn að fara að taka hann. Ég er líka viss um að það sé hollt fyrir börn að sofa úti í fríska, kalda loftinu. Sjálfur vil ég hafa kalt í svefnherberginu mínu.“ Umboðsmaður barna, Margrét María Sigurðardóttir, tjáir sig ekki um einstök mál en segir að almennt séð verði að hafa að leiðarljósi það sem barninu sé fyrir bestu. Ekki séu til neinar reglur um svona mál þótt ýmsar vísbendingar séu til sem tengist þá aldri barns, þroska og að- stæðum. n „Ég vildi ekki vekja hann svo ég setti hann í stólinn og leyfði honum að sofa á meðan ég hljóp inn í búðina til að kaupa sviðasultu og banana. Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Myndin umdeilda Myndin fór eins og eldur í sinu um netið fyrir stuttu. Feðgar Robert segist hafa hjólað alla ævi og sé 99,9 prósent viss um að Jón Jökull hafi ekki verið í hættu. „Gott að sofa vel heila nótt“ Ásbjörg fær að gista í aukaherbergi hjá Rúnari Þór tónlistarmanni Þ að var gott að sofa vel heila nótt,“ segir Ásbjörg Margrét Emanúelsdóttir, sextíu og sjö ára gömul kona, sem hefur sof- ið í bílnum sínum frá því í febrúar. DV fjallaði um mál Ásbjargar í vikublaði sínu fyrr í vikunni. Þar kom fram að Ásbjörg missti íbúð sem hún hafði keypt árið 2007 í janúar síðastliðnum. Ásbjörg flutti í kjölfarið í bílinn sinn og þrátt fyrir að neyðin væri stór fékk hún ekki félagslegt húsnæði á vegum Reykjavíkurborgar. Hún hefur ekki efni á því að leigja sjálf á almennum leigumarkaði þar sem krafist er fyrir- framgreiðslu og hárra bankaábyrgða. Eftir umfjöllun DV hafði Rúnar Þór Pétursson tónlistarmaður samband við Ásbjörgu og bauð henni aukaher- bergi í íbúð sinni. Henni var frjálst að gista þar eins og lengi og hún þyrfti. Ásbjörg þekktist boðið og var afskap- lega þakklát. „Þetta var mikill mun- ur fyrir mig,“ segir hún. Í kjölfarið fór hún til fundar við ráðgjafann sinn hjá Reykjavíkurborg sem vonaði að skrið- ur kæmist á mál hennar og hægt væri að koma henni í varanlegt húsnæði. „Þessi kona er að vestan svo ég þekki aðeins til hennar og veit að þetta er góð manneskja,“ sagði Rúnar. Hann segir að Ásbjörgu hafi brugðið þegar hann hringdi með heimboðið. „Henni brá. Þetta fólk býst ekki við að neinn geri neitt fyrir það þegar það hef- ur farið í gegnum allt þetta batt- erí, skrifstofu milli skrifstofu. Þessi segist ætla að hjálpa, hinn segist ætla að hjálpa, en svo er ekkert gert,“ segir Rúnar. n astasigrun@dv.is Fékk húsaskjól Rúnar bauð Ásbjörgu gistingu. Hún hefur ekki ákveðið hversu lengi hún verður hjá honum í aukaherberginu hans, en vonar að með fréttunum hafi komist skrið á mál hennar hjá Reykjavíkurborg. Fjölbreyttar vörur í öllum litum fyrir bæjarhátíðina! FAXAFEN 11 • 108 REykjAvík • 534-0534
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.