Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Síða 6
Helgarblað 27.–30. júní 20146 Fréttir Jón Óttar hefur unnið í Samherjamálinu n Tengist að minnsta kosti fjórum sem snerta sérstakan saksóknara n Starfaði þar sjálfur J ón Óttar Ólafsson, fyrrver- andi starfsmaður sérstaks sak- sóknara, hefur einnig unnið fyrir útgerðarfélagið Samherja í tengslum við rannsókn emb- ættisins á meintum gjaldeyrisbrot- um félagsins. Þetta staðfestir forstjóri Samherja, Þorsteinn Már Baldvins- son, í samtali við DV. Blaðið greindi frá því á þriðjudaginn að Jón Óttar hefði unnið greinargerð fyrir Hreið- ar Má Sigurðsson í AL-Thani-málinu svokallaða. Jón Óttar starfaði hjá embætti sér- staks saksóknara til ársins 2012 en þá kom fram opinberlega að hann og kollegi hans hefðu selt þrotabúi Mile- stone skýrslu um starfsemi félagsins sem meðal annars byggðist á upplýs- ingum frá embættinu. Greiðslan fyrir skýrsluna nam 30 milljónum króna. Jón Óttar var kærður fyrir brot í starfi en kærunni var vísað frá. Greinir gögn frá Seðlabankanum Þorsteinn Már segir að Jón Óttar hafi verið fenginn til að greina gögn frá Seðlabanka Íslands um viðskipti Samherja með fisk og gjaldeyrisvið- skipti félagsins almennt. Til rann- sóknar eru meint gjaldeyrisbrot og hefur Samherji fengið mikið magn gagna frá Seðlabanka Íslands um rannsóknina. „Við höfum verið að láta yfirfara þau gögn sem við feng- um frá Seðlabanka Íslands. Þetta er mikið magn gagna sem við feng- um eftir að ríkissaksóknari ákvað að Seðlabankinn ætti að láta okkur fá þessi gögn. Jón Óttar hefur verið að vinna í því fyrir okkur að yfirfara þessi gögn.“ Gögnin sem um ræðir eru rann- sóknargögnin í hinu meinta gjald- eyrisbrotamáli Samherja en málið er nú hjá sérstökum saksóknara eftir að Seðlabanki Íslands vísaði því þangað í kjölfar rannsóknar sinnar. Dómari kærður Á mánudaginn greindi Fréttablað- ið frá því á forsíðu sinni að dótturfé- lag Samherja, Polaris Seafood, hefði kært Ingveldi Einarsdóttur héraðs- dómara til lögreglustjórans á höfuð- borgarsvæðinu fyrir meint brot gegn almennum hegningarlögum. Kær- an snýst um húsleitarheimild sem Ingveldur veitti Seðlabanka Íslands og embætti sérstaks saksóknara vegna húsleitar hjá Samherja í mars 2012. Samherji telur að ekki hafi ver- ið lagaheimild fyrir húsleitinni. Í viðtali við Morgunblaðið á mánu- daginn sagði Arna Bryndís Baldvins Mcclure, lögfræðingur sem starfar hjá Samherja, um málið: „Kæra hef- ur verið lögð fram til Lög reglu stjór- ans á höfuðborg ar svæðinu þar sem Ing veld ur er kærð fyr ir brot gegn al- menn um hegn ingar lög um.“ Tvö mál Á síðustu viku hefur verið greint op- inberlega frá tveimur kærum sem lagðar hafa verið fram gegn dómur- unum Ingveldi Einarsdóttur og Bene- dikt Bogasyni vegna meintra brota í starfi. Fyrrverandi forstjóri Kaup- þings, Hreiðar Már Sigurðsson, kærði Benedikt vegna símhlerunarúrskurð- ar sem hann veitti embætti sérstaks saksóknara árið 2010. Líkt og DV greindi frá á þriðju- daginn byggist kæran gegn Bene- dikt meðal annars á vitnisburði Jóns Óttars sem var annar af lögreglu- mönnunum sem sótti símhlerunarúr- skurðinn heim til Benedikts. Hann vildi ekki ræða um það mál við DV. Jón Óttar tengist því tveimur mál- um sem verið hafa til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara þar sem aðil- arnir sem til rannsóknar eru hafa kært tvo dómara fyrir meint lögbrot í starfi. Í báðum tilfellum var um að ræða dómara sem veittu embætti sérstaks saksóknara og Seðlabanka Íslands ákveðnar heimildir til rannsókna, annars vegar heimild til símhlerunar og hins vegar heimild til húsleitar. Tekið skal fram að ríkissaksóknari vísaði kærunni gegn Benedikt Boga- syni frá á þeim grundvelli að hún væri fyrnd. Kæran gegn Ingveldi er hins vegar ný, var bara lögð fram á mánu- daginn, og er því á borði Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ber vitni í máli Pálma Þá hefur DV heimildir fyrir því að Jón Óttar muni bera vitni í skaða- bótamáli Pálma Haraldssonar gegn slitastjórn Glitnis næsta haust. Það mál er höfðað vegna málskostnað- ar sem féll á Pálma vegna skaðabóta- máls sem Glitnir höfðaði gegn honum og fleirum í New York. Jón Óttar var beðinn um það sem starfsmaður sér- staks saksóknara að greina slitastjórn Glitnis frá efni hleraðra samtala þeirra einstaklinga, meðal annars Pálma, sem slitastjórnin stefndi í New York. Fréttablaðið greindi frá þessu nú í júní en þar var Jón Óttar ekki nafn- greindur heldur aðeins sagt frá því að starfsmönnum sérstaks saksóknara hefði verið gert að greina slitastjórn Glitnis frá efni hleraðra samtala. Af þessu sést að Jón Óttar hefur komið að að minnsta kosti þremur málum sem snerta embætti sérstaks saksóknara beint eða óbeint. Hann neitar því hins vegar að hafa nokkurn fjárhagslegan ávinning af sínum störf- um, líkt og fram kom í DV á þriðju- daginn: „Ég fæ ekki krónu frá nein- um […] Ég er að gera það sem ég er að gera af því ég vil að sannleikurinn komi í ljós.“ n „Ég er að gera það sem ég er að gera af því ég vil að sannleik- urinn komi í ljós. Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Vinnur gegn sérstökum Jón Óttar vinnur umtalsvert fyrir þá aðila sem til rannsóknar eru hjá sérstökum saksóknara en hann starfaði þar áður sjálfur. Kærði dómara til lögreglunnar Samherji kærði dómara til lögreglunnar vegna húsleitarheimildar sem hann veitti árið 2012. Þorsteinn Már Baldvins- son er forstjóri Samherja. Slökkviliðsmönnum dæmdar bætur Akureyrarbær þarf að greiða sjö milljónir alls A kureyrarbær er skaðabóta- skyldur vegna uppsagna tveggja slökkviliðsmanna í tengslum við eineltismál sem upp komu þar í fyrra. Kostnaðurinn af málaferlunum hleypur á sjö millj- ónum króna. Slökkviliðsstjórinn Þorbjörn Guðrúnarson lét af störfum í júní í fyrra en Anton Berg Carassco, aðal- trúnaðarmaður Slökkviliðsins á Ak- ureyri, segir í samtali við Akureyri Vikublað, sem greinir frá málinu, að hlutir hafi batnað mjög innan liðsins eftir að Þorbjörn hætti. „Þeir embættismenn bæjar- ins sem áttu að höndla þessi mál, bæjarlögmaður, starfsmannastjóri og bæjartæknifræðingur brugðust ekki síður en hann. Þegar hlutir eru komnir á hvolf var ekki brugðist við með réttum hætti,“ er haft eftir Ant- oni. „Ég fagna því að dómurinn hafi staðfest það sem við vissum, að þessi uppsögn væri ólögleg,“ segir Ingimar Eydal, fyrrverandi varaslökkviliðs- stjóri, í samtali við blaðið en hann er annar þeirra sem höfðaði málið. Sveinbjörn Dúason, fyrrverandi varðstjóri hjá slökkviliðinu, er hinn slökkviliðsmaðurinn sem höfðaði málið en hann sagði í stefnu sinni gegn bænum, að því er Akureyri Vikublað greinir frá, að Þorbjörn hafi verið „kvalari“. Óvild hans hafi valdið Sveinbirni fjárhagslegu tjóni og álits- hnekki. Verkefni hafi kerfisbundið verið færð frá honum og upplýsing- um haldið frá honum. Sveinbjörn hafi neyðst til að fara í launalaust leyfi í desember 2011, þegar til hafi staðið að segja upp tíu starfsmönn- um. Hann hafi verið orðinn lang- þreyttur á stanslausu áreiti og óvild á vinnustað. Enginn yfirmaður hafi verið tilbúinn til að grípa inn í. n simon@dv.is Slökkviliðsmenn að störfum Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki beint. MynD SIGTryGGur ArI Gullfallega söngkonan og skemmtikrafturinn LEONCIE vill skemmta um allt Ísland í alls kyns mannfögnuðum og skemmtunum með alla sína helstu smelli. Sími 854-6797 musicleoncie @gmail.com www.youtube.com/ IcySpicyLeoncie Geymið auglýsinguna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.